Morgunblaðið - 19.09.1998, Side 4
4 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
fslenskur hnífasmiður vann silfurverðlaun í Belgíu
Ljósmynd/Jóhann Vilhjálmsson
FULLKOMIN eldsmiðja er í Iðnsögusafninu í Charleroi þar sem hnífasýningin var haldin. Keppendur fengu
aðstöðu í eldsmiðjunni til smíða.
Silfurþj öl fyrir
sikileyskan hníf
JÓHANN Vilhjálmsson byssu-
smiður hlaut Silfurþjölina, eða
silfurverðlaun, í keppninni um
Gullþjölina (Lime d’Or) sem hald-
in var 12.-13. september sl. í í
Iðnsögusafninu í Charleroi í
Belgíu.
Sýningin var haldin í tilefni af
10 ára afmæli safnsins, en það
var reist að frumkvæði samtak-
anna Archéologie Industrielle de
la Sambre. í safninu eru m.a. not-
hæf eldsmiðja og gamaldags
prentsmiðja.
ísland vakti athygli
Til sýningarinnar var boðið
eldsmiðum, járnsteypumönnum
og hnífasmiðum. Flestir þátttak-
endur voru frá Belgíu og margir
frá Hollandi og Frakklandi. í
þeim hópi voru bæði atvinnu-
menn og áhugamenn um hnífa-
smfði. Þátttakendur sýndu kunn-
áttu sína í eldsmíði og járnsteypu,
auk þess að sýna smíðisgripi sem
þeir komu með. Jóhann var eini
fslenski þátttakandinn og vakti
þátttaka hans mikla ánægju sýn-
ingarhaldara. Jóhann er hagvan-
ur í Belgíu, en hann nam byssu-
smíði í Liége og Herstal og er því
öllum hnútum kunnugur.
Mikil aðsókn
Að sögn Jóhanns var sýningin
fjölsótt og komu þúsundir til að
skoða sýningargripina. í hópi
HNÍFURINN, sem Jóhann fékk
silfurverðlaun fyrir, er hand-
smíðaður og með sikileysku
lagi.
gesta voru hnífasafnarar víða að
úr heiminum. Að sögn Jóhanns
vöktu smíðisgripir hans mikla at-
hygli og fékk hann mörg tilboð í
hnífana.
„Þarna voru hnífasmiðir sem
eru að selja sérsmíðaða hnffa háu
verði,“ sagði Jóhann. Kaupendur
eru safnarar sem sækjast eftir
sem sérstökustum gripum. Þess
eru dæmi að hnífarnir kosti mörg
hundruð þúsunda.
Jóhann sagði það ómetanlegt
fyrir sig að fara á sýningu sem
þessa og hitta fagmenn í hnífa-
smfði. Hann hefði mikið lært af
að tala við þessa menn um hinar
ýmsu hliðar smfðinnar, svo sem
efnisnotkun og aðferðir.
Ekki til sölu
Hnffurinn sem Jóhann hlaut
verðlaun fyrir er handsmfðaður og
Morgunblaðið/RAX
JÓHANN Vilhjálmsson byssu-
smiður með silfurþjölina og
verðlaunahnífinn í hægri hendi.
Stóri hnífurinn með hvalbeins-
skeftinu vakti mikla athygli
safnara og buðu þeir mikið fyr-
ir gripinn, sem ekki var til sölu.
með sikileysku lagi. Að sögn Jó-
hanns vakti annar handsmíðaður
hnífur hans, með breiðu blaði og
skepti úr hvaltönn, mikla athygli.
„Einn safnarinn kom aftur og
aftur og gerði mér tilboð í hníf-
inn með hvalbeinsskeftinu, en ég
neitaði alltaf," sagði Jóhann. „Að
lokum bauð hann mér að nefna
einhverja upphæð, en ég vildi
ekki selja hnífinn.11
Hvers vegna ekki?
„Mig langar að eiga svona hníf
og nenni varla að smíða annan -
það er svo mikil vinna í þessu.“
Sighvatur Björgvinsson formaður
Alþýðuflokksins
Ekki mistök að
vilja einfalda
skattkerfið
SIGHVATUR Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, segir að það
hafi alls ekki verið mistök hjá Al-
þýðuflokknum að beita sér fyrir ein-
foldun skattkerfisins fyrir tíu árum.
