Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 11
FRÉTTIR
ÞRÖSTUR EUiðason og Aðalsteinn Pétursson með fallega veiði neðan
Æðarfossa í Laxá í Aðaldal fyrir skömmu. Laxarnir voru 5 til 15 pund.
„Allir sælir“
við Straum-
fjarðará
ÞAÐ er „ágætis kropp fyrir vest-
an“ eins og Ástþór Jóhannsson,
einn leigutaka Strauinfjarðarár,
lýsti veiðiskap í ánni að undan-
fórnu í samtali við Morgunblaðið.
„Veiðin er talsvert betri en í
fyrra og nú er rigningin komin
og þá ætti ástandið að batna enn
frekar. Hver stöng tekur á bilinu
einn til þrjá laxa á dag og allir
eru sælir. Eg frétti af mönnum
sem voru í holli sem tók hátt í
200 laxa í Norðurá en voru sjálfir
bara með fjóra laxa, þannig að
magnið og sælan eru afstæð á
stundum," sagði Ástþór.
Fyrstu laxarnir eru komnir á
land úr Reykjadalsá í Borgar-
firði, sem er gott, því hún er al-
ræmd síðsumarsá. Lax hefur
raunar víða sést, en tekið illa í
bjartviðrinu og vatnsleysinu. Það
gæti breyst nú um stundir þar
sem flóðgáttir himins eru brostn-
ar.
Sjóbleikjuveiði glæðist
Þá eru fyrstu laxarnir komnir
úr Hrolleifsdalsá á Skaga. Nokk-
ur stykki, þar af einn sextán
punda. Annars er Hrollan fyrst
og fremst sjóbleikjuá og er sá
veiðiskapur að taka við sér þessa
dagana.
Rúmlega sjötíu laxar hafa
veiðst í Straumunum í Borgar-
firði það sem af er sumri. Það er
svipuð tala og veiddist á svæðinu
allt síðasta sumar. Laxinn hefur
legið mikið á þessum slóðum
vegna vatnsleysis og birtu, m.a.
hefur verið döpur veiði í Gljúfurá
sem ásamt Norðurá myndar
Straumana þar sem þær renna
sameiginlega til Hvítár. Vætutíð-
in gæti kippt Gljúfurá í lag.
Doktor í við-
skiptafræði
•PÁLL M. Ri'kharðsson varði dokt-
orsritgerð sína Mat á umhverfisár-
angri fyi-irtækja: Kerfi og stefnur,
hinn 20. maí sl. við Viðskiptaháskól-
ann í Árósum.
Andmælendur
voru Tage Rasmus-
sen dósent við Við-
skiptaháskólann í
Árósum, Richard
Welford, prófessor
við Háskólann í
Huddersfield í
Englandi og Lars Finsen, umhverfis-
stjóri Danfoss í Danmörku. Doktors-
verkefnið er unnið fyrir ráðgjafarfyr-
irtækið Price Waterhouse þar sem
Páll hefur starfað síðan 1994. Doktors-
nám Páls var svonefnt iðntengt dokt-
orsnám sem hlaut styrk frá Akademi-
et for de Tekniske Videnskaber. Leið-
beinandi Páls var John Ulhoi, lektor
við Viðskiptaháskólann í Ái’ósum.
Ritgerðin fjallar um möguleika fyr-
irtækja á að vega og meta umhverfis-
áhrif á skipulagðan hátt og notkunar
umhverfislykiltalna og upplýsinga-
tækni í þeim tiigangi. Aðferðir 20
danskra og 4 enskra stórfyrirtækja
við mat á umhverfisárangri og birting
umhverfisupplýsinga í umhverfis-
skýrslum fyrirtækjanna voru rann-
sakaðar. Ennfremur hannaði Páli um-
hverfisupplýsingakerfi fyrir tvö
dönsk stórfyrirtæki og kannaði
hvernig það gæti samlagast þeim
uppiýsingakerfum sem fyrii- voru í
fyrirtækjunum.
