Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Landssíminn og fjármálaráðuneytið taka höndum saman Nýr upplýsingasími um aldamótavandann í notkun Skoða þarf nokkuð á annað þúsund atriði varðandi 2000-vandamálið F Doktor í sálfræði •JON Friðrik Sigurðsson lauk doktorsprófi í sálíræði síðastliðið sumar frá Institute of Psychiatry við King’s Col- lege, University of London. Dokt- orsritgerðin ber heitið: ,AHeged false confessions among Icelandic offenders: An examiniation of some psycholog- ical, criminological and substance use factors that are associated with the reported false confessions." Rit- gerðin fjallar um falskar játningar og niðurstöður rannsóknar á 509 ís- lenskum föngum og 108 ungmenn- um sem fengið höfðu skilorðs- bundna ákærufrestun. Rannsóknin var gerð á árunum 1991-1995 og var Gísli H. Guðjónsson réttarsálfræð- ingur við háskólann í London leið- beinandi við verkið. I ljós kom að 12% fanganna sem tóku þátt í rannsókninni, en ekkert ungmennanna, sögðust einhvern tímann á ævinni hafa saklausir játað á sig afbrot við yfirheyrslu hjá lög- reglu. Fangarnir gáfu upp tvær meginástæður fyrir að játa á sig af- brot sem þeir höfðu ekki framið, um helmingur þeirra sagðist hafa látið undan þrýstingi lögreglunnar eða til þess að forðast gæsluvarðhald, en hinn helmingurinn var að hylma yfir með þeim seka. Aðeins um þriðj- ungur þessara fanga sagðist hafa dregið játningu sína til baka. Þessir fangar reyndust hafa mun lengri af- brotaferil að baki en aðrir fangar í rannsókninni, auk þess sem þeir virtust vera verr félagsmótaðir, undanlátssamari og taugaóstyrkari. Fíkniefnaneysla þeiiTa virtist einnig hafa verið mun meiri og alvarlegri. Niðurstöðurnar gefa til kynna að falskar játningar sem íslenskir fangar segjast hafa gert séu hluti af afbrotahegðun þeirra og persónu- leikavandamálum. Það fyrrnefnda er ólíkt því sem komið hefur fram við rannsóknir á fölskum játningum sakbominga í Englandi, sem dregið hafa játningu sína til baka, en þeir voru frekar ókunnugir refsivörslu- kerfinu og starfsháttum lögreglu. Auk doktorsritgerðarinnar hafa Jón Friðrik og Gísli birt í samein- ingu ellefu vísindagreinar í erlend- um vísindaritum um þetta efni og fleira er tengist niðurstöðum rann- sóknarinnar. Jón Friðrik lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð ár- ið 1971, B.A. prófi í sálfræði við Há- skóla íslands árið 1976 og M.Sc. prófi í sálfræði frá Stirling Uni- versity í Skotlandi árið 1988. Hann hefur starfað sem sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun frá árinu 1988, en á árunum 1975 til 1988 var hann kennari og áfangastjóri við Menntaskólann í Hamrahlíð. Foreldrar Jóns Friðriks voru Guðrún Jónsdóttir húsmóðir og Sigurður Aron Álfsson kjötiðnaðar- maður, en þau eru bæði látin. Hann er kvæntur Ásrúnu Matthíasdóttur tölvunarfræðingi, kennara við Menntaskólann í Kópavogi, og eiga þau tvö börn, Ara og Ásrúnu. --------------------- A Utafakstur í hálku ÖKUMAÐUR bifreiðar með einn farþega ók útaf veginum við Kaldá á Snæfellsnesi á sunnudag. Lenti bif- reiðin á hliðinni við ána eftir 3-4 metra fali og telur lögreglan á Stykkishólmi það mikið happ að mennirnir, sem báðir eru um þrítugt skyldu sleppa ómeiddir eftfr útafaksturinn og telur fullvíst að bíl- beltanotkun hafi komið í veg fyrir alvarlegt slys. Mikil hálka er á þess- um slóðum, en