Morgunblaðið - 19.09.1998, Side 76
MORGUNBLAVIÐ, KRINGLAN1,103 ItEYKJAVIK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF 5691131
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Miklabraut-
Skeiðarvogur
Skipulags-
stjóri fellst
á mislæg
gatnamót
SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins
hefur fallist á fyrirhugaða
byggingu mislægra gatna-
móta Miklubrautar og Skeið-
arvogs í Reykjavík að ákveðn-
um skilyrðum uppfylltum.
Fyrirhugað er að byggja
mislæg slaufugatnamót á mót-
um Miklubrautar og Skeiðar-
, vogs. Hæðarlegu Skeiðarvogs
verður lyft frá gatnamótum
við Sogaveg að sunnan að
gatnamótum við Fákafen og
Mörkina að norðan. Skeiðar-
vogur mun fara á brú yfír
Miklubraut og verður nokkuð
jafnhalla alla leiðina. Lega
Miklubrautar helst óbreytt.
Hljóðvist við íbúðar-
og atvinnuhúsnæði
yrði bætt
_ Skipulagsstjóri ríkisins set-
ur það sem skilyrði við sam-
þykki sitt að við hönnun hljóð-
varna verði miðað að því að
bæta hljóðvist við íbúðar- og
atvinnuhúsnæði á áhrifasvæði
framkvæmdarinnar eins og
framast er kostur. Haft verði
samráð við fasteignaeigendur,
svo sem við Sogaveg, Rauða-
gerði og Mörkina um endan-
lega hönnun hljóðvarna og
frágang svæðisins.
Leiði reglubundnar eftir-
litsmælingar, í samræmi við
ákvæði mengunarvarnareglu-
gerðar, í ljós að hávaði frá um-
ferð um mislæg gatnamót
> Miklubrautar og Skeiðarvogs
fari yfír viðmiðunarmörk
mengunarvarnareglugerðar á
framkvæmdaraðili að grípa til
viðeigandi mótvægisaðgerða í
samráði við hlutaðeigandi
fasteignaeigendur, segir í áliti
Skipulagsstofnununar.
'
.
Á ÞESSARI samsettu mynd sést hvar veitingahúsið Nauthóll muu
standa í Nauthólsvíkinni. f baksýn sést Perlan.
Veitingahús mun
rísa í Nauthólsvík
Albatross flug-
kerfínu vel tekið
VIÐBRÖGÐ erlendra ílugrekenda
við flugrekstrarkerfinu Albatross
sem Atlanta og Tæknival kynntu á
flugsýningunni í Famborough á
Englandi urðu mun meiri en for-
ráðamenn fyrirtækjanna þorðu að
vona. Þrjú þýsk flugfélög og eitt
breskt munu kynna sér kerfíð sér-
staklega á næstu vikum og fjöldi
flugi’ekenda lagði leið sína á sýn-
ingarbásinn til að kynna sér forrit-
ið.
Arngrímur Jóhannsson, forstjóri
Atlanta, segir það hafa verið við-
tekna skoðun að ógerlegt væri að
smíða flugrekstrarforrit vegna
hinna mörgu breytilegu þátta sem
einkenna flugrekstur. Hann segir
Aibatross hins vegar góða lausn
fyrir rekstur lítilla og meðalstórra
flugfélaga.
Flugrekstrarkerfið veitir upp-
lýsingar um vinnuferil áhafna,
staðsetningu flugvéla og áhafna
hverju sinni, flugtíma flugverja og
hvenær tímabært er að skoða flug-
vélar eða einstaka hluta þeirra.
Tveir forritarar Tæknivals, sem
kynntu kerfíð í Farnborough,
fengu meðal annars fyrirspum um
hvort hægt væri að nota það fyrir
flugheri.
■ Segir þátttökuna/39
FRAMKVÆMDIR við kaffi- og
veitingahús í Nauthólsvík munu
brátt hefjast. Þar verður boðið
upp á létta rétti og veitingar með
áherslu á hollustu fyrir þá, sem
leið sína leggja um Nauthólsvík-
ina og stíginn, að sögn Ingvars
Ágústs Þórissonar, sem mun
reka staðinn.
„Það er ekkert kaffíhús við
stíginn og ég er viss um að ekki
verður skortur á aðsókn,“ sagði
Ingvar. „Hugmyndin kviknaði
fyrir tveimur árum þegar umferð
um göngustíginn fór að aukast
og ljóst var að alla þjónustu vant-
aði fyrir þá sem þar fara um.“
Ingvar sagði að þetta yrði lítill
staður og lögð yrði áhersla á að
skapa notalegt athvarf fyrir þá
sem nota svæðið til útivistar og
valkostur fyrir þá sem vilja
skreppa aðeins úr ys og þys
borgarinnar. Öskjuhlíðin og
Nauthólsvíkin væru gott útivist-
arsvæði, fullt af sögu og fallegri
náttúru. Hann benti á að áður
fyrr hefði Nauthólsvíkin iðað af
lífi og nú væri svæðið að lifna við
á nýjan leik.
