Morgunblaðið - 19.09.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
212. TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Myndband af yfirheyrslu Starrs yfír Clinton gert opinbert eftir helgi
Demókratar saka repú-
blikana um óbilgirni
Repúblikanar segja almenning verða sjálfan að
fá að meta hvort Clinton laug við yfirheyrslur
Washington. Reuters.
Reuters
BARNEY Fraiik, sem situr / dómsmálanefnd Bandaríkjaþings fyrir
demókrata, og repúblikaninn Henry Hyde, formaður hennar, deildu að
loknum fundi nefndarinnar í gær fyrir framan blaðamenn um hvort rétt
væri að gera myndbandið með yfirheyrslu Clintons opinbert.
MYNDBAND af yfirheyrslu Kenn-
eths Starrs, sérskipaðs saksóknara,
yfir Bill Clinton Bandaríkjaforseta
um samband þess síðarnefnda við
Monicu Lewinsky verður gert opin-
bert á mánudag. Akvað dómsmála-
nefnd bandarísku fulltrúadeildar-
innar þetta á fundi sínum í gær.
Auk myndbandsins verða 2.800 síð-
ur af skjölum er tengjast rannsókn
Starrs gerðar opinberar, en þó hef-
ur verið ákveðið að birta ekki allt
sem fram kemur í skjölunum, þar
sem um of viðkvæmar upplýsingar
sé að ræða. Gagnrýndi Barry Toiv,
talsmaður Hvíta hússins, þá ákvörð-
un að leyfa birtingu myndbandsins
og gagnanna. „Það var von okkar að
sanngirni yrði gætt í þessu máli en
sú er því miður ekki raunin.“
Dómsmálanefndin klofnaði í af-
stöðu sinni eftir flokksskírteinum
manna og sagði Barney Frank, einn
fulltrúa demókrata í nefndinni, að
eini tilgangur repúblikana með birt-
ingu gagnanna væri sá að niður-
lægja Clinton opinberlega. Lögðust
demókratar, sem eru í minnihluta í
nefndinni, mjög gegn því að mynd-
bandið yrði gert opinbert en hermt
er að á því megi sjá Clinton missa
stjórn á skapi sínu 1 yfirheyrslunni
17. ágúst síðastliðinn þegar hann
svaraði afar nærgöngulum spurn-
ingum Starrs um samband sitt við
Lewinsky. „Ef þú heldur að ná-
kvæmar kynlífslýsingar hafí verið í
skýrslu Starrs í síðustu viku þá
skaltu bíða spenntur því myndband-
ið er enn klúrara," sagði Abbe
Lowell, fulltrúi demókrata.
Repúblikaninn Henry Hyde, for-
seti dómsmálanefndarinnar, sagði
hins vegar að samstaða flokka um
næstu skref í málinu, sem rætt var
um í upphafi, þýddi ekki einfaldlega
að repúblikanar ættu að láta undan
kröfum demókrata. Segja
repúblikanar að almenningur verði
sjálfur að fá að meta hvort Clinton
hafí framið meinsæri. „Forsetinn
sjálfur gerði birtingu þessara gagna
nauðsynlega með framferði sínu,“
sagði repúblikaninn Bob Barr.
Dómsmálanefndarinnar bíður nú
það verk að ákveða hvort leggja eigi
til við þingið hvort höfða eigi mál
gegn Clinton til embættismissis og
sögðu heimildir innan Repúblikana-
flokksins í gær að nefndin kæmi
sennilega saman snemma í október
til að kveða upp úrskurð sinn.
Óttast að kosningabaráttan
verði á sömu nótum
Formenn fjáröflunarnefnda
Demókrataflokksins og
Repúblikanaflokksins urðu sam-
mála um það í gær að frambjóðend-
ur í væntanlegum þingkosningum
myndu ekki hljóta fjárstuðning úr
opinberum sjóðum tækju þeir upp á
því að ráðast að persónu andstæð-
ings síns og einkalífi. Ottast margir
að í kjölfar uppljóstrana um kynlíf
Clintons og ævafomt framhjáhald
Henrys Hydes verði komandi kosn-
ingabarátta „geislavirkur úrgangur
rógburðar, kjaftasagna, dylgna og
ódýrra predikana um vandamál
annars fólks“.
