Morgunblaðið - 19.09.1998, Page 72
- 72 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Páfagaukurinn Paulie er fyndinn, kjaftfor,
ósvífínn og sífellt f vandræðum. Frábær
fjölskylduskemmtun um símasandi páfagauk
og 20 ára leit að æskuvinkonu hans.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
KVIKMYND EFTIR STEVEN SPIELBERG
tom hanks
saving private ryan
edward bums matl damon tom sizemore
björgun oLmeytts 173115
r
# *
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 552 2140
FYRIR
990 PUNKTA
FERDU í BÍÓ
Alfabakka 8, sími 5S7 8900 og 587 8905
Sýnd kl. 3 og 5.10 ísl tal. Kl. 11 enskt tal - ótextuð
KEIKO ER MÆTTUR
mim willu
Rás 2
Sýnd kl. 2.30,4.45 og 6.50.
www.samfiim.is
dingu og
FRUMSYNING: ZORRO
j......
■
Sýnd kl.2.30, 5, 7, 9 og 11.30. b.í. 12.
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. shdigital
BANDERAS
Frá lcikstjóra Goldcncyc
og framlciðcndum
Mcn In itl.uk
Flottasta stórmynd ársíns er himin. Sper.na, hasar, rómantik og
húmor í bland. Stórkostlegr: leikarar Aritonio Banderas (Desperado)
og Anthony Hopkins (tegonds Ot The Fall) og frah.er tónlist James
Homers (Titanio Aukaframleiðandi Steven Spielberg.
UÖPKÍNS
Himnaríki fyr-
irsætunnar
eitt af efstu sætunum," segir Kol-
brún. „Við vorum níu frá Islandi sem
vorum henni til halds og trausts og
vorum afar stolt af henni. Eins og ég
er alltaf að reyna að kenna börnun-
um mínum í skólanum: „Við erum öll
sigurvegarar ef við bara reynum."
Fékk hvatningarbréf á spítalann
frá hinum stúlkunum
„Þetta var mjög gaman og skemmti-
leg reynsla,“.sagði íris Hrund í gær-
morgun í samtali við blaðamann. „Ég
var ekkert rosalega stressuð. Maður
er aðallega spenntur." Hún segir að
æfingarnar hafi verið strangar síð-
ustu tvo dagana þegar hún gat tekið
þátt. „Þá var verið að æfa göngu og
uppstillingu," heldur hún áfram.
„Við æfðum stíft frá morgni til
kvölds en þetta var samt gaman,
einkum að kynnast stelpunum. Auð-
vitað var maðm’ þreyttur eftir æfing-
arnar og veikindin sátu í manni.“
Þegar Iris Hrund var flutt á spít-
ala skrifuðu stúlkurnar í keppninni
henni hvatningarbréf. Eitt bréfið var
skrifað með grænu letri vegna þess
að grænt hefur góða áru og sýnir
væntumþykju. Svo fékk hún kín-
verskt bréf sem hún gat ekki einu
sinni lesið. „Þær skrifuðu mér allar
bréf þar sem þær óskuðu mér góðs
bata og sögðu að þær söknuðu mín,“
segir Iris Hrund. „Þetta var óskap-
lega sætt,“ bætir hún við.
Ætlar að borða og fara
á ströndina
Aðspurð hvort hún ætli að halda
áfram fyrirsætustörfum segir hún að
hún fari líklega út næsta sumar, þótt
það sé ekki ákveðið, og svo ætli hún
að leggja vinnu í að fylgja þessu eft-
ir. En hvað ætlar hún að gera þang-
að til hún kemur heim á sunnudag?
„Það sem mig langar til,“ segir hún
með tilhlökkun í röddinni. „Eg ætla
að borða, fara á ströndina og gera
allt sem ég hef ekki haft tíma til að
gera.“
Að lokum ítrekar hún að stelpurn-
ar sem voru með henni í keppninni
séu frábærar. „Við erum búnar að ná
svo góðu sambandi," segh’ hún. „Æð-
islegt!“
SIGURVEGARARNIR ásamt Ingrid Seynhaeve og Jean Paul Gaultier.
Þær stúlkur sem sigruðu voru Mia Rosing frá Danmörku, Tati Ana
Rossi frá Brasilíu, Alina Puscau frá Rúmeníu, Natalia Bremermann
frá Uruguay og Linda Nyvltová frá Slóvakíu.
URSLITAKEPPNI Elite fór fram í
Nice á fímmtudagskvöld og vai’ Iris
Hrund Þórarinsdóttir á meðal kepp-
enda. Hún hafði átt við veikindi að
stríða meðan á undirbúningnum
stóð, eins og komið hefur fram í
blaðinu, en þótti standa sig afar vel á
úrslitakvöldinu, að sögn Kolbrúnar
Aðalsteinsdóttur frá Skóla John
Casablancas.
Iris Hrund komst ekki í úrslit í
keppninni enda rétt nýbúin að ná sér
eftir að hafa fengið hastarlegt bráða-
ofnæmi, verið lögð á spítala og hafði
aðeins getað tekið þátt í undirbún-
ingnum tvo síðustu dagana. „Hún
missti nánast af öllu,“ segir Kolbrún.
„Það voru engar myndir af henni
með hinum keppendunum og engin
myndbandsspóla. Samt sem áðm- fór
hún inn í keppnina og stóð sig eins
og hetja.“
Margt frægra manna fylgd-
ist með keppninni
Sigurvegari keppninnar
var AJina Puscau frá Rúm-
eníu sem er 1,74 á hæð, að
sögn Kolbrúnar. „Það sýn-
ir að stúlkur þurfa ekki að
vera hávaxnar,“ segir hún.
„Natalia Bremermann var
einnig á meðal 5 efstu og er
aðeins 1,72 á hæð.“ Tísku-
hönnuðurinn Jean Paul
Gaultier var formaður
dómnefndar, Ingrid Seyn-
haeve og OHvier Carreras
voru kynnar og heiðurs-
gestir voru m.a. fyrir-
sætan Valeria
Mazza og Ijós-
myndarinn Ellen
Von Unwerth.
„Við vitum að
ef írís Hrund
hefði ekki
veikst hefði
hún átt mikla
möguleika á
að komast í
FULLTRUI
Zimbabwe í
keppninni.
IRIS Hrund asamt foreldrum sinum Rannveigu Þorvarðardóttur
og Þórarni Arnórssyni.
HVERGI var til sparað að gera sýninguna sem
glæsilegast úr garði.