Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 1
245. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sjöundi kanzlari Þýzkalands frá 1949 tekinn við embætti Schröder heitir mark- vissum umbótum Bonn. Reuters. Reuters GERHARD Schröder hlaut í gær sannfærandi stuðning á nýsaman- komnu þingi Þýzkalands til að taka við forystu nýrrar ríkisstjórnar sem sjöundi kanzlari iandsins frá því lýðræði var endurreist þar fyrir hálfri öld. Við þetta tækifæri, ná- kvæmlega einum mánuði eftir kosn- ingasigurinn yfir Helmut Kohl, hét Schröder því að hrinda umbótum af ákveðni í framkvæmd þrátt fyrir ólguna í hinu alþjóðlega efnahags- kerfi. Schröder sór embættiseið síðdegis í gær frammi fyrir Sambandsþing- inu, neðri deild þýzka þingsins. Þar með var formlega bundinn endi á 16 ára valdatíð Helmuts Kohls og miðju-hægri stjórnar hans. Af 669 þingmönnum greiddi 351 atkvæði með kanzlarakjöri Schröders, 287 á móti. 27 sátu hjá og 3 voru fjarver- andi. Atkvæðagreiðslan var leynileg. TALSMENN Atlantshafsbanda- lagsins, NATO, sögðu í gær að ekki yrði gripið til loftárása á skotmörk í Júgóslavíu að sinni, en hótunin um slíkar aðgerðir stæði óbreytt ef stjórnvöld í Belgrad sinntu því ekki sem skyldi að uppíylla alþjóðlegar kröfur um að endi verði bundinn á ofbeldisátök í Kosovo-héraði. „Við höfum ákveðið að viðhalda skipuninni til herja NATO um að vera í viðbragðsstöðu," tjáði Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, fréttamönnum í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í gærkvöldi, eftir að sendiherrar aðildarríkjanna Þessi úrslit þykja tíðindum sæta fyrir þær sakir, að Schröder fékk sex atkvæðum meira en báðir flokk- arnir sem standa að stjórninni ráða yfir til samans, en engum fyrii-renn- ara Schröders tókst að sameina öll atkvæði eiginlegra stjórnarþing- manna að baki sér. Jafnaðarmanna- flokkur Schröders og samstarfs- flokkurinn Græningjar hafa 21 sæt- is meirihluta á þinginu. Stjórnmála- skýrendur gátu sér til um að nokkr- ir þingmanna PDS, arftakaflokks austur-þýzka kommúnistaflokksins, hefðu ákveðið að sýna stuðning sinn við kanzlaraskiptin í verki. Schröder sagðist þakklátur fyrir hvert einasta atkvæði sem hann fékk og vildi ekki velta vöngum yfir hvaðan aukaatkvæðin hefðu komið. Strax í gærkvöldi boðaði hinn nýi kanzlari til fyrsta ríkisstjórnarfund- arins. sextán höfðu fundað um málið. „Við höfum tekið ákvörðun um að grípa ekki til aðgerða," sagði Solana. Hann sagði að liðsstyrkur örygg- issveita Serba í Kosovo væri nú kominn niður í það sem hann var áður en vopnuð átök brutust út - og þar með hefði ein höfuðkrafa al- þjóðasamfélagsins verið uppfyllt. „Síðasta sólarhring hafa yfir fjög- ur þúsund sérsveitarmenn [serb- nesku] lögi'eglunnar yfirgefið Kosovo. Lögregla og hersveitir sem aðsetur hafa í Kosovo eru á leiðinni til bækistöðva sinna með öll þunga- vopn,“ sagði Solana. „Það er þrýst- „Efnahagslíf heimsins er ekki í góðu ásigkomulagi og það mun valda okkur vandkvæðum," sagði Schröder í ávarpi eftir að Roman Herzog, for- seti lýðveldisins, hafði staðfest emb- ættisskipun kanzlarans. „En við munum jafnframt hafa þann kjark til ákvarðana sem þai'f til að hi'inda þeim umbótum í framkvæmd sem við höfum ætlað okkur,“ sagði Schröder, sem tekur við stjórn þriðja mesta efnahagsveldis heims. Kohl óbreyttur þingmaður Kohl, sem á sér öruggan sess í sögubókum sem „kanzlari samein- ingarinnar“, var meðal fyrstu manna til að óska Schröder til hamingju með kjörið með handabandi. Kohl, sem nú er 68 ára, mun sitja áfram sem óbreyttur þingmaður. ■ Stafar Schröder hætta/20 ingurinn og hin trúverðuga hótun um valdbeitingu sem hefur breytt ástandinu í Kosovo til hins betra.