Myndbandið af yfirheyrslu Chnt-
ons verður gert opinbert klukkan 13
á mánudag að íslenskum tíma og
hafa fulltrúar stærstu sjónvarps-
stöðvanna í Bandaríkjunum til-
kynnt að þau muni sýna í það
minnsta hápunkta myndbandsins af
yfirheyrslu Clintons, en það er fjór-
ir og hálfur tími að lengd. Svo virð-
ist þó sem almenningur hafi lítinn
áhuga því skoðanakönnun sem
CNN birti í gær sýndi að 67% að-
spurðra voru mótfallin birtingu
myndbandsins en einungis 28%
voru því hlynnt. Jafnframt lýstu
63% sig ánægð með frammistöðu
forsetans í starfi.
■ Hart deilt/24
Svíþjöð
Oákveðnir
kjósendur
gætu ráðið
úrslitum
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
AFSTAÐA almennings til leið-
toga Jafnaðarmannaflokksins
og Hægriflokksins hefur breyst
undanfarið samkvæmt könnun-
um. Carl Bildt, formaður
Hægriflokksins, hefur haft
meira fylgi sem forsætisráð-
herra, en nú hefur Göran Pers-
son forsætisráðherra, leiðtogi
jafnaðarmanna, skotið honum
ref fyrir rass. Samkvæmt könn-
un sem sænsk blöð birtu í gær
kjósa 43% Persson sem forsæt-
isráðherra en 41% kýs Bildt.
Einnig álíta 52% kjósenda jafn-
aðarmenn hæfari til að leysa
eftiahagsvanda Svía en 38%
treysta hægristjórn betur til
þess.
Til hliðar við þessar grófu
línur sýna kannanir að tíu pró-
sent kjósenda eru enn óákveð-
in og ákveða sig nú síðustu
dagana fyrir kjördag eða jafn-
vel á morgun, sjálfan kjördag-
inn. Skoðanakönnun sem birt
var seint í gærkvöld sýndi að
flokkur Persons myndi hljóta
36,8%, vinstri menn 11,8 og
Græningjar 4,7% en þeir eru
líklegir samstarfsflokkar jafn-
aðarmanna. Sögðu frétta-
skýrendur því líklegt að Pers-
son yrði áfram í embætti for-
sætisráðherra en flokkur
Bildts fékk einungis 24,8%,
frjálslyndir 4,9%, kristilegir
demókratar 10,1% og Mið-
flokkurinn 4,8%.
■ Efnagsbati/24
Reuters
EINN stuðningsmanna flokks Berishas baðar sig í þjóðfána Albaníu á
mótmælafundi stjórnarandstæðinga í Tirana í gær.
Kohl dregur á Schröder
Bonn. Reuters.
Prímakov gengur illa að skipa stjórn
Ryshkov hafnar
ráðherrastóli
Moskvu. Reuters. The Daily Telegraph.
Berisha
sviptur
þinghelgi
Tirana. Reuters.
MIKILL meirihluti albanska þings-
ins greiddi því atkvæði í gær að
svipta Sali Berisha, fyrrverandi for-
seta og leiðtoga Lýðræðisflokksins,
þinghelgi. Þá er eldcert því til fyrir-
stöðu að stjórnvöld geti sótt hann til
saka fyrir valdaránstilraun en Ar-
ben Rakipi yfirsaksóknari sagði í
gær að ekki yrði flanað að neinu og
málið yrði rannsakað til hlítar.
Fatos Nano forsætisráðherra hef-
ur sakað Berisha um að gera tilraun
til valdaráns síðastliðinn mánudag
en mikil mótmæli hafa verið í Alban-
íu í vikunni vegna morðs á Azem
Hajdari, einum leiðtoga Lýðræðis-
flokksins.
