Morgunblaðið - 19.09.1998, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 67 f.
FÓLK í FRÉTTUM
Menn með mönnum
í sjónvarpi
ÞÓ STUNDUM sé talað um
dagskrá íslensku sjónvarpsstöðv-
anna á gagnrýninn hátt og fundið
að oflætinu sem kemur fram í því
að vera í dagskrá eða stjórna þátt-
um og fara síðan og taka sig út á
veitingastöðum, eins og einskonar
minniháttai- ,jet set“, verður að
segjast eins og er, að sjónvörpin
hér standa sig nokkuð vel í saman-
burði við sjónvörp í mörgum öðrum
ríkjum, sem Islendingum eru
kunn, bæði austan
hafs og vestan.
Sannleikurinn er
sá að sjónvörp hjá
milljónaþjóðum eins og á hinum
Norðurlöndunum, Spáni og Italíu
svo dæmi séu nefnd, eru með til-
tölulega ómerkilegri dagskrá mið-
að við áhorfendafjölda og ríkidæmi.
Það er nefnilega merkilegra en
margur hyggur, að við skulum geta
haldið úti þremur sjónvarpsdag-
skrám á dag með þeirri tilbreyt-
ingu, sem i þeim þó er og vera ekki
nema um 270 þúsund manna þjóð,
eða á stærð við eina götu í stór-
borg. Maður hefur því tilhneigingu
til að taka hattinn ofan fyrir ís-
lensku sjónvai-pi, þótt sumt finnist
þar kauðalegt og út úr kú, en slíkt
fylgir nú fjölmiðlum yfirleitt og er
ekki alltaf heimatilbúið.
Á fóstudagskvöld sýndi sjón-
vai-pið mynd um Titanic-slysið, þá
fjórðu að mig minnir, sem gerð hef-
ur verið. Þetta var ágæt mynd í
tveimur hlutum, en sá síðari var
sýndur á laugardag. George C.
Scott lék skipstjórann og var sjón
að sjá karlinn. Hann er orðinn eldri
en þegar hann lék Patton hershöfð-
ingja sem var drepinn í Lúxem-
borg að stríði loknu af því hann
vildi halda áfram, og þá í austur.
Með Titanic fórst yfir fimmtán
hundruð manns, enda voru ekki til
björgunarbátar fyrh- alla fai’þeg-
ana, en þeir sem voru til voru sjó-
settir hálftómir. Sú goðsögn fylgdi
skipinu í jómfi-úrferð til Ameríku,
að það gæti ekki
sokkið. Skip statt
næst Titanic, sem
hefði getað bjargað
miklu, vh-tist vera með svefn-
drukkna og örvita skipshöfn og
kom ekki að gagni. Skipið sem
bjargaði bátafólkinu átti margra
klukkutíma siglingu á slysstaðinn.
Þai- vai- ekkert hirt um ísrek held-
ur siglt á fullu í gegnum hroðann.
Einkennilegt er að sjá menn gera
mynd um svona hrikalegt slys, þai-
sem bresk stéttarskipting er látin
ráða örlögum stórs hóps manna,
samanber farþegana á 3ja farrými.
Þeir komust ekki á þiljur fyiT en
eftir dúk og disk, þegai- allir björg-
unarbátar voru famir, og máttu
deyja drottni sínum ásamt goð-
sögninni um ósökkvandi skip.
Stöð 2 sýndi myndina Tvo sólar-
hringa frá árinu 1982 með Eddie
Murphy og Nick Nolte. Þessi mynd
hefrn- verið sýnd hér í kvikmynda-
húsum, en það var gaman að sjá þá
félaga aftui'. Eddie Murphy er ein-
hver allra skemmtilegasti maður
sem sést í kvikmyndum og var ein-
hver kjaforasti maður í Hollywood
hér á árum áður og hló þá kostu-
lega. Þá sýndi Stöð 2 aðra athyglis-
verða mynd á sunnudag. Undrið
hét hún og var um ásfi-alskan pí-
anóleikara. Ástralir eru þekkth' fyr-
ir að gera kvikmyndir með því sem
kalla mætti áströlskum stíl, þótt
þessi mynd flokkist ekki undh- jpað.
En Ástralir urðu fyi-st frægh- fyrir
myndir með þessum stíl sínum.
Jafnvel hér á landi reyndu menn í
fyrstu að koma einhverju sem
mætti kalla íslenskan stíl í myndir
héðan. En sú hugmynd hvarf brátt
og við tók „amerikanisering“.
Sjónvai-pið sýndi þáttinn Hitler
og Stalin á mánudagskvöld og
nefndi hannn að auki Hættulegt
samband. Evi'ópumenn eru í óða-
önn að rifja upp hvemig þetta hafi
verið, en það hrín ekki á Islending-
um. Þar halda menn áfram að vera
kommúnistar og eða nasistar, því
upprifjunin sýnir að þetta er sama
tóbakið. Meira segja vai- flokks-
skrípi þeirra hér höndum seinna að
yfirgefa stefnu nasista á stríðsár-
unum, þegai' þeh' voru í bandalagi
við þá samkvæmt skipun frá Stalin
og lentu þrjár „þjóðhetjur" í
bresku fangelsi af þeim sökum. Nú
eru þeir að gliðna sitt á hvað hér á
landi af því það vantar skipanh- „að
ofan“ eins og var. Við eigum eftir
að fræðast enn, því tveh' þætth'
verða sýndir til viðbótar um þá fé-
lagana Hitler og Stalin.