grunur leikur á ölv- unarakstri. NÝR upplýsingasími um vandamál- ið 2000 hefur verið tekinn í notkun og standa Landssíminn og fjármála- ráðuneytið sameiginlega að honum. Símanúmerið er 800 2000 og er þar að finna almennar upplýsingar fýrir stærri sem smærri tölvunotendur um þann vanda er tengist tölvum þegar árið 2000 gengur í garð. Guðmundur Bjömsson, forstjóri Landssímans, sagði, er hann kynnti símann ásamt Geir Haarde fjár- málaráðherra, að samkvæmt úttekt á stöðu Landssímans þyrfti að fara yfir allan búnað sem gæti haft áhrif á reksturinn og skoða nokkuð á annað þúsund atriði varðandi 2000- vandamálið. Hann sagði forstöðu- menn hinna ýmsu deilda fyrirtækis- ins búna að greina vandann og skipuleggja aðgerðir. „Við ætlum að Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. „TIL hamingju með daginn, kæri söfnuður - og til hamingju með daginn, kæri bróðir.“ Með þessum hlýlegu orðum ávarpaði biskupinn yfir Islandi, herra Karl Sigur- bjömsson, íslenska söfnuðinn í Kaupmannahöfn og sr. Birgi Ás- MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Lög- reglufélagi Reykjavíkur: „Stjóm Lögreglufélags Reykjavíkur harm- ar alla þá neikvæðu umræðu sem átt hefur sér stað á undanfómum misserum varðandi málefni lögregl- unnar og embætti lögreglustjórans í Reykjavík. Það er mat stjórnar LR að mála- tilbúningur fjölmiðla og umræðan hafi oft og tíðum verið með þeim standa okkur þannig í þessu verk- efni að símakerfið gangi jafnvel í upphafi ársins 2000 eins og í árslok 1999,“ sagði Guðmundur meðal ann- ars. Geir Haarde kvaðst fagna til- komu upplýsingasímans og hvatti til þess að menn tækju málið föstum tökum. Hann minnti á 2000-nefnd- ina sem skipuð var sl. vor en Hauk- ur Ingibergsson, formaður hennar, var einnig viðstaddur fundinn, og sagði hana hafa unnið mikilvægt starf til að tryggja að gi'unnkerfi þjóðfélagsins gengi og vonandi önn- ur kerfi í eigu fyrirtækja og ein- staklinga. Hlutverk nefndarinnar er að vara við, upplýsa og benda á geirsson sóknai-prest hans, sem biskup kom til að setja inn í emb- ættið á sunnudag. Sr. Birgir lét þess getið í ávarps- orðum að honum væri borgin og söfnuðurinn ekki ókunn, því hann hefur verið hér sjúkrahúsprestur hætti að viðkomandi fjölmiðlum sé lítill sómi að. Stjórn LR telur að í umræðunni um embætti lögreglustjórans í Reykjavík hafi sumir fjölmiðlar far- ið offari með það eitt að markmiði að koma höggi á lögreglustjórann í Reykjavík, Böðvar Bragason, sem hefur eðli málsins samkvæmt ekki getað varið sig þeim ávirðingum, sem á hann hafa verið bornar, m.a. vegna núverandi stöðu sinnar.“ hvernig standa beri að lausn þeirra vandamála sem tengjast ártalinu 2000 í upplýsingakerfum og tækja- búnaði þannig að ekki hljótist skaði af skakkri meðferð ártala á þeim tímamótum. Upplýsingar líka á heimasíðum I upplýsingasímanum er annars vegar að finna efni um aldamóta- verkefni Landssímans og hins veg- ar um starf 2000-nefndarinnar. Eru þar veittar ábendingar um hvaða leiðir er unnt að fara til að greina vandann vegna heimilistölva, raf- eindatækja og véla og stærri tölvu- undanfarið ár og sagðist hlakka til starfsins. Sr. Birgir mun ekki búa í Jónshúsi eins og prestarnir hafa gert undanfarið, þar sem hann og fjölskylda hans hafa þegar komið sér fyrir í borginni. Sankti Pálskirkjan var þéttsetin, en auk Islendinga voru þarna mættir herra Erik