Þoni viðstaddra þingmanna, eða
108 af 113, greiddi því atkvæði að
svipta Berisha þinghelgi. 155 sæti
eru á albanska þinginu en þingmenn
Lýðræðisflokksins mættu ekki til
fundar í mótmælaskyni við stjórn
Fatos Nanos.
Saii Berisha var í fararbroddi frið-
samlegrar mótmælagöngu um þrjú
þúsund Albana í miðborg Tirana í
gær. Fólk bar spjöld, sem m.a. báru
áritunina: Fatos Nano, forsætisráð-
herra - skipuleggur pólitísk morð.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
iands, saxar enn á forskot Gerhards
Schröders, kanslaraefnis jafnaðar-
manna, ef marka má skoðanakönnun
á fyigi kristilegra demókrata og jafn-
aðarmanna sem birt er í dag í Die
Welt vegna þingkosninganna sem
fara fram annan sunnudag. Hefur
SPD, flokkur Schröders, nú 41%
fylgi sem er einungis tveimur pró-
sentustigum meira en CSU, flokkur
Kohls, sem hefur 39%. í könnun
Dimap fyrir Bild, sem einnig er birt í
dag, hefur Schröder 40,5% og Kohl
38%. Græningjar, sem hyggja á
stjórnarsamstarf við SPD, hafa þar
6,5% en samstarfsflokkur Kohls,
frjálslyndir demókratar, 5,5%.
■ Bitist um/28
JEVGENÍ Prímakov, nýskipuðum
forsætisráðherra Rússlands, tókst í
gær að bæta einum ráðherra í ríkis-
stjórn sína en fékk jafnframt afsvar
frá öðrum, sem talsverðar vonir
höfðu verið bundnar við. Rúm vika
er nú liðin frá því að dúman sam-
þykkti skipun Prímakovs en honum
hefur enn ekki tekist að fylla alla
ráðherrastólana. Gengi rúblunnar
féll enn í gær eftir að rússneski
seðlabankinn tilkynnti að hafin yrði
seðlaprentun til að greiða niður rík-
isskuldir og koma illa stöddum bönk-
um til aðstoðar.
Vadim Gustov, héraðsstjóri í
Leníngrad, var í gær tilnefndur
fyi-sti aðstoðarforsætisráðherra og
mun hann m.a. fara með málefni
byggingariðnaðarins, æskulýðs, hér-
aða og þjóðarbrota. Hins vegar af-
þakkaði Vladimír Ryzhkov, varafor-
seti þingsins, ráðherraembætti. Rys-
hkov, sem er 32 ára, hefur verið
áberandi í rússneskum stjórnmálum
og var einn af stofnendum „Heimili
vort er Rússland", sem Viktor
Tsjernómyrdín fer fyrir. Ryshkov
bar við reynsluleysi er hann kvaðst
ekki myndu setjast á ráðherrastól.
„Ég get ekki og vil ekki taka ákvarð-
anir sem kunna síðar að verða mér
til skammar," sagði hann. „Þegar við
stöndum frammi fyrir skelfilegu
hruni félagslega kerfisins væri það
ævintýramennska af minni hálfu að
taka við þessu embætti þar sem ég
hef aldrei startáð á þessum vett-
vangi.“
Óttast að upp úr sjóði
Ástandið í efnahagsmálum hefur
ýtt mjög undir ólgu í landinu og hef-
ur óttinn við að upp úr sjóði aukist.
Á fimmtudag fyiirskipaði Borís
Jeltsín Rússlandsforseti Stephan
Stephasín innanríkisráðherra að
grípa til aðgerða til að koma í veg
fyrir mótmælaaðgerðir og átök hinn
7. október nk. en þá hafa verkalýðs-
félög og kommúnistar boðað til alls-
herjai-vinnustöðvunar. Hafa m.a.
verið boðuð mótmæli við herstöðvar
og samgönguæðar.