Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
Framkvæmdastjóri Oslands ehf.
segir Hollustuvernd fara offari
Verðum fyrir
miklu tjóni
FRAMKVÆMDASTJÓRI Óslands
ehf. á Höfn í Hornafirði segir Holl-
ustuvernd ríkisins fara offari vegna
afturköllunar á starfsleyfi fiskimjöls-
verksmiðju félagsins hinn 3. júlí sl.
Hann segir fyrirtækið ekki fá notið
réttar síns í málinu og verða fyrir
miklu tjóni vegna þess. Stjórn fyrir-
tækisins sé nú að ákveða næstu
skref í málinu. Hollustuvernd segir
Ósland ehf. hafa haft feikinógan tíma
til úrbóta í mengunarmálum en úti-
lokar ekki að verksmiðjan fái bráða-
birgðastarfsleyfi á haust- og vetrar-
vertíð.
Halldór Árnason, framkvæmda-
stjóri Óslands ehf., segir að í starfs-
leyfi fiskimjölsverksmiðjunnar hafi
verið frestur til 1. júlí sl. til að koma
upp mengunarvörnum. Hann segir
Ósland ehf. hafa uppfyllt kröfur
starfsleyfisins fyrir utan að ekki hafi
verið komið fyrir búnaði til að koma í
veg fyrir lyktarmengun frá verk-
smiðjunni. Starfsleyfið hafi hins veg-
ar ekki runnið sjálfkrafa út þó ekki
hafi verið brugðist við þessu fyrir til-
greindan tíma heldur hafi þurft að
grípa til sérstakra aðgerða til að aft-
urkalla það.
„Allan þann tíma sem þetta mál
hefur verið í umfjöllun höfum við
gert viðeigandi aðilum grein fyrir því
að þessum búnaði verður ekki komið
fyrir nema með því að byggja nýja
verksmiðju. Til þess þarf aðra
þurrkaratækni. Við höfum gert áætl-
anir um að þessi búnaður verði kom-
inn í gagnið í maí 1999 og allar
ákvarðanir þar að lútandi liggja fyr-
ir. Það er okkar mat að við höfum
ekki notið þess andmælaréttar sem
okkur ber samkvæmt stjórnsýslulög-
um, meðal annars vegna lagaskila
eldri og yngri laga sem urðu á með-
an meðferð stóð, og að Hollustu-
vernd hafi hér farið offari. Stjóm Ós-
lands er nú meta hver verða næstu
skref í málinu."
Jafnræðis
ekki gætt
Halldór segir Ósland hljóta alltof
harða refsingu fyrir tiltölulega lítið
brot. Mengunin frá verksmiðjunni
skaði ekki náttúruna á nokkum hátt
að öðm leyti en því að lyktin frá
henni sé hvimleið fyrir íbúa á Höfn.
„Við höfum tekið ákvarðanir um að
lyktinni skuli eytt. Við höfum beðið
um tíu mánaða frest til að taka á
málinu og vísum meðal annars til
þess að SR-mjöl á Reyðarfirði hefur
frest til 1. júlí 1999 og SR-mjöl á
Raufarhöfn til tveggja ára. Það er
lengri frestur en við biðjum um
þannig að hér virðist ekki gætt jafn-
ræðis í afgreiðslu Hollustuverndar.
Þessi atriði eram við að fara yfir
núna.“
Fyrirtækin verða af þjónustu
Halldór segir mjög mikilvægt að
fá vinnsluleyfið sem allra fyrst aftur
ÚR VERINU
stjórnarinnar að hagsmunir íbúa
Hornafjarðar, svo og ferðamanna og
annarra sem dveljast tímabundið á
staðnum, af því að dregið verði úr
lyktarmengun í ar.drúmslofti séu
hér miklum mun ríkari en fjárhags-
legir hagsmunir Óslands ehf. af því
að draga framkvæmdirnar og því
beri að hafna breytingu á starfsleyfi
verksmiðjunnar hvað þetta varðar.
