Morgunblaðið - 21.05.1998, Side 92
*
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPINKERFIHF
Wfipt hewlett
mHrJm packard
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Landmælingar Islands verða áfram með starfsaðstöðu að hluta í Reykjavík
Auka leig’uhús-
næði á Akranesi
LANDMÆLINGAR íslands verða
að öllum líkindum áfram með
aðstöðu í Reykjavík eftir að stofnun-
in verður flutt til Akraness.
Einnig verður sala á kortum
Xandmælinga áfram í Reykjavík, en
að sögn Guðjóns Ólafs Jónssonar,
aðstoðarmanns Guðmundar Bjarna-
sonar umhverfisráðheiTa, er senni-
legt að rekstur hennar verði boðinn
út.
Guðjón Ólafur sagði að rætt hefði
verið að Landmælingar hefðu áfram
einhverja aðstöðu í Reykjavík. Hann
sagði að þar yrði sennilega um að
ræða sameiginlega aðstöðu með öðr-
um ríkisstofnunum, sem störfuðu úti
á landi, og kæmu til greina
Skógrækt ríkisins og Landgræðsla
n"kisins.
Gert er ráð fyrir að Landmæling-
ar taki til starfa á Akranesi 1. janúar
1999. Rýma þarf núverandi húsnæði
í Reykjavík fyrir 1. apríl 1999.
Haustið 1996 var gengið frá samn-
ingi við húseigendur á Aki-anesi þar
sem gert var ráð fyrir rúmlega 1.300
fermetra húsnæði. Síðan hefur
stjórn Landmælinga hins vegar
ákveðið smávægilega viðbót við
húsnæðið. Sagði Guðjón Ólafur að
þar væri um að ræða um 100 fer-
metra, sem meðal annai-s væru
ætlaðir undir tölvubúnað. Þetta
myndi leiða til þess að heildarhúsa-
leiga stofnunarinnar á Aki’anesi
hækkaði að einhverju leyti, en
húsnæðið yrði engu að síður bæði
minna og ódýrara en það væri nú í
Reykjavík.
■ Ákveða að starfa/10
Nýju
apótekin
með 30%
markað-
arins
LYFJA Lágmúla og Apótekið
Smiðjuvegi eru langstærstu lyfja-
búðir landsins þótt þær hafi ekki
veríð stofnaðar fyrr en frelsi til lyf-
sölu var aukið fyrir rúmum tveimur
árum. Apótekin sem stofnuð hafa
verið á þessum tíma hafa náð um
30% lyfjamarkaðarins.
Frá því frelsi lyfjafræðinga til að
stofna lyfjabúðir var aukið í mars
1996 hefur lyfjabúðum fjölgað úr 44
í 61 eða um 40%. Flest nýju apótek-
in eru á höfuðborgarsvæðinu, eða
þrettán, sem er 62% aukning.
Nýju iyfjabúðirnar hafa náð veru-
legri markaðshlutdeild, eða 30% af
lyfseðilsskyldum lyfjum, eftir því
sem næst verður komist. Þrjár apó-
tekakeðjur hafa náð stórum hluta
þessara viðskipta.
Langstærstu lyfjabúðir landsins
eru nú Lyfja Lágmúla og Apótekið
Smiðjuvegi, hvor um sig með 5% til
6% markaðshlutdeild. Aður var eitt
af eldri apótekunum, Ingólfsapótek,
langstærsta apótek landsins. Lyfja-
dreifingin hefur færst í auknum
mæli á hendur apótekakeðja og er
því spáð að sú þróun haldi áfram ,
þannig að nokkrar slíkar keðjúr
muni ráða markaðnum í framtíðinni.
Samkeppnin á lyfjamarkaðnum
hefur leitt til nálægt 10% verðlækk-
unar á hlut sjúklinga í lyfjaverði,
þrátt fyrir að ríkið hafi á sama tíma
minnkað niðurgreiðslur sínar á
lyfjaverði um 800 milljónir kr. Þrátt
fyrir betra aðgengi almennings að
lyfjum og lægi'a verð hefur lyfja-
neysla ekki aukist meh-a en verið
hefur á undanförnum árum.
