Morgunblaðið - 10.07.1998, Qupperneq 60
Sparaðu
tíma,
sparaöu
peninga
'BÚNAÐARBANKINN
ip' traustur banki
MeWiiM
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Engum varð meint af þegar 35 manna hópur lenti í hrakningum á Vatnajökli
Morgunblaðið/Málfrid Grimstvedt
SKYGGNI á Vatnajökli var mjög slæmt og þar var mikil ofankoma og rok, þegar norski ferðahópurinn lenti í hrakningum á miðvikudagskvöld.
SOPHIA Hansen og Halim A1 í Divrigi í gær eftir að Sophia hafði eytt dagstund með
Á milli þeirra stendur ungur sonur Halims.
Fauk útaf
veg*i og
mjaðmar-
brotnaði
FRANSKUR hjólreiðamaður
fauk út af þjóðveginum við
Hofsá í Álftafirði í roki um há-
degi í gær og slasaðist talsvert.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti manninn til Djúpavogs og
flutti til Reykjavíkur.
Að sögn lögreglunnar á
Djúpavogi var bálhvasst á Aust-
fjörðum í gær, allt að 8 til 9
vindstig. Nýlögð klæðning var á
vegarkaflanum þar sem maður-
inn fauk út af veginum og lausa-
möl og vindur stóð honum á
hlið.
Þyi’lan lenti í Reykjavík um
fímmleytið í gær og var maður-
inn fluttur á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur. Fór hann í
aðgerð þar í gærkvöld vegna
mjaðmarbrots.
Sophia hittir dætrn*
sínar aftur í dag
SOPHIA Hansen hitti dætur sín-
ar Dagbjörtu og Rúnu í gær,
annan daginn í röð, í fjallaþorp-
inu Divrigi í Tyrklandi en sam-
kvæmt úrskurði Hæstaréttar í
Ankara frá því í fyrra á Sophia
umgengnisrétt við dætur sínar í
júlí og ágúst á hverju ári.
Vel fór á með mæðgunum og
notuðu þær timann meðal ann-
ars til að skoða myndaalbúm
með myndum af íslenskum ætt-
ingjum, að sögn Sigurðar Pét-
urs Harðarsonar, stuðnings-
manns Sophiu.
Sigurður segir að sér virðist
sem Halim sé nú farinn að skilja
alvöru málsins og sé nú við-
mótsþýðari en oft áður.
Eins og kunnugt er hefur
Halim brotið umgengnisrétt
Sophiu við dætur sínar ítrekað
undanfarin ár og á yfír höfði
sér margar kænir vegna þeirra
brota.
Halim sagði í sjónvarpsviðtali
í Tyrklandi í gær að Sophia
mætti koma hvenær sem hún
vildi til Divrigi til að eiga fund
með dætrum sínum.
Fjölmiðlar ytra sýna málinu
mikinn áhuga
Fjölmiðlar sýna málinu mik-
inn áhuga og í sjónvarpsviðtali í
gær sagðist Sophia vera ánægð
með að hafa hitt dætur sínar og
kvaðst einnig ánægð með mót-
tökurnar sem hún fékk í þorp-
inu.
Sophia hittir dætur sínar aft-
ur síðdegis í dag, eða eftir að
þær hafa beðist fyrir í mosku
staðarins.
Leit illa
út -
aði
ENGUM varð meint af þegar 35
manna hópur Norðmanna og ís-
lendinga lentu í hrakningum á
Vatnajökli á miðvikudagskvöld.
Beiðni um aðstoð var send út klukk-
an átta að kvöldi miðvikudags, og
voru björgunarsveitarmenn frá
Höfn í Hornafirði komnir á staðinn
um miðnætti. Allir voru heilir á húfi,
en helmingur hópsins kvartaði und-
an kulda í andliti, á höndum og fót-
um.
Hópurinn var á leið frá Kverk-
fjöllum í norðanverðum jöklinum að
Skálafellsjökli sem er í honum
sunnanverðum. Helmingur hópsins,
sem var á vélsleðum, varð viðskila
end-
vel
við snjóbfl sem var með í för eftir
rúmlega klukkustundar akstur á
jöklinum. Vélsleðafólkið náði engu
fjarskiptasambandi, en var komið
heilt á húfí í skála í Kverkfjöllum
skömmu eftir að hjálparbeiðni var
send úr snjóbílnum.
Hátt í 100 manns voru í við-
bragðsstöðu vegna útkalisins, en
björgunarsveitarmenn frá Höfn
komu á fimm jeppum að fólkinu þar
sem það var annars vegar í snjóbfl á
jöklinum og hins vegar í skála
Jöklarannsóknafélags Islands í
Hveradölum í Kverkfjöllum.
Hrakningar/6/12
Kj arvalsmál verk
fínnast eftir 25 ár
TVÆR Kjarvalsmyndir hafa nú
verið fluttar aftur til Vestmanna-
eyja eftir 25 ára útlegð uppi á
landi.
Árið 1967 gáfu Sigfús M. John-
sen og Jarðþrúður Johnsen Vest-
mannaeyjakaupstað 34 myndir og
málverk eftir Jóhannes Kjarval og
eru umræddar myndii' hluti af
þein-i gjöf. í Vestmannaeyjagos-
inu 1973 voru öll málverkin flutt í
Þjóðminjasafnið til geymslu. Þeg-
ar þau fóra svo aftur tfl Vest-
mannaeyja hafa þessi tvö orðið eft-
ir og fundust nú nýlega í ómerkt-
um pakka í Þjóðminjasafninu.
Á Þjóðminjasafninu fundu
starfsmenn út hvaðan málverkin
gætu verið komin og höfðu sam-
band við Jóhann Friðfínnsson,
safnstjóra Byggðasafns Vest-
mannaeyja. Jóhann kom í land og
eftir að hafa borið saman gjafa-
bréfið sem fylgdi myndunum á
sínum tíma og skráningu sem
gerð var á Kjarvalsmyndunum
fékkst sú niðurstaða að málverkin
ættu heima í Vestmannaeyjum
með verkunum 32 sem þar eru.
■ KjarvalsmáIverk/4
■ Snæddu saman/4