Morgunblaðið - 19.09.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLABIÐ
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 61
FRETTIR
Opið hús í blóðskilun-
ardeild Landspítalans
UM ÞESSAR raundir heldur
blóðskilunardeildin á Landspítal-
anum upp á 30 ára afmæli sitt. St-
arfsfólk deildarinnar býður gest-
um og gangandi í heimsókn á
deildina í dag, laugardaginn 19.
september, kl. 14-17 til að kynna
sér meðferð sjúklinga með nýrna-
bilun og tækjabúnað sem til henn-
ar þarf.
Hinn 15. ágúst 1968 var blóðskil-
un framkvæmd í fyrsta sinn á Is-
landi og fór hún fram á Landspít-
ala. Þá var jafnframt lagður grunn-
urinn að blóðskilunardeild Land-
spítalans. Fyrstu árin voru sjúk-
lingarnir fáir en með árunum hefur
þeim fjölgað mikið. Nú eru 38 sjúk-
lingar í skilunarmeðferð og af þeim
Réttir í ná-
grenni
borgarinnar
GÖNGUR og réttir verða um helg-
ina í Landnámi Ingólfs Arnarsonar.
Ökumenn og útivistarfólk er beðið
að taka tillit til þessa á ferðum sín-
um. Ökumenn eru beðnir að sýna
sérstaka tillitssemi þar sem verið
er að reka fé yfir vegi t.d. við Sand-
skeið á Hellisheiði og á Mosfells-
heiði einkum á laugardag og sunnu-
dag.
I dag og næstu daga verður rétt-
að í eftirtöldum réttum í Landnámi
Ingólfs:
Laugardagur 19. september upp
úr hádegi: HeiðarbæjaiTétt í Þing-
vallasveit.
Laugardagur 19. september upp
úr hádegi: Húsmúlarétt við Kolvið-
arhól.
Laugardagur 19. september upp
úr hádegi: Nesjavallarétt í Grafn-
ingi.
Laugardagur 19. september síð-
degis: Lönguhlíðan-étt v/Bláfjalla-
veg.
Laugardagur 19. september um
kl. 16: Dalsrétt í Mosfellsdal.
Laugardagur 19. september upp
úr hádegi: Þórkötlustaðarétt í
Grindavík.
Sunnudagur 20. september upp
úr hádegi: Fossvallarétt við Lækj-
arbotna.
Mánudagur 21. september ár-
degis: Selvogsrétt í Selvogi.
Mánduagur 21. september ár-
degis: Selflatarrétt í Grafningi.
Mánudagur 21. september um
hádegi: Kjósari-étt í Kjós.
Þriðjudagur 22. september ár-
degis: Ölfusréttir í Ölfusi.
Seinni réttir verða tveim vikum
síðar á sömu vikudögum þ.e. dag-
ana 3.-6. október. Til að auðvelda
hreinsun afrétta og draga úr hættu
á ákeyrslum á þjóðvegum í haust-
myrkrinu er lögð áhersla á að fé
verði haft sem mest í haldi eftir
réttir. Samkvæmt fjallskilasam-
þykkt fyrir Landnám Ingólfs Ai-n-
arsonar nr. 401/1996 er óheimilt að
sleppa aftur fé úr haustréttum á af-
rétti, segir í fréttatilkynningu.
Silki-damask
í metratali
í úrvali
Póstsendum
Skólavörðuslíg 21, Roykjavík, sími 551 4050.
eru 25 í blóðskilun (gervinýra).
Aðrir 13 sjúklingar eru í kviðskilun
en hlutdeild þeirrar meðferðar í
starfsemi deildarinnar hefur að
jafnaði verið fjórðungur frá því
byrjað var að beita henni hér á
landi árið 1985.
Fyrsta nýrnaígræðsla í íslensk-
an sjúkling var framkvæmd í
London árið 1970. Síðan hafa 106
nýru verið grædd í 98 sjúklinga
þar af um helmingur frá lifandi
gjafa. Nýrnaígræðslum hefur
fjölgað mjög á undanförnum árum
og á síðustu 10 árum hafa 63
ígræðslur verið framkvæmdar.
