Morgunblaðið - 21.05.1998, Page 32

Morgunblaðið - 21.05.1998, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Carneg’ie efnir til stærstu mynd- listarverðlauna á Norðurlöndum FRAMKVÆMDASTJÓRI Carnegie Art Award, Anne Folke, gerði grein fyrir árlegum verðlaunum, sýningarhaldi og listabókaútgáfu sem fyrirtækið hyggst gangast fyrir frá og með þessu ári, til að styrkja listamenn á Norðurlöndum. NORRÆNI fjárfestingarbankinn Carnegie í Stokkhólmi hyggst standa að árlegri verðlaunaveitingu, Carnegie Art Award, til norrænna listamanna er þykja skara fram úr á sviði málaralistar og verða þau veitt í fyrsta sinn á þessu ári. Verð- launaféð nemur samtals 1 milljón sænskra króna, rúmum 9 milljónum íslenskra króna, og verða þetta langstærstu verðlaun sem norræn- um myndlistarmanni geta hlotnast. Arlega verður efnt til farandsýning- ar á Norðurlöndunum á verkum listamanna sem valdir hafa verið til þátttöku auk þess sem verkin verða kynnt í listabók sem gefin verður út í tengslum við sýninguna. 83 lista- menn hafa verið tilnefndir til verð- launanna 1998 og í júní tilkynnir dómnefnd um þá listamenn sem valdir verða til þátttöku í sýning- unni Carnegie Art Award sem verð- ur opnuð í Konunglegu Listaka- demíunni í Stokkhólmi í október á þessu ári þar sem verðlaunin verða jafnframt veitt fyrsta sinni. Verðlaunin voru kynnt á blaða- mannafundi í Listasafni Islands í gær þar sem framkvæmdastjóri verkefnisins hjá Carnegie, Anne Folke, lýsti vilja fyrirtækisins til að vekja athygli á þeim grunni sam- tímalistar sem málaralistin er, þar sem hún hafi nú vikið úr sviðsljós- inu fyrir öðrum aðferðum í sam- tímamyndlist. Þá fáist með þessu kjörið tækifæri til að efla tengsl Norðurlandanna á sviði samtíma- myndlistar. „Málverkið er svo sann- arlega ekki dautt,“ segir Anne. „Það á bjarta framtíð fyrir sér og þetta viijum við hjá Carnegie undirstrika með því að styrkja rausnarlega norræna listamenn sem þykja skara fram úr á þessu sviði og styðja við bakið á norrænni nútímamálara- list.“ Markmiðið segir hún vera að tryggja a.m.k. einum verðlaunahafa árlega bjarta framtíð innan mynd- listarinnar. Verðlaunaféð 1 milljón sænskra króna í dómnefnd Camegie Art Award sitja fimm fulltrúar og skulu þeir að jafnaði skipaðir til fimm ára, þó heimilt sé að skipa sama dómnefnd- arfulltrúa á ný. Hún er nú skipuð forstöðumönnum listasafna á Norð- urlöndum; Tuula Arkio, forstöðu- manni Samtímalistasafnsins í Helsinki, Olle Granath, forstöðu- manni Listasafiisins í Stokkhólmi, Asmund Thorkildsen forstöðu- manni Listasafnsins í Osló, Beru Nordal, forstöðumanni Listasafns- ins í Málmey, og Lars Nittve for- stöðumanni Louisiana í Danmörku, sem tekur senn við starfi forstöðu- manns nýja Tate listasafnsins í Lundúnum og er hann formaður nefndarinnar. Dómnefnd velur 50-100 verk tilnefndra listamanna til árlegrar sýningar og ákveður hverjir skuli hljóta verðlaunin sem skiptast milli þriggja listamanna. Fyrstu verðlaun verða 500.000 sænskar krónur (um 4,5 milljónir ísl.kr.), önnur verðlaun verða 300.000 (um 2,7 milljónir ísl. kr.) og þriðju verðlaun 200.000 (um 1,8 milljónir ísl. kr.). Auk þess verður veittur styrkur sem nemur tæplega 450.000 íslenskum krónum, til ungs og efnilegs listamanns. Áskilur Camegie sér rétt til að kaupa þau þrjú verk sem hljóta verðlaun hverju sinni. Alls hafa 83 listamenn verið tilnefndir fyrir 1998; 14 frá Noregi, 13 frá Danmörku, 14 frá Finnlandi, 8 frá íslandi og 34 frá Svíþjóð. Skilyrði er að listamennim- ir séu norrænir ríkisborgarar eða búsettir á Norðurlöndum. Þátttaka aðila alls staðar að úr norrænu listalífi