Morgunblaðið - 19.09.1998, Page 58
4 58 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR á sambandsþingi KFUM og KFUK í félagsheimilinu Sunnuhlíð á Akureyri.
Sambandsþing KFUM
og KFUK á íslandi
LANDSSAMBAND KFUM og
KFUK hélt sambandsþing á Akur-
eyri laugardaginn 5. september síð-
astliðinn og sóttu það 32 fulltrúar
frá aðildarfélögum og stai-fsstöðvum
landssambandsins á Akranesi,
Akureyri, í Hafnarfirði, Keflavík,
Reykjavík og Vestmannaeyjum.
„Fyi'ir utan venjuleg þingstörf
þar sem meðal annars var farið yfir
skýrslur aðildarfélaga, reikninga og
fjárhagsáætlun, var aðalumræðuefni
þingsins þjálfun leiðtoga í starfi
KFUM og KFUK. Nefnd sem sett
var á laggirnar á síðasta sambands-
þingi skilaði niðurstöðum sínum og
setti fram hugmyndir um hvernig
haldið yrði áfram að þróa góða og
markvissa leiðtogafræðslu á vegum
NÝLEGA var haldin alþjóðleg frí-
merkjasýning í Portúgal. Meðal 436
sýnenda á þessari alþjóðasýningu
voru þrír Islendingar.
Það voru þeir Indriði Pálsson,
sem sýndi safn sitt „Islensk póst-
þjónusta 1836-1902“ og hlaut fyrir
það gullverðlaun, það voru 93
punktar og sérverðlaun. Annar að-
ilinn var Hjalti Jóhannesson, sem
sýndi safn sitt „íslenskir póst-
stimplar af Antiqua- og Lapidar-
gerð“. Hlaut hann gyllt silfur íyrir
safn sitt, eða 80 punkta. Hinn þriðji
var svo í unglingadeild, Guðni Fr.
Árnason, sem hlaut 75 punkta og
viðurkenningu ásamt stórum silfur-
verðlaunum fjrir safn sitt um land-
könnun, en það nefnist; „Kristófer
Kólumbus og fundur Ameríku".
Sýning þessi var haldin dagana
4.-13. september í Lissabon, í
Menningarmiðstöðinni Belém, sem
er eins konar Gerðuberg þeirra.
Sýningin var sérstaklega helguð
landafundum og sjóleiðinni til Ind-
ía, sem Vasco da Gama fann. Þarna
var um að ræða sýningu á stóru
svæði í höllinni. Þar á meðal voru
Getraun og leik-
tæki á Miðbakka
Á MIÐBAKKA, Reykjavíkurhöfn,
verður í gangi um helgina skemmti-
leg getraun-Finna á nafn á sjávar-
búum sem lýst er í stuttum texta og
með útlínumynd í sýningarrömm-
um. Verðlaun eru í boði fyrir rétt
svör. Að venju eru til sýnis þörung-
ar og botndýr sem lifa í Höfninni.
Hægt er að nálgast nokkur þeirra í
grunnum bakka.
Þá eru þar leiktæki sem hægt er
að nota til að líkja eftir hreyfingum
ákveðinna botndýra Hafnarinnar.
Árabátur á hlunnum og eimreiðin
sem flutti efni til hafnargerðar ofan
úr Öskjuhlíð 1913 til 17 er til afnota
til að leika hlutverk þeirra sem unnu
með þessum tækjum á árum áður.
félaganna. Var góður rómur gerður
að skýrslunni og þátttakendur á
þinginu sammála um mikilvægi þess
að hafa vel þjálfaða leiðtoga í starf-
inu.
Á þinginu var fulltrúum lands-
sambandsins einnig kynnt íyrirhug-
uð afmælisdagskrá félagsstarfsins,
en á þessum starfsvetri eiga KFUM
og KFUK aldarafmæli. Afmælisins
verður minnst í barna- og æskulýðs-
starfi félaganna í vetur með ýmsum
uppákomum. Sérstakur söguratleik-
ur verður í öllum deildum, boðið
verður upp á heimsókn í aðalstöðvar
KFUM og KFUK þar sem herbergi
sr. Friðriks Friðrikssonar verður
meðal annars heimsótt, en hápunkt-
ur afmælishaldsins verður hátíð í
43 póstmálastofnanir frá jafnmörg-
um löndum og 42 kaupmenn á fjög-
ur þúsund fermetra svæði.
