Morgunblaðið - 21.05.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 15
Frambjóðendur D- og R-lista á hádegisfundi hjá Marel
Lííleg’ skoðanaskipti um
skipulags- og lóðamál
SEX talsmenn D-lista og R-lista voru á fundi með starfsmönnum Marels í gær. Frá vinstri: Eyþór Arnalds og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson af D-lista og síðan fulltrúar R-listans: Helgi Hjörvar, Sigrún Magnúsdóttir, á bak
við hana Guðrún Jónsdóttir og Helgi Pétursson Qærst. Við borðsendann situr Helgi Hjálmarsson fundarstjóri.
Morgunblaðið/Kristinn
ÁÐUR en fundur hófst dreifðu frambjóðendur beggja lista ýmsu les-
efni um ágæti málefna sinna.
ÞEIR voru ábúðarfullir þegar þeir ræddu skipulags- og lóðamálin þeir
Vilhjálmur og Helgi og settu hvor um sig upp spurnar- eða hæðnissvip
þegar þeim fannst hinn mæla út í hött.
Nokkrir frambjóðendur
Sjálfstæðisflokks og
Reykjavíkurlista
heimsóttu Marel í gær
til að kynna sjónarmið
sín. Jóhannes Tómas-
son sat undir umræðum
og spurningum sem
starfsmenn höfðu nógar.
FULLTRÚAR tveggja fram-
boðanna í Reykjavík af fjórum, þ.e.
frá Sjálfstæðisflokki og Reykjavík-
urlista, heimsóttu starfsmenn Mar-
els í höfuðstöðvum fyrirtækisins við
Höfðabakka í hádeginu í gær og
gumuðu af verkum flokka sinna.
Urðu á köflum lífleg skoðanaskipti
sem runnu vel niður með brauði og
skyri og þaðan af meiri næringu
undir fundarstjórn Helga
Hjálmarssonar en starfsmenn höfðu
óskað eftir að fá frambjóðendur í
heimsókn.
„Þetta eru ekkert spennandi
kosningar, bara ásakanir á báða
bóga og frambjóðendur hafa engin
málefni,“ varð einhverjum á orði
þegar sest var að borðum. Reykja-
víkurlistinn sendi fjögurra manna
sveit á móti tveimur fulltrúum Sjálf-
stæðisflokks. Dreifðu frambjóðend-
ur í upphafi ýmsu lesefni flokka
sinna til hluta þeirra 200 starfs-
manna Marels sem fundinn sátu,
hver og einn mislengi eftir pólitísku
úthaldi sínu og áhuga.
R-listinn náði árangri
Helgi Hjörvar, sem skipar efsta
sæti R-listans, byrjaði með stuttu
ávarpi og sagði að sínir menn hefðu
staðið í kosningabaráttu, ekki
aðeins síðustu vikurnar heldur síð-
ustu fjögur árin. Það hefði verið far-
sæll tími og R-listinn náð árangri í
skóla- og dagvistarmálum, um-
hverfismálum, orkumálum og fjár-
málum borgarinnar. Hann sagði
kjósendur líta til fjögurra þátta
þegar þeir tækju afstöðu, þ.e.
frammistöðu flokkanna, framboðs-
listanna sjálfra, til fyrirætlana
þeirra og forystumanna. Hann
sagði Reykvíkinga hafa fellt dóm
sinn í borgarstjórnarkosningunum
árið 1994 og sýndust sér málefni D-
listans í kosningabaráttunni nú ekld
benda til þess að þeir fulltrúar hans
hefðu lært nokkuð, sett væru fram
kosningaloforð uppá átta til 10
milljarða umfram núverandi fjár-
hagsáætlun borgarinnar sem allir
vissu að gengi ekki nema með að
hækka skatta eða skuldsetningu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem
er í öðru sæti D-listans, sagði
grundvallarmun á sjónarmiðum D-
lista og R-lista í skipulags-, umferð-
ar- og lóðamálum. Hann sagði það
vera meðal stærstu mála varðandi
framtíðarbyggð hvernig þessum
málaflokkum yrði stýrt. Kvað hann
sjálfstæðismenn ætla að taka Geld-
inganes undir 8 þúsund manna
íbúðabyggð. Hann sagði skort vera
á lóðum íyrir atvinnuhúsnæði sem
og íbúðir og það sama hefði gerst og
þegar vinstri menn réðu borginni
árin 1978 til 1982. Vilhjálmur sagði
ætlunina að halda áfram því átaki í
umhverfísmálum sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði byrjað á 1987-88
sem hann sagði eitt stærsta um-
hverfisátak borgarinnar. Einnig
sagði hann áfram haldið með
vandaða skólastefnu sem væri
brýnt mál. Hann sagði sjálfstæðis-
menn bjóða góðan og samhentan
lista frambjóðenda með mikla
reynslu, kvað kosningaloforðin
mundu efnd fengi Sjálfstæðisflokk-
urinn umboð til að stýra borginni
næstu fjögur árin.
