Morgunblaðið - 19.09.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 2 7
ERLENT
Swissair-þotan
hefur splundrast
í smábita
SÉRFRÆÐINGAR kanadíska
flotans sem vinna að þvf að ná
upp braki MD-11 þotu Swissair
sem fórst undan Nova Scotia 2.
september sl., segja að engin
stór stykki sé að finna úr henni
og því verði ekki hægt að púsla
brakinu saman í þágu rannsókn-
ar á orsökum slyssins. Ekki hafi
fundist nein stór stykki úr
skrokknum, hið stærsta sé á við
snókerborð.
Vic Gerden, sem stjórnar
slysarannsókninni fyrir hönd
samgönguöryggisnefndar
Kanada (CTSB), staðfesti í dag,
að björgunarmenn telji engin
stór stykki að finna á hafsbotni.
Hann staðfesti einnig, að rann-
sóknarmenn teldu sig ekki geta
komist að orsökum slyssins með
því einu að rannsaka flug- og
hljóðrita þotunnar. Starfsemi
þeirra beggja stöðvaðist sex
mínútum áður en þotan fórst.
Gerden sagði afar gagnlegar
upplýsingar koma fram á báðum
ritunum, en sagði að ástæðu þess
hvers vegna sljórnklefi þotunn-
ar fylltist af reyk væri fremur að
finna í rafbúnaði þotunnar sem
kafarar freistuðu að finna.
Tveir af þremur hreyflum þot-
unnar hafa fundist á hafsbotni
og er vonast til að í þeim sé að
finna viðbótarupplýsingar er
varpað geti ljósi á orsakir þess
að þotan fórst með 229 manns.
Talebanar í Afganist-
an vilja milligöngu SÞ
Kabúl, Teheran. Reuters.
LEIÐTOGI Talebana í Afganistan,
Mohammad Omar, sagði í gær, að
deilan milli Afgana og Irana yrði
ekki leyst með vopnaskaki og hvatti
Sameinuðu þjóðirnar til að miðla
málum. Tugir þúsunda manna
gengu í gær um götur Teherans,
höfuðborgar írans, og fordæmdu
Talebana en þeir saka aftur írönsk
stjórnvöld um að hafa tekið 56
Afgana af lífl.
Talsmaður Omars sagði, að deil-
an yrði ekki leyst nema með milli-
göngu Sameinuðu þjóðanna, sem
einnig yi-ðu að ræða íhlutun Irana í
afgönsk innanríkismál. Sagði hann,
að erlend ríki hefðu gerst sek um
tvöfalt siðgæði með því að fordæma
dauða íranskra sendimanna í
Afganistan en látið óátalið þegar af-
ganskar sveitir, sem njóta stuðn-
ings írana, hefðu myrt 2.000 her-
Iranir með miklar
heræfingar við
landamærin
menn Talebana á síðasta ári. Þá
sagði útvarpsstöð Talebana, að ír-
anir hefðu myi-t 56 Afgana í Iran og
handtekið fjölda flóttamanna.
Afhenda fimm íranir
Sartaj Aziz, utanríkisráðherra
Pakistans, ræddi í gær við Hassan
Habibi, fyrsta varaforseta írans, og
lét í ljós von um, að íranir og
Afganar gætu leyst deiluna frið-
samlega. Vísaði hann jafnframt á
bug ásökunum um, að Pakistanar
styddu Talebana með ráðum og dáð.
Þá tilkynnti hann, að Afganar ætl-
uðu að láta lausa fimm íranska
borgara í von um, að það gæti orðið
til að lægja öldumar nokkuð.
Tugþúsundir manna fylgdu í gær
írönsku sendimönnunum, sem voru
drepnir í Afganistan, til grafar í
Teheran og var þess krafist, að Ta-
lebanar yrðu látnir gjalda dauða
þeirra. Var einnig hvatt til þess, að
afgönskum flóttamönnum, sem
vildu berjast gegn Talebanastjórn-
inni, yrðu fengin vopn en þeir eru
alls um milljón talsins í Iran.
270.000 manna herlið
Iranir eru með mikinn viðbúnað
við afgönsku landamærin og eiga
um 270.000 hermenn að vera þar við
heræfingar um helgina. Talebanar
segjast vera með 6.000 hermenn til
varnar og hafa hótað að ráðast á
íranskar borgir ráðist íranir inn í
Afganistan.
19 myrtir í Mexíkó
MEXÍKANSKIR hermenn stóðu í gær vörð á vett-
vangi afar óhugnanlegs fjöldamorðs á búgarði í E1
Sauzal, um hundrað kílómetra norður af En-
senada sem er skammt frá bandarísku landamær-
unum.