Norman Svend- sen, biskup yfir Kaupmannahöfn, og sóknarprestur Sankti Páls- kirkju, sr. Lars Henriksen. Að vanda söng íslenski kirkjukórinn við guðsþjónustuna. Fjölmörg börn voru mætt í guðsþjónustuna, því venja er að börnin séu í kirkjuskóla meðan guðsþjónustur fara fram. Þau fylgdust áhugasöm með er lítið barn var skírt. í messulok minntist sr. Birgir forsetafrúarinnar Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur. Eftir messu var boðið til messukaffis í Jónshúsi, þar sem meðlimir kirkjukórsins höfðu lagt á kaffiborð á íslenska vísu með heimabökuðum kökum kórfélaga. kerfa og tölvuneta. Auk upplýsinga- símans er þessar upplýsingar og fleiri að finna á heimasíðum Lands- símans og 2000-nefndarinnar. I upplýsingasímanum segir m.a. að 2000-vandamálið í tölvum og tækjabúnaði sé stærsti tæknilegi vandinn sem mannkynið hafi staðið frammi fyrir. Hann sé bæði stjóm- unarlegur og efnahagslegur því lag- færingar á búnaði séu tímafrekar og kosti stórfé auk þess sem tjón geti orðið sé ekki brugðist við í tíma. Þá er mönnum bent á að leita upplýsinga hjá framleiðendum bún- aðar eða þjónustuaðilum og Haukur Ingibergsson benti á að notendur þyi-ftu að gera sér grein fyrir þvi nú þegar til hvaða ráðstafana þyrfti að grípa þannig að ráðrúm gæfist í tíma. Einar Hjalti gerðijafn- tefli við Rússann Iljushin í ANNARRI umferð heimsmeist- aramóts barna og unglinga gerði Einar Hjalti Jensson jafntefli við sterkan, rússneskan, alþjóðlegan meistara, Alexei Iljushin (2.470), sem er einn af stigahæstu skák- mönnum mótsins. Stefán Kristjánsson sigraði Pont- us Carlsson frá Svlþjóð í flokki 16 ára og yngri. I flokki 14 ára og yngri tapaði Halldór B. Halldórsson fyrir Spán- verjanum J. Palacios Siegenthaler (2.135). Dagur Amgrímsson sigraði Sevag Mekhitarian frá Brasilíu í flokki 12 ára og yngri og Guðmund- ur Kjartansson sigraði E. Sapenov frá Kazakstan í flokki 10 ára og yngri. I stúlknaflokki 18 ára og yngri tapaði Harpa Ingólfsdóttir fyrir G. Chau Thi Ngoc frá Víetnam. Aldís Rún Lárusdóttir tapaði fyrir Shabanova í flokki 16 ára og yngri og Ingibjörg Edda Birgisdóttir tap- aði fyrir S. Kamer. Eftir tvær umferðir er vinninga- fjöldi Islendinganna þessi: Einar Hjalti Jensson 1 v., Stefán Krist- jánsson V/z v., Halldór B. Halldórs- son 0 v., Dagur Arngrímsson 1 v., Guðmundur Kjartansson 1 v., Harpa Ingólfsdóttir 0 v., Aldís Rún Lárusdóttir 0 v. og Ingibjörg Edda Birgisdóttir 0 v. Keppt er eftir svissneska kerfinu, sem þýðir að í hverri umferð tefla saman keppendur sem hafa fengið jafn marga vinninga. Alls verða tefldar 11 umferðir. Afhenda mótmæli HEILBRIGÐISRÁDHERRA verða afhentar í dag undir- skriftir rúmlega 1.400 manns vegna óánægju með samskipti starfsmanna á Sjúkrahúsi Suð- urlands og stjórnenda stofnun- arinnar. Ingibjörg Sigtryggsdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Þórs á Selfossi, segir að undir- skriftirnar verði afhentar ráð- herra í ráðuneytinu kl. 9.30. Morgunblaðið/Þorkell NÝ ÞJÓNUSTA Landssimans og fjármálaráðuneytis um aldamótavandann kynnt. Geir Haarde fjármála- ráðherra hringir í upplýsingasímann en Guðmundur Björnsson (t.h.) og Haukur Ingibergsson fylgjast með. Islenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn Séra Birgir Ásgeirsson settur í embætti Yfírlýsing1 frá Lögreglu- félagi Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.