Sýnendur voru 436
Sýnendurnir voru 436 og sýndu í
1.798 römmum. Þá var sérstök dag-
skrá fyrir ungt fólk þar sem meðal
annars var keppt um að teikna frí-
merki. Þá var „Geimurinn og unga
fólkið", eitt af þemum sýningarinn-
ar, tölvuprógrömm og forrit sér-
staklega fyrir ungt fólk. Sýningin
hafði sérstaka heimasíðu á alnetinu
í þrem hlutum, ctt.pt, filatelia og
novid.
Þá voru haldnir ýmsir fundir
meðan á sýningunni stóð, meðal
annars um tegundasöfnun. Einnig
héldu blaðamannasamtök þeirra er
skrifa um frímerki og frímerkja-
fræði fund sinn og líka „Evrópu
akademían um nám í frímerkja- og
póstsögulegum fræðum".
Ekki dró úr aðsókninni að hægt
var að sameina ferðina heimsókn á
síðustu heimssýningu aldarinnar,
„EXPO/98", þar sem 135 þjóðir
sýndu.
Gönguferð
um gömlu
höfnina
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir stuttri gönguferð í
dag, laugardag, til að minna á
hvernig talið er að hafi verið um-
horfs á hafnarsvæði Gömlu hafnar-
innar á árum áður.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
austanverðu kl. 14. Gengið upp
„Gömlu Grófina" og „Sjávargötu
Ingólfs" framhjá „Ingólfsnausti"
upp í Víkurgarð þaðan til baka
„Hovedgaden" og gegnum
„Bryggjuhúsið“ út á „Bólvirkið“ og
„Duusbryggjuhausinn". Til baka í
„Gamla bryggjuhúsið“ og ferðinni
lýkur við Hafnarhúsið.
Perlunni um miðjan mars, með þátt-
töku allra barna- og unglinga í
æskulýðsstarfi KFUM og KFUK.
Auk þessa verður afmælisins minnst
á árshátíð félaganna 2. janúar sem
er afmælisdagur KFUM, með hátíð-
arguðsþjónustu í Dómkirkjunni 3.
janúar og með hátíðarsamkomu
hinn 29. apríl á afmælisdegi KFUK.
Sambandsþingi KFUM og KFUK
lauk með helgistund í Glerárkirkju
sem var í umsjá sr. Gunnlaugs Garð-
arssonar. Var Akureyringum þökk-
uð frábær gestrisni og góður undir-
búningur íyi'ir þingið, en þess má
geta að fulltrúi Ákureyringa í stjórn
Landssambandsins er Jón Oddgeir
Guðmundsson," segir í fréttatil-
kynningu frá KFUM og KFUK.
Stærsta
kornskurðarvél
landsins
MEÐ aukinni kornrækt á íslandi
bætist stöðugt í vélaflota kornrækt-
arbænda. Nýlega fluttu Vélar og
þjónusta hf. inn til landsins stærstu
og afkastamestu kornskurðarvél
sem komið hefur til Islands.
Þreskir ehf., sem er hópur
bænda í Skagafirði og Húnavatns-
sýslu, kaupir vélina en kornrækt er
vaxandi búgrein á því landsvæði
sem og annars staðar á landinu.
Þreskivélin er af CASE IH521
gerð, framleidd í Þýskalandi. Sk-
urðarborðið er 4,8 m breitt og þeg-
ar flytja á vélina á milli staða þarf
að setja sláttuborðið á sérstakan
vagn. Vélin er knúin 150 hestafla
sex strokka díselvél og það tekur
vélina aðeins tvær mínútur að
tæma korntankinn, sem er 5.000
lítrar að rúmmáli.
