Morgunblaðið - 19.09.1998, Síða 33
Sá nefnir að hann hafi ekki feng-
ið bh-t eftir sig ljóð í Morgunblað-
inu og rakarinn segist ekki undr-
ast það, skáldið sé svo klámfengið í
kveðskap sínum.
Aftur að leshringnum: „Við vor-
um núna í vor að lesa Undir hetju-
höll, um gamla manninn hann Ad-
olf Hitler. Við erum líka svolítið í
trúarbrögðum, erum orðnh’ sér-
fræðingar í mormónisma núna.“
Blaðamaður er sestur í stólinn
og Guðjón hallar honum vel aft-
urábak. Þetta er bara eins og hjá
tannlækninum.
Guðjón segh’ aðspurður marga
listamenn leggja leið sína til hans.
„Þeir hafa málað af mér myndir,
til dæmis þessa.“ Hann bendir á
eina stóra ofan við vaskinn. Og
hann getur ekki neitað því að hafa
smitast af þeim. „Eg málaði stóru
myndina hérna frammi á gangi.“
Rakarastofan er því ekki ein-
göngu rakarastofa; þetta er í það
minnsta líka lesstofa, sýningarsal-
ur og vinnustofa listmálara. Hlýtur
að vera eitthvert fjölbreyttasta
fyrii’tæki landsins!
Ég spyr Guðjón að því hvort fólk
læri rakstur enn í dag í skóla.
„Nei, þeir læra þetta ekki í dag
og bara örfáir sem taka þetta orðið
að sér. Menn rétta kúnnanum bara
rafmagnsrakvél, ef hann biður um
rakstur! Og þeir eru fáh- sem biðja
um þetta nú orðið; mönnum þykh’
dýrt að láta raka sig fyrir 500
krónur. En ég stóð í þessu heilu
dagana fyrst eftir að ég lærði.
Þetta var mjög algengt, - en sumir
fóru nú með faðirvorið fyrir rakst-
urinn...“
Hann setti heitt handklæði á
andlit „fórnarlambsins" til að
mýkja húðina. Sá sem situr í stóln-
um lagði það á sig að safna skeggi í
nokkra daga áður en hann sótti
Guðjón heim, en fagmaðurinn rak-
ar það mesta af með rafmagnsrak-
vél, því nýju hnífarnir bíta ekki
nógu vel á skegg ef það er mikið,
segir hann. Og nú er alveg hætt að
brýna hnífinn eins og í gamla
daga. „Nú er bara skipt um blað.“
Olafur Jóhannsson gengur í sal-
inn og sest. Er kynntur til sögunn-
ar sem fastakúnni og fararstjóri.
Og listmálari. Rakarinn bendir á
mynd sem gesturinn hefur málað,
en Olafur dregur sjálfur verulega
úr sannleiksgildi þess titils.
Guðjón er búinn að maka á mig
raksápu og hefur nuddað húðina
vel. Og þá hefst aðgerðin. Hann er
sjálfur með alskegg; segist lengi
hafa skartað því. „Ég er ekki að
safna skeggi, en ég er með skegg,“
segir Guðjón. Hann klippir sig
sjálfur og snyi’tir skeggið.
„Það er mjög gott að láta raka
sig. Ég gerði það stundum í gamla
daga; það var á við góðan afréttara
ef maður var þunnur. Og að láta
raka sig og bursta skóna var á við
einn tvöfaldan." Það er áðurnefnd-
ur Olafur sem blandar sér í um-
ræðuna.
Eftir rúmar 20 mínútur er
rakstrinum lokið. Mikið var þetta
notalegt, hugsar maðurinn í stóln-
um og óttast að hann nenni ekki að
raka sig sjálfur héðan í frá. Guðjón
skolar andht þess nýrakaða með
vatni. Kemur svo aftur með heitt
handklæði. Segir heita baksturinn
í raun óþarfan eftir rakstur en
kaldur fylgir í kjölfarið. Til að loka
húðinni. Til þess gerð krít er
þvínæst dregin fram til að loka
sárum, hafi þau orðið til við rakst-
urinn, en svo var blessunarlega
ekki. Að síðustu stráir hann svo
barnapúðri í klút og ber á andlit
mannsins í stólnum. „Nú ertu eins
mjúkur og barnsrass," segir fag-
maðurinn við kúnnann og býður
honum að standa upp.
