Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 35
AÐSENDAR GREINAR
Fyrir hvern einn
í fýlu koma tíu
SIGHVATUR
Björgvinsson formað-
ur Alþýðuflokksins -
J afnaðarmannaflokks
Islands hefur eins og
kunnugt er beitt sér
fyrir því að sameina
vinstrimenn í land-
inu. Hann hefur, að
eigin sögn, beitt til
þess öllum tiltækum
ráðum og hefur nú
nýlega sýnt meiri
hugkvæmni en áður
var þekkt á byggðu
bóli. Hugkvæmnin
birtist ekki í því að
reyna að sameina þá
sem fyrir eru í flokk-
um vinstrimanna í nýrri stjórn-
málahreyfingu eða í nýju fram-
boðsafli. Það eru gamaldags og
úreltar aðferðir eins og kunnugt
er og tímafrekar. I fréttum sjón-
varpsins í gærkvöld benti for-
Hin gamla sögn Biblí-
unnar um glataða son-
inn, segir Svavar
Gestsson, verður eins
og hjóm eitt fyrir þess-
ari nýju sameiningar-
kenningu Sighvats
Björgvinssonar.
maður Alþýðuflokksins - Jafnað-
armannaflokks íslands á að það
væri ástæða til að gleðjast yfir
hverjum einum sem færi því jafn-
óðum koma tíu í staðinn. Þetta er
einkar augljóst þegar þess er
gætt - eins og Sighvatur benti á
- að þeir sem fara eru að hans
sögn, yfírleitt í fýlu. Þess vegna
er þeim mun meira tilefni til að
gleðjast þegar þeir fara. Þannig
verður hin gamla sögn Biflíunnar
um glataða soninn og veisluna
þegar hann koni til baka allt í
einu eins og hjóm eitt fyrir þess-
ari nýju sameiningarkenningu
Sighvats Björgvins-
sonar. Nær hefði ver-
ið, í Biflíunni, að
slátra alikálfi þegar
sonurinn fór en þegar
hann kom. Þannig er
hver genginn gleði-
efni. Merkilegt ér að
það skuli hafa tekið
þúsundir ára að kom-
ast að þessum mikil-
vægu sannindum. Nú
er svo komið að þessi
augljósu sannindi
verka hversdagslega
á hvern mann um leið
og þau eru sögð eins
og er um allar miklar
uppgötvanir. Má
mannkynið sannarlega vera
þakklátt fyrir þessi kaflaskil og
breiðist hróður kenningasmiðsins
nú vonandi sem víðast um heims-
byggðina.
Nú hafa einir 38 félagar sagt
sig úr Alþýðubandalaginu á Þórs-
höfn á Langanesi. Þar á meðal er
Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður. Ekki taldi Sighvatur
ástæðu til að sjá eftir honum.
Enda óþarfí því einmitt þegar
Steingrímur fór leystist úr höfði
Sighvats sú nýja stjórnmóla-
kenning sem áður var rakin.
Samkvæmt henni koma nú 380 í
flokkinn í staðinn fyrir þá 38 sem
fóru út á Þórshöfn. Merkilegt er
reyndar til umhugsunar að Sig-
hvatur skuli ekki hafa beitt sér
fyrir þessari aðferð í Alþýðu-
flokknum sem yrði samstundis
miklu stærri en Sjálfstæðisflokk-
urinn og upp úr því stærsti flokk-
ur í heimi og þó víðar væri leitað.
En kannski er það aðeins til
marks um óeigingjarna einingar-
fórnfýsi þessa stjórnmálaleiðtoga
að hann skuli hafa geymt þessa
kenningu í kolli sínum til þessa
dags eins og rúsínuna í pylsuend-
anum.
Astæða er til að óska þjóðinni,
gott ef ekki mannkyninu, til ham-
ingju með þessi tímamót!
Höfundur er áhugamaður um sam-
fylkingu, jafnvel sameiginlegt fram-
boð, vinstrimanna.
