Morgunblaðið - 28.04.1998, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 28.04.1998, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær faöir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, HÁKON STEINDÓRSSON, Engihjalla 1, Kópavogi, lést af slysförum föstudaginn 24. apríl. Kristín Hákonardóttir, Bjarni Guðmundsson, Ásgerður Hákonardóttir, Svanþór Ævarsson, Nanna Hákonardóttir, Grétar Már Steindórsson, Kolbrún Hákonardóttir, Eiður Alfreðsson, Guðrún K. Magnúsdóttir og barnabörn. + Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR I. GUÐMUNDSDÓTTIR, Hringbraut 91, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 25. apríl sl. Þórir K. Karlsson, Jean Karlsson, Guðmundur Karlsson, Svanhvít Magnúsdóttir, Jónína Karlsdóttir, Guðbjörg Karlsdóttir, Haraldur Óskarsson. «• + Móðir okkar, MARGRÉT EINARSDÓTTIR, Vlðimel 19, Reykjavík, lést á Landakotsspítala föstudaginn 24. aprfl. Unnur Þorkelsdóttír, Inga Þorkelsdóttir, Ingibergur Þorkelsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BERGÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, Vestri-Pétursey, Mýrdal, lést á Sjúkrahúsi Reykavlkur aðfaranótt sunnudagsins 26. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Guðmundur Elíasson, Guðrún Brynja Guðjónsdóttir, Bergur Eliasson, Hrönn Lárusdóttlr og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, FANNEY HELGADÓTTIR, Asparfelli 4, Reykjavfk lést á Landspítalanum laugardaginn 25. apríl. Útför verður auglýst síðar. Karl Ásgeirsson, Ásgeir Ásgeirsson. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRÐAR INGIMUNDAR ÞÓRÐARSONAR, Norðurbrún 1, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu- daginn 2. apríl sl. Jóhannes G. Þórðarson, Hulda M. Þórðardóttir, Þorvaldur Þórðarson, Jóna G. Þórðardóttir, Þorsteinn Eyjólfsson, Ágústa Á. Þórðardóttir, Leo van Beek, barnabörn og barnabarnabörn. INGIGERÐ UR JÓNSDÓTTIR Ingigerður Jónsdóttir fædd- ist í Jónshúsi í Reykjavík 5. októ- ber 1912. Hún and- aðist á heimili dótt- ur sinnar 20. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 25. desember 1854, d. 9. ágúst 1933, og Guð- björg Jónsdóttir, f. 28. júní 1884, d. 31. ágúst 1948. Hún átti fjögur alsystkin, þar af er einn bróðir á lífi, einnig átti hún fjögur hálf- systkin sem öll eru látin. Ingigerður giftist 7. júní 1930 Guðmundi Einari Þorkelssyni, f. 20. október 1906, d. 4. október 1968, og eignuðust þau tvær dætur. 1) Gunnhildur Guð- mundsdóttir, f. 3. október 1930, gift Jóni Gunnari Stefánssyni. Börn þeirra eru Ingigerður, gift Hún er dáin hún tengdamóðir mín, sátt við guð og menn og hvíld- inni fegin. Farin á fund feðra sinna, laus við öll veikindi og trúlega fann að taka til hendi á nýjum stað. Eg lít 34 ár til baka, þegar ég óharðn- aður unglingur, fékk mína fyrstu eldskírn hjá henni, um hvað og hvað ekki ég mætti. Það var aðeins upphaf að langri og góðri vináttu. í dag stendur eftir minning um ein- staka, stolta konu sem var ófeimin við að takast á við lífíð og láta skoð- un sína í ljós, skoðun sem kom ávallt frá hjartanu. En ég held að allir hafí fyrirgefið henni þá ein- lægni. Hún átti stóran þátt í upp- fræðslu sona minna og það var ekki sjaldan sem hún greip til svokall- aðrar hagræðingar á sannleikanum þeim til varnar er upp komust ein- hver prakkarastrik. Enda sann- kölluð amma sem var elskuð og virt. Oft mátti vart á milli sjá hvort við hjónin eða hún réð uppeldi þeirra. Hún var mikil hannyrða- kona og skipta þau tugum útsaum- uðu veggteppin og stólarnir sem eru eftir hana. Einstök listaverk sem bera merki um listræna sköp- un og nákvæmni. Hún vann lengi á Gistiheimilinu Snorrabraut 52 og í Landsbanka Islands, Austurstræti. Hún kunni hvergi við sig nema í miðbænum og var það hennar mesta skemmtun að loknum vinnu- degi að setjast á bekk í Austur- stræti og fylgjast með iðandi mannlífínu, koma við í sjoppunni og kaupa sér sælgæti sem hún gæti maulað á leið heim í strætó. 