Indriði G. Þorsteinsson
SJONVARPA
LAUGARDEGI
Skaðabótamál höfðað
gegn Michael Jordan
► ÞAÐ er leitun að kviðdómi í
Bandaríkjunum sem myndi sak-
fella Michael Jordan. Hvað þá í
Chicago. Engu að síður gæti það
orðið þrautalendingin því kvik-
myndagerðarfyrirtækið Heaven
Corp. hefur höfðað mál gegn þess-
ari skærustu körfuboltastjörnu
Bandaríkjanna og krefst milljarðs
króna í skaðabætur.
Valið var í kviðdóminn í vikunni
og var Michael Jordan viðstaddur.
Samkvæmt fréttum fjölmiðla tók
það lengri tíma en venjulega
vegna þess að margir af þeim sem
komu til greina sem kviðdómendur
sögðu dómaranum Richard Neville
að þeir liéldu of mikið upp á Jord-
an til þess að treysta sér til að úr-
skurða gegn honum.
Tildrög málsins eru þau að árið
1987 skrifaði Jordan undir samn-
ing um að leika í körfuboltamynd-
inni „Heaven Is a Playground" og
áttu framleiðendurnir að fá tvö ár
til að fjármagna myndina. En árið
1989 þegar tökur áttu að hefjast
vilja forráðamenn Heaven Corp.
meina að Jordan hafi hætt við að
leika í myndinni.
„Heaven Is a Playground" var á
endanum gerð með Bo Kimble í
aðalhlutverki. Hún fékk ekki bíó-
dreifingu í Bandaríkjunum og skil-
aði ekki hagnaði. Forráðamenn
Heaven Corp. halda því fram
að hagnaðurinn hefði að
minusta kosti orðið milljarð-
ur króna ef Jordan hefði
leikið í myndinni.
Lög-
fræðingur Jor-
dans, Frederick
Sperling, segir á móti að
Jordan hafi aldrei neitað
að leika í myndinni sum-
arið 1989. Staðreynd
málsins hafi verið sú að
Heaven Corp. og Jordan
hafi gert samkomulag um að
fresta tökum til 1990. „Því
iniður stóð Heaven Corp.
ekki við sín loforð."
Búist er við að réttarhöld-
in standi f Qórar vikur.
Randall Fried, forseti Hea-
ven Corp., sem framleiddi
myndina og skrifaði hand-
ritið, bar vitni á miðviku-
dag. Áætlað er að Jordan
beri vitni í næstu viku.
FRETTIR
aareiavarm
varpmu
Það er góð tilffnning að
geta fylgst með heims-
fréttunum á fleiri víg-
stöðvum en íslenskum
fjölmiðlum.
Breiðvarpið býður upp á mjög fjölbreytilegan frétta-
flutning á ensku, þýsku, frönsku og ítölsku.
RAIUNO
TV5
Auk hinna vinsælu fréttastöðva CNN og Sky News, bjóðast
áskrifendum Breiðvarpsins evrópskar stöðvar eins og
Pro Sieben, ARD, TV5, CNBC Europe og RAIUNO. Síðast
en ekki síst býður The Coíæputer Channel upp á fræðandi
dagskrá tengda tölvuheiminum.
Hvers vegna að tengjast breiðbandinu?
• FJARSKIPTANET MED FRAMTÍÐARMÖGULEIKA
Með því að tengjast breiðbandinu tryggirðu aðgang þinn að
nýjum fjarskipta- og margmiðlunarmöguleikum á hverjum tíma.
Þú nærð um 20 sjónvarpsrásum og 20 útvarpsrásum og mun
framboð þeirra aukast á næstimni og nýjungar bætast við.
• SKÝRARI MYND OG HRAÐARIINTERNETTENGING
Myndgæði á útsendu efni eru skýrari en nokkru sinni fyrr.
Flutningshraði Internetsins verður einnig mun meiri með
tengingu við breiðbandið, en það verður kynnt á næstu vikum.
• EKKERT TAPAST VIÐ TENGINGU
Með tengingu breiðbandsins verður loftnet óþarft en fyrir þá sem
vilja einnig ná Stöð 2, Sýn eða Fjölvarpinu er mælt með að
fagmenn sjái um að tengja saman breiðbandið og loftnet.
• FRÍTT VIÐ TENGINGU
Þegar þú tengist breiðbandinu fýlgja frítt með tíu sérhæfðar
útvarpsrásir sem senda út tónlist allan sólarhringinn,
án auglýsinga og kynninga.
Á Music Choice getur hver og einn valið sina
tegund tónlistar.
FRITT KOSTNAÐARMAT
Innan þriggja daga frá því að þú biður um það, færðu
frítt kostnaðarmat á lokafrágang breiðbandsins.
Hafðu samband í gjaldfrjálst þjónustunúmer, 800 7474.
20.000 HBIMILI EIGA ÞHSS NU KOST AÐ
THNGIAST BREIÐBANDINU OG MUNU ÞÚSUNDIR
HHIMILA BÆTAST VIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM.
Hrxmgdu strax
OG KYNNTU »ÉR MÁLID!
7474
Opið til kl. 22 á kvöldin og 17 um helgar
BREIÐVARPIÐ
SJÓNVARPSÞJÓNUSTA SÍMANS
r
rsrrs?