Morgunblaðið - 21.05.1998, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Heimsókn utanríkisráðherra Svíþjóðar
Hvetur til aukins íslenzks
útflutnings til Svíþjóðar
LENA Hjelm-Wallén, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, átti í gær
viðræður við íslenzka ráðamenn
um samskipti ríkjanna og stefnu
þeirra í alþjóðamálum. I samtali
við Morgunblaðið hvatti Hjelm-
Wallén til þess að íslenzkir út-
flytjendur létu meira að sér
kveða á Svíþjóðarmarkaði.
Opinber heimsókn Hjelm-
Wallén til Islands hófst í fyrra-
dag. í gær átti hún viðræður við
hinn íslenzka starfsbróður sinn,
Halldór Ásgrímsson, og við ut-
anríkismálanefnd Alþingis. Þá
ræddi hún einnig við Davíð
Oddsson forsætisráðherra og
heimsótti hr. Ólaf Ragnar
Grímsson forseta að Bessastöð-
um. I dag bregða sænsku utan-
ríkisráðherrahjónin sér í véls-
leðaferð upp á Skálafellsjökul
og í bátsferð á Jökulsárlóni. Þau
halda heim á leið á morgun,
föstudag.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Hjelm-Wallén að samskipti
Svíþjóðar og Islands væru eins
og bezt verður á kosið; löndin
séu mjög samstiga í öllum
ákvörðunum á alþjóðavettvangi.
Nýjasta dæmið um þetta var
sameiginleg yfirlýsing Norður-
landanna vegna kjarnorku-
vopnatilrauna Indverja.
En hvað varðar tvíhliða sam-
skipti fslands og Svíþjóðar gerði
Hjelm-Wallén það að umtalsefni,
að íslendingar flytja miklu
meira inn frá Svíþjóð en Svíar
flytja inn frá Islandi. „Við mynd-
um fagna því að íslenzkur út-
flutningur til Svíþjóðar ykist,“
sagði ráðherrann. „íslenzku
sjávarútvegsfyrirtækin mættu
vera virkari á sænska markaðn-
um og selja meira af sinni fram-
leiðslu þar. Það myndi þjóna
hagsmunum beggja þjóða, að
mínu mati,“ sagði hún.
Schengen sameiginlegt
hagsmunamál
Helztu umræðuefnin á fund-
um hennar með íslenzkum
ráðamönnum sagði Hjelm-
Wallén þó mótast af því að nú
séu þrjú Norðurlönd í Evrópu-
sambandinu (ESB) en tvö utan
þess, þ.e. ísland og Noregur, og
af því að önnur þrjú Norðurlönd
séu í Atlantshafsbandalaginu
(NATO) og tvö utan þess, þ.e.
hlutlausu löndin Svíþjóð og
Finnland. Nefndi ráðherrann
Schengen-samninginn sem dæmi
um sameiginlegt hagsmunamál
Svía og íslendinga, sem nú væri
ofarlega á baugi í tengslum við
ESB. „Norræna vegabréfasam-
bandið verður að haldast, þrátt
fyrir skiptingu Norðurlandanna
í ríki innan og utan ESB,“ sagði
Hjelm-Wallén.
Aðspurð um væntanleg áhrif
þjóðaratkvæðagreiðslunnar í
Danmörku um Amsterdam-sátt-
mála ESB sagðist Hjelm-Wallén
ganga út frá því að danska
þjóðin muni samþykkja hann.
„Allt bendir til þess og ég tel að
það sé þeim fyrir beztu að gera
það,“ sagði hún, og bætti við að
Amsterdam-sáttmálinn væri að
sínu mati betri en Maastricht-
sáttmálinn, þar sem tekizt hefði
að ná inn ýmsum áherzlumálum
Norðurlandanna í Amsterdam-
sáttmálann, sem ekki var áður
að finna í Maastricht-samningn-
um.
Mikilvægt að EMU
heppnist vel
En burtséð frá Schengen og
Amsterdam er stærsta málið sem
varðar öll Norðurlöndin um þess-
ar mundir hið væntanlega Efna-
hags- og myntbandalag Evrópu
(EMU), sem leiðtogar ESB-ríkj-
anna ákváðu í upphafi þessa
mánaðar að yrði hleypt af stokk-
unum um næstu áramót með ell-
efu stofnaðildarríkjum, þ.e. öll-
um ESB-rílqunum 15 að undan-
skildum Grikklandi, Bretlandi,
Danmörku og Svíþjóð.