82 ára hætti hún hjá Landsbankanum eft- ir 26 ára starf. Hún hafði þá trú að allt væri hægt ef aðeins viljinn væri fyrir hendi og það sannaði hún 77 ára er hún réðst í að kaupa sér íbúð þá sem hún hafði áður leigt í 29 ár. Hún hafði ákveðið að hætta störf- um að hausti til fyrir fjórum árum, en þá byrjuðu veikindin að herja á hana og var hún sífellt á milli heim- ilis og spítala. I janúar greindist hún með alvarlegan sjúkdóm og í framhaldi af því tók dóttir hennar hana heim til sín þar sem hún naut ástar og umhyggju allra aðstand- enda. Alla hennar tíð hafði hún ver- ið að kryfja vanda annarra og velta sér upp úr hlutunum, það kom því ekki á óvart þegar hún var hætt að geta tjáð sig að hún tók upp á því að syngja til að koma frá sér skila- boðum þótt slitrótt væru. Skrifaði dóttir hennar það niður, við eftir- Jóni Halldórssyni, synir þeirra eru Halldór Haukur og Jón Gunnar. Stefán, giftur Guðrúnu Halldórsdóttur, börn þeirra eru Inga Dóra og Jón Gunnar. Guðmund- ur Einar, giftur Sesselju Gunnars- dóttur, börn þeirra eru Gunnar Snorri og Gunnhildur Ósk. Hulda, gift Birgi Friðjónssyni, dóttir þeirra er Anna Mar- ía. 2) Sigríður Guðmundsdóttir, f. 5. ágúst 1946, gift Einari Högnasyni. Synir þeirra eru Þorsteinn, Högni, sambýliskona hans er Kristín Ásta Alfreðs- dóttir, dóttir þeirra er Andrea Sif, og Guðmundur Einar. Útför Ingigerðar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. grennslan var þetta hluti úr kvæði og var hún greinilega að reyna að þakka fyrir sig, og kveðja. Að lokum þegar stjömumar lýsa bláan geim ég legg af stað og þakka liðnu árin. Eg lít til baka vina og horfi til þín heim, í hinsta sinn og brosi gegnum tárin. (Valdimar Hólm Hallstað.) Blessuð sé minning hennar. Einar Högnason. Amma mín, söknuðurinn og minningin um þig verða ávallt í hjarta mínu, því engan hef ég elsk- að eins mikið og misst. Eg man það eins og það hafi gerst í gær þegar við strákarnir fórum vikulegu bæj- arferðirnar okkur eftir skóla. Þrammað var upp og niður Lauga- veginn og skoðað í búðir, en há- punktur ferðarinnar var samt ávallt að koma við á Snorrabrautinni og heilsa upp á ömmu. Þegar ég hringdi bjöllunni og sagði til nafns heyrðist ávallt: „Já, Guðmundur minn.“ Þegar ég hugsa um þetta í dag kemur fyrst bros á varir mínar en síðan söknuður og tár í minn- ingu minnar ástkæru og glaðlegu ömmu sem vildi mér allt gott gera. Amma hafði alltaf gaman af að segja sögur, ein er mér þó alltaf efst í huga. Það er sagan sem hún sagði mér af manninum sem hafði komið eina nóttina, hann hafði tekið stiga sem lá fyrir utan og lagt hann upp að glugganum hjá henni. Hún hafði vaknað um nóttina og séð manninn vera að fúska eitthvað fyi’- ir utan, svo hún fór að fylgjast með honum, þegar hann bankaði á svefnherbergisgluggann hjá henni á annarri hæð, opnaði hún glugg- ann og spurði manninn hvort hann væri að heimsækja sig. Manninum brá svo mikið að hann var fljótur að fara niður stigann og ganga frá honum og koma sér í burtu. Eg spurði hana af hverju hún hefði ekki hringt á lögregluna. Sagði hún þá að þetta hefði verið ungur og myndarlegur maður sem hefði ef- laust bara farið húsavillt. En svona var hún amma mín, hún tók öllum opnum örmum með bros á vör og var mjög ræðin. En svo kom að því sem á endan- um kemur fyrir okkur öll að kjarnakonan sem þrammaði niður Laugaveginn til vinnu í 26 ár, veikt- ist og náði sér ekki almennilega aft- ur. I dag er hún komin á betri stað þar sem henni líður vel og þangað sem hún á skilið að vera eftir allt það sem hún hefur gert. Minning hennar og kærleikur mun ávallt vera mér