Geldinganesið fyrir íbúðabyggð
í framhaldi af þessu var spurt
hvort rétt væri að lóðaskortur væri
í Reykjavík, m.a. í samhengi við það
að til stæði að Marel flytti í Garða-
bæ, lóðir hefðu staðið til boða í
Reykjavík sem ekki hefðu verið
mjög álitlegir valkostir. Helgi Hjör-
var sagði mikla eftirspurn hafa ver-
ið eftir lóðum undir atvinnustarf-
semi, ekki síst hafnsækna starf-
semi. Hann sagði að úthlutað hefði
verið um 30 hekturum lóða á
kjörtímabilinu en í áratugi þar áður
hefði alls verið úthlutað um 90 hekt-
urum. Hins vegar hefði verið skort-
ur á lóðum undir starfsemi svipaða
og Marel hefði með höndum. Vil-
hjálmur kvaðst þess fullviss að íbú-
ar Reykjavíkur myndu leggjast
gegn því að Geldinganesið, sem
væri ein fegursta perla borgarinn-
ar, yrði lögð undir atvinnustarfsemi.
Sagði hann stefnu listans þar
óskýra, þar yrðu ræmur íbúðar- og
atvinnuhúsnæðis og enginn vissi
hvað gera ætti.
Helgi Hjörvar spurði mótfram-
bjóðandann hvort atvinnustarfsemi
væri eitthvað ljótt, sjálfstæðismenn
lýstu henni sem iðnaðar- og gáma-
svæði með þannig tón að ekki yrði
skilið öðruvísi en þannig að atvinnu-
starfsemi ætti helst að vera í felum.
Sagðist Helgi halda að fyrirtæki
eins og Marel ætti ekki að hafa neitt
í felum og var þessari yfírlýsingu
fagnað með lófataki starfsmanna.
Vilhjálmur minnti á í framhaldi af
þessu að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði skipulagt atvinnulóðir og því
hefði R-listi getað úthluta þeim á
kjörtímabilinu og spurði hvað list-
inn hefði verið að gera til framtíðar
í þeim málum.
Hvar á að spara?
Bent var á að framboðslistarnir
hefðu ýmis áform um að hrinda
hinu og þessu í framkvæmd og
spurt var hvar væri ætlunin að
spara. Sigrún Magnúsdóttir, sem
talaði af hálfu R-listans, sagði að
fjármálin hefðu verið tekin fóstum
tökum. Nefndi hún sem dæmi að
um tveir milljarðar hefðu farið til
margs konar framkvæmda, þar af
um 1.500 milljónir til skólabygginga
og að af þeirri upphæð væru frávik
aðeins um ein milljón. Svo lítil
skekkja hefði aldrei sést meðan
íhaldið hefði stjórnað.
Vilhjálmur sagði frambjóðendur
R-listans hafa gagnrýnt sjálfstæðis-
menn íyrir fjórum árum vegna fjár-
mála og spurði hvað hefði síðan
gerst. Bylting, svaraði Sigrún strax,
og Vilhjálmur hélt áfram og sagði
byltingu já, til hins verra. Sagði
hann borgina og fyrirtæki hennar
hafa verið að safna skuldum. Frá
1994 til 1998 næmi hún 5,5 milljörð-
um króna og væru ekki meðtaldar
lántökur vegna Nesjavallavirkjun-
ar. Sagði hann skuldir á fyrra
kjörtímabilinu hafa verið 5,7 millj-
arða. Hann sagði R-listann hafa
safnað þessum skuldum á sama
tíma og innheimtar væru nýjar
tekjur, einnig væri hagvöxtur sem
fært hefði borginni mun meiri
útsvarstekjur.