Heimsókninni lýkur og Guðjón
kveður með þessum orðum: „Ég
vona bara að stofan hjá mér fyllist
ekki af mönnum sem viija fá rakst-
ur, eftir að greinin birtist. Ég er
nefnilega alveg hættur að nenna
þessu..."
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 33
SPURT ER
Hvað er Míka?
MENNING - LISTIR
1. Hver er höfundur væntanlegrar
skáldsögu um Sturlu Sighvats-
son?
2. Einn af kunnustu málurum
Spánverja er höfundur mynda-
flokks sem hann nefndi Kenjarn-
ar. Hver var hann?
3. Hvaða íslenskur listdansari
dansaði nýlega opinberlega í
Afríku?
SAGA
4. Spurt er um germanskan þjóð-
flokk, e.t.v. er upprunninn í
Skandinavíu, sem lagði Ítalíu
undir sig á 6. öld e.Kr. og stofn-
aði konungdæmi í norðurhlutan-
um. Hvað var konungdæmið
kallað á norrænum tungum,
hvað heitir héraðið nú og hver er
helsta borgin þar?
5. Hver varð konungur yfir Is-
landi með Gamla sáttmála?
6. Hverrar trúar var Adolf Hitler?
LANDAFRÆÐI
7. Hvaða borg var það sem nor-
rænir menn til forna kölluðu
Miklagarð, hvað heitir hún nú
og í hvaða landi er hún?
8. Hvað heitir vestasti tangi Snæ-
fellsness?
9. Hvað heitir hæsti tindur Noregs
og hvor er hærri, hann eða
Hvannadalshnúkur?
ÍÞRÓTTIR
10. Hvað heitir þjálfari meistara-
flokksliðs Leifturs frá Ólafsfirði?
11. Hvernig er snókerkúlan, sem
gefur flest stig, á litinn?
12. Hverjir áttust við í leiknum um
„meistara meistaranna“ í hand-
knattleik og hvernig lyktaði hon-
um?
ÝMISLEGT
13.Spurt er um þekktan vísinda-
mann sem meðal annars vann
það sér til frægðar að finna upp
hitamælinn árið 1593?
14. Hvað er Míka?
15. Þekkt saumavélartegund er
nefnd eftir þeim manni, sem
fann upp saumavélina. Hvað hét
16. Hvað heitir
söngvarinn á
myndinni og
hvaða íslensk
söngkona hefur
starfað með
honum?
hann?
oinuoM
qsw j|ppej>|eq QiBuns jnjeq JiuopsjeiQ nofiAj euuv Bo seiS9|6i oi|np J9 uuuba6uos -gi je6uig
oes| ’9i. 'j» 'j pig '8 e nu^ujngng i jba ujss uueweds uepujsuwes qia juue>( js qijiu 'wnun
-uuoweds iuuiw juAemu :jq j jju 'b>uiai >ioqsw9peds yj buibo oameo -gj 'gg u6s6 wn>|jow
6S Q9W JBJe69Ajn6|S wss |ddn nQOjs uuaw-VM 6o qja jsnjjQ VX 6o uuaws|BA 'SJ 'JJQas
' j j 'uoss6neigno ||Bd '01 'w 6 J JS J9 wss '>(nuqs|epeuueAH jijÁ uu|6u|uu!A iac) jnjeq 6o jeq w
69f3 s69jon Jnpuu ijsæq je u966|doqp|eo '6 'seujegjeApuQ '8 '|pue|>|jAx j 6joq je 6o inque
-js| Jijieq nu wes 'iedoujjuejsuox e euuew euuæjjou ujeu jba jnQjeBiHUAj 'i 'jeruj jej>ts|Oc|e>|
-XSJ9AW0J jba jaitiH '9 'jn6unuo>|s68JO|\| uosjeuo>|eH ||we6 uo>|eH 'S 'QueuiAj je jec| U|6joq
ejsiaq ue ‘eipjeqwoi nu j|j|eq 6o pue|eQjeq6ueq nQnuQx uusw jjuæjjou wes njiejj e iwæp
-6unuo>| nQnujojs jegjeq6ue-i p 'jijjopsuejejs ejeq e 'bAoð '2 'uosswiefquA Joqi ' juoas