Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK f FRÉTTUM Einstök brúða ► HÉR sést leikkonan Elizabeth Taylor brosa sínu blíðasta enda er fyrir fram- an hana einstök brúða sem likist leikkonunni eins og hún var fyrr á ár- um. Það er aðeins til ein svona brúða í heiminum og skartar hún demönt- um, en eins og ailir vita er Eliza- beth fræg fyrir steinasöfnun sína í gegnum árin. Myndin er tekin á uppboðinu „Dr- eam Halloween" sem haldið var í Santa Monica 24. október sl. til styrktar al næmissjúk- um börn- Byggt á þínum smekk Þú getur valið úr 21 sjónvarpsstöð og 17 útvarpsrásum Þú færð hvergi betra yfirlit yfir dagskrá sjónvarps og útvarps en í sérblaði Morgunblaðsins, Dagskrá. Þar getur þú á auðveldan hátt raðað saman þinni dagskrá. í blaðinu eru einnig fréttir, myndirog umfjöllun um þættina, kvikmyndirnar og fólkið sem kemur við sögu. Dagskránni er dreift með Morgunblaðinu annan hvern miðvikudag og ókeypis á helstu bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Hafðu Dagskrána alltaf við hendina. íallri sinnimynd! Morgunblaðið/Ásdís FRIÐRIK og Guðlaug Eh'sabet Ólafsdóttir í hlutverkum Edwards og Kyru í Ofanljósi. Vondi karl- inn heillar Edward í Ofanljós, Pétur Pan, Eugene í Grease og Ríkharður þriðji eiga það allir sameiginlegt að vera góðir vinir Friðriks Friðrikssonar leikara sem Hildur Lofts- dóttir hitti á Gráa kettinum. FRIÐRIK útskrifaðist frá Leiklist- arskólanum í vor, og hefur síðan ver- ið á fjölum Borgarleikhússins án þess að vera fastráðinn. Hann leikur nörðinn Eugene í Grease, um síð- ustu helgi vai’ frumsýnt leikritið Of- anljós þar sem hann leikur átján ára drenginn Edward og um jólin verður Pétur Pan frumsýndur og þar fer Friðrik með titil- hlutverkið. Fótatak í fjarska - Er það draumur hins nýútskrifaða að vera fastráðinn? „Ég veit það ekki. Það er visst öryggi að hafa fasta vinnu, en sumir lenda í því að vera alltaf fótatak í fjarska, andlit á glugga eða spjótberi, og það er ekki sniðugt. Ef maður fær ekkert hjá stóru húsunum þá reddar maður sér eins og Vilhjálmur Hjálmars sem tók sér hlé í leiklist og er nú með Svartklæddu konuna. Jóhanna Jónas kom óþekkt heim frá Bandaríkjunum, setti upp Dónalegu dúkkuna og það fleytti henni áfram inn í leikhúsin.“ - Hvernig finnst þér að leika Ed- ward? „Mér fannst það mjög erfitt fyrst, var týndur fyrstu vikumar og vissi ekki alveg hvað ég var að fara út í. I vor var ég líka að æfa Grease og Pét- ur Pan, þannig að ég var í leikhúsinu langt fram á kvöld og þar að auki á námskeiði hjá rússneska leikstjóran- um Borodin. Það var svolítið erfítt að vera svona kleifhugi og þurfa að skipta sér á milli flefri hlutverka. Mér fannst ekkert gerast með Ed- ward fýrr en við fengum fyrstu áhorfendur á æfingu. Áhorfendur gefa ekki mikið frá sér í þessari sýn- ingu og þótt ríki þrúgandi þögn þá finnur maður samt alltaf einhveija strauma frá þeim sem hjálpa." - Hvert leitaðir þú að fyrírmynd- innifyrir Edward? „Ég er ennþá bara 26 ára og þannig eru átta ár síðan ég var átján ára. Eg var samt ekki sama týpa og hann og reyndi að fá stressið og óör- yggið fram í honum. Annars er mað- ur alltaf að horfa á fólk alla daga og Edward kom ósjálfrátt." Gaman að fljúga - En hvað er eiginlega Pétur Pan gamall? „Hann er á óræðum aldri. Ætli hann sé ekki á bilinu átta til tólf ára, það er alla vega þroskastigið hans. En svo er hann líka eldri ef út í það er farið. Mér finnst mjög gam- an að leika hann og það verður sér- staklega gaman að fá að fljúga. Við erum komin langt í æf- ingum en margt á eftir að gerast. Það er skemmtilegt fólk í þessari sýningu, mikið af börnum og svo Gísli Rúnar sem fer á kost- um í hlutverki Kafteins króks.“ - Sástu teiknimynd- ina þegar þú varst lít- ill? „Nei, ég vissi ekkert um Pétur Pan þegar ég fékk hlutverkið, og það kom mér reyndar á óvart hvað sagan er skemmtileg. Hún er eftir James Matthew Barry en hann og kon- an hans gátu ekki eignast börn. Hann kynntist strák í Kensington garðinum og saman spunnu þeir söguna sem endaði sem leikverk. Það var frumsýnt árið 1904 og hef- ur verið sýnt á jólunum allar götur síðan einhvers staðar í heiminum, nema yfír stríðsárin. Yfirleitt eru það konur sem leika aðalhlutverkið, og sú hefð var ekki brotin fyrr en á síðasta áratug.“ Ungur og gamall - Býstu við að vera í ungmenna- hlutverkunum fram yfír þrítugt? „Þú meinar í Stundinni okkar? Ha, ha! Ég get auðveldlega litið út fyrir að vera þó nokkuð yngri en ég er, en ég vona samt ekki. Ekki að það séu slæm hlutverk, það er bara ekki nógu mikið af þeim. Ef ég fæ ekki eldri rullu þá set ég bara upp einleik einhvers staðar... á Gráa kettinum!“ -Attu þér eitthver fullorðins draumahlutverk? „Eftir einhver ár væri gaman að kljást við Ríkharð þriðja. Þegar ég var í inntökuprófinu var mér út- hlutað byrjuninni á einræðu Rík- harðs þriðja og hún hefur setið í mér síðan; „Nú hefur sjálfur sólguð Jórvíkinga breytt vetri rauna vorra í sumardýrð." Svo sá ég heimildamyndina Leitina að Ríkharði þriðja með A1 Pacino sem var algjört snilldai-verk. Það væri heillandi að leika einhvern tímann vonda karlinn.“ Morgunblaðið/J6n Svavarss. FRIÐRIK spáir í framtíðarhlutverkin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.