Anne Folke segir að allt frá því að hugmyndin að menningarfram- takinu kviknaði hjá fyrirtækinu sl. haust hafi menn velt vöngum yfir því hvernig best væri staðið að slíku og með hlutleysi fyrirtækisins og aðila listalífsins að leiðarljósi. Ferð- ast var um Norðurlöndin og leitað álits hjá fjölda einstaklinga og stofnana; listamanna, listgagn- rýnenda og fulltrúa listasafna og listmenntunar á Norðurlöndunum, og þeir beðnir um að benda á allt að fimm framúrskarandi listamenn á sviði málaralistar. Farið verður með nöfn þeirra sem tilnefndu lista- mennina sem trúnaðarmál, a.m.k. þar til listsýningin hefur verið opn- uð en þá verða nöfn þeirra sem fyrir því gefa leyfi birt í listabókinni. Á hverju ári verður valinn nýr hópur tilnefnara, en leyfilegt er að leita aftur til þeirra sem áður hafa til- nefnt listamenn til þátttöku. Sýningin einna mikilvægasti þátturinn Sjálf telur Anne þátt sýningar- haldsins mikilvægastan í þessu menningarstarfi Camegie. Með því megi efla innbyrðis samskipti lista- manna og kynningu á norrænni myndlist á Norðurlöndum. Þegar sýningartímanum lýkur í Stokkhólmi ferðast sýningin til Sophienholm í Kaupmannahöfn þar sem hún stend- ur til nóvemberloka. I byrjun desem- ber verður hún opnuð í Stenersen- museet í Osló og í byrjun næsta árs í Taidehalli í Helsinki. Sýningin verð- ur loks í Listasafhi Islands frá 5. til 21. febrúar á næsta ári. Norræni fjárfestingar- bankinn Carnegie Fyrirtækið Camegie á rætur að rekja til ársins 1803, þegar skoski aðalsmaðurinn David Camegie, ásamt sænskum manni, stofnaði fyr- irtækið D. Camegie & Co í Gauta- borg. David þessi átti bróður sem setist að í Bandaríkjunum þar sem hann auðgaðist vel á stálframleiðslu og við hann er hið þekkta Camegie Hall í New York kennt. í dag hefur Camegie fyrirtækið í Svíþjóð, sem í upphafi var stærsta verslunar- og skipafélag Gautaborgar, einkum beint starfsemi sinni að lána- og fjár- málamarkaðnum og telst það vera þriðji stærsti fjárfestingarbankinn á Norðurlöndum. Camegie rekur starfsemi í sjö löndum og em starfs- menn um 500. Eitt sérkenni fyrir- tækisins er að 45% hlutabréfa þess em í eigu starfsfólksins. Síðastliðið ár hefur fyrirtækið átt í samstarfi við íslenskt verðbréfafyrirtæki, Verðbréfastofuna, og lýst yfir áhuga á fjárfestingu á hérlendum markaði. Norræni verðbréfasjóður Camegie í Lúxemborg hefur síðastliðin 10 ár farið með ávöxtun Nóbelsverðlauna- sjóðsins og hefur eign hans á þeim tíma rúmlega tvöfaldast VISA-verd fyrir vesturfara! Far- og Gullkorthöfum VISA gefst nú frábært tækifæri til aö heimsækja nágrannaríki okkar í vestri, Kanada. Með því aö fljúga til Vancouver á vestur- strönd Kanada eöa Calgary í Alberta- fylki nýtur þú óviöjafnanlegrar fegurðar Kanada til hins ýtrasta. Einstæður regnskógur Vancouver-eyju, snævi þaktir tindar Klettafjalla og iöandi mannlíf sérstæöra borga gera feröalagiö ógleymanlegt. Frá og með 22. maí til 23. september fljúgum viö tvisvar í viku til Calgary og Vancouver. Brottför er á miövikudögum og föstudögum og heimkoma á þriöju- dögum og fimmtudögum. Hægt er aö fljúga frá Keflavík til Vancouver og heim aftur frá Calgary - eða öfugt. Þá bjóðast fjölbreyttir möguleikar á tengiflugi til allra átta. Hafðu samband við sölufólkiö hjá Samvinnuferóum-Landsýn sem mun aðstoöa viö aö bóka bílaleigubíl, hótel og tengiflug eftir þínu höfði. Tilboð til Far- og Gullkorthafa VISA: rd: 94iitVvl Frá 22. maí til 12. júní Almennt verð: 58.100 ð: a^.OUUkr. Frá og meö 17. júní Almennt verð: 67.100 Innifalið: Flug, skattar og gjöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.