CASE verksmiðjurnar eru einn
af stærstu framleiðendum heimsins
á kornþreskivélum. Vélarnar eru
framleiddar í mörgum stærðum og
er CASE IH 521 vélin sú minnsta
sem þeir framleiða þó hún þyki stór
á íslandi.
Kjördæmisráð Alþýðu-
flokksins í Reykjanes-
kjördæmi
Ganga til
viðræðna um
framboðsmál
KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðyflokksins
í Reykjaneskjördæmi hélt aðalfund
sinn miðvikudaginn 16. sept. og var
þar samþykkt að fela stjórn þess að
ganga þegar til formlegra viðræðna
við fulltrúa Alþýðubandalags og
Kvennalista um skipan framboðs-
lista og önnur mál er varða samstarf
þessara flokka fyrh' næstu alþingis-
kosningar.
Á fundinum kynnti formaður Al-
þýðuflokksins nýframkomna mála-
efnaskrá flokkanna. Eftirfai'andi
ályktun var samþykkt einróma:
„Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi fagnar sameig-
inlegum tillögum að málefnaskrá
sem fram voru lagðar í dag. Þær eru
áfangi að kröftugu og samstæðu
ffamboði þessara flokka í komandi
alþingiskosningum og verða grunnur
að kosningastefnuskrá þess.
Kjördæmisráðið styður sameigin-
legt framboð flokkanna og lítur á
það sem rökrétt og jákvætt framhald
á samstarfinu í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum.
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins
gengur bjartsýnt til þeirrar vinnu
sem bíður flokkanna á vettvangi
kjördæmisins og telur brýnt að und-
irbúningur að skipun framboðslista
hefjist sem fyrst.
Samstaða á grundvelli jafnaðar-
stefnu, félagshyggju og kvenfrelsis
er góður grunnur að kröftugri kosn-
ingabaráttu. Hér í Reykjaneskjör-
dæmi er í burðarliðnum samhent
liðssveit sem stefnir ótrauð að góðum
sigri í kosningunum á vori komanda."
■ BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjarg-
ar og Slysavamafélags Islands
ásamt Hjálparsveit skáta í Reykjavík
halda námskeið í notkun áttavita og
landakorta mánudags- og þriðjudags-
kvöldið 21.-22. september. Þar verða
kennd gnmnatriði rötunar og byggist
námskeiðið upp á bæði bóklregri
kennslu svo og verklegri æfingu.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík hefur
haldið slík námskeið í meira en 3 ára-
tugi. Að þessu sinni er námskeiðið
eins og áður segir haldið í samvinnu
við Björgunarskóla Landsbjargar og
Slysavarnafélags íslands sem einnig
hefúr áratuga reynslu af námskeiðs-
haldi tengdu ferðamennsku og björg-
unarstörfum. Námskeið þetta er fyrir
alla sem hafa áhuga á útivist og vilja
auka öryggi sitt við ferðalög í óbyggð-
um. Allar upplýsingar og skráningu á
námskeiðið má nálgast hjá Björgun-
arskólanum.
LEIÐRÉTT
MS-könnun gerð á landinu öllu
í VIÐTALI við Margi'éti Sigurðar-
dóttur á bls. 8 í gær var sagt frá
könnun sem Valgerður Magnúsdótt-
ir, sálfræðingur á Akureyri, gerði á
aðlögun fólks að MS-sjúkdómnum.
Tekið skal fram að könnunin var
gerð meðal sjúklinga á öllu landinu.
Opið hús hjá BM
Vallá í dag
BM VALLÁ efnir til haustsýningar
fyrir alla þá sem eru að velta fyrir
sér framkvæmdum við hús eða garð
í dag, sunnudaginn 20. september.
