Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR NANNA GUÐMUNDSDÓTTIR + Nanna Guð- mundsdóttír fæddist í Ólafsvík 24. ágúst 1929. Hún lést á heimili sínu hinn 17. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Ólafía Katrrn Sveinsdóttir og Guðmundur Þórðarson skip- stjóri. títför Nönnu fór fram frá Hafnar- fjarðarkirkju 27. október síðastliðinn. Nanna, móðursystir mín, var fædd í Ólafsvík og bjó þar fyrstu æviárin. Sjö ára gömul, skömmu eft- ir andlát föður síns, fluttist Nanna til Reykjavíkur ásamt móður sinni og systkinum. Tveimur árum seinna var hún send í sveit að bænum Skála undir Eyjafjöllum. Ætla má að Nönnu hafi líkað dvölin að Skála vel, þar sem vera hennar þar varð lengri en gert hafði verið ráð fyrir í upp- hafi. Nanna gekk í skóla undir Eyja- fjöllum og sóttist námið vel, enda var hún ágætum náms- gáfum gædd. Þegar Nanna var sextán ára fluttist hún aftur til Reykjavíkur. f Reykja- vík vann hún við fata- saum auk ýmissa af- greiðslu- og þjónustu- starfa. Störf sín innti hún af hendi af dugn- aði, fómfýsi og vand- virkni. Nanna þótti ein- staklega verklagin og alls kyns hannyrðir léku við henni. Hafði hún auk þess til að bera listfengi og smekkvísi. Þegar hún var komin undir þrítugt fluttist hún til Bandaríkjanna og dvaldi þar til fjölda ára. Ekki var al- gengt að ungt fólk flyttist búferlum til Bandaríkjanna í þá daga og ber það vott um ævintýraþrá hennar, kjark og áræði. Nanna aðlagaðist bandarísku þjóðfélagi fljótt og veitt- ist henni einkar auðvelt að ná tökum á enskri tungu. Meðan Nanna dvald- ist í Bandaríkjunum giftist hún þar- lendum manni, en þau skildu síðan nokkrum árum síðar. Skömmu eftir 1970 fluttist hún aftur til íslands og + innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, INGÞÓRS LÍNDALS SIGURÐSSONAR bónda, Uppsölum, Sveinsstaðahreppi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Blönduóss. Anna Marta Helgadóttir, Sigurður Helgi Ingþórsson, Gunnhildur Lárusdóttir, Kristmundur Ó.J. Ingþórsson, Sigrún Herdís Sigurbjartsdóttir, Sigrún Björg Ingþórsdóttir, Hjálmar Magnússon, Þorsteinn Rafn Ingþórsson, Sigurbjörg María Jónsdóttir, Magnús Huldar Ingþórsson, Silvía Ingibergsdóttir, Guðmundur Elfas Ingþórsson, Guðrún Kjartansdóttir, Birgir Líndal Ingþórsson, Sigríður Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, GRÍMU ÓLAFSDÓTTUR, Hraunteigi 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur. Ólafur Jakobsson, Sigurður Ársælsson, Róbert G. Róbertsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför hjartkærs bróður okkar, EIRÍKS HALLDÓRS EIRÍKSSONAR málara, Gnoðarvogi 52. Jón Eiríksson og systur. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, ARINBJÖRNS ÞÓRARINSSONAR, sem lést mánudaginn 12. október sl. Aðalsteinn Þórarinsson, Svanhildur Þórarinsdóttir, Þórdís Þórarinsdóttir. bjó í Reykjavík til æviloka. Lífið reyndist Nönnu oft á tíðum erfitt, sérstaklega hin síðari ár. Þá hafði heilsu hennar hrakað mjög og veiktist hún af slæmum sjúkdómi, sem síðar dró hana til dauða. Sjálf- sagt hafa síðustu mánuðirnir í lífi hennar verið einkar erfiðir og sýndi hún einstakan styrk og þrautseigju í baráttu sinni. Þegar ég hugsa til Nönnu er margt sem kemur upp í hugann og mun ég ávallt minnast hennar með hlýhug og virðingu. Góðvild, örlæti, heiðarleiki og stolt voru eiginleikar sem einkenndu hana og eru van- fundnir einstaklingar sem búa yfir þessum mannkostum í jafn ríkum mæli og hún gerði. Nanna var afar góðum gáfum gædd og ég er viss um að hún hefði getað tekist á við hvaða háskólanám sem er ef hugur hennar hefði staðið til þess. Mér og bræðrum mínum reyndist hún af- skaplega vel og fórum við ekki var- hluta af gjafmildi hennar, fómfýsi og einstakri velvild. Verðum við bræður henni ávallt þakklátir fyrir þá hlýju og umhyggju sem hún sýndi okkur. Stolt hennar og sjálfs- virðing birtust í þeirri mynd að sjaldan á sinni lífsleið vildi hún leita aðstoðar eða