Helstu niðurstöður ritgerðarinnar
eru tvær. I fyrsta lagi að skipulegt
mat á umhverfisárangri getur leitt til
töluverðs sparnaðai' fyrir fyrirtæki og
samtímis komið umhverfinu til góða
vegna minni mengunar og umhverfis-
spjalla. í framhaldi af því gagnrýnir
ritgerðin meðal annars hinn væntan-
lega ISO 14031 staðal um mat á um-
hverfisárangri fyrirtækja og sýnir
fram á hvernig bæta má þá aðferða-
fræði sem notuð er í staðlinum. í öðru
lagi sýnir ritgerðin hvemig nota má
upplýsingatæknina til söfnunar og
vinnslu umhverfisgagna og dreifingu
þeirra til stjórnenda og hagsmunaað-
ila fyrirtækisins. Til dæmis geta fyr-
irtæki nýtt sér þá tækni sem liggur
að baki Internetinu, valið að breyta
t.d. bókhaldskerfum eða framleiðslu-
stjórnunarkerfum í uphverfisupplýs-
ingakerfi eða keypt staðlað umhverf-
isupplýsingakerfi. Þróun og sala
slíkra kerfa er ört vaxandi iðnaður og
bjóða mörg þekkt kerfi eins og t.d.
Concorde, Oracle og SAP uppá stöðl-
uð umhverfisupplýsingakerfi.
Síðastliðin ár hefur Páll skrifað
margar greinar um umhverfisstjórn-
un og umhverfisreikningsskil í dönsk
og ensk vísindarit svo sem Business
Strategy and the Environment, Eco-
Management and Auditing, Greener
Management International og
Virksomhedens Miljohándbog.
Einnig hefur Páll skrifað kafla í
kennslubækur um umhverfisstjórnun
og umhverfisreikningsskil og skrifað
greinar í dagblöð og fagtímarit í Dan-
mörku, Englandi og Bandaríkjunum.
Páll ritstýrði á síðasta ári, ásamt öðr-
um, bók um umhverfisreikningsskil
sem kallaðist „Virksomhedens
Miljoregnskab" og var gefin út af
Borsens Forlag í Danmörku.
Páll lauk námi í viðskiptafræði við
Háskóla íslands árið 1991 og cand
merc. námi frá Viðskiptaháskólanum
í Árósum árið 1993. Hann er fæddur
árið 1966 í Reykjavík og er sonur Rík-
harðs Jónssonar fv. skipstjóra (d. 15.
maí 1997) og Huldu Guðmundsdöttur
leiðbeinanda. Stjúpfaðir Páls er Örn
Guðmundsson húsasmíðameistari í
Reykjavík. Páll er kvæntur Lone
Rebsdorf, sálfræðingi og eiga þau
tvær dætur. Hann starfar sem um-
hverfisstjómunarráðgjafi hjá ráð-
gjafarfyrirtækinu Price Waterhouse í
Danmörku og kennir jafnframt um-
hverfisreikningshald við Viðskiptahá-
skólann í Árósum.
3 manna
Svefnpokar f.
bom
Box-
vindsængur
og fullorðna
1.500,-
Verð
fra
aðeins
Tvíbreió
120x200x8 sm:
tmangrunar■
dýna
Draco
Embreió
74x198x8 sm:
bakpokar
185x50 sm
36
lítra
4 manna:
• Lofí"
; einangrunar-
I dýna
^ 180x50 sm. Jk
• SMÁRATORG11, 200 KÓP. REYKJAVlKURVEGI 72 •
■I Q 510 7000 220 HAFNARFJÖRÐUR •
0 HOLTAGÖRÐUM, 104 RVÍK S 565 5560 0
S 588 7499
SKEIFUNN113,108 RVÍK
B 568 7499
NORÐURTANGA 3,600 AK.
Q 462 6662