Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.10.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 3& BENEDIKT SKÚLASON + Benedikt Skúla- son var fæddur í Reykjavík 11. janú- ar 1955. Hann lést 17. október síðast- liðinn á Fredriks- berg-sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Benedikt var sonur hjónanna Skúla Benediktssonar, ís- lenskukennara frá Efra-Núpi í Miðfírði, f. 19.3. 1927, d. 12.1. 1986, og Rögnu Svavars- dóttur frá Akur- eyri, f. 5.12. 1931, d. 14.2. 1998. Þau slitu samvistir árið 1967. Benedikt var næstelstur átta systkina, en þau eru: 1) Berg- Ijót, f. 26.10. 1953. 2) Einar, f. 9.2. 1957. 3) Laufey, f. 21.3. 1958. 4) Ingibjörg, f. 30.11. 1959. 5) Þorbjörg, f. 17.3. 1961. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir gr'einunum. 6) Sigríður, f. 1.2. 1962. 7) Skúli Ragn- ar, f. 5.3. 1964. Benedikt ólst upp í Ólafsvík og á Akranesi. Hann hætti námi við Gagnfræðaskóla Akraness árið 1971 og hóf að starfa við fiskvinnslu og aðal- lega sjómannsstörf víðsvegar um land, á fiskibátum, togur- um og við milli- landasiglingar á vejgum Eim- skipafélags Islands. Benedikt fluttist búferlum til Kaup- mannahafnar árið 1982 og lést þar á Fredriksberg-sjúkrahús- inu eftir löng og erfið veikindi. Útför Benedikts fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku bróðir. Þegar ég sest niður og skrifa til þín mína hinstu kveðju finnst mér skrítið til þess að hugsa að einn úr okkar stóra systkinahópi skuli ekki lengur vera á meðal okkar. Þó vissum við að hverju stefndi og þegar ég fékk fréttir af andláti þínu fylltist ég reiði og beiskju út í lífið og tilvemna. En það bráði af og minningarnar um þig, Benni minn, fóm að streyma fram. Ég minnist uppvaxtaráranna vestur í Ólafsvík, sumranna á Efra-Núpi hjá afa og ömmu, ár- anna heima á Akranesi með hlýhug og þakklæti. Á þessum ár- um lögðum við gmnninn að þeirri einlægu vináttu sem entist þitt stutta æviskeið. Við voram ekki mikið í sam- bandi eftir að þú fluttist til Kaup- mannahafnar, en ég minnist símtalanna og heimsóknanna til þín með sama hlýhug og þakklætis og uppvaxtarára okkar. Lífið reyndist þér erfitt, Benni minn, en ég vona og reyni að trúa því að í þínu tilviki hafi dauðinn verið þér líkn, og eftir þessi löngu og erfiðu veikindi hafir þú öðlast þann líkamlega og þann sálarfrið sem þér hlotnaðist ekki síðustu ár þinnar stuttu ævi. Ég þakka Beggu systur, Svein og Laufari syni þeirra þá um- hyggju og alúð er þau sýndu Benna allan þann tíma er hann bjó í Kaupmannahöfn, sérstaklega síð- ustu árin í hans miklu veikindum. Jafnframt vil ég þakka Kristjáni Þorkelssyni vináttu, hjálp og stuðning sem hann veitti Benna árin hans í Kaupmannahöfn. Að lokum, elsku bróðir, er ég þakklátur íyrir að hafa hitt þig nú í októberbyrjun og átt með þér stundir, þótt mikið væri dregið af þér, og rifjað upp gömlu góðu dag- ana heima á Islandi. Ég minnist orða þinna, sem sérhver maður ætti að hugsa um: „Einar minn, það er ekkert eins mikilvægt í líf- inu og að hafa góða heilsu.“ Þetta hlotnaðist þér ekki og ert nú allur. Benni minn, ég kveð þig hinstu kveðju með hlýhug og þakklæti. Hvíl í friði. Þinn bróðir Einar. Mágur minn og vinur Benedikt Skúlason er látinn. Ég kynntist Benna eins og hann var ávallt kallaður í Reykjavík 1973. Við hitt- umst af og til en leiðir skildi um 1978. Þráðurinn var að nýju teldnn upp árið 1982 er við báðir fluttum til Kaupmannahafnar með stuttu millibili. Þá varð mér strax ljóst að Benni átti við töluverð veikindi að stríða. Ævintýralegt og sveiflu- kennt líferni höfðu sett sín spor bæði andlega og líkamlega. Þetta gerði það að verkum að oft leið óratími á milli þess að fundum okkar bæri saman. En alltaf var jafn gaman að ræða við Benna um gömlu sveitina sem hann elskaði svo mjög, sjómennskuna, íþróttir og ekki síst tónlist, en hann spilaði ágætlega m.a. á gítar. Benni var einfari þó svo hann elskaði að vera innan um fólk. Eitt af hans helstu einkennum var gjaf- mildin og gleðin sem henni fylgdi ásamt þakklæti fyrir það sem gert var fyrir hann. Þeir eiginleikar komu hvað best í ljós síðastliðið eitt og hálft ár þegar heilsufari hans hrakaði mjög og við Begga systir hans og Laufar frændi reyndum eftir bestu getu að hlúa að honum. Kæri vinur. Nú ertu loks kom- inn til íslands, laus við líkamlegar þjáningar og angist. Innilegar kveðjur frá okkur hér í Kaupmannahöfn sem ekki gátum komist til íslands og fylgt þér. Að lokum vil ég votta systkinun- um öllum og öðram ástvinum mína dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng lifir. Svein-Arve