Morgunblaðið - 28.04.1998, Síða 59

Morgunblaðið - 28.04.1998, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 59 FÓLK f FRÉTTUM BÍÓIN í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir BÍÓBORGIN Mr. Magoo ★ Ofyndin mynd, 20 árum of seint á ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo. The Rainmaker ★★★ Dágott réttardrama með Matt Damon fínum í hlutverki nýgræð- ings í lögfræðistétt. L.A. Confidential ★★★Vií Frambærilegri sakamálamynd en maður á að venjast frá Hollywood þessa dagana. Smart útlit, laglegur leikur og ívið flóknari söguþráður en gerist og gengur. Litla hafmeyjan ★★★‘A Falleg og fyndin kvikmynd þar sem töfrar ævintýrsins blómstra að fullu. Flubber ★★ Dáðlítil, einsbrandara gamanmynd um viðutan prófessor og tölvufígúr- ur. Robin Williams hefur úr litlu að moða. Skemmtun fyi-ir smáfólkið. SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA Mr. Magoo ★ Óiyndin mynd, 20 árum of seint á ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo. Fallen Svæfandi, bitlaus, langdregin og lítt hrollvekjandi hryllingsmynd. Sphere ★Vá Vísinda- og sálfí-æðitryllir sem hittir ekki í mark og má þar um kenna los- aralegu handriti og lélegi'i leik- stjórn. Rocket Man ★★ Hringavitleysa um fyrstu, mönnuðu geimferðina til Mars. Fyndin á köfl- um. Litla hafmeyjan ★★★V2 Falleg og íyndin kvikmynd þar sem töfrai- ævintýrsins blómstra að fullu. Desperate Measures ★★ Formúluhasarmynd frá Bai’bet Schroeder sem hvorki er fugl né fiskur Flubber ★★ Dáðlítil, einsbrandara gamanmynd um viðutan ptófessor og tölvufígúr- ur. Robin Williams hefur úr litlu að moða. Skemmtun fyrir smáfólkið. Tomorrow Never Dies ★★★ Bond myndirnar eru eiginlega hafn- ar yfir gagnrýni. Farið bara og skemmtið ykkur. HÁSKÓLABÍÓ Búálfar ★★★ Virkilega skemmtileg barna- og fjöl- skyldumynd, sem hægt er að mæla með fyrir alla aldursflokka. Á hættumörkum ★★ Sæmileg spennumynd sem tekur stundum á taugarnar en er ekki sér- lega áhugaverð. Líf mitt í bleiku ★★★ Lítil og nett mynd sem tekur á stór- um málum einsog hræsni og þröng- sýni. Og óvenjuleg þar sem hún gengur út frá því að sumir séu ekki í réttu kyni samkvæmt umbúðunum. Til umhugsunar fyrh’ afhommara og almenning. Undur vel leikin og sér- stök. Kundun ★★!4 Faglega gerð kvikmynd um ævi 14. Dalai Lama er frekai’ leikin heimild- armynd en bíómynd. Anastasia ★★★ Disney er ekki lengur eitt um hituna í gerð úrvalsteiknimynda. Anastasia jafnast á við það besta sem gert hef- ur verið. Frábærar teikningar, per- sónur og saga, sem fer frjálslega með sögnina af keisaradótturinni (?) og byltingu öreiganna. Wag the Dog ★★'/•2 Sniðug og vel til fundin kvikmynd sem hefur ýmislegt til síns máls, en handritið er ekki nógu beitt. Hnefaleikarinn ★★★ Átakanleg og raunsæ mynd um ófrjálst líf Norður-íra. Snilldarvel leikin en persónudramað mætti vera sterkara. Bíóstjarnan Húgó ★★V4 Sagan mætti vera skemmtilegri, en Húgó er sætur og börnum fínnst hann fyndinn. Titanic ★★★% Mynd sem á eftir að verða sígild sökum mikilfengleika, vandaðra vinnubragða í stóru sem smáu, virð- ingu fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástarsaga og ótrúlega vel unnin end- urgerð eins hrikalegasta sjóslyss veraldarsögunnar. Stikkfrí ★★1/2 Islensk gaman- og spennumynd þar sem þrjár, barnungar leikkonur bera með sóma hita og þunga dags- ins og reyna að koma skikk á mis- gjörðir foreldranna. KRINGLUBÍÓ Mr. Magoo ★ Ófyndin mynd, 20 árum of seint á ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo. Litla hafmeyjan ★★★>/í Falleg og fyndin kvikmynd þar sem töfrar ævintýrsins blómstra að fullu. Djarfar nætur ★★★ Frábærlega vel gerð mynd um klámiðnaðinn í Bandaríkjunum í kringum 1980. Góður leikur. Flubber ★★ Dáðlítil, einsbrandara gamanmynd um viðutan prófessor og tölvufígúr- ur. Robin Williams hefur úr litlu að