“ Skipunin til herja NATO um að vera í viðbragðsstöðu, sem tekin var fyrir rúmlega tveimur vikum, gerði ráð fyrir að gripið yrði til loftárása hvenær sem er eftir kl. 19 í gær- kvöldi ef júgóslavnesk stjórnvöld teldust ekki standa við gerða samn- inga. Þúsundir flóttamanna halda heim Eftir því sem fleiri Serbar höfðu sig á brott með hergögn sín frá Handtaka Pinochets Beiðni sak- sóknarans hafnað Madrid, London. Reuters. SPÆNSKI rannsóknardómarinn, sem óskaði eftir handtöku Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðis- herra í Chile, hafnaði í gær beiðni spænsks saksóknara um að hann félli frá kröfunni um að Pinochet yrði framseldur til Spánar. Saksóknarinn, Eduardo Fungair- ino, heldur því írarn að spænskir dómstólai' hafi ekki lögsögu í máli Pinochets, sem var handtekinn í Bretlandi fyrr í mánuðinum að beiðni dómarans Baltasai- Garzon, sem undh'býi' nú formlega framsals- beiðni. Saksóknarinn getur skotið málinu til fjölskipaðrar dómnefndar. Bretar varaðir við Handtaka Pinochets hefur valdið mikilli ólgu í stjórnmálum Chile og breska utanríkisráðuneytið hvatti í gær Breta til að ferðast ekki þangað nema brýna nauðsyn bæri til. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í Chile í gær, eru 62% Chile- búa fylgjandi því að þeim sem bera ábyrgð á mannréttindabrotum sem framin voru á valdatíma Pinochets beri að svara til saka fyrir þau. ■ Fleiri óska/22 Kosovo streymdu í gær þúsundir flóttamanna til eyðilagðra heimila sinna í héraðinu. Erlendir frétta- menn sem ferðuðust þvert og endi- langt um Kosovo urðu ekki varir við vegartálma lögreglu á helztu vegum héraðsins; þeir urðu aðeins varir við einstaka lögreglubifreið á eftirlits- ferð. Richard Holbrooke, erindreki Bandaríkjastjórnar, sem gerði úr- slitasamningana við Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta, sagði að sér sýndist ástæða til aukinnar bjartsýni á að í þetta sinn ætluðu Serbar að iáta sér segjast. Prímakov til Vínar í stað Jeltsíns JEVGENÍ Prúnakov, forsætisráð- herra Rússiands, ræðir við Viktor Klima, kanzlara Austurríkis, í Hofburg-höllinni í Vín í gær. Prímakov mætti í stað Borís Jeltsíns Rússlandsforseta á vinnufund með fulltrúum austur- rísku ríkisstjórnarinnar, sem fer með forsæti í ráðherraráði Evr- ópusambandsins um þessar mund- ir, og liáttsettum fulltrúum fram- kvæmdastjórnar sambandsins. ■ Sátt um að Prímakov/22 ----------------- Brezkur ráðherra segir af sér „Dómgreind- arskortur“ Lundúnum. Reuters. RON Davies, ráðherra málefna Wales í brezku ríkisstjóminni, sagði í gær af sér í kjölfar atviks sem átti sér stað á mánudagskvöld, sem end- aði með því að hann var rændur. I afsagnarbréfi til Tonys Blairs for- sætisráðherra segir Davies að sér hafi orðið á „alvarlegur dómgreindarskort- ur“. Hann hafði um helgina stýrt að- gerðum í kjölfar skaðvænlegra óveð- ursflóða í Wales. í bréfí sínu til Blairs útskýrði Davies að þegai- hann kom heim til Lundúna á mánudagskvöld hefði hann farið í göngutúr um opið svæði nærri heimili sínu. Sjón- varpsfréttamenn tóku fram að stað- urinn væri þekktur fyrir að samkyn- hneigðir vendu komur sinar þangað. „Það vatt sér að mér maður sem ég hafði aldrei hitt áður og við tókum tal saman. Hann bað mig að fylgja sér og tveimur vinum heim til sín og þiggja með þeim máltíð," segir Dav- ies. Þá segir hann að þessi þrjú - ókunni maðurinn, vinur hans og vin- kona, hefðu verið komin upp í bílinn til hans. Þá hafi sér verið ógnað með hnífi og verið skilinn eftir við veg- kantinn. Veski og sími ráðherrans, sem er kvæntur og á eina dóttur, hvarf með bílnum líka. Blair samþykkti afsagnarbeiðni Davies „með sönnum trega“, og skipaði Alun Michael í hans stað, sem áður þjónaði sem aðstoðarráð- herra í innanríkisráðuneytinu. Reuters GERHARD Schröder situr í kanzlarastólnum í Sambandsþinginu, neðri deild þýzka þingsins, eftir að hann var formlega kjörinn kanzlari og sór embættiseið í gær. Frestur Serba til að fara að kröfum SÞ í Kosovo rann út í gærkvöldi NATO ákveður að grípa ekki til loftárása í bili Brussel, Belgrad. Reuters. Davies
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.