Lætur nærri að um 2/3 hafa fengið
nýra frá lifandi gjafa og er það
hlutfall mun hærra en víðast hvar
annars staðar. Við höfum þá sér-
stöðu að ígræðsluaðgerðirnar hafa
verið framkvæmdar erlendis, oft-
ast á Ríkisspítalanum í Kaup-
mannahöfn, en eftirlit og meðferð
eftir ígræðsluna farið fram hér
heima. Þrátt fyrir það er árangur
svipaður og meðal annarra þjóða. I
dag eru 62 sjúklingar með starf-
andi ígrætt nýra og má geta þess
að nýrað sem var grætt í fyrsta ís-
lenska sjúklinginn, 1970 er enn í
fullu fjöri, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Eins og nærri má geta hefur
orðið gífurleg aukning á starfsemi
blóðskilunardeildar Landspítalans
á þessum þremur áratugum.
Þyngst vegur þar mikil fjölgun
sjúklinga sem koma til meðferðar
vegna nýrnabilunar á lokastigi.
Árið 1985 voru 30 sjúklingar í
slíkri meðferð (skilun og ígræðsla)
en nú eru þeir um 100. Þessi fjölg-
un er svipuð og meðal annarra
Vesturlandaþjóða en athygli vek-
ur þó að lokastigs nýrnabilun er
ekki eins algeng hér á landi og
meðal nágrannaþjóðanna. Auk
meðferðar við lokastigs nýrnabil-
un sinna sérfræðingar deildarinn-
ar einnig öllum öðrum þáttum
nýrnalækninga.
A þessum 30 árum hafa orðið
miklar framfarir í meðferð nýrna-
bilunar á lokastigi, bæði hvað varð-
ar skilun og nýrnaígræðslu. Mikill
vaxtarbroddur hefur einnig orðið á
öði'um sviðum nýrnalæknisfræði
sem er tiltölulega ung gi-ein innan
lyflæknisfræðinnar. A þessum
tímamótum hefur verið efnt til víð-
tækrar kynningar á starfsemi
deildarinnar og öðrum þáttum
nýrnalækninga.
Opið hús verður sem fyrr segir á
blóðskilunardeild Landspítalans
19. september milli kl. 14 og 17.
Gefst almenningi þá tækifæri til að
kynnast starfseminni. Þó að flestir
geri sér grein fyrir mikilvægi
þessarar lífgefandi meðferðar eru
þeir líklega færri sem hugleitt
hafa þá tækni og tækjabúnað sem
til þarf.
Veturinn 1998-99
Opnunartímar
Skólar
og sérhópar OpiS frá mánudegi til föstudags kl. 10:00 - 15:00
Almenningur
og hópar
Mánudaga
ÞriSjudaga
MiSvikudaga og fimmtudaga
Föstudaga
Laugardaga
Sunnudaga
kl. 12:00 - 15:00
kl.12:00- 15:00
kl. 12:00- 15:00
ogkl. 17:00- 19:30
kl.l 3:00- 23:00
kl. 13:00- 18:00
(Kvölddagskrá auglýst sér)
kl. 13:00- 18:00
MÚLAVEGUR 1 SÍMI: 588 9705 SÍMSVARI:
1 04 REYKJAVÍK FAX: 588 6 1 78 568 5533
í Kópavogi
Sunnudaginn 20. sept. klukkan 14.00
Hlaup fyrir börnin stór og smá, pabba og mömmu, afa og ömmu,
frænda og frænku og alla hina sem þið þekkið.
Stuttar, þægilegar og fallegar hlaupaleiðir fyrir fólk á öllum aldri.
Þátttökugjald: Kr. 650.- Allir þátttakendur fá: Bol, verðlaunapening og hressingu.
Eldfjörug og stórskemmtileg upphitun hefst klukkan 13.45
og allir hlaupa af stað klukkan 14.00
Tökum þátt í fjölskylduvænum íþróttaviðburði
Skráning á Kópavogsvelli frá klukkan 12.00
Q
*
f—
<£>
KAUPÞING HF
n
SPARISJÓÐURINN
-fyrir þig og þína
m
Grxxxn UfeeðUt
• gagnast þér allt tífið -
Akranes • Stykkishólmur • ísafjörður • Sauðárkrókur • Akureyri
Egilsstaðir • Höfn • Vík • Reykjanesbær • Kópavogur