Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 1
136 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
113. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þingsæti
fyrir mis-
skilning
Asuncion. Reuters.
LÍTT þekktur stjórnarand-
stöðuflokkur sem heitir
Blanco fær eitt sæti í öldunga-
deild þingsins í Paraguay eftir
að þúsundir kjósenda, sem
hugðust skila auðu, greiddu
flokknum atkvæði sitt fyrir
mistök í þingkosningunum 10.
maí sl.
Colorado-flokkurinn, sem
setið hefur að völdum í 51 ár,
hélt meirihluta sínum. Full-
trúi flokksins og fulltrúi
stjórnarandstöðunnar, Lýð-
ræðisbandalagsins, sögðu að
Partido Blanco (Hvíti flokkur-
inn) gæti þakkað flest þeirra
35.000 atkvæða, sem hann
hlaut, merkingarruglingi.
Spænsku orðin fyrir „autt
atkvæði" eru „voto en
blaneo“, eða „hvítt atkvæði",
og útlit er fyrir að fjöldi kjó-
senda, sem hugðist skrá at-
kvæði sín auð, haf! ekki áttað
sig á muninum og merkt við
„Partido Blanco".
Afsögn Suhartos Indónes-
íuforseta sögð yfirvofandi
Djakarta. Reuters.
BÚIST var við að Suharto, forseti
Indónesíu, segði af sér embætti í
nótt, að íslenskum tíma, og fæli það
varaforseta sínum, Jusuf Habibie,
að því er blaðið Jakarta Post hafði
eftir heimildarmönnum í gærkvöldi.
Blaðið sagði ennfremur að fundir
forsetans með æðstu embættis-
mönnum og stjórnarskrársérfræð-
ingum hefðu staðið fram undir
morgun. Þá hefði yfirmaður hersins
átt fundi með sveitarforingjum og
lögreglustjóra.
Fréttastofa CNN sagði að leið-
togar námsmanna, sem hafa krafist
þess að forsetinn fari frá, hefðu full-
yrt að afsagnar væri að vænta í dag.
Ekki hefðu fengist frekari staðfest-
ingar á að afsögn væri yfírvofandi,
en ljóst væri að þrýstingur á forset-
ann sé orðinn gífurlegur. I gær
hefði forseti þingsins tekið undir
með námsmönnum.
Oddviti indónesísku andspyrnu-
hreyfíngarinnar, Amien Rais, leið-
togi múslímskra námsmanna,
sakaði í gær Suharto um „hryðju-
verkastarfsemi í nafni ríkisins" eftir
að stjómvöld sýndu styrk sinn til
þess að koma í veg fyrir fjöldamót-
mæli gegn forsetanum.
Rais hefur verið sá maður sem
mest hefur borið á og heyrst í und-
anfarið þegar kröfur hafa verið uppi
um afsögn Suhartos, sem setið hef-
ur á forsetastóli í rúm 30 ár. Krafan
um afsögn hefur verið rauði þráður-
inn í mótmælaaðgerðum náms-
manna um gervalla Indónesíu und-
anfarna þrjá mánuði, og náðu þær
hámarki á mánudaginn er fjöldi
námsmanna hreiðraði um sig í þing-
húsinu í Djakarta. í gær réðust þeir
síðan til inngöngu í sjálfan þingsal-
inn.
Rais afboðaði fjöldasamkomu á
Merdekatorgi í miðborg Djakarta í
gærmorgun eftir að tugir þúsunda
hermanna voru kallaðir út til þess
að stöðva umferð um götur. Slíkur
herafli hefur ekki sést opinberlega í
höfuðborginni í áratugi.
„Heimsbyggðin hefur orðið vitni
að þeim yfirþyrmandi öryggis-
ráðstöfunum sem herinn hefur
gripið til í því skyni að meina fólki
AMIEN Rais, oddviti and-
spyrnuhreyfingar námsmanna,
ávarpar fréttamenn á fundi í
Djakarta í gær.
aðgang að opinberum sam-
komustað," sagði Rais á frétta-
mannafundi. „Djakarta líkist nú
mest hersetinni borg. Að sýna styrk
sinn á þennan hátt er ekkert annað
en hryðjuverkastarfsemi í nafni rík-
isins.“
Rais er lektor í alþjóðastjóm-
málafræði við háskóla í Yogyakarta
á Mið-Jövu, og í samtökum músl-
ímskra námsmanna, sem hann er í
forsæti fyrir, em um 28 milljónir.
Ibúar í Indónesíu eru alls um 200
milljónir. Rais sagði við fréttamenn
í gær að með því að sýna styrk
hersins hefði Suharto gengið á bak
þeirra orða sinna að hann myndi
aldrei beita hervaldi til þess að
halda forsetaembættinu.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, skoraði í
gær á Suharto að „gæta orðspors-
ins“ með því að láta af völdum og
gera lýðræðisþróun mögulega, að
því er AP greindi frá. Þá hvatti Al-
bright Indónesíuforseta til að fara
varlega í að beita valdi gegn mót-
mælaaðgerðum námsmanna.
Kommúnistar reyna að koma Jeltsín frá
Driman styður
málshöfðun
átökum þegar hann leysti upp rúss-
neska þingið 1993.
Zjúganov hafði áður sagt að
kommúnistar legðu fram beiðnina
að ósk kolanámamanna, sem hafa
efnt til mótmælaaðgerða í Síberíu
síðustu daga, en ekkert er minnst á
vanda kolanámanna í ákæruskjal-
inu.