Boðið verður upp á sýnikennslu,
ráðgjöf og ókeypis hugmyndabæk-
linga.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
öfluga vöruþróun hjá BM Vallá í öll-
um deildum fyrh-tækisins, segir í
fréttatilkynningu og verða eftirfar-
andi nýjungar hjá BM Vallá kynnt-
ar sérstaklega á haustsýningunni:
Óðalsgötusteinn er hannaður sér-
staklega fyrir steinlagðar götur sem
eiga að þola mikla umferð. I steinin-
um sjálfum er innbyggð læsing sem
virkar á láretta og lóðrétta krafta
og tryggir stöðugleika lagnarinnar.
Sorptunnuskýli - kerfi for-
steyptra eininga hannað af Ómari
Sigurbergssyni, húsgagna- og inn-
anhússarkitekt sem hentar fyrir all-
ar gerðir sorptunna.
Antik-steinflísar. Ný gerð stein-
flísa sem byggð er á fyrirmyndum
frá Bretlandi. Sýnd verður notkun á
antik-steinflísum með öðrum vörum
frá BM Vallá.
Steypubíll með færibandi. BM
Vallá hefur fest kaup á nýjustu gerð
af færibandi sem er hagkvæm lausn
við margvísleg verkefni og flýtir
fyi-ir losun steypunnar.
Filegran-loftaplötur sem stytta
byggingartíma og lækkar kostnað.
Plöturnar eru sérframleiddar í
mjög nákvæmum mótum.
Auk þess munu sérfræðingar BM
Vallá kynna notkun á þakskífum,
milliveggjaeiningum og steinklæðn-
ingum.
Gestir geta nýtt sér ráðgjöf
Þuríðar Rögnu Stefánsdóttur lands-
lagsarkitekts á haustsýningunni.
Einnig verður tekið við tímapöntun-
um í ókeypis ráðgjöf hjá Þuríði.
Heitt verður á könnunni og eru allir
velkomnir. Opið verður frá kl.
13-17.
Aðalfundur
Hollvinafélags
lagadeildar HI
AÐALFUNDUR Hollvinafélags
lagadeildar Háskóla Islands verður
haldinn þriðjudaginn 22. september
næstkomandi í stofu 201 í Lögbergi
og hefst kl. 17.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf og Önnur mál. Að loknum
aðalfundi mun forseti lagadeildai',
Jónatan Þórmundsson prófessor,
halda erindi er nefnist „Laga-
kennsla á tímamótum“. Formaður
Hollvinafélags lagadeildar HÍ er
Birgir ísleifur Gunnarsson. Aðrir í
stjóm eru Þórunn Guðmundsdóttir,
Lára V. Júlíusdóttir, Jónas Þór
Guðmundsson og Garðar Gíslason.
Allir félagai' í Hollvinafélagi
lagadeildar era hvattir til að mæta á
fundinn og þar er einnig hægt að
ganga í Hollvinafélagið.
Fyrirlestur um
hómópatíu
ALMENNUR fyrirlestur um
hómópatíu verður haldinn föstudag-
inn 25. september kl. 20 í Bolholti 6
í sal Lífsýnar. Hómópatía er nátt-
úruleg lækningaaðferð.
Fyrirlesari er Ian Watson, sem
er einn af stofnendum og kennai'i
við The Lakeland College,
Englandi. Hann hefur stundað
heildrænar lækningar í 18 ár, m.a.
hómópatíu og jurtalækningar og
notað aðrar orkuaukandi aðferðir.
Ian hefur starfað með fremstu
núlifandi hómópötum í nýjum
stefnumótandi og klassískum að-
ferðum, þar á meðal Robin Murphy
og Jeremy Sherr, segir í fréttatil-
kynningu. Ian Watson er höfundur
„Á Guide to the Methodologies of
Homeopathy" og hefur haldið
fjöldamarga fyrirlestra og nám-
skeið í Englandi, Bandaríkjunum og
víðar. Ian mun svara öllum fyrir-
spurnum um hvaða möguleika
hómópatía gefur til betri heilsu.
Þrír frímerkjasafnarar
fá alþjóðleg verðlaun
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
BALDUR Þorsteinsson, Sverrir Geirmundsson og Bergur Ketilsson
við kornskurðarvélina.