Morgunblaðið - 08.05.1998, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Margir þingmenn enn á mælendaskrá Alþingis um hálendismálin
Þingmenn tala daglangt
fyrir hálftómum salnum
Morgunblaðið/RAX
FÁIR þingmenn voru í þingsölum í gær þegar Svanfrfður Jónasdóttir var langt komin með
fimm og hálfs tima ræðu sína um sveitarstjómarmál í gær.
Yfir 40 þingmenn hafa
rætt frumvarp til laga
um sveitarstjórnarmál
síðustu daga og er um-
ræðan að verða með
þeim lengri á Alþingi
um einstakt mál. Jó-
hannes Tómasson leit
inn í þinghúsið 1 gær og
hleraði stöðuna en
margir þingmenn eru
enn á mælendaskrá.
LANGAR og yfírgripsmiklar ræður
með innskotum og tilvitnunum, sem
virðast stundum nokkuð langsóttar,
hafa einkennt umræðu á Alþingi um
eitt lagafrumvarp í rúma viku. Með-
an þessu vindur fram sitja aðeins
einn til tveir þingmenn í þingsal,
stundum enginn og engir ráðherrar.
Þannig var ástandið síðdegis í
gær þegar umræða um frumvarp
félagsmálaráðherra um sveitar-
stjómarmál var á sjöunda degi.
Ræður sumra þingmanna stjómar-
andstöðunnar hafa tekið nokkra
klukkutíma í flutningi og þeir segj-
ast vilja ræða málið ítarlega, enda
viðamikið. Aðrir telja þessa fram-
komu hreint málþóf.
Svanfriður Jónasdóttir var í
ræðustól og í salnum voru Ólafur
Öm Haraldsson og Jóhanna Sigurð-
ardóttir. Skömmu síðar vom þau
bæði horfin. Og þó er Svanfríður
ekki óáheyrilegur ræðumaður.
Magnús Stefánsson, formaður fé-
lagsmálanefndar, var líka viðloð-
andi, enda talið eðlilegt að einhverj-
ir úr þeirri þingnefnd sem fjallað
hefur um viðkomandi mál sé nær-
hendis. f forsetastóli var Ragnar
Amalds, sem er trúlega löngu hætt-
ur að kippa sér upp við ítarleg
ræðuhöld, og Friðrik Ólafsson,
skrifstofustjóri Alþingis, var honum
til hægri handar. Litu þeir í ritverk
meðan ræðan stóð.
Þriggja til fimm tíma ræður
Ekki færri en 40 þingmenn hafa
talað í umræðunni og era þá
andsvör ekki meðtalin. Umræðan
mun standa fram eftir kvöldi og
nóttu og jafnvel mun henni ekki
ljúka fyrr en um hádegi á morgun.
Þá era eftir frumvörpin tvö sem
HITASÓTT í hrossum hefur verið
staðfest á einum bæ í Skagafirði.
Granur leikur á að þetta sé ekki
fyrsti bærinn sem hún kemur upp á
þar. Yfirdýralæknir hefur því enn á
ný sett bann á útflutning hrossa frá
íslandi, en á fundi dýralæknanefnd-
ar Evrópusambandsins 5. maí sl.
fékkst heimild til að flytja út hesta
frá ósýktum svæðum á íslandi.
Að sögn Sigríðar Bjömsdóttur,
dýralæknis hrossasjúkdóma, urðu
hross á einum bæ í Skagafirði
skyndilega veik í fyrrakvöld og um
hádegisbil í gær höfðu 10 hross
fengið sóttina og vora sum mikið
veik. Sagði hún þetta vera ólíkt því
hvemig sóttin hefur hagað sér þeg-
ar hún hefur borist á ósýkt svæði og
því væra líkur á að þetta væri ekki
fyrsti staðurinn sem veikin kemur
upp á í Skagafirði. Öll þessi hross
voru á húsi en sóttarinnar hafði þá
ekki orðið vart í útigangi. Talið er
vist að smitið hafi borist með hesta-
tengjast hálendismálunum, þ.e. um
þjóðlendur og auðlindir í jörð. Gæti
umræða þeirra staðið fram eftir
næstu viku. Þeirri hugmynd var
fleygt að tæknilega væri hægt að
gera hlé á þingstörfum í nokkra
daga kringum sveitarstjómarkosn-
ingar og halda síðan áfram. Ennþá
er slíkt þó aðeins nefnt sem mögu-
leiki.
