Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Tíu ára afmæli Blönduósbæjar
Jafnaldrar
bæjarins
gróðursettu tré
fögnuðu einnig tíu ára afmæli
og plöntuðu fulltrúar þeirra
einnig trjám. Til gamans má
geta að plantað var nokkrum
grenitrjám sem ræktuð voru af
fræjum jólatrés frá vinabæ
Blönduóss, Moss í Noregi, en
umrætt tré var uppistandandi
jólin 1988. Sú er kom fræjum
vinabæjartrésins í frjóa mold,
annaðist þau og kom á legg er
ræktunarkonan Sveinbjörg Jó-
hannesdóttir á Blönduósi.
Blönduósi - Haldið var upp á
tíu ára afmæli Blönduósbæjar
um síðustu helgi. Margt var til
skemmtunar og meðal annars
plöntuðu börn á Blönduósi,
sem tíu ára eru á þessu ári,
tijám í tilefni tímamótanna.
Trjánum var plantað þar sem
áður stóð húsið Brúarland.
Við sama tækifæri plöntuðu
konur í kvenfélaginu Vöku á
Blönduósi tijám í umræddan
reit. Tvö fyrirtæki á Blönduósi
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
JAFNALDRAR Blönduósbæjar plöntuðu trjám í tilefni 10 ára afmælis bæjarréttinda og nutu
við það aðstoðar foreldra.
Styrkjum úr Menningarsj óði
Landsbankans úthlutað
Vopnafírði - Á 112 ára afmælis-
degi Landsbanka Islands, hinn 1.
júlí, úthlutaði bankinn 4 milljónum
króna úr Menningarsjóði Lands-
bankans. Meðal styrkþega voru
Vopnafjarðardagar, sem er menn-
ingarhátíð Vopnfirðinga, styrkur-
inn nam 100 þúsund krónum.
Markmið menningarsjóðsins er
að veita stuðning og styrkja með
fjárframlögum verðug mannúðar-,
mennta- og menningarmál að mati
sjóðsstjórnar. I stjórn sjóðsins
sitja: Helgi S. Guðmundsson, for-
maður bankaráðs Landsbanka Is-
lands, Halldór J. Kristjánsson aðal-
bankastjóri, Kjartan Gunnarsson,
varaformaður bankaráðs, og Þór-
unn K. Þorsteinsdóttir, formaður
starfsmannafélags Landsbanka ís-
lands. Úthlutað verður úr sjóðnum
1. júlí og 1. desember ár hvert, en
þetta er fyrsta úthlutun úr sjóðn-
um.
Sigríður Dóra Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri Vopnafjarðar-
daga, tók við styrknum af Víglundi
Pálssyni, útibússtjóra Landsbank-
ans á Vopnafirði. Sagði Víglundur
af þessu tilefni að Landsbankinn
hefði lengi styrkt ýmis menningar-,
mennta-, og mannúðarmál, þó svo
að þetta væri gert opinberlega að
þessu sinni.
Auk Sigríðar Dóru eru í fram-
kvæmdastjórn Vopnafjarðardaga
þau Aðalheiður Steingrímsdóttir og
Guðjón Böðvarsson, en hátíðin
verður að þessu sinni dagana 25.
Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir
SIGRÍÐUR Dóra Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Vopnafjarðardaga,
tók við styrknum af Víglundi Pálssyni, útibússtjóra Landsbankans á
Vopnafirði.
júlí til 3. ágúst. Meðal efnis á
Vopnafjarðardögum á þessu sumri
eru Hagyrðingakvöld 25. júlí og
Sagnakvöld 30. júlí, þessir viðburð-
ir hafa notið mikilla vinsælda
heimamanna sem aðkomufólks.
Eiginlegt Vopnaskak hefst svo 31.
júlí, er þar um að ræða fjölskyldu-
skemmtun með ýmsum uppákom-
um, tónleikum og dansleikjum.
Meðal annars verður boðið upp á
golfmót, siglingu, dorgveiðar,
sjóstangaveiðimót og fjársjóðsleit,
svo eitthvað sé nefnt. Sunnudaginn
2. ágúst er Bustarfellshátíð, starfs-
dagar á minjasafninu á Bustarfelli.
KIRKJAN að Búðum.
KIRKJAN á Búðum.
Siimarmessur á Búðum
Hellissandi - Búðir á Snæfellsnesi
eru vinsæll og fjölfarinn ferða-
mannastaður. Þar er mikið fjöl-
menni flestar helgar sumarsins.
Viktor Sveinsson hótelstjóri hef-
ur oft bent á að ástæða sé til að
reyna að messa þar sem flesta
sunnudagsmorgna á sumrin og
kynna hina merkilegu 151 ára
gömlu kirkju staðarins í leiðinni.
Nokkrum erfiðleikum er þó háð að
koma því við af ýmsum ástæðum,
hvað sem síðar verður. Búðasókn er
lítil og fámenn sveitasókn sem get-
ur ekki ein og óstudd staðið undir
miklum tilkostnaði við slíkt messu-
hald og kynningu á kirkjunni.
Til reynslu hefur sóknarnefndin
samt ákveðið að flytja þar fjórar
slíkar messur á þessu sumri sér-
staklega ætlaðar ferðafólki.
Fyrsta messan fór fram 28. júní
síðastliðinn og var geysilega vel
sótt. Sú næsta verður n.k. sunnu-
dag, 12. júlí kl. 11. Síðan verða tvær
messur í ágústmánuði, þann 9. og
23. ágúst.
Ef þessi tilraun gefst vel verður
örugglega framhald á þessu á
næstu árum og messunum þá fjölg-
að og er það von sóknarnefndar að
stuðningur fleiri aðila við þetta
framtak komi til.
DIESEL
rRAGRANCes
PLUS PLUS
COOLINGBOX
SUMARSMELLUR
MEÐ DIESEL
T-BOL OG
75 ML EDT.
DIESEL verslun
Morgunblaðið/Sverrir Karlsson
Lyftari valt á hliðina
LYFTARI valt þegar verið var að
vinna við bátaaðstöðu í fjöruborði
hafnarinnar á Grundarfirði. Lyftar-
inn var að lyfta staur þegar slysið
átti sér stað. Staurinn reyndist erf-
iður viðureignar og hallaðist lyftar-
inn með þeim afleiðingum að hann
féll alveg niður á hliðina. Verið var
að staðsetja aðstöðu fyrir báta niðri
í fjöruborðinu þegar slysið átti sér
stað. Engin slys urðu á fólki en lyft-
arinn er talsvert skemmdur.