Interfax-fréttastofan hafði eftir
talsmanni forsetans, Sergej
Jastrzhembskí, að Jeltsín myndi
taka málshöfðunarbeiðninni „með
stillingu“.
Gennadí Seleznjov, forseti
Dúmunnar, viðurkenndi að sam-
kvæmt stjórnarskránni væri máls-
höfðun til embættismissis „mjög
tímafrekt og erfitt ferli“. Frétta-
skýrendur segja að það sé nánast
útilokað að forsetanum verði vikið
úr embætti, þar sem málshöfðunin
þarf samþykki að minnsta kosti
tveggja þriðju hluta Dúmunnar og
Sambandsráðsins, efri deildar
þingsins, auk þess sem hæstiréttur
og stjórnlagadómstóll landsins
þurfa að samþykkja hana.
Námamenn krefjast launanna
Kolanámamenn hindruðu í gær
lestasamgöngur milli austur- og
vesturhluta Síberíu með því að setj-
ast á brautarteina til að krefjast
þess að vangoldin laun þeirra yrðu
greidd tafarlaust og laun þein-a
hækkuð. Héraðsstjóri Kemerovo í
Síberíu lýsti yfir neyðarástandi þar
sem lestaferðir til héraðsins lögðust
algjörlega niður vegna aðgerða
kolanámamanna í Kuzbass.
■ Neyðarástandi lýst yfir/26
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Norður-frlands fer fram á morgrm
Fjórðungur enn óákveðinn
Belfa.st. Morpunblaðið.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, biðlaði í gær til þeirra íbúa
Norður-írlands, sem enn hafa ekki
gert upp hug sinn til friðarsam-
komulagsins sem lagt verður í þjóð-
aratkvæðagreiðslu á morgun, að
snúast á sveif með fylgjendum samn-
ingsins, nú á síðasta degi kosninga-
baráttunnar. Hann sagðist í ræðu
sem hann hélt í Háskóla Ulster í
Coleraine-borg skilja og hafa samúð
með fólki sem erfitt ætti með að
ákveða sig, en lagði jafnframt
áherslu á að íbúar N-írlands stæðu
frammi fyrir tækifæri núna sem ekki
væri víst að kæmi aftur í nánustu
framtíð.
Blair kom til Belfast um kvöld-
matarleytið í gær í sína þriðju
heimsókn á skömmum tíma og Ian
Paisley, oddviti andstæðinga samn-
ingsins, sagði fyrr um daginn að tíð-
ar komur Blairs sýndu að ríkis-
stjórnin gerði sér fyllilega ljóst hvert
stefndi, að sambandssinnar ætluðu
ekki að láta blekkja sig til að segja já
við „svikasamningi“. Blair var ekki
einn um að heimsækja N-írland í
gær, því milljarðamæringurinn
Richard Branson, eigandi Virgin-
fyrirtækisins, fékk sér göngutúr um
miðborg Belfast ásamt Mo Mowl-
am, N-írlandsmálaráðherra bresku
stjómarinnar, og lofaði að auka fjár-
festingar sínar á N-írlandi ef samn-
ingurinn yrði samþykktur.
William Hague, leiðtogi breska
íhaldsflokksins, var einnig á ferð í
Belfast í gær og hvatti til þess að
samningurinn yrði samþykktur.
Sumir kjósenda hafa fyllst vantrausti
á undanfórnum dögum vegna þessar-
ar „breiðfylkingar". „Ef þessi samn-
ingur er eins frábær og þeir vilja
vera láta, hvers vegna er þá þörf á
öllum þessum heimsóknum frægs
fólks tU að sannfæra okkur?“ spurði
einn viðmælenda Morgunblaðsins.
Skoðanakannanir sýna að allt að
fjórðungi kjósenda hefur enn ekki
gert upp hug sinn og bæði fylgjend-
ur og andstæðingar samningsins
segjast fullvissir um stuðning þessa
fólks. David Trimble, leiðtogi Sam-
bandsflokks Ulsters, sagði á frétta-
mannafundi andstæðinga samnings-
ins enga valkosti hafa kynnt fólki en
Paisley gagnrýndi fylgjendur samn-
ingsins fyrir að reyna að „hræða“
fólk til að segja já.
Öll greidd atkvæði verða flutt til
Belfast og talin þar, til þess að ekki
verði hægt að sjá hver úrslit urðu á
hverjum stað. Því er ekki að vænta
endanlegrar niðurstöðu fym en um
miðjan dag á laugadag.
■ Paisley sakar/28
Reuters
MO Mowlam, Norður-Irlandsmálaráðherra bresku stjórnarinnar (t.v.), átti orðastað við vegfarendur í mið-
borg Belfast í gær. I för með henni var Richard Branson, eigandi Virgin-fyrirtækisins.
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKIR kommúnistar sögð-
ust í gær hafa fengið nægilegan
stuðning í Dúmunni, neðri deild
rússneska þingsins, til að geta kraf-
ist þess að höfðað yrði mál á hendur
Borís Jeltsín forseta til embættis-
missis.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sagði að tilskilinn
fjöldi þingmanna, eða að minnsta
kosti 150, hefði undirritað beiðni um
málshöfðunina.
Fyrr um daginn lagði Zjúganov
fram tólf síðna lista yfir ákæruat-
riðin og Jeltsín er þar m.a. sakaður
um að hafa valdið hruni Sovétríkj-
anna árið 1991 og mannskæðum