efst í huga, þegar ég hugsa aftur til allra þeirra stunda sem ég hef verið í návist hennar get ég ekki annað en brosað því ég veit að hún er á góðum stað í góðum höndum. Þinn Guðmundur Einar Einarsson. í dag leggjum við til hinstu hvílu okkar elskulegu ömmu Gerðu. Við systkinin eigum það sameiginlegt að hafa á framhaldsskólaárum okk- ar búið hjá henni í litlu íbúðinni hennar á Snoirabraut 50, auk þess að dvelja um lengri eða skemmri tíma þegar við Vestfirðingarnir skruppum suður. Amma Gerða var Reykjavíkur- mær úr miðbænum og bjó sín ból aldrei langt frá honum. Hún var af þeirri kynslóð sem lifði hinar stór- stígu framfarir þessarar aldar þar sem fyrstu áfangarnir voru erfíðir. Helguðust lífsviðhorf hennar mjög af því og sagðist hún alltaf eiga allt af öllu. Sjómannskonan amma Gerða varð ekkja eftir afa okkar Guðmund Einar Þorkelsson aðeins 56 ára og er hún því í minningu okkar ein að sjá um sín mál. Hún starfaði við þjónustustörf tengd þrifum. Lengst af á Gisti- heimilinu á Snorrabraut 52, ásamt því að starfa síðustu 28 árin, eða til 82 ára aldurs, sem ræstitæknir í Landsbanka Islands. I störfum hennar og öðru sem hún tók sér fyrir hendur mátti alveg líta út í hornin. A sama hátt báru hannyrð- ir hennar vitni um þolinmæði og vandvirkni og prýða verk hennar mörg heimilin. Amma Gerða var mjög sérstæð- ur persónuleiki og eftirsótt heim að sækja. Snorrabraut 50 var því við- komustaður margra og líklega eitt vinsælasta „kaffihús" Reykjavíkur um langt skeið, þar sem pakkar, ferðalög og svermerí stigu upp úr spádómsbollunum. Mannlegur áhugi var ömmu Gerðu í blóð bor- inn og var það hennar helsta dægrastytting að sitja á góðum degi í miðbænum og fylgjast með mannlífinu, spá í tískuna og gera það upp við sig hvað væri smart og hvað væri púkó. Ekkert var henni óviðkomandi í þeim efnum og var hún sjálfskipaður innahússarkitekt og tískuráðgjafi okkar. Gjafmildi hennar var mikil og var hún skipu- lögð í þeim efnum. Okkur fannst þetta góður eiginleiki. Amma hefði gjarnan viljað ferðast meira en hún gerði, til að sjá annað fólk og ann- ars konar mannlíf, enda lygndi hún aftur augunum þegar hún rifjaði upp bekkinn á ráðhústorginu í Köben og dönsku vínarbrauðin. Ekkert kynslóðabil þekkti hún og sést best af því að vinir okkar urðu hennar vinir. Hún átti gjarnan samskipti við fólk sem var mun yngra en hún. Hispursleysi hennar gerði það að verkum að hún gat þótt kynlegur kvistur við fyrstu kynni, enda ekki á hverjum degi sem menn kynntust konu sem hafði stökkt ræningjum á flótta með leik- fangabyssu úti í Bretlandi, átt í bréfaskriftum við danskan mann upp úr ástarbréfadálkum Hjemmets, eða talaði svo góða út- lensku að hún var ráðin sérstaklega til að sinna japönskum loðnueftir- litsmönnum. Þegar langömmubörnin komu til sögunnar varð amma Gerða að „ömmu ljóma“, enda ekki við hæfi að nefna hana jafn hversdagslegu nafni og langömmu. Litróf hennar var ekki í pastellitum heldur miklu sterkara. Fyrir okkur systkinin svo og marga aðra var amma Gerða hluti af því akkeri sem öllum er nauðsynlegt í lífinu. Þegar við kveðjum hana í dag er ekki bara söknuður í huga heldur líka þakk- læti yfír því að hafa notið þess að ferðast með henni á fyrsta farrými í gegnum lífið, þar sem hún var allt í senn: uppalandi, ráðgjafi og vin- ur. Síðustu mánuði fyrir andlát sitt var hún svo lánsöm í veikindum sínum að dvelja á heimili Sigríðar dóttur sinnar og Einars tengdason- ar síns í góðu yfirlæti. Meðan hún gat bað hún eitt okkar sérstaklega að nefna það hve góður hann Einar hefði alltaf verið við sig og þakka honum fórnfýsina. Við treystum góðum Guði til að annast sál sómakonunnar ömmu okkar Gerðu. Ingigerður, Stefán, Guðmundur Einar og Hulda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.