Um þetta sagði Hjelm-Wallén
Morgunblaðið/Ásdís
Lena Hjelm-Wallén
að Svíum sé mikill akkur í því að
myntbandalagið heppnist vel.
„Vandkvæði við framkvæmd
EMU hefðu áhrif á okkur, og
reyndar ísland einnig. Það er því
allra hagur að aðildarþjóðum
myntbandalagsins takist vel upp
með það,“ sagði hún. Svíar verði
að fylgjast vel með framvindunni
og vera vakandi fyrir því hvort
og hvenær ráðlegt væri fyrir
Svíþjóð að taka þátt í EMU. „Við
fylgjumst með utan frá í nokkur
ár áður en við gerum þetta upp
við okkur. Við erum í eins konar
„biðum og sjáum“-stöðu, líkt og
Bretar," sagði ráðherrann.
Fyrir þau Evrópuríki sem
standi utan EMU sé mikilvægt að
sjá til þess að halda eigin efna-
hagsmálum í Iagi, að halda aga í
ríkisfjármálum og stöðugu gengi
landsgjaldmiðilsins - ekki sízt
gagnvart evróinu.
Nyrup
hafnar
ESB-þjóð-
aratkvæði
Kaupmannahöfn. Reuters.
POUL Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dana, hyggst ekki efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðild Danmerkur
að Evrópusam-
bandinu (ESB),
verði Amster-
dam-samningur-
inn felldur í þjóð-
aratkvæði, sem
fram fer eftir
rétta viku í Dan-
mörku. Þetta
kemur fram í
viðtali sem Politi-
ken átti við forsætisráðherrann.
„Ég get ekki verið svo fljótfær
að segja að við munum segja okk-
ur algerlega [úr ESB] ef niður-
staðan verður „nei“,“ sagði Nyrup.
„Slíkt væri algert ábyrgðarleysi
og afar neikvætt fyrir þjóðfélag-
ið.“
Blaðið hefur eftir Nyrup að
hann muni heldur ekki segja af
sér, verði samningurinn felldur en
stjómvöld reyna nú með öllum
ráðum að fá Dani til að samþykkja
hann. Amsterdam-samningurinn
er Iykillinn að stækkun ESB til
austurs og að sameiginlegri stefnu
aðildarlandanna í málefnum flótta-
manna og þeirra er leita hælis.
Þrátt fyrir að meirihluti styðji
samninginn samkvæmt skoðana-
könnunum, hafa verið uppi raddir
um að fjöldi fólks hyggist refsa
ríkisstjórinni fyrir að setja lög á
allsherjarverkfall, sem stóð í um
tvær vikur.
Öll aðildarlönd ESB verða að
samþykkja samninginn en Danir
hafa áður fellt svipaða samninga
Evrópusambandsins. Er þess
skemmst að minnast er þeir höfn-
uðu Maastricht-samningnum árið
1992. Greidd voru atkvæði um
hann að nýju ári síðar er Danir
höfðu fengið í gegn undanþágur
frá honum og var hann þá
samþykktur. I samtalinu við
Politiken lofaði Nyrup því hins
vegar að ekki yrði um nýja at-
kvæðagreiðslu að ræða að ári,
hver svo sem úrslitin yrðu.
ÞER ER BOÐIÐIKJARNA
IMIÐBÆ MQSFELLS8ÆJAR
Gíaesileg opnunarhátíð Kjarna í IVlosfellsbæ í dag;
fimmtudaginn 22 maf kl. 10:00 - 14:00
% *
LElKlR
VtlTjNGAR
ANDLITSMAVUN
V t
% »
» I
* I
«»
V *
% I
* •
»I
SKEMMTUN
VERíÐ VELKOMIN I K]ARNA
VINþJINGAR
SpICE
GIRLS
DANSAR
. B
ÁI f t á r ó s
Sími 566 8900 • Fax 566 8904
POUL Nyrup
Rasmussen