hjálpar annarra, jafn- vel ekki þrotin kröftum hina síðustu mánuði ævi sinnar. Ekki heyrðist hún kvarta og bar veikindi sín með ótrúlegu æðruleysi og stillingu. Við andlát einstaklings leiðir maður ósjálfrátt hugann að jarðvist okkar og tilgangi hennar. Ríki- dæmi, völd eða þjóðfélagsleg staða nægja ekki til að öðlast tilgang og virðingu annarra heldur þurfa menn að leggja sig fram við að sýna heiðarleika, umburðarlyndi og ná- ungakærleika, og rækta þá eigin- leika eftir fremsta megni. Sá sem það gerir hefur sannarlega til ein- hvers lifað og hans verður vel minnst. Að öðrum kosti verður lífs- gangan eins og för yfir vegleysur, án erindis, tilgangs eða fyrirheits, og stöðug leit að hinum sanna lífs- tóni í skarkala heimsins. Ekki er þetta flókin eða torráðin lífsspeki sem hér er sett frarn en sönn er hún engu að síður í einfaldleika sínum. Nanna sóttist hvorki eftir frægð né auði, sem svo oft villir sýn á sönn lífsverðmæti. Örlæti hennar, nægju- semi og aðrir eðliskostir eru til vitn- is um það. Hún tilheyrði hópi þeirra sem með kristilegum kærleik og siðferðisstyrk veitist svo auðvelt að láta gott af leiða í þágu annarra og hafa sönn og verðug lífsgildi að leið- arljósi. Fyrir það verður hennar minnst af öllum sem hana þekktu. Guðmundur H. Helgason. Hún Nanna er dáin. Fregnin barst og eitthvað slokknaði innan í mér við þessa fregn. Hún Nanna sem alltaf hafði sýnt mér svo mikla umhyggju og hafði verið mér sem móðir. Hún kom alltaf austur þegar eitthvað var að gerast í mínu lífi, kom á afmælisdaginn minn þegar ég var tíu ára og gaf mér falleg föt, sendi mér fallegar gjafir á jólum, kom á fermingardaginn minn til að vera viðstödd og færa mér gjafir. Hún kom með fegurð og hlýju hvar sem hún kom, hafði jákvæð áhrif á allt og alla. Hve oft áttum við ekki góðar stundir austur í Skála, hlóg- um saman og brölluðum ýmislegt. Hún var okkur hjónunum ómetan- leg stoð og stytta þegar við vorum að setja saman bú, alltaf var hún komin þar sem henni fannst þörf vera á. Öll verk léku í höndum hennar, hvað sem hún gerði vann hún hratt og örugglega, allt var bú- ið og gert áður en við var litið. Dæt- ur okkar urðu þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast henni og um- hyggjusemi hennar fyrir velferð þeirra, alls staðar lýsti hún upp og gaf af sér. Hve mikið vildi ég gefa fyrir að hafa getað goldið í sömu mynt þeg- ar veikindi hennar bar að. Með henni er gengin afburða fal- leg, góð og gáfuð kona. Eg votta systkinum hennar og ættingjum djúpa samúð. Hvíl þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Hanna Lárusdóttir. Góð frammi- staða íslensku liðanna í Evr- ópukeppninni SKÁK Narva, Eistlandi EVRÓPUKEPPNI TAFLFÉLAGA í fyrsta skipti tóku tvö íslensk lið þátt í Evrópukeppni taflfélaga í skák. Islandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir tóku um helgina þátt í und- ankeppninni. Liðin náðu góðum árangri, þótt sigurinn félli rúss- neska liðinu f skaut. TAFLFÉLAG Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir tóku um helgina þátt í Evrópukeppni tafl- félaga í skák. Keppt er í átta liða riðlum og svo óheppilega vildi til að Hellir og TR lentu í sama riðli. Einungis sigurlið riðilsins komst áfram í úrslitakeppnina. Teflt var í Narva í Eistlandi. Eins og greint var frá í skák- þætti Morgunblaðsins fyrir helg- ina var þetta sterkur riðill og fyrirfram var rússneska liðið talið afar sigurstranglegt. Það kom líka á daginn, að Rússamir sigruðu í riðlinum, en Taflfélag Reykjavíkur náði öðra sæti og Hellir lenti í því þriðja. Taflfélag Reykjavíkur tefldi við rússneska liðið í keppninni um efsta sætið og tapaði með minnsta mun, fékk 2Vz vinning gegn 3Vz vinningi Rússanna. Úr- slit í einstökum viðureignum urðu þessi: Margeir Péturss. - A. Khalifman 1/2-I/z Igors Rausis - Sergey Ivanov 0-1 Þröstur Þórhallss. - K. Aseev 1-0 Jón V. Gunnarss. - V. Loginov V2-V2 Björgvin Jónss. - E. Solozhenkin V2-V2 Ámi Á