Þannig hélt umræðan áfram og
höfðu frambjóðendur af nógu að
taka, ef ekki af ágæti eigin flokka
þá var bara að víkja að dugleysi
andstæðinganna. Nokkuð var spurt
áfram, m.a. um einsetningu skóla,
fjölda í bekkjardeildum, hver yrðu
næstu skrefin varðandi íþrótta-
mannvirki og nokkrar umræður
urðu um tónlistarhús og spurt hvort
ekki væri nóg að slíkt hús risi í
Kópavogi. Helgi Pétursson frá R-
lista sagði menn sammála um nauð-
syn tónlistar- og ráðstefnuhúss í
Reykjavík, húsið í Kópavogi væri
aðeins tónleikasalur. Hann sagði
ferðaþjónustuna geta stutt við nýt-
ingu á slíku húsi og nefndi sem
dæmi að í Evrópu væru haldnar ár-
lega um 4.500 ráðstefnur og sætu
hverja þeirra milli 900 og 1.200
manns.
Tíminn var að renna út þegar hér
var komið og farinn að þynnast
flokkur Marel-starfsmanna og
mesti móðurinn að renna af fram-
bjóðendunum. Tókust þeir í hendur
að lokum og framundan trúlega
annar vinnustaður og annar fundur.
Venera
tefst í
Esbjerg
ÁHÖFN flutningaskipsins
Venera, sem gert er út frá Ba-
hamaeyjum, en er í eigu rúss-
neskrar útgerðar, fékk ekki
laun sín greidd við komu
skipsins til hafnar í Esbjerg í
gær eins og lofað hafði verið
eftir að skipið lestaði á ís-
landi. Tafðist afgreiðslan í
Hafnarfirði vegna mótmæla
rússneskrar áhafnar sldpsins
við útgerðina en áhöfnin hefur
ekki fengið laun sín greidd í
nokkra mánuði.
Borgþór Kjæmested, full-
trúi Alþjóðasambands flutn-
ingaverkamanna, er staddur í
Esbjerg til að fylgja málinu
eftir fyrir hönd sambandsins.
Sagði hann að uppskipun hefði
byrjað í gærmorgun en síðan
fóru hafnarverkamenn í kaffi
og á fund til að ræða málin.
Skuld útgerðarinnar er sam-
tals um 190 þúsund dollarar
eða liðlega 13 milljónir króna.
Sjö skipverjar áttu að fá
lokauppgjör við komuna til
Esbjerg þar sem þeir verða
afskráðir og aðrir sjö að koma
í þeirra stað. Borgþór sagði í
gær að beðið væri þess að ná
sambandi við útgerðina sem
hefur bæði aðsetur í Seattle í
Bandaríkjunum og Vladi-
vostok í Síberíu. Bjóst hann
allt eins við að ekki tækist að
leysa úr málinu fyrr en á
fóstudag. Skipið flutti frystar
fiskafurðir írá Islandi og er í
leigu hjá Eimskip.
Brotist inn í
úraverslun
LÖGREGLUNNI í Reykjavík
var tilkynnt um innbrot í úra-
verslun Guðmundar Her-
mannssonar við Laugaveg á
þriðja tímanum í fyrrinótt.
Ibúi í nálægu húsi vaknaði
við brothljóð og sá par athafna
sig við verslunina og hlaupa
síðan í burtu. Parið fannst inn-
an við hálftíma síðar á Grettis-
götu en þýfið ekki. Fólkið var
handtekið og flutt á lögreglu-
stöð.
Maðurinn, sem er fæddur
1975, hefur komið við sögu
lögreglu áður en konan, fædd
1972, ekki.
D-lista-rútan
skemmd
SKEMMDARVARGUR náðist
í fyrrinótt eftir að hann hafði
ráðist á rútu, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur notað undan-
farið í kosningabaráttunni, og
brotið af henni gjallarhom og
skemmt spegil og stefnuljós.
Rútan stóð í Stakkahlíð við
Úthlíð og það var íbúi við Út-
hh'ð sem vaknaði við hávaða og
gat látið lögreglu vita um
bláklæddan mann á reiðhjóli
sem hvarf af vettvangi. Mað-
urinn náðist og fylgihlutir rút-
unnar eru nú komnir í réttar
hendur.
*
Arekstur bif-
hjóls og bíls
ÖKUMAÐUR bifhjóls var
fluttur á slysadeild á níunda
tímanum í gærmorgun eftir að
hafa lent í hörðum árekstri á
gatnamótum Höfðatúns og
Borgartúns. Þar skullu saman
bifhjólið og fólksbíll. Ökumann
fólksbílsins sakaði ekki.
Bæði farartækin voru fjar-
lægð af staðnum með kranabíl.