Morgunblaðið - 21.05.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 85
I jZMMm
*"• L R E V K J A tf ! K
Fimmtudagur
Gerðuberg: Odella - að lifa af
og Sópaðu aldrei síðdegis.
Opnun kl. 14.
Þjóðleikhúsið: Le Cercle in-
visible, 3. sýning kl. 15.
Regnboginn: Cremaster 4 e.
Matthew Barney. art.is kl. 17.
Þjóðleikhúsið: Le Cercle In-
visible, 4. sýning kl. 20.
Föstudagur
Þjóðleikhúsið: Le Cerle Invisi-
ble, 5. sýning kl. 20.
Iðnó: Caput, m.a. fiðlukonsert
eftu- Hauk Tómasson. Einleik-
ari Sigrún Eðwaldsdótir.
Hljómsveitarstjóri Guðmund-
ur Oli Gunnarsson kl. 20.
Klúbbur Listahátíðar
Fimmtudagur
Ljósmyndarinn Carlotta Duar-
te og fulltrúi maya-indíánanna
kynna mexíkönsku sýninguna
„Sópaðu aldrei síðdegis".
Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir og Kjartan Ragnarsson
sem dvöldust á maya-slóðum
taka þátt í umræðunum kl. 17.
Leikið
í hrað-
frystihúsi
Grindavík. Morgnnblaðið.
LEIKFÉLAGIÐ LA-GÓ sýnir
þessa dagana „Allt í plasti" eftir
Volker Ludwig í þýðingu Hafliða
Arngrímssonar. Sýningin fer fram í
húsnæði félagsskapsins „Laufanna
og spaðanna" sem er heitið á félags-
miðstöðinni fyrir 16 ára og eldri í
Grindavík.
Það er Ijóst að í þessum hópi eru
margir efnilegir leikarar og í raun
enginn veikur blettur á sýningunni.
Ljóst er að Bergur Þór Ingólfsson,
leikstjóri, hefur náð að virkja hér
mikinn og góðan hóp leikara og að-
stoðarmanna. Líklegast eru orð
Bergs sem tekin eru úr leikskrá
sýningarinnar besta lýsingin á leik-
stykkinu og umgerð þess. „Hug-
myndir fljúga um andrúmið líkt og
fískar synda í sjónum. Þær eru af
öllum stærðum og gerðum, mis-
munandi að lögun og lit og nýtast til
margskonar þátta andlegrar nær-
ingar. Okkar verkefni er að setja
loftnetin út og veiða þessar hug-
myndir. Og þegar við höfum fengið
fullfermi förum við með þær til
verkunar. Þær eru teknar og
flokkaðar eftir gæðum og gerð,
snyrtar, settar í viðeigandi umbúðir
og boðnar hverjum sem kaupa vill.
Leikhús í Hraðfrystihúsi Grindavík-
ur er metafli af góðum hugmynd-
um.“ Aðspurður um það hvort ekki
væri erfitt að toppa þessa leiksýn-
ingu sagði Bergur: „Ekki með
þennan leikhóp, þarna er nægur
efniviður hæfíleikaríkra leikara“.
Ljóst er að það hlýtur að vera
von Grindvíkinga að hér sé komin
hefð sem standist tímans tönn.
Astæða er til að hvetja Grindvík-
inga og aðra sem ekki hafa séð sýn-
inguna til að drífa sig á þessa
frábæru sýningu.
-------♦♦♦------
Myndlistarsýn-
ing leikskóla-
barna á vefnum
LEIKSKÓLINN Skerjakot hefur
opnað myndlistarsýningu leikskóla-
barna á vefnum.
Skerjakot er einkarekinn
leikskóli, stofnaður 1989 og í kynn-
ingu segir að markmið Skerjakots
sé að örva alhliða þroska barnsins,
líkamlega og andlega.
Slóðin á sýninguna er:
http://rvik.ismennt.is/king/
Suzukinem-
endur á
Fiðlaranum
NÝLEGA Qölmenntu nemendur úr
Suzukiskólanum og fjölskyldur
þeirra á Fiðlarann á þakinu í Þjóð-
leikhúsinu. I hléi hittu þau nokkra
leikara úr sýningunni og skoðuðu
sig um baksviðs.
Sýningar á Fiðlaranum á þakinu
eru orðnar hátt í sextíu talsins og
fjöldi áhorfenda kominn vel á
þriðja tug þúsunda. Aðeins eru
þrjár sýningar fyrirhugaðar í
viðbót; 29. maí, 6. júní, og 13. júní.
Afmælis-
tónleikar
og skólaslit
AFMÆLISTÓNLEIKAR og
skólaslit Tónlistarskólans í
Grindavík verða haldnir í
Grindavíkurkirkju í dag, upp-
stigningardag, kl. 14. Eftir
tónleikana mun skólinn bjóða
í afmæliskaffi.
Allir nemendur eiga að
mæta við skólaslit og taka við
prófskírteinum sínum. Einnig
er tekið við umsóknum um
skólavist fyrir næsta skólaár.
NOKKRAR VÍSBENDINGAR:
GOTTVERÐ
GLÆSILEGUR
2 LOFTPÚÐAR
ABS HEMLAR
RÚMGÓDUR
SPARNEYTINN
SPRÆKUR
ÞÚ GETUR ÖRUGGLEGA EKKI ÍMYNDAÐ
ÞÉR HVAÐA BÍLTEGUND ÞETTA ER !