Morgunblaðið - 19.09.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 19
VIÐSKIPTI
Niðursveifla í Rússlandi
Samdráttur í
skinnaiðnaði
EFNAHAGSKREPPAN í Rúss-
landi hefur valdið miklum sölusam-
drætti og almennu verðfalli á hrá-
gærum undanfarið. Niðursveiflan
þykir koma á afar óheppilegum
tíma fyrir Skinnaiðnað hf. á Akur-
eyri því meginviðskipti ársins fara
jafnan fram á haustin og í upphafi
vetrar. Á síðasta rekstrarári dróg-
ust sölutekjur félagsins saman um
30% frá árinu á undan.
Bjami Jónasson, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir greinina hafa
orðið fyrir miklum áföllum á síð-
ustu tólf mánuðum en menn séu
engu að síður bjartsýnir á að jafn-
vægi nái að skapast að nýju og þeir
markaðir sem eftir standa taki við
sér á ný:
Erfíður aðlögunartfmi
„Við höfum horft upp á miklar
sviptingar í þessum iðnaði síðustu
7 ár. I upphafí áratugarins óx Suð-
ur-Kórea í að verða stærsti ein-
staki markaðurinn fyrir skinnvörur
í heiminum en hvarf svo af sjónai’-
sviðinu í fyrra. Nú hefur Rússland
farið á sama veg og eftir standa
einungis vestrænir markaðir sem
eru í lægð.“ Bjarni segist þó eiga
von á því að greinin nái að jafna sig
aftur og salan verði söm eða jafn-
vel meiri en áður. Verðið muni al-
mennt lækka og í kjölfarið gætu
nýir markaðir opnast í Austur-
Evrópu. Þá sé eftirspurnin enn fyr-
ir hendi í Rússlandi en spurning
með hvaða hætti vöruverðið kemur
til með að þróast þar í framtíðinni.
Hann segir þó ljóst að breytt um-
hverfi kalli á erfiðan aðlögunartíma
sem gæti kostað einhverja rekstr-
arhagræðingu en þegar fram í
sækir muni ástandið batna: „Sveifl-
ur í þessari grein eru engin
nýlunda og við erum vel í stakk
búnir til að mæta þeim. Góðæri síð-
ustu tíu ára hefur verið nýtt til að
byggja félagið upp fjárhagslega og
í því sambandi má m.a. minna á að
eigið fé þess nam 344 milljónum
króna, eða 38,2% við milliupggjör í
febrúar sl.“
Forsvai’smenn Skinnaiðnaðar
gera ráð fyrir að uppgjör rekstrar-
ársins, sem lauk hinn 31. ágúst sl.,
liggi fyiir í byrjun nóvember.
Akveða samruna
Chrysler-Daimler
Wilmington, Delaware. Reuters.
CHRYSLER Corp. segir að hlut-
hafar fyrirtækisins hafi samþykkt
samruna þess og Daimler-Benz AG
í fimmta mesta bílaframleiðanda
heims.
Samkvæmt upplýsingum
Chrysler, þriðja mesta bílafram-
leiðanda Bandaríkjanna, sam-
þykktu samninginn 97,5% þeirra
sem atkvæði greiddu, eða eigendur
472,6 milljóna bréfa, en á móti voru
2,5%, eða eigendur 12 milljóna
bréfa. Hluthafar Daimlers komu
saman í Stuttgart og var búizt við
að þeir samþykktu samninginn á
fundi sem stæði langt fram á nótt.
Daimler og Chrysler kunngerðu
sögulegan 40 milljarða dollara
samning sinn í maí og sögðu að
komið yrði á fót stórveldi, sem
mundi bjóða upp á heimsþekkt
vörumerki á borð við Mercedes-
gerðir Daimlers og jeppa
Chryslers.
Uppgangsfyrirtæki?
Ganga á frá samningnum í nóv-
ember. Gert er ráð fyrir að hið
nýja fyrirtæki DaimlerChrysler
AG í Þýzkalandi verði uppgangs-
fyrirtæki, sem muni auka fram-
leiðslu og spara 1,4 milljarða doll-
ara á fyrsta rekstrarári.
Á Chrysler fundum mætti stjórn
fyrirtækisins nokkurri mótspyrnu
hluthafa af Gyðingaættum, sem
mótmæla því að fyrirtækið sé selt
Þjóðverjum. í Stuttgart var talið
að 14.500 hluthafar Daimlers
800.000 mundu greiða atkvæði um
samninginn í lok mikils maraþon-
fundat.
Áður en fundurinn hófst sagði
Daimler-Benz AG að fyrirtækið
hefði tækifæri til að valda kafla-
skiptum í iðnaðarsögunni með því
að samþykkja samruna þess og
Chryslers. Biðlað hefur verið til
hluthafa með loforðum um stór-
aukinn hagnað og auknar arð-
greiðslur.
„í dag markið þið söguleg tíma-
mót,“ sagði stjómarformaður
Daimlers, Jurgen Schrempp, á
hluthafafundinum. „Við vitum allir
hve sögulegur dagur þetta er.
Hlý og notaleg úlpa með hettu
Dúnmjúk dúnúlpa
Fæst í rauðu.
í dökkbláu.
grænu
og svörtu.
Skeifan • Smáratorg • Akureyri • Njarðvík • Kringlan 2. hæð
HAGKAUP
Alttaf betri kaup
www.mbl.is
fyrlr fyrirtæki
NetGear ISDN leiaarstjóri
m/2 simatengl 39.500
NetGear 8 porta hub
m/Coax tengt 12.300
Etcon ISDN PC kort
f. Win'ogNT 14.900
NetGear 1 B porta huh
m/Coax tengi 22.300
’Tilfaaðavarfl
Verslun
Skaitahlið 24 • Simi 569 7700
http://www.nyherli.ls
Bay Networks