Morgunblaðið - 19.09.1998, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
TORFI Lárus á bandarísku sjúkrahúsi fyrr á árinu.
Bandarískur skurðlæknir framkvæmdi flókna
skurðaðgerð á Barnaspítala Hringsins
Bjartsýnn á
góðan bata
BANDARÍSKI barnaskurðlækn-
irinn dr. Steven J. Fishman, sem
annast hefur skurðaðgerðir á
Torfa Lárusi Karlssyni, eins og
hálfs árs drengs, kom í vikunni til
landsins til að framkvæma fram-
haldsaðgerð á honum á Barna-
spítala Hringsins.
Torfí litli er sonur hjónanna Sig-
urbjargar Ólafsdóttur og Kai-ls
Torfasonar og er haldinn sjald-
gæfum sjúkdómi, sogæðaæxli,
sem lýsir sér þannig að ofvöxtur
hleypur í sogæðar með þeim af-
leiðingum að vefír bólgna og þenj-
ast út. Líkami Torfa aflagaðist
mikið vegna sjúkdómsins og miða
því aðgerðirnar að því að auðvelda
honum að nota hendui- og hand-
leggi með eðlilegum hætti og bæta
útlit hans.
Aðgerðin var framkvæmd í
fyrradag og var hún fjórða stóra
aðgerðin á Torfa og jafnframt sú
fyrsta sem dr. Fishman gerir á
honum hérlendis. Hann hefur
þegar fjarlægt vefi í brjósti Torfa
og vef í hægri hluta hálsins, sem
þrýsti á barkann þannig að hætta
var á köfnun. Þessar aðgerðir fóru
fram á skurðdeild bamaspítalans í
Boston.
í aðgerðinni, sem tók átta
klukkustundir, var fjarlægður hluti
ofvaxtar á vinstri hluta hálsins og
sagði dr. Fishman, þegar Morgun-
blaðið spurði um h'ðan sjúklingsins,
að Torfa hði stórvel. „Ég vænti
þess að hann nái sér mjög fljótt eft-
ir þessa aðgerð og tel líklegt að
hann verði kominn heim eftir
fáeina daga,“ sagði dr. Fishman.
„Næst munum við fjarlægja ofvöxt
úr vinstri hluta brjóstsins og hol-
handarinnar og lagfæra hendum-
ar. Meginmarkmiðið er að hann
geti hreyft þær eðlilega." Dr. Fish-
man mun þó ekki framkvæma
handaaðgerðimar.
Með honum starfa þau dr. John
DiFiore barnaskurðlæknir og
Cynthia Vanderburg skurðhjúkr-
DR. FISHMAN barna-
skurðlæknir.
unarfræðingur, en dr. Fishman
segir ekki ástæðuna vera þá að
hérlendis sé ekki færu fólki til að
dreifa, heldur þekki þau hvert
annars handbragð vel eftir langa
samvinnu auk þess sem Cynthia
þekkir Torfa vel eftir legu hans á
spítalanum í Boston þar sem hún
annaðist hann. Hérlendis hefur
Gunnlaugur Sigfússon barna-
læknir ásamt fleiri læknum ann-
ast Torfa á Landspítalanum. Vildi
dr. Fishman sérstaklega þakka
samstarfið við íslenska lækna og
hjúkrunarlið og sagði að allir
hefðu lagst á eitt um að láta að-
gerðina takast vel.
Þorsteinn Pálsson um álitamál
um skattheimtu í sjávarútvegi
Finna má leiðir
og ná sáttum
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra sagði á aðalfundi
Samtaka fiskvinnslustöðva í gær, að
hann teldi það réttlætismál að
skattheimta raskaði ekki rekstrar-
forsendum einstaklingsútgerða og
minni sjávarútvegsfýrirtækja í
minnstu sjávarþorpunum.
„Fallist þeir, sem gera kröfu um
skattheimtu á grundvelli réttlætis á
þessi sjónarmið, á þessa hlið
réttlætisins er ég viss um að finna
má leiðir til að svara þeim álitaefn-
um um réttlæti, sem uppi eru, og
ná um þau sáttum,“ sagði Þor-
steinn.
Þorsteinn lét þessi orð falla er
hann ræddi um gagnrýni á fisk-
veiðistjórnunarkerfið. Hann sagði
þar talað fyrir óábyrgri nýtingar-
stefnu og fyrir því að framþróun
sjávarútvegsins ætti ekki að gerast
í krafti markaðslögmálanna, heldur
samkvæmt pólitískri stýringu.
Hann sagði að ekki yrði á móti því
mælt, að við hefðum náð meiri efna-
hagslegum árangri í rekstri
sjávarútvegsins á undanfórnum ár-
um en í annan tíma.
Réttlætinu ekki fullnægt?
Þorsteinn sagði síðan að svo væru
aðrir gagnrýnendur, sem viður-
kenndu að árangur hefði náðst, en
teldu að réttlætinu hefði ekki verið
fullnægt. Réttlætinu yrði ekki
fullnægt nema með skattheimtu.
