Morgunblaðið - 19.09.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 19.09.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 11 FRÉTTIR Hannes Hlífar Stefánsson stórmeist- ari hefur tryggl sér þátttöku á heimsmeistaramótinu í skák Jafnaði metin gegn Djurhuus HANNES Hlífar Stefánsson stórmeistari segir að hann hafi að nokkru jafnað metin gegn Norðmanninum Rune Djurhuus með því að slá hann út úr keppninni á svæðamóti Norður- landa um þátttöku í heims- meistaramótinu í Las Vegas. Djurhuus sigraði nefnilega Hannes Hlífar í lokaskákinni á Evrópumeistaramóti unglinga árið 1990 og réð það úrslitum um að Djurhuus hampaði titlinum en ekki Hannes Hlífar, sem hefði dugað jafn- tefli í skákinni til að sigra á mótinu. Sigurinn þýðir að Hannes Hlífar verður einn þriggja keppenda frá Norðurlöndum á heimsmeistaramót- inu en hinir eru sænski stórmeist- arinn Ralf Ákeson og Peter Heine Ni- elsen frá Dan- mörku, sem sló Tom Wedberg frá Svíþjóð út úr keppninni í gær. títsláttarfyrirkomulag Heimsmeistaramótið verður haldið í Las Vegas í desember og hafa um eitt hundrað skák- meistarar unnið sér rétt til þátttöku. Keppnin er með út- sláttarfyrirkomulagi og er teflt þar til einn stendur eftir sem heimsmeistari. Keppendum er raðað saman eftir skákstyrk- leika og er sterkustu keppend- unum samkvæmt skákstigum raðað gegn þeim sem færri skákstigin hafa eftir ákveðnum reglum. Keppnin snýst ekki um að ávinna sér áskorendarétt á heimsmeistarann, eins og var í síðasta móti, því núverandi heimsmeistari FIDE, Anatoly Karpov, verður að taka þátt í mótinu. Hins vegar er óráðið enn hvort hann kemur inn í það strax í byrjun eða í annarri um- ferð, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Hannes sagði að allir sterk- ustu skákmenn heims yrðu með á heimsmeistaramótinu. Ind- verski stórmeistarinn Anand hefði unnið mótið síðast, en nú fengi Karpov ekkert forskot eins og þá og yrði að taka þátt í mótinu. Gert væri ráð fyrir að hann yrði með frá byrjun, en hann væri ekkert ánægður með það. Hannes sagðist ekki áður hafa náð jafnlangt í heimsmeist- arakeppni, enda hefði keppnin verið með öðru sniði undanfarin ár. Hann sagðist vera bjartsýnn á árangur þar. Andstæðingarnir yrðu hins vegar mjög sterkir, en auðvitað myndi hann rejma að ná sem lengst. Kom ekki á óvart Hannes sagði að þessi árang- ur nú hefði ekki komið sér á óvart. Hann hefði unnið sterkt mót í Antwerpen í síðasta mánuði og árangur- inn nú kæmi í fram- haldi af því. Hann hefði því gert sér vonir um að komast áfram. Hannes tapaði ekki skák á mótinu. Aðspurður hvort hann hefði einhvern tíma komist í tap- hættu sagðist hann hafa lagt allt of mikið á stöðuna i seinni skákinni gegn Helga Olafs- syni, en Helgi hefði leikið af sér og hann náð jafn- tefli. Annars væri hann mjög ánægður með taflmennskuna á mótinu. Hins vegar væri allt öðru vísi að tefla í mótum með svona ein- vígisfyrirkomulagi en í venju- legum mótum, því sálfræðiþátt- urinn spilaði miklu meira inn í, eins og hvað undirbúning snerti, hvaða byrjanir andstæð- ingurinn veldi og fleira. „Eg var búinn að vinna hann áður tvisvar í röð með hvítu. Hann þorði ekki að tefla uppá- haldsbyrjunina sína,“ sagði Hannes um sigurskákina gegn Djurhuus. „Hann tefldi afbrigði sem hann hefur aldrei teflt áður og ég refsaði honum fyrir það. Ég mátaði hann í 26. leik og það er rosalega þægilegt að fá svona auðveldan vinning," sagði Hannes Hlífar ennfremur. Hann rifjaði upp tap sitt gegn Djurhuus á Evrópumeistara- móti unglinga árið 1990, en skákin réð úrslitum um að hann varð Evrópumeistari en ekki Hannes, eins og fyrr sagði. „Ég einmitt hafði það í huga áður en ég tefldi skákina að ég ætlaði að hefna fyrir það,“ sagði Hannes og bætti