Jafnræðisreglan
ekki brotin
Þá hafnai- Hollustuvemd því að
jafnræðisregla stjórnarskrárinnar
hafi verið brotin á Óslandi ehf. þótt
fjóram loðnuverksmiðjum hafi verið
veittur lengri frestur til að koma upp
mengunarvamarbúnaði. Stofnunin
bendir á að ein þessara verksmiðja sé
ekki starfrækt og verði ekki tekin í
notkun á ný fyrr en nýir þurrkarar
og þar með mengunarvarnarbúnaður
sé kominn upp. Hinar verksmiðjurn-
ar þrjár séu í eigu SR-mjöls hf. sem
þegar noti fullkominn mengunar-
vamarbúnað í tveimur af fimm verk-
smiðjum sínum og vinni samkvæmt
áætlun að framkvæmdum við hinar.
Starfsleyfi í haust og vetur
kemur tU greina
Mengun frá verksmiðjunni er
hvað mest á loðnuvertíð að sumri. Þá
era vindáttir óhagstæðastar og hrá-
efnið lélegast og engin manneldis-
vinnsla á loðnu fer þá fram. Holl-
ustuvernd ríkisins hefur upplýst for-
ráðamenn Óslands ehf. um að til
greina komi að heimila vinnslu í
verksmiðjunni á næstu haust- og
vetrarvertíð án lyktareyðingarbún-
aðar ef um það verði sótt, en þá
stafar minni mengun frá verksmiðj-
unni vegna hagstæðari ríkjandi vmd-
átta. A þann hátt yrði engin traflun á
manneldisvinnslu vegna bræðslunn-
ar. Það er mat Hollustuverndar að
með engu móti verði sagt að stofnun-
in hafi farið fram af neinu offorsi sé
litið yfir feril málsins.
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir
SMÍÐI hráefnistanka við Ósland í desember 1995.
því verksmiðjan verði íyrir miklu
tjóni á meðan sumarloðnuvertíðin
stendur sem hæst. „Það er öfugsnúið
í þessu máli að um leið og verið er að
refsa Óslandi bitnar refsingin á þeim
sem Hollustuvernd telur sig vera að
vemda. Bæjarbúar sem skrifuðu
undir skjal þess efnis að þeir „skor-
uðu á bæjaryfirvöld að eitthvað yrði
gert í málum bræðslunnar fyrr en
síðar“ verða nú fyrir fjárhagslegu
tjóni, þar sem ekki er veittur tíu
mánaða frestur til umbóta í málinu
eins og beðið er um. Þetta er vegna
þess að á meðan verksmiðjan er ekki
starfrækt verður bæjarfélagið og
fyrirtæki á staðnum af ýmiskonar
þjónustu í tengslum við hana,“ segir
Halldór.
Byggja á fjárhag-slegum
rökum
Hjá Hollustuvemd ríkisins feng-
ust þær upplýsingar að í starfsleyfi
fiskimjölsverksmiðju Óslands ehf.,
sem gefið var út 12. september 1995,
hafi verksmiðjunni verið veittur
frestur til 1. ágúst 1997, eða tæp tvö
ár, til að koma upp lykteyðingarbún-
aði. Jafnframt átti fyrirtækið að
leggja fram áætlanir og ákvörðun
um uppsetningu búnaðarins eigi síð-
ar en 1. maí 1996. Þetta telur Holl-
ustuvemd að hafi verið fullkomlega
nægilegur tími.
I úrskurði stjómar Hollustu-
verndar segir að ekki verði réttlæt-
anlegt gagnvart öðram eigendum
fiskimjölsverksmiðja, sem unnið hafi
að hliðstæðum úrbótum í mengunar-
málum, að Ósland ehf. komist upp
með það ár eftir ár að gera ekkert í
málunum. Ekki hafi verið af hálfu
Óslands sýnt fram á tæknileg vand-
kvæði á uppsetningu búnaðarins og
tæknimenn Hollustuverndar telji
hana vel framkvæmanlega með því
að byggja við núverandi verksmiðju.
Stjórnin líti því þannig á að Ósland
hf. fiskimjölsverksmiðja byggi kenn-
ingu sína um ómöguleika aðeins á
fjárhagslegum rökum, þ.e. að fram-
kvæmdin hafi í för með sér kostnað
sem nýtist ekki til frambúðar verði
verksmiðjan flutt. Það er mat
ItlBíC'O
Gyða Dröfn Tryggvadóttir spjallar við fjórar konur
um ævintýra- og óvissuferð þeirra til Bosníu.
í blaðinu á sunnudaginn.
flketfíjffi