Ingvar kvaðst hafa valið staðn-
um nafnið Nauthóll eftir gömlum
bæ, sem stóð við Nauthólsvík
fram til 1920 og víkin tekur nafn
sitt af. Hann bjóst við að fram-
kvæmdir hæfust í október og
opnað yrði upp úr áramótum.
Verið væri að stofna hlutafélag
um reksturinn.
Aðalfundur Samtaka fískvinnslustöða
Hörð gagnrýni
á Kvótaþing
AÐALFUNDUR Samtaka físk-
vinnslustöðva samþykkti í gær
ályktun þar sem ítrekaðar voru
þær áhyggjur að starfsreglur
Kvótaþings muni raska starfsum-
hverfi fískvinnslunnar og draga úr
atvinnuöryggi starfsfólks.
„Leiði starfsemi Kvótaþings til
þeirrar röskunar sem margir ótt-
ast skorar fundurinn á stjómvöld
hraða nauðsynlegri könnun og
endurskoðun laganna mun meira
en bráðabirgðaákvæði laganna
gera ráð fyrir. Það er með öllu ólíð-
andi fyrir íslenskan sjávarútveg að
starfsemi Kvótaþings geti heft eðli-
leg viðskipti fyrirtækja og truflað
með þeim hætti hráefnisöflun físk-
JÍ3nslunnar,“ segir í ályktuninni.
' Mikil gagnrýni kom fram á starf-
semi Kvótaþings og Verðlagsstofu
skiptaverðs í pallborðsumræðum á
fundinum. Töldu fundarmenn
Kvótaþing óþarft, það hamlaði eðli-
legum viðskiptum með aflaheimild-
ir, væri aðfór að útgerð einyrkja og
drægi úr hagkvæmni.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra kom inn á þetta mál í
ræðu sinni á aðalfundinum. Hann
sagði að of snemmt væri að draga
ályktanir af þeirri reynslu, sem
þegar væri fengin. Viðbúið væri þó
að takmörkun á framsali gæti
dregið úr framboði á aflamarki og
kippt þannig grundvelli undan
rekstri báta með tiltölulega litlar
aflaheimildir.
■ Báðum/22
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
MIKIÐ gekk á í rokinu í Klettsvík í gær og urðu skemmdir á lyftu á kví háhyrningsins Keikós í atganginum.
Skemmdir á kví Keikós
í roki og öldugangi
HÁHYRNINGURINN Keikó upp-
lifði í fyrrinótt fyrsta sinni djúpa
lægð í Klettsvík við Heimaey, en
sennilega hefur umsjónarmönnum
hans frekar orðið bilt við en hvaln-
um í rokinu.
Diane Hammond, talsmaður
Frelsum Willy Keikó-stofnunarinn-
ar, sagði í gær að mikið hefði gengið
á um nóttina. „Við lærðum ýmis-
legt,“ sagði hún. „Sérstaklega að við
vitum ekkert um storma samkvæmt
ykkar skilgreiningu."
Hún sagði að erfitt væri að bera
saman öldur og þær hefðu verið
mun stærri utan Klettsvíkur en inn-
an. Hins vegar hefðu myndast öflug-
ir strókar inni í víkinni.
Vindmælir sprakk
„Við vitum að það kom vindhviða,
sem mældist á 102 mílna hraða á
klukkustund, en eftir það sprakk
vindmælirinn okkar,“ sagði hún.
„Við komumst að því hvernig sjór-
inn getur farið beint upp af yfirborð-
inu, en við höfðum mjög hæft að-
stoðarfólk með okkur og allir sluppu
vel frá þessi, einnig Keikó.“ Senni-
lega hefði hvalurinn reyndar orðið
minna var við veðrið en fólkið, sem
var í kvínni, og í morgun hefði hann
verið farinn að leika sér að bolta.
Hammond sagði að smáskemmdir
hefðu orðið á lyftu, sem notuð er til
að skoða Keikó, en kvíin sjálf hefði
ekki skemmst. Þá taldi hún að neð-
ansjávarmyndavélar, sem notaðar
eru til að fylgjast með háhyrningn-
um, hefðu eyðilagst.
Frá miðnætti til hádegis mældust
11 til 12 vindstig á Stórhöfða.