Ámas. - Valerij Popov 0-1 TR eygði jafnvel von um að ná jöfnu gegn rússneska liðinu, en Jón Viktor var með hrók og tvö peð á móti hróki og peði and- stæðingsins. Skákinni lyktaði þó að lokum með jafntefli og TR hafnaði í öðru sæti í riðlinum, en einungis efsta sætið gaf rétt til þátttöku í lokakeppni Evrópu- mótsins. Arni Armann Arnason, farar- stjóri liðsins, tók sæti í sveit TR þegar annar erlendu stórmeist- aranna sem voru skráðir í lið TR mætti ekki til leiks. Taflfélagið Hellir lenti í þriðja sæti í riðlinum, eftir að hafa tap- að fyrir TR með fjórum vinning- um gegn tveimur í annarri um- ferð. Hellir sigraði síðan norsku sveitina í keppninni um þriðja sætið með 3'/z vinningi gegn 2'/z. Jón L. Árnason, Helgi Áss Grét- arsson og Bragi Halldórsson sigruðu í sínum viðureignum. Karl Þorsteins gerði jafntefli. Hannes Hlífar Stefánsson og Kristján Eðvarðsson töpuðu báðir. Tómas Björnsson sigrar á Haustmóti TK Haustmót Taflfélags Kópa- vogs fór fram um síðustu helgi. Tefldar voru sjö umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími var 30 mínútur. Úrslit urðu eftir- farandi: 1 Tómas Björnsson 5!/z v. 2-4 Hlíðar Þór Hreinsson 5 v. 2-4 Sigurjón Sigurbjömsson 5 v. 2-4 Adolf Petersen 5 v. 5-8 Jón Garðar Viðarsson 4/2 v. 5-8 Víðir Petersen 4/2 v. 5-8 Davíð Kjartansson 4/2 v. 5-8 Eiríkur Garðar Einarsson 4/2 v. o.s.frv. Keppendur voru 20. Björn Þorfinnsson sigrar á atkvöldi Bjöm Þorfinnsson sigraði á fjölmennu atkvöldi sem Taflfé- lagið Hellir hélt mánudaginn 26. október. Eins og tíðkast á at- kvöldum voru fyrst tefldar þrjái- hraðskákir og síðan þrjár atskák- ir. Úrslit urðu sem hér segir: 1 Bjöm Þorfinnsson 5'A v. 2 Páll Agnar Þórarinsson 5 v. 3^4 Þröstur Þráinsson og Benedikt Egilsson 4'A v. 5-8 Kjartan Másson, Gunnar Bjöms- son, Vigfús Óðinn Vigfússon og Bald- vin Þorláksson 4 v. 9-10 Gústaf Smári Bjömsson og Hafliði Baldursson 3'A v. 11-18 Valdimar Leifsson, Rafn Jóns- son, Kristbjöm Björnsson, Ólafur Gauti Ólafsson, Ólafur Kjartansson, Harald Bjömsson, Finnur Kr. Finns- son og Eiríkur Garðar Einarsson 3 v. o.s.frv. Alls tóku 27 skákmenn þátt í atkvöldinu. Skákstjórar vora Gunnar Bjömsson og Vigfús Óð- inn Vigfússon. Næsta atkvöld Hellis verður haldið mánudaginn 23. nóvember kl. 20:00 Heimsmeistaramót barna og unglinga Einar Hjalti Jensson og Stef- án Kristjánsson gerðu jafntefli í skákum sínum í fyrstu umferð Heimsmeistaramóts barna og unglinga sem nú stendur yfir á Spáni. Þeir Halldór B. Halldórs- son, Dagur Arngrímsson og Guðmundur Kjartansson töpuðu sínum skákum. Halldór lenti á móti sterkum andstæðingi, Dej- an Stojanovski, sem er með 2.235 stig. I stúlknaflokkunum töpuðu ís- lensku stúlkumar þrjár sínum skákum. Þegar þetta er skrifað höfðu borist fréttir af því, að Dagur Aragrímsson og Guðmundur Kjartansson hefðu báðir náð að sigra andstæðinga sína. Keppni í landsliðsflokki hófst í gær Eins og greint hefur verið frá hér í skákþætti Morgunblaðsins fer keppni í landsliðsflokki á Skákþingi Islands að þessu sinni fram í Arborg. Fyrsta umferð var tefld í gær, 27. október, en mótinu lýkur 8. nóvember. Mótið er í 4. styrkleikaflokki og þarf því 7'Æ vinning til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Skipuleggjendur mótsins hafa komið upp vefsíðu þar sem hægt verður að fylgast með framvindu mótsins: www.selfoss.is/skak- mot/. Meistaramót Hellis hefst í kvöld Meistaramót Hellis 1998 hefst í kvöld, miðvikudaginn 28. októ- ber, klukkan 19:30. Mótið verður sjö umferða opið kappskákmót. Þetta er í 7. sinn sem mótið fer fram. Meðal þátttakenda verður Bjöm Þorfinnsson, núverandi skákmeistari Hellis. Umhugsunartíminn verður U/2 klst. á 36 leiki og 30 mínútur til að ljúka skákinni. Teflt verður á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Umferðir hefjast alltaf klukkan 19:30. Mótið er öllum opið. Teflt verður í Hellisheimilinu, Þöngla- bakka 1. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.