Þeir hefðu bara ekki fengið það í
gegn og orðið að beygja sig íyrir því
að hvorki þingmeirihluti né vilji hjá
þjóðinni væri fyrir slíku kerfi.
Sighvatur sagði, aðspurður hvort
Alþýðuflokkurinn hefði horfið frá
stefnu sinni um einfóldun skattkerfis-
ins, að því skattkerfi sem fjármála-
ráðherra Alþýðuflokksins beitti sér
fyrir að tekið yrði upp fyrir tíu árum
hefði verið breytt. Tekið hefði verið
upp tvíþrepaskattkerfi, þ.e.a.s. tekinn
hefði verið upp sérstakur hátekju-
skattur. Um þetta gilti nákvæmlega
það sama og samræmt virðisauka-
skattskerfi sem alþýðuflokksmenn
hefðu barist fyrir, að þar hefðu verið
tekin upp fleiri en eitt þrep og veru-
legar undanþágur settar inn í kerfið.
„Menn verða bara að horfa á stað-
reyndirnar eins og þær liggja fyrir.
Það er ekki lengur um að ræða eitt
þrep í tekjuskattskei-finu, þau eru
orðin tvö með hátekjuskattinum
sem búinn er að vera í gildi undan-
farin ár. I þriðja lagi að ef menn
ætla að létta skattbyrði af lág- og
miðlungstekjufólki, þá er þetta eina
aðferðin sem til greina kemur,“
sagði Sighvatur ennfremur.
Hann sagði að við þetta skattkerfi
væru kostir og ókostir eins og við öll
önnur kerfi. Ókostirnir væru að
framkvæmdin yrði flóknari í þeim
tilvikum sem aðilar fengju laun frá
fleiri en einum vinnuveitanda, en
það væri alveg það sama sem gilti
um hátekjuskattsþrepið í dag.
Aðspurður hvort ekki hefði verið
rökréttara að einfalda skattkerfið á
nýjan leik heldur en flækja það frek-
ar með enn fleii-i skattþrepum, sagði
Sighvatur að menn yrðu bara að
horfa á það hvað væri pólitískt
mögulegt. „Stjómmálin eru list hins
mögulega og við rákum okkur bai-a
á það að þessar einföldu hugmyndir
okkar, bæði um virðisaukskattskerf-
ið og tekjuskattskerfið, höfðu ein-
faldlega ekki það fylgi, hvorki á Al-
þingi né með þjóðinni, sem hefði
dugað til að koma því á koppinn,"
sagði Sighvatur.
Svipuð viðhorf og hjá verkalýðs-
hreyfingunni
Hann rifjaði upp átökin sem orðið
hefðu um það sem kallað hefði verið
„matarskattur". „Þar urðu sjónar-
mið okkar um einfalt skattkerfi ein-
faldlega undir og við það verða
menn bara að sætta sig. Þetta er sú
niðurstaða sem menn telja í þessu
samstarfi vera rétta og eðlilega.
Þetta eru svona svipuð viðhorf eins
og verkalýðshreyfingin hefur haft,“
sagði Sighvatur.
„Það eru ákveðnir kostir fylgjandi
fjölþrepatekjuskattskerfi, en
ákveðnir ókostir sem fylgja því líka.
Fyrir allan þorra landsmanna,
þ.e.a.s. fyrir þá sem hafa tekjur sín-
ar hjá einum og sama vinnuveitanda
er þetta ekkert flóknari útfærsla en
hún er í dag. En fyrir þá sem hafa
tekjur sínar hjá fleiri en einum
vinnuveitanda er þetta flóknara,"
sagði Sighvatur.
------------------
Sex mánaða
fangelsun
fyrir að
ræna konur
SAUTJÁN ára piltur var dæmdur
í sex mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær fyrir lík-
amsárás og þjófnaði. Hann var
ákærður fyrir að hafa ellefu sinn-
um á liðnum vetri og í vor stolið
handtöskum af konum á aldrinum
60 til 83 ára þar sem þær voru ein-
ar á gangi.
Pilturinn hlaut í febrúar tveggja
mánaða fangelsisdóm, skilorðs-
bundinn í tvö ár, sem hann rauf
með fyrrgreindu athæfi sínu. Hann
kvaðst hafa stundað eiturlyfja-
neyslu á þessum tíma og framið
brotin til að afla fjár til neyslunnar.