moða. Ágæt skemmtun fyrir smá- fólkið. LAUGARÁSBÍÓ Hoodlum *!4 Klisjuverk útí gegn, þar sem svip- ljótir gangsterar takast á á götum Harlem Allir fyrir einn ★★ Ævintýramynd í stíl gullaldarmynda Hollywood. Vænlegt þrjúbíó en ekki mikið meira. Það gerist ekki betra ★★★% Jack Nicholson í sallafínu formi sem mannhatari, rithöfundur og geðsjúk- lingur sem tekur ekki inn töflurnar sínar - fyrr en gengilbeinan Helen Hunt, homminn Greg Kinnear og tíkin vekja upp í honum ærlegar til- finningar. Rómantískai’ gaman- myndir gerast ekki betri. Vítamín- sprauta fyrir geðheilsuna. REGNBOGINN Jackie Brown ★★!4 Nýja myndin hans Tarantinos er fagmannleg, vel leikin, oft fyndin, en næstum drukknuð í óhófslengd. Allt snýst um flókna fléttuna (minnir á The Killing meistara Kubricks), allir reyna að hlunnfara alla útaf háifri milljón dala. Persónurnar, allar mis- miklar minnipokamanneskjur, eru dýrðlega leiknar af Samuel L. Jackson, Bridget Fonda, Robert Forster, Michael Keaton og ekki síst Pam Giier. Anastasia ★★★ Disney er ekki lengur eitt um hituna í gerð úrvalsteiknimynda. Anastasia jafnast á við það besta sem gert hef- ur verið. Frábærar teikningar, per- sónur og saga, sem fer frjálslega með sögnina af keisaradóttirinni (?) og byltingu öreiganna. Good Will Hunting ★★!/> Sálarskoðun ungs manns í vörn gagnvart lífinu. Frekar grunn en ágætlega skemmtileg. Spice World ★★ Kryddpíurnar hoppa um og syngja og hitta geimverur einsog Stuðmenn forðum daga. Allt í lagi skemmtun fyrir fólk sem þolir dægurflugur stúlknanna. STJÖRNUBÍÓ Skjóttu eða vertu skotinn ★★!4 Stíllinn er á hreinu í þessari mynd. Töff kvikmyndataka og leikur, en sagan, sem fjallar um leigumorð- ingja og hefnd, mætti vera frum- legri. Líf mitt í bleiku ★★★ Lítil og nett mynd sem tekur á stór- um málum einsog hræsni og þröng- sýni. Og óvenjuleg þar sem hún gengur út frá því að sumir séu ekki í réttu kyni samkvæmt umbúðunum. Til umhugsunar fyrir afhommara og almenning. Undur vel leikin og sér- stök. Það gerist ekki betra ★★★ Jack Nicholson í sallafínu formi sem mannhatari, rithöfundur og geðsjúk- Iingur sem tekur ekki inn töflurnar sínar - fyrr en gengilbeinan Helen Hunt, homminn Greg Kinnear og tíkin vekja upp í honum ærlegar til- finningar. Rómantískar gaman- myndir gerast ekki betri. Vítamín- sprauta fyrir geðheilsuna. Körfuboltahundurinn Buddy ★★ Hundurinn Böddi er mikill leikari og skytta og það bitastæðasta ásamt vináttutengslunum sem skapast á milli drengs og hunds í annars held- ur ómerkilegri unglingamynd. Til bjargar regnskóg- unum TRUDIE Sfyler, skipuleggjandi tónleika til bjargar regnskóg- unum, og fatahönnuðurinn Donatella Versace voru við- staddar hádegisverð sem „Lad- ies Earth Day“ héldu í New York á dögunum. Hádegisverðurinn var hluti af fjáröflunarviðburðum og kynningarátaki vegna verndun- ar regnskóganna og þeirra sem ’þá byggja. Donatella afhenti heiðursverðlaun sem voru veitt í boðinu. Tónleikarnir, sem Trudie Styler hefur umsjón með, verða 27. apríl en þar kemur eigin- maður hennar Sting meðal ann- ars fram auk Eltons John, James Taylor og Joe Cocker. Sérinnflutt frá Þýskalandi á þýsku Buxur Bolir Ves kr.1495 lcr. 399 |K|| krLjj Stuttbuxur Sumarkjólar kr. 995 kr. 1995-2999 'erði fyrir þig Dragtir 5 kr. 6999 Blússur 5 kr. 995-1995 Önnur frábær tilboð Verslunarhús €Tuelle Dalvegi 2 - Sími: 564 8 hluta Privileg Privileg Privileg Privileg Privileg 1.8 Itr Privileg Privileg Borvél í tösku m. pottasett brauðvél ísvél saumavél samlokugrill suðukanna gufustraujám ryksuga öllum fylgihlutum Kr. 3900,- —W A— Kr. 9900,- Kr. 4900,- Kr. 14900,- Kr. 1895,- Kr. 1890,- Kr. 1890,- Kr. 6900,- kr. 4900 k á áH fpf æSfi V.W Fw vSajB % ' y 5 { * é W k W J f4 k\ Hv 1 y i i 7 A 1 J ] | ®uelle Queiie Quelle Quelle

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.