Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 9
FRÉTTIR
Gengur
50 km á
dag á
hringferð
um landið
Selfossi. Morgunblaðið.
SÆNSKI göngugarpurinn Erik
Reutersvard gengur 40-50 kíló-
metra á dag á tíu vikna göngu
sinni um ísland sem hófst 18.
jtíní á Seyðisfirði og þar mun
henni ljtíka 26. ágtíst.
Erik gerir ráð fyrir að leggja
að baki 3.000 kílómetra á þess-
ari göngu sinni um landið. Hann
segist fylgja hringveginum að
hluta en ganga með strandlengj-
unni eins og iiægt er. Utbúnaður
hans er ekki mikill, skokkskór,
stuttbuxur og 8-10 kílóa bak-
poki.
Gekk alla evrópsku ströndina
Erik göngumaður hefur áður
lagt langar leiðir að baki. A ár-
unum 1991-1997 gekk hann eft-
ir evrópsku ströndinni frá
Barentshafí til Svartahafs að
Stóra-Bretlandi meðtöldu. Erik
helgar sænsku krúnunni allt það
land sem hann nær að ganga í
kringum.
Erik gengur um landið í sam-
starfi við Norræna félagið og
gistir innandyra á áningarstöð-
um þar sem alltaf er tekið vel á
móti honum. Þegar hann kom
til Selfoss á mánudagskvöld
tóku fulltrúar Norræna félags-
ins á móti honum við Gesthús á
Selfossi þar sem Jóhanna Ró-
bertsdóttir rekstrarstjóri bauð
liann velkominn, en Gesthús
hafa góð tengsl við Norðurlönd-
in, því þangað koma margir
hópar ferðafólks, einkum frá
Svíþjóð.
Erik göngugarpur lét þreyt-
una Iíða tír sínum hínu fótum í
einum heita pottinum á staðnum.
„Þetta er dýrðlegt," sagði Erik
þegar hann sá heita pottinn, en
daginn eftir var áætlunin Selfoss
- Strandarkirkja og síðan
Strandarkirkja - Grindavík.
Utsalan
er hafin
Morgunblaðið/Sig. Fannar
JÓHANNA Róbertsdóttir, ickstrarstjóri Gesthtísa, býður Erik
göngumann velkominn. Með þeim á myndinni er Þorlákur Helgason
fræðslustjóri, fulltrúi Norræna félagsins á Selfossi.
Loka skal gluggum og læsa dyrum
Innbrotum
Qölgar í heimahús
LÖGREGLAN í Reykjavík vill
hvetja fólk til að huga vel að hý-
býlum sínum áður en haldið er í
sumarfrí. Biður hún húsráðendur
að loka vel gluggum og læsa út-
gönguleiðum.
AÐ sögn Karls Steinars Vals-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
hefur lögreglan á undanförnum
vikum orðið vör við fjölgun inn-
brota í heimahús og vill því minna
fólk á að ganga vel frá hýbýlum
sínum þegar farið er í frí.
Karl Steinar segir að best sé að
fá ættingja eða nágranna til að
fylgjast með íbúðunum. Hann seg-
tí það hafa vakið athygli lögregl-
unnar hvað þjófar hafi haft greið-
an aðgang að íbúðunum. Dæmi
eru þess að gluggar hafi verið
skildtí efttí opnir og svalar- og
garðdyr ólæstar.
Töfraundirpilsin komin
Opið virka daga 9 — 18,
laugardaga 10—14.
TESS^
neðst við Dunhaga,
sími 562 2230.
Dimmalimm
Skólavöröustíg IO, sími 551 1222
* .............. ........ ...............»"=^ 1
Verslunin er full af nýjum vörum!
Kjólar — pils — bermudabuxur
blússur — bolir og margt, margt fleira.
Allt á góðu verði!
Meyjarnar Austurveri,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
■ ----v
Haffræðistofnun Evrópu í Portúgal
Islendingar
taka þátt í undir-
búningsráðstefnu
ÍSLENDINGUM hefur verið boð-
ið að taka þátt í undirbúningi
stofnunar Haffræðistofnunar Evr-
ópu í Portúgal sem ráðgert er að
koma á fót á þessu ári. Fulltrúar
Islendinga munu sitja á undirbún-
ingsráðstefnu sem haldin verður í
byrjun næstu viku. Auk Evrópu-
sambandsríkjanna hefur Islandi,
Sviss og Noregi verið boðið að
taka þátt í undirbúningsráðstefn-
unni.
„Ætlunin er að stofnunin verði
samstarfsstofnun einstakra ríkja
sem eiga að henni aðild en ekki
hluti af Evrópusambandskerfmu,“
segir Björn Bjamason mennta-
málaráðherra. „Þarna er ætlunin
að fjalla um allt sem varðar málefni
hafsins, stofnunin verði miðstöð til
upplýsingar fyrir alla sem starfa á
þessu sviði. Hvort sem það eru haf-
rannsóknir, haffræðilegar, veður-
fræðilegar eða loftslagsrannsóknir,
fiskveiðar og kaupskipasiglingar
eða önnur nýting á haflnu. Það er
mjög við hæfi að Evrópuríkin hugi
að samstarfi sínu á þessu sviði nú á
ári hafsins,“ segtí Björn.
Það er vísinda- og tækniráðu-
neyti Portúgals sem stendur fyrir
ráðstefnunni en hér á landa heyra
vísindi og rannsóknir undir
menntamálaráðuneytið. Af hálfu
þess verður málið síðan kynnt fyrir
öðrum ráðuneytum eins og sjávar-
útvegsráðuneyti, samgönguráðu-
neyti og umhverfisráðuneyti. Full-
trúar Islendinga á ráðstefnunni í
næstu viku verða Sverrir Haukur
Gunnlaugsson sendiherra og Stef-
án Baldursson, skrifstofustjóri
mennta- og vísindaskrifstofu ráðu-
neytisins.
Sumarútsalan
í fullum gangi — mikið úrval
któ~Q$€mfhhiMí
~ Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Glæsileg útsala
fyrir stráka og stelpur
Afsláttur 40—60%
Spice Girls sett áður 2.490 nú 990
Leggingssett áður 2.590 nú 1.590
Telpnadress áður 3.990 nú 1.990
Joggingallar áður 2.990 nú 1.990
Gallabuxur áður 2.990 nú 1.590
Barnakot
^ringlunni A-6 sími 588 1340
Sendum í póstkröfu
OTTU ÞESS
1 MAT OG DRYKK,
ÞAÐ KOSTAR EKKI M
BESTA
EIRA.
RELAIS &
CHATEAUX.