Svavar
Gestsson
heimtu. Ef arður verð-
ur af nýtingu auðlindar
er hann skattlagður og
tekjumar renna í ríkis-
sjóð. Ef tap er af nýt-
ingu auðlindar verður
enginn skattstofn til og
engar tekjur renna til
ríkisins. Aðalatriðið er
þess vegna að sjávarút-
vegsfyrirtæki skili
hagnaði og þar er
kvótakerfíð að skila
frábæmm árangri.
Veiðigjald jafngildir því
að skatturinn sé rakk-
aður inn fyrirfram,
hvort sem hagnaður
eða tap er af nýtingu
auðlindarinnar. Þetta er ótrúlega
vitlaus hugmynd. Og hún er gömul
og þreytt. Með henni er fólki ætlað
að hugsa ekkert um þá sem hafa
orðið gjaldþrota í sjávarútvegi eða
eru að berjast í bökkum um þessar
mundir. Það á bara að hugsa um þá
sem hafa efnast á atvinnugreininni
og öfunda þá. Með orðinu gjafakvóti
er gefið í skyn að útgerðir fái afla-
heimildir ókeypis. Skrifstofumann-
inum á að finnast að hann eigi líka
að fá svona aflaheimild ókeypis.
Hann á ekki að hugsa um hvað það
kostar að sækja fiskinn. Og hann á
ekki að skrifa undir nein skuldabréf
vegna kaupa á þeim tækjabúnaði
sem þarf til veiðanna. Hann á bara
að sitja heima, bíða eftir umslaginu
sínu og öfunda þá sem vel gengur en
gleyma hinum sem verr vegnar. Og
umfram allt; hann á ekki að taka
neina áhættu. Honum
hefur verið sagt, með
jöfnu millibili í nokkur
ár, að hann sé hluti af
stórbrotinni undiröldu í
þjóðfélaginu, undiröldu
gríðarlegrar óánægju
sem bráðum brjótist út
í hreinni uppreisn gegn
þessu voðalegasta
ranglæti allra tíma. í
„Þjóðvaka um þjóðar-
eign“ era skráðir rúm-
lega tvö þúsund ein-
staklingar sem jafn-
gildir 0,8% af íbúum
eyjarinnar.
Þannig hafa 99,2%
Islendinga ekki ennþá
skráð sig formlega í undirölduna.
Til að ná þeim inn í skrána, verður
orðið gjafakvóti óspart notað. A
meðan „Þjóðvaki um þjóðareign"
hrópar um gjafakvóta, veiðir út-
gerðin yfir tvær milljónir lesta af
fiski í lögsögunni á ári. Það þarf hún
að gera til að standa undir skuld-
bindingum sínum og skila vaxandi
velmegun inn í samfélagið. Þeir sem
hrópa hæst um gjafakvóta, ætla
ekki að taka neina áhættu við að ná
í þennan fisk. En þá langar í meiri
pening. Hér ríkir ekki fegurðin ein,
ofar hverri kröfu. Orðið gjafakvóti
felur í sér blekkingu sem er ætlað
að æra upp tiltekna kennd. Þetta er
kennd sem ekki er haft hátt um, því
maðurinn skammast sín fyrir hana.
Höfundur er framkvæmdastjóri Út-
vegsmannafélags Norðuiiands.
Bjarni Hafþór
Helgason
ætlum viö æ
hamborpra
Ef þú kaupir MEGA MAC hamborgarann e§
framvisar Gjafamiða frá Samhíóunum áttu
möguleika á að eignast ARMAGEÐDON bol
eða húfu. eða ARMAGEDDON geisladisk
á meðan birgðir endast.
McDonald's
Varilux High Vision margskipt gler
Nú bjóðum við einstakt tilboð á gleraugum
með margskiptu gleri frá hinum
virta glerframleiðanda
HOYA LENSES
— Verð aðeins
22.900kr
Innifalið í verði: Spöng með margskiptu vatns- og móðuhrindandi
gleri eða plasti auk rispu- og glampavarnar.
GLERAUGNAVERSLUN
HAGKAUPS
Skeifunni Sími 563 5125