Þeir sem vildu skattheimtu yrðu að
svara nokkrum spurningum: „Geta
þeir fallist á að almenn starfsskil-
yrði, þar á meðal skattheimta, séu
með þeim hætti að fjárfesting í vel
reknum sjávarútvegsfyrirtækjum
skili sambærilegum arði og vel rek-
in fyrirtæki í öðrum greinum? Geta
þeir fallist á að einstaklingsútgerð-
ir, sem almennt hafa minna svigrúm
til hagræðingar en stórútgerðir,
eigi að hafa forsendur til viðunandi
afkomu, sem tryggi eðlilega endur-
nýjun og framfarir? Geta þeir fallist
á að fyrirtæki í minni sjávarpláss-
um, sem ekki hafa sömu möguleika
til hagræðingar og stórfyrirtæki,
eigi að hafa viðunandi grundvöll til
rekstrar og endurnýjunar? Geta
Leiðrétta varð skekkju í sfðasta Þjóðarpúlsi Gallup um fylgi stjórnmálaflokka
GALLUP hefur sent frá sér
leiðréttingu vegna mistaka við úr-
vinnsiu á síðasta Þjóðarpúlsi Gallup
um spumingar um fylgi stjómmála-
flokka. Samkvæmt leiðréttu niður-
stöðunum er meira fylgi við lista
félagshyggjufólks en í þeim fyrri og
minna fylgi við Sjálfstæðisflokk og
Framsóknarflokk.
Spurt var um fylgi við lista til
Alþingis ef þrír flokkar byðu fram,
þ.e. lista Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og lista félagshyggju-
fólks. Sjálfstæðisflokkur fengi sam-
kvæmt leiðréttu niðurstöðunni
46,9% fylgi en var áður með meiri-
Fylgið jókst um
7,2 prósentustig
hlutafylgi eða 52,5%. Skekkjan
nemur 5,6 prósentustigum.
Framsóknarflokkur fær 13,7% en
hafði áður 15,3%, skekkja 1,6 pró-
sentustig, og listi félagshyggjufólks
fengi 39,4% en ekki 32,2% eins og
var tilgreint í fyrri niðurstöðum.
Skekkjan nemur 7,2 prósentustig-
um.
Þorlákur Karlsson, rannsókna-
stjóri hjá Gallup, sagði fyrirtækið
harma þessi mistök, sem hann sagði
sérlega leiðinleg, og biðja hlutaðeig-
andi velvirðingar á þeim. Hann
þeir fallist á að skattheimta sé ekki
notuð til að færa fjármuni frá vel
reknum fyrirtækjum til illa rekinna
fyrirtækja?
Sjávai-útvegsstefnan hefur vissu-
lega þrengt kosti óhagkvæmra út-
gerða og fiskvinnslufyrirtækja. Hún
hefur knúið menn til hagræðingar.
Mín skoðun er sú, að við eigum ekki
að ganga svo hart fram í hag-
ræðingarkröfunni að einstak-
lingsútgerðir og minni sjávarút-
vegsfyrirtæki í minnstu sjávarþorp-
unum leggi skilyrðislaust upp
laupana. Aukin skattheimta gæti
leitt til þess,“ sagði Þorsteinn Páls-
son.
sagði margt geta bilað bæði hjá
mönnum og tækjum. „Þetta voru
mistök hjá okkur mönnunum og
þegar ég var að rýna í tölurnar
eftirá sá ég að eitthvað stemmdi
ekki. Við keyrðum því gögnin aftur í
tölvunum og þá fundum við út að
þama var skekkja,“ sagði Þorlákur
og bætti við að ekki hefði komið
annað til greina en leiðrétta skekkj-
una.
Þorlákur sagði að í gær hefði ver-
ið kallaður saman fundur starfs-
fólks og fundið út hvar bilunin lægi.
Hefði verið komið upp ákveðnu
öryggisþrepi í ferlinu.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
Prófkjör
í Reykja-
nesi 14.
nóvember
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálf-
stæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi hefur ákveðið að
efna til prófkjörs vegna
alþingiskosninga laugardaginn
14. nóvember næstkomandi.
Frestur til að skila framboðum
rennur út sunnudaginn 11.
október.
I frétt frá kjördæmisráðinu
segir að samkvæmt prófkjörs-
reglum Sjálfstæðisflokksins
þurfi væntanlegir fram-
bjóðendur að hafa í huga að
tuttugu flokksbundnir sjálf-
stæðismenn búsettir í kjör-
dæminu skuli standa að hverju
framboði, að enginn þeirra
geti staðið að fleiri en sex
framboðum og að fram-
bjóðandi skuli vera flokks-
bundinn og kjörgengur við
næstu alþingiskosningar.
Lækkun á
gjaldskrá til
útlanda
DAGTAXTI Landssímans á
símtölum til Bretlands,
Þýskalands og Norðurland-
anna lækkar mánudaginn 21.
september úr 38 kr. á mínútu
í 33 kr. Lækkunin nemur
13%. Kvöld- og næturtaxti
verður óbreyttur, 28,50 kr. á
mínútu.
Sérblöð í dag
m
Á LAUGARDÖGUM
¥ ¥7CIO^*^
IjLoDOii :
Gústaf ekki með á móti
Finnum/B1
Gífurieg spenna í
knattspyrnunni/B2-B4
Blaðinu í
dag fyigir
blaðaukinn
Tölvur og
tækni.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is