Morgunblaðið - 19.09.1998, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 19.09.1998, Qupperneq 70
70 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sunnudagsævintýri við Tjörnina „EINU SINNI var lítil kóngsdóttir..." „EINU sinni var lítil kóngsdótt- ir, sem hét Dimmalimm. Hún var bæði ljúf og góð, og hún var líka þæg.“ Þannig hefst ævintýr- ið um Dimmalimm eftir Guð- mund Thorsteinsson, Mugg, sem myndskreytti ævintýrið einnig af mikilli list. A sunnudaginn hefjast sýningar á ævintýrinu kunna í Iðnó. Leikstjóri er Ásta Arnardóttir, en Ieikarar eru Harpa Arnardóttir, Ólafur Guð- mundsson og Þorsteinn Bach- mann. Tónlistin er eftir Atla Heimi Sveinsson og flytjendur hennar eru þau Guðrún Birgis- dóttir og Peter Maté. Leikmynd er eftir Björgu Vilhjálmsdóttur og sagan er í leikgerð Augna- bliks. I--- PHILIPS - Há-gæði á Iðgu verðl Philips 28" gæða sjónvarpstæki á ótrúlegu verði. • Nicam Stereo • Blackline myndlampi • Einföld og þægileg fjarstýring • íslenskur leiðarvísir Gerðu hörðustu kröfur til heimilistækja. Fjárfestu í Philips! phiups , 10 onn myndbandstæki a lö.öUU kc stgc Tveggja hausa myndbandstæki frá Philips á sérlega hagstæðu verði. Einfalt í notkun og áreiðanlegt. íslenskur leiðarvísir. PHIUPS Heimilistæki hafa verið fulltrúar Philips á Islandi í 30 ár og það er takmark okkar að Philips gæðavörumar séu hvergi á lægra verði en hjá okkur. Heimilistæki hf SÆTÚN8 SÍMI 569 1500 http.//www.ht.is Við ábyrgjumst góða þjónustu, gæði og verð sem stenst allan samanburð. AGFA ^ Ævintýraleg umgjörð Nýjar vörur! i UAn íeykinóía | 1'-»^ Skolavörðustíg 1a SAMAN geng« hóndíhönd. Harpa Arnardóttir fer með hlutverk prinsessunn- ar ljúfu og góðu og seg- ir hún að stórkostlegt sé að leika í Iðnó, þessu gamla menn- ingarsetri Ieik- listar landsins. „Húsið hefur mikla sál, og all- ar endurbætur eru svo skemmti- legar. Ekki er heldur verra að setja upp sýning- una á stað þar sem svanirnir synda beint fyrir utan húsið,“ seg- ir hún og hlær. „Iðnó er elsta leikhús lands- ins,“ segir Ólaf- ur Guðmunds- son sem Ieikur prinsinn, „og maður finnur það. Svo silja bömin í spari- stólum í Iðnó, og það hefur hver sinn stól. Um- gjörðin um sýninguna er því mjög skemmtileg og ævintýraleg í sjálfu sér.“ „Tónlist Atla Heimis er einnig óskaplega falleg og gerir mjög mikið fyrir sýninguna, sem verður ennþá meiri upplifun fyrir vikið,“ segir Harpa. Kærleikurinn í verki Sagan um Dimmalimm, góðu og þægu stúlkuna, gæti sumum þótt bera skilaboð sem eiga lítið erindi við böm nútimans, en Harpa segir svo ekki vera. „Dimmalimm er náttúmlega prinsessa, en hún er hugrökk og í henni blundar mikill kærleikur. Auðvitað er hún bæði þæg og góð, en hvað er það að vera þæg- ur og hvað er það að vera góður? Dimmalimm hefur hugrekki til að hlusta á hjarta sitt og hefur þetta eilífa sakleysi sem bömin skilja svo vel. Kannski er helsti boðskapurinn í verkinu ekkert tengdur kynjahlutverkum, heldur það að sýna kærleik- ann í verki. Galdrað upp úr skónum En hvernig er að leika fyrir böm? „Þau eru frábærir áhorf- endur, því þau eru svo heiðarleg og hrein og bein. Þú fela ekki viðbrögð sín eins og fullorðnir gera stundum og maður veit það strax hvort þau em ánægð eða ekki. Svo em þau svo nálægt andanum og ævintýrinu, ímynd- unaraflið er svo ríkt. í raun og veru em það þau sem setja gald- urinn af stað. Þau galdra mann upp úr skónum, sem leikara,“ segir Harpa. Ólafur segir að leikritið sé til- valið fyrir yngri börn en höfði þó til allra sem varðveita barnið í sjálfum sér. Upplagt er að fara á leikritið með afa og ömmu í Iðnó. Þau geta sagt börnunum sögur frá því þegar þau voru ung og fóm i leikhúsið í gamla daga. Svo er auðvitað hægt að gefa öndunum brauðbita eftir sýninguna, skoða svanina og láta hugann reika.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.