við að þótt hann hefði hefnt fyrir tapið áður með sigr- um á Djurhuus þá sæti það enn í sér. Hann hefði þurft jafntefli til að vinna mótið 1990 en hefði tapað skákinni mjög klaufalega. Tap eins og það gleymdist ekki. Hannes Hlífar Ornefnanefnd telur nafnið Austur-Hérað eiga við ÖRNEFNANEFND telur nafnið Austur-Hérað viðeigandi fyrir sam- einað sveitarfélag Egilsstaðabæjar, Eiðahrepps, Hjaltastaðarhrepps, Skiiðdalshrepps og Vallahrepps. Nefndin svaraði á flmmtudag er- indi bæjarstjóra hins nýja sveitarfé- lags og segir í svarinu að heitið Hérað sé gamalkunnugt um Fljóts- dalshérað. Liðurinn „Austur-“ í til- lögu bæjarstjórans væri til nánari afmörkunar með nafninu Hérað og alþekkt væri í örnefnum að átta- táknanir væru notaðar til aðgrein- ingar á stöðum eða skiptingar á svæðum sem annars lægju saman. „Ekki verður annað séð en Aust- ur-Hérað megi teljast viðeigandi nafn á hinu nýja sveitarfélagi og ekki verður ráðið af heimildum eða athugunum nefndarinnar að gengið yrði á hlut annarra Héraðsbúa með þeirri nafngift," segir í svarinu og er því bætt við að heitið geti sam- rýmst meginsjónarmiðum nefndar- innar, einkum að forðast skuli að ný stjórnsýsluheiti geti útilokað, þrengt að eða raskað á annan hátt merkingu eða notkun rótgróinna heita sem tengjast svæðum eða byggðarlögum innan sveitarfélags, nági-annasveitarfélags eða héraðs. Morgunblaðið/Ásdís INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir og Christoph Kirchner undirrituðu samninginn. Reykjavík orðin heilsulindarborg FIMMTUDAGINN 17. september undirrituðu í Ráð- húsi Reykjavíkur þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri og dr. med. Christoph Kirschner, for- seti Heilsulindasamtaka Evrópu, samning um aðild Reykjavíkurborgar að samtökunum. tínnið hefur verið að því undanfarna mánuði á vegum Reykjavíkurborgar, og þá fyrst og fremst af Iþrótta- og tómstundaráði og Hitaveitu Reykjavík- ur, að kanna hvort Reykjavík geti orðið heilsulinda- borg. Leitað var eftir ráðleggingum og samstarfi við Heilsulindasamtök Evrópu (European Spas As- sociation) sem aðsetur hefur í Brussel. Miklu magni upplýsinga um Reykjavík hefur verið safnað í þessu sambandi og þær sendar til ESPA þar sem sérfræð- ingar samtakanna hafa unnið úr þeim. Einnig var Rannsóknastofnuninni Institut Fresenius í Þýska- landi falið að kanna jákvæða eiginleika heita vatns- ins í sundlaugum borgarinnar og á hvern hátt væri hægt að nýta það til lækninga og heilsubóta. „Ljóst er að mikill vöxtur er f heilsutengdri ferða- þjónustu í heiminum. Sundstaðir borgarinnar, borgin sjálf og ýmis ytri skilyrði, svo sem öflugt menningarlíf og nálægð við fagra náttúru, gera það að verkum að Reykjavík ætti að vera kjörinn áningarstaður fyrir þá sem kjósa að dvelja í friðsömu umhverfí, njóta fjöl- breytts menningarh'fs, heimsækja góð veitingahús og sækja sundlaugarnar sér til hressingar og heilsubót- ar,“ segir í frétt frá Reykjavíkurborg. HONDA 4 cLyji L^á i± 9 0 h e s t ö( l Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri Innifalið í verði bílsins Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.550.000,- 115 hestöfl Fjarstýrðar samlæsingar 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- 1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautunl Loftpúðar fyrir ökumann og farþega I Rafdrifnar rúður og speglar< ABS bremsukerfi4 Samlæsingarí 14" dekkí Honda teppasettt Ryðvörn og skráning4 Útvarp og kassettutæki4 Verð á götuna: 1.455.000.- Sjálfskipting kostar 1 00.000,- HJ HONDA Sími: 520 1100 Umboðsaðilar: Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílvér,’ s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712 Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.