■ Keðjurnar herja/C4
Morgunblaðið/Ásdís
Helst illa á
ungunum
sínum
ANDARMAMMA sýndi hróðug
sjö unga á litlu tjörninni við
Ráðhúsið á gatnamótum Tjarnar-
götu og Vonarstrætis í gær.
Friðbert Njálsson, íbúi í
~ nágrenninu, sagðist hafa fylgst
með andarmömmu þegar hún
kom inn á fjörnina í gærmorgun.
Nokkur Ijón urðu á vegi þeirra
að tjörninni og duttu tveir þeirra
í tröppunum niður í bflhýsið en
allt fór vel að lokum og þeir
syntu á eftir andarmömmu. En
þá tók ekki betra við því veiði-
bjallan réðst að þeim og voru
fimm ungar eftir á hádegi. Sagði
Friðbert að óvíst væri hversu
margir ungar lifðu daginn af.
„Veiðibjallan bíður eftir að kom-
- ast í ungana og éta þá,“ sagði
hann. „Þetta er vargfugl og það
er leiðinlegt að horfa til hennar
núna á sveimi yíír ungunum."
MORGUNBLAÐIÐ kemur
■næst út laugardaginn 23. maí.
Nýtt heildarsamkomulag um loðnuveiðar milli fslands, Noregs og Grænlands
Aukinn hlutur Islands
og tvíhliða samningar
ÍSLAND fær 81% í sinn hlut samkvæmt heildar-
samkomulagi sem tókst í gær milli samninga-
nefnda Islands, Noregs og Grænlands um skipt-
ingu loðnustofnsins, en samkvæmt fyrri samningi
fengu íslendingar 78% í sinn hlut. Samkvæmt
nýja samningnum fá Grænlendingar 11% eins og
áður, en Norðmenn fá 8% í stað 11% áður.
Jafnhliða heildarsamningnum voru gerðir
tvíhliða samningar um aðgang að lögsögum land-
anna, og í samningi íslands og Noregs er kveðið á
um að norsk skip geti veitt allt að 35% af heildar-
kvóta sínum í íslenskii lögsögu í stað 60% áður.
Gagnkvæmar veiðar
Islands og Grænlands
f samningi íslands og Grænlands er kveðið á
um að íslensk skip geti stundað loðnuveiðar í
lögsögu Grænlands og jafnframt eru grænlensk-
um skipum heimilaðar veiðar í fiskveiðilandhelgi
íslands með ákveðnum takmörkunum.
Þá var gert gagnkvæmt samkomulag við
Grænlendinga um veiðar á úthafskarfa, og sam-
kvæmt því er hvorum aðila um sig heimilt að
Morgunblaðið/Kristinn
DAG Erling Stai, formaður norsku samn-
inganefndarinnar, Jóhann Sigurjónsson, for-
maður íslensku nefndarinnar, og Einar
Lenke, formaður grænlensku nefndarinnar,
undirrita samkomulagið um veiðar úr loðnu-
stofninum sem náðist í gær.
veiða 50% af úthlutuðum veiðiheimildum sínum í
úthafskarfa innan fiskveiðilandhelgi hins aðilans.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið að þessi niðurstaða
væri viðunandi fyrir íslendinga.
„Þessi samningur boðar vaxandi samskipti ís-
lendinga og Grænlendinga á sjávarútvegssviðinu
og ég tel það af hinu góða,“ sagði Halldór.
Búið að leggja gífurlega vinnu í málið
„Auðvitað vildum við fá sem mest út úr þessum
samningi, en sá fundur sem haldinn var í Kaup-
mannahöfn fyrir nokkru milli forystumanna
samninganefndanna leiddi til þess að menn töldu
mögulegt að ná samkomulagi og það hefur komið
í ljós. Það er búið að leggja gífurlega vinnu í þetta
mál og Jóhann Sigurjónsson hefur leitt það af
okkar hálfu. Að mínu mati hefur hann staðið sig
afar vel í því að gæta hagsmuna okkar og leiða
fram niðurstöðu, en það er að sjálfsögðu ljóst að
við Islendingar höfum mestra hagsmuna að gæta
í þessu máli sem stærsti aðilinn. Þetta er ekki
aðeins mikilvægur veiðistofn heldur jafnframt
mjög mikilvægt æti fyrir fiskistofna okkar.“
■ Hlutur ísIands/24