Þingmenn, sem eiga að vera við-
staddir umræður nema aðkallandi
eða ófyrirsjáanleg önnur verkefni
hamli, virtust einmitt margir hverj-
ir hafa ýmsum öðram hnöppum að
hneppa meðan Svanfríður talaði yfir
auðum sætum, sem getur nú varla
verið mjög skemmtilegt. Þeir vora
sumir á skrifstofum sínum að sinna
pappírsvinnu eða ræða við kjósend-
ur sem vilja koma einhverju á fram-
færi við þá. Inn á milli geta þeir
hækkað f útvarpinu frá þingsölum
og heyrt hvaða stefnu ræðuhöldin
era að taka og skellt sér yfir í þing-
sal ef þeir vilja grípa til andsvara.
Nokkra áður en Svanfríður lauk
máli sínu kom Sighvatur Björgvins-
son í salinn, enda næstur á mæl-
fólki af öðra svæði sem kom í heim-
sókn. Samgangur hefur einnig verið
milli ábúenda á bænum og fólks af
bæ í Húnavatnssýslu síðustu daga
áður en sóttin kom upp og því talin
hætta á að hross þar geti smitast að
sögn Sigríðar.
I fréttatilkynningu sem yfirdýra-
læknir sendi frá sér síðdegis í gær
kemur fram að heimild til að flytja
hesta út frá því svæði á Islandi sem
taldist þá ósýkt, sem dýralækna-
nefnd Evrópusambandsins gaf á
fundi þess 5. þ.m., hafi verið bundin
þeim skilyrðum að veikin kæmi
endaskrá. Þegar yfir lauk hafði hún
talað í fimm og hálfan tíma og skaut
þá Pétri Blöndal upp. Kom hann í
ræðustól og gerði hinn langa ræðu-
tíma þingmarinsins að umtalsefni,
spurði hvort það væri eitthvert
markmið í sjáÖfu sér að tala sem
lengst eða slá fyrri met um lengd á
ræðum. Dró hann í efa að nokkur
íslendingur sem fylgst hefði með
ræðunni hefði getað haldið fullri at-
hygli allan tímann og taldi aðalat-
riðin drakkna í smáatriðum í svo
löngu máli. í svari sínu sagðist
Svanfríður ekki vera í málþófi og
sagði ótrúlegt hversu þingmaðurinn
væri upptekinn af lengd ræðu.
Lengdin væri aukaatriði, innihaldið
væri það sem máli skipti og hún
teldi sig hafa haldið sig nákvæm-
lega við umræðuefnið. Hún sagði
umræðuna skila athygli sem væri
mun meiri en ella hefði verið.
Saknaði forsætisráðherra
Sighvatur Björgvinsson saknaði
forsætisráðherra og óskaði eftir
nærvera hans. Hann sagði ekki rétt
að málþófi væri beitt; ef þingmenn
hvergi upp á ósýkta svæðinu. Að
öðrum kosti félli útflutningsheimild-
in niður fyrir allt svæðið. Því sé
Ijóst að ekki getur orðið af útflutn-
ingi hesta frá íslandi að sinni.
Væntanlega verði það ekki mögu-
legt fyrr en það kemur í ljós hverjar
era orsakir veikinnar. Rannsóknir
þar að lútandi era í fullum gangi.
Meiri Iíkur á því að
landsmótið fari fram
Einnig kemur fram í frétt yfirdýra-
læknis að enn hafi ekld verið tekin
ákvörðun um breytingar á reglu-
hefðu farið út fyrir efnið ætti for-
seta að hafa verið í lófa lagið að
gera athugasemdir við málflutning
þeirra. Það hefði hann ekki gert
enda væri fólk einfaldlega að ræða
það mál sem væri á dagskrá og eng-
inn ræðumanna, þótt þeir töluðu
lengi, hefði farið út fyrir efnið.
Staða þessa alvöramáls er í
stuttu máli þessi: Sjónarmið stjóm-
arandstöðu eru þau að ekki sé enn
hægt að afgreiða hálendismálin þar
sem þau séu hvergi nærri fullrædd
og að nánast þjóðin öll hafi risið upp
og krefjist meiri tíma og umræðna.
Stjórnarþingmenn segja málið hafa
fengið ítarlega umræðu og nú verði
að ráða því til lykta með lýðræðis-
legri afgreiðslu þingsins. Spurning
er hvort hægt verður að gera
ákveðnar breytingar og ná um leið
sáttum um afgreiðslu á öðram mál-
um sem ríkisstjómin vill Ijúka. Er
húsnæðisframvarp þeirra umfangs-
mest en síðan eru tugir annarra
mála sem bíða lokaafgreiðslu og
ættu þingmenn í fæstum tilvikum
að þurfa að efna til ítarlegrar um-
ræðu um þau.
gerð um vamarlínur, en verði af því
þá muni það meðal annars verða
gert að höfðu samráði við hags-
munaaðila í greininni.