Hann var í meðferð á Vogi um tíma
í vor. Hann játaði brotin og féllst á
að greiða tveimur kvennanna
skaðabætur.
Dóminn kvað upp Valtýr Sig-
urðsson héraðsdómari. Var refsing
ákveðin sex mánaða fangelsun og
var tekið tillit til skilmerkilegra
játninga piltsins og ungs aldurs
hans. Ragnhildur Harðardóttir
saksóknari flutti málið af hálfu
ákæruvaldsins en sá ákærði flutti
mál sitt sjálfur.
Halldór Ásgrímsson segir Alþýðuflokkinn hafa snúið baki við ESB og NATÓ
Vantar efnahags-
legan grundvöll
undir stefnuna
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir að það
vanti allan efnahagslegan grundvöll
undir þær tillögur sem settar eru
fram í málefnaskrá sameiginlegs
framboðs félagshyggjuflokkanna.
Hann segist hafa haldið að ástæðan
fyrir þessari sameiningu væri ekki
síst sú að flokkamir ætluðu að segja
skilið við fortíð sósíalismans og and-
stöðuna við vestrænt samstarf. Svo
virtist alls ekki vera.
„Mér finnst vanta allan efnahags-
legan grundvöll undir þessar tillög-
ur. Þetta eru mest frómar óskir og
margt ágætt við þær, en á sama
tíma virðist ekkert eiga að sinna at-
vinnumálum. Það á að stöðva fram-
kvæmdir sem eru líklegastar til að
standa undir hagvexti á næstu árum
og því sýnist mér að þetta þýði að
hagvöxtur verði stöðvaður.
Það er greinilegt að flokkamir
vilja að stöðvaðar verði allar fram-
kvæmdir við stóriðju. Það er Ijóst
að uppbygging stóriðju á Austur-
landi hefur mikil áhrif í byggðamál-
um, ekki síst þar og jafnframt á
Norðurlandi. Ég get ekki ímyndað
mér að stuðningsmenn þessara
flokka geti sætt sig við slíkt.
Vita ekki hvað vamarsamstarfíð
gengur út á
Það sem kemur mér mest á óvart
er stefnan í utanríkismálum. Ég sé
ekki betur en að Alþýðuflokkurinn
snúi þar algerlega við blaðinu. I
stað þess að hafa á stefnuskrá að
ganga í Evrópusambandið er búið
að marka þá stefnu að segja sig úr
NATÓ. Við höfum verið að vinna
með öðrum vestrænum þjóðum að
því að breyta Atlantshafsbandalag-
inu og taka virkari þátt í friðar-
starfi í Evrópu. Á sama tíma höfum
við verið með breyttar áherslur í
samskiptum við Bandaríkin, en
stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
lagt á það mikla áherslu að við
tækjum meiri þátt í starfmu í Bosn-
íu. Það hefur vakið almenna
ánægju.
Svo virðist vera að Alþýðuflokk-
urinn viti ekki lengur út á hvað
vamarsamstarfið gengur út á. Það
kom mér mjög á óvart að sjá gamlar
klisjur frá Alþýðubandalaginu í ut-
anríkismálum. Ég hélt að ástæðan
fyrir þessari sameiningu væri ekki
síst sú að flokkarnir ætluðu að segja
skilið við fortíð sósíalismans og and-
stöðuna við vestrænt samstarf. Svo
virðist alls ekki vera.
Vonlaus stefnuskrá til að fara
með út í kosningar
Ég er þeirrar skoðunar að þessar
tillögur eigi eftir að vekja efasemdir
og hörð viðbrögð í þeirra eigin röð-
um. Eg á því von á að ef þetta fólk
ætlar að vinna saman verði knúðar
fram breytingar. Þetta er að mínu
mati vonlaus stefnuskrá til að fara
með inn í kosningar.
Ég hef verið þeirrar skoðunar að
þetta boðaða samstarf á vinstri
væng stjórnmálanna gæti skipt
máli fyrir Framsóknarflokkinn og
gæti haft áhrif á hans fylgi, en
þetta stefnuplagg er eins ósannfær-
andi og hægt er að hugsa sér, enda
skilst mér að það sé mikið ósam-
komulag um hvernig eigi að túlka
hlutina. Það segir nú sína sögu ef
menn tala út og suður um það sem
stendur á þessum blöðurn," sagði
Halldór.