Reuters
Myrtu óþekktir árásarmenn að minnsta kosti 19
manns, þar af átta börn, í fyrradag. Var fólkið,
þrjár íjölskyldur, dregið fram úr rúmum sínum og
skotið en yfirvöld telja morðin tengjast eiturlyfj-
um og átökum glæpagengja.
Aznar snýr heim vegna vopnahlés
Málamiðlun
hugsanleg standi
ETA við orð sín
Madríd. Reuters.
JOSE Maria Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, batt í gær enda á op-
inbera heimsókn sína til Perú vegna
vopnahlésyfirlýsingar ETA-skæru-
liða. Hann hvatti hreyfinguna til að
standa við orð sín, og sagði að stjórn-
völd væru reiðubúin að gefa eftir í
einstökum atriðum ef ETA myndi í
raun láta af ofbeldisverkum.
Innanríkisráðherra Spánar, Jaime
Mayor Oreja, sagði í gær að stjórn-
völd myndu ekki draga úr aðgerðum
tii að hafa uppi á meðlimum ETA-
skæruliðahreyfingarinnar, sem grun-
aðir væru um morð, og að þeir yrðu
leiddir fyrir rétt ef til þeirra næðist,
þrátt fyrir vopnahlésyfirlýsinguna.
Oreja sagðist hafa áhyggjur af því
að vopnahléið væri hugsanlega ekk-
ert annað en brella til að ETA fengi
tækifæri til að safna liði á ný, en tug-
ir meðlima hreyfingarinnar hafa ver-
ið handteknir á undanfórnum mán-
-uðum. Stjórnmálaskýrendur telja að
vopnahlésyfu-lýsingin bendi til þess
að hreyfingin sé orðin afar einangr-
uð, og hafa leitt getum að því að
virkir félagar séu nú ekki fleiri en
fimmtíu.
Vopnahlésyfirlýsingunni hefur al-
mennt verið tekið með varúð, en
stjórnmálaleiðtogar í Baskalandi
hafa fagnað henni eindregið. ETA-
skæruliðar hafa tvisvar áður lýst yfir
tímabundnu vopnahléi, en þetta er í
fyrsta sinn sem þeir segja það varan-
legt. Hreyfingin stendur enn við
kröfu sína um sjálfstæði Baskalands,
og hefur lýst því yfir að hún muni
ekki afhenda vopn sín, en það er eitt
meginskilyrðið sem stjórnvöld hafa
sett í friðarviðræðum.
Fæðingar í Bretlandi
Heim eftir
sex klukku-
stundir
London. The Daily Telegraph.
BRESKUM konum, sem eiga von á
sér, hefur verið tilkynnt, að hugsan-
lega verði þær sendar heim af fæð-
ingardeildinni sex klukkustundum
eftir barnsburð séu þær færar um
það. Er ástæðan mikil mannekla á
sjúkrahúsunum.
Það er ekki síst skortur á ljós-
mæðrum, sem vandanum veldur, og
sums staðar er til dæmis ekki unnt
að ábyrgjast, að orðið verði við ósk-
um kvenna um keisaraskurð. Nýlega
sögðu margar ljósmæður upp störf-
um á sjúkrahúsinu og það hefur lít-
inn árangur borið að auglýsa eftir
öðrum. Vegna þess varð að loka ein-
um fæðingargangi.
Við sjúkrahúsið störfuðu áður 80
ljósmæður en 19 þeirra sögðu upp af
ýmsum ástæðum, sem ekki tengdust
neinni launadeiiu. I Bretlandi öllu
eru skráðar 32.803 ljósmæður, 2.500
færri en 1995, og hafa ekki verið
færri í áratug.
Engin hætta er talin á ferðum þótt
kona sé send heim sex klukkustund-
um eftir barnsburð ef hún og barnið
eru hraust en þetta ástand hefur
samt skotið verðandi mæðrum mik-
inn skelk í bringu.
Trévörur frá
Walnut Hollow
og Provo Craft.
OpnonailíBii:
10-18 mánud. (il miðvibud.
10-22 fimmiudaða,
* 10-18:30 fösfudaga,
10-16 laugardaga og
x 13-16 sunnudaga.
Urval af %
*
akrýlmálningu,
glermálningu,
stenslum og 4
stenslalitum JÉ
frá Plaid
02 Delta.
Tilbúnir hlutir
til taumálunar
frá Bagworks
Utsögunarblöð
frá Darrow.
Lanýholtsveýi 111 Sími 568 6500