Jón Ólafur Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri landsmótsins á Mel-
gerðismelum, segir að erfitt sé að
átta sig á þessum nýju tíðindum. Þó
virtist honum að nú væru meiri lík-
ur á að landsmótið yrði haldið. Und-
irbúningur hefur aldrei stöðvast
þrátt fyrir óvissuna og í íyrradag
var tekin í notkun ný spennistöð á
Melgerðismelum og um helgina
verður vígt nýtt stóðhestahús á
svæðinu.
Allur undirbúningur og fram-
kvæmdir hafa kostað mikla vinnu
og fjármuni og sagði Jón það verða
mikið fjárhagslegt tjón íyiir félögin
sem að mótinu standa verði það
ekki haldið. Auk þess yrði þjóðarbú-
ið af um hálfs milljarðs króna hagn-
aði af ferðaþjónustu, hestaferðum
og öðru sem tengist landsmótin
Yinnslu-
stöðin sel-
ur Jón V.
til Namibíu
i
VINNSLUSTOÐIN hf. hefur selt
ísfisktogarann Jón V. ÁR 111 til
dótturfyrirtækis íslenzkra sjávar-
afurða, ísöldu. ísalda leggur skipið
síðan inn í namibíska fyrirtækið
Seaflower Whitefish Corp., en IS á
fyrir hlut í því fyrirtæki á móti þar-
lendum stjómvöldum. Kaupverð á
skipinu er um 73 milljónir króna og
verður það afhent í lok maí.
Jón V. var smíðaður á Spáni
1974 og hét fyrst Otur, síðan
Stokksnes, loks Jón Vídalín áður
en hann hlaut núverandi nafn.
Hann lá við bryggju lungann úr
síðasta ári, en var síðan settur á
rækjuveiðar í vetur og gengu þær
vel.
Þetta er annað skipið á skömm-
um tíma, sem Vinnslustöðin selur,
en Breki VE var seldur fyrir
nokkru. Vinnslustöðin gerir nú út
Kap og Sighvat Bjarnason, sem nú
eru á kolmunnaveiðum, Kap II,
sem er á síld, netabátinn Brynjólf,
togbátana Drangavík og Danska
Pétur og ísfisktogarann Jón
Vídalín.
Aukinn lýsingskvóti
Aukinn lýsingskvóti við Namibíu
hefur leitt af sér þörf Seaflower
fyrir ísfisktogara til að afla fyrir
fiskvinnslu sína. Kvótinn var skor-
inn mikið niður fyrir rúmu ári og
voru þá tveir ísfisktogarar fyrir-
tækisins seldir og frystitogarinn
Seaflower leigður öðru fyrirtæki.
Seaflower gerir nú aðeins út ísfisk-
togarann Rex, sem hefur fiskað
mjög vel frá því í vetur, um 100
tonn í þriggja til fjögurra daga túr-
um. Gert er ráð fyrir að Jón V.
verði kominn niður til Namibíu að
áliðnu sumri þegar vertíðin stend-
ur sem hæst.
I
-----------------
Dauft á
síldinni
DAUFT er yfir síldveiðum ís-
lenzku skipanna í Síldarsmugunni.
Guðrún Þorkelsdóttir SU náði þó
einu rúmlega 400 tonna kasti seint
í fyrrakvöld og var þá komin með
um 800 tonn. Isak Valdimarsson er
skipstjóri á Guðrúnu. Önnur skip
fengu mun minna.
Mjög erfitt er að eiga við síldina
enda eru þetta bara smápeðrur, að
sögn Þorsteins Kristjánssonar,
skipstjóra á Hólmaborg sem komin
er með um 500 tonn.
Nokkur íslensk skip era enn á
kolmunna. Þeirra á meðal eru Kap
VE og Sighvatur Bjarnason VE-
Þar er frekar lítið um að vera líka.
Kolmunninn er hrygndur og er á
leið norður á ný í ætisleit. Hann
virðist fara beggja vegna Færeyja
og er dreifður og þurfa skipin að
toga mjög lengi til að fá einhvern
afla. Líklega fara kolmunnaskipin
á sfld fljótlega ef eitthvað lifnar yf-
ir þeim veiðum.
Eldsvoði á Njálsgötu
Grunur um
íkveikju
RANNSÓKN á upptökum elds í
húsi við Njálsgötu að morgni mið-
vikudags stendur yfir hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar í Reykjavík.
Að sögn Sigurbjörns Víðis Egg-
ertssonar aðstoðaiyfirlögregluþjóns
leikur grunur á að kveikt hafi verið i
en það hefur ekki verið staðfest.
Hitasótt hefur verið staðfest 1 hrossum á einum bæ í Skagafírði
Bann sett á út-
flutning* á ný