Hovland. Látinn er hér í Kaupmannahöfn Benedikt Skúlason. Það eru um það bil 15 ár síðan ég kynntist Benna hér, og aftur seinna er hann bjó hjá mér um tíma. Síðan sá ég hann sjaldan, ekki íyi-r en við urðum nágrannar og heimsótti hann mig alltaf annað slagið. Ég sá fljótt að það var eitt- hvað sem þjáði hann eða eins og einhver demón hefði tekið sér ból- festu í þessum skýra og góða dreng eins og allir vita er þekktu hann. Það var í sumar er við sátum niðri við Amager-strönd og skipin sigldu hvert á eftir öðra um Eyr- arsund að þú sagðir hvað þig langaði að vera kominn á sjóinn aftur. En nú borðum við ekki hádegismat saman lengur eins og við gerðum síðustu misserin, þú vissir þegar við voram að aka heim til þín að þessu lífi væri brátt lokið. Æðralaus og teinréttur lagðist þú til hinstu hvíldar sárþjáður og örmagna eftir allt það líf sem hafði umleikið þig á tiltölulega ungri ævi. Þitt upplag var gott og þú varst alltaf heill og sannur í mín- um augum. Blessuð sé minning Benedikts Skúlasonar. Kristján Þorkelsson. ARINBJORN ÞÓRARINSSON + Arinbjörn Þórarinsson var fæddur á Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi 9. janúar 1929. Hann lést á Landspítalan- um 12. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 23. október. Ungur maður, myndarlegur og snaggarlegur heimsækir systur sína sem var að eignast erfingja. Hann snarast inn úr dyrunum til að kíkja á þennan litla frænda sinn og þegar hann lítur hann augum viðhefur hann gamanyrði að hætti sinnar ættar, en þessir tveir menn, annar nýfæddur en hinn kominn til þroska átta sig snemma á því að þeir eru vinir og verða það til lífstíðar. Fyrstu minningar mínar af Ar- inbirni frænda mínum ná kannski ekki svona langt aftur en ég veit það að alla tíð hef ég borið óblandna virðingu fyrir þessum manni sem nú er genginn langt fyrir aldur fram. Hann var góður vinur og traustur, kannski ekki margorður en auðvelt var að finna ef honum mislíkaði og eins ef hann kunni því vel sem að höndum bar. Síðastliðin átján ár bjó Ari hér í Reykjavík og urðu þá kynni okkar meiri en fram að þeim tíma hafði verið. Nokkur sumur vann ég með honum og pabba hjá OLIS í Breiðholti, sú reynsla er hverjum ungum manni mjög dýrmæt. Traustari og hógværari vinnu- félaga, sem þó var alltaf tilbúinn að miðla af reynslu sinni hefði enginn getað hugsað sér. Ég veit að Ara hefði ekki líkað að fjallað yrði um hann með skrautmælgi og væmni, slíkt er of fjarri hans persónuleika. Þó verð ég að segja að ég sé mikið eftir því að hafa ekki getað rætt almenni- lega við hann undir það síðasta til að láta hann vita hve mikla virðingu ég bar, og ber enn fyrir honum, og hversu mikils virði ég tel að hafa fengið að kynnast Arin- birni Þórarinssyni. Góður drengur er gegninn en andi hans mun lifa. Gakk á Guðs vegum, Ari frændi minn. Markús Þórhallsson og íjölskylda. + Óskar Jón Sig- urðsson fædd- ist á Búlandi Vest- mannaeyjum 2. febrúar 1921. Hann lést í Land- spítalanum 19. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sigurð- ur Bjarnason múr- ari fæddur 28. október 1884, dáinn 12. apríl 1959, og kona hans Sigríður Sig- urðardóttir húsmóðir, f. 27. september 1891, d. 22. nóvember 1981. Systkini hans voru: Sigurð- ur, f. 1915, d. 1994, Elín, f. 1917, Sigurbjörg Svava, f. 1918, d. 1918, Guðmunda Dagmar, f. 1919, Sigríður, f. 1923, Margrét, f. 1924, Fjóla, f. 1925, Emil, f. 1927. 1. janúar 1953 kvæntist Óskar Ragnheiði G. Guð- mundsdóttur verslunarkonu, f. 10. ágúst 1928, d. 23. sept- ember 1997. Þau eignuðust tvö börn. 1) Björg Sigríður, f. 27.7. 1954, var gift Birni Jónssyni. Börn þeirra eru: Auður Ragnheiður, f. 1972, gift Guðjóni Leifssyni og eiga þau Leif, f. 1991, Björn Axel, f. 1994, Arnór, f. 1996. Þóra Perla, f. 1976, sambýlismaður hennar er Guðmundur Marinó Ásgrímsson. Óskar, f. 1978, nemi. Sambýlismaður Bjargar er Peter Kvaran. 2) Guð- mundur Óskar, f. 4. janúar 1960, giftur Ágústu Sigurðar- dóttur. Börn þeirar eru Óskar Jón, f. 1986, Aron 'Heiðar, f. 1991, og fósturdóttir Guðrún Anna, f. 1981. Fyrir á Guð- mundur írisi Ósk, f. 1983. Ragnheiður átti tvö börn frá fyrra hjónabandi. Þau eru: 1) Magnús, f. 7. júlí 1946, var giftur Sigrúnu Magnúsdóttur, börn þeirra eru Brynja, f. 1969, Magnús Rúnar, f. 1973, og eitt barnabarn Arnar, f. 1989. Sambýlis- kona Magnúsar er - Guðlaug Þ. Guð- mundsdóttir. 2) Ragnheiður, f. 28. nóvember 1947, gift Guð- mundi Brandssyni, börn þeirra eru Matthías, f. 1965, d. 1992, Guðmundur Ragnar, f. 1967, Ragnheiður Björg, f. 1971, Ægir Örn, f. 1974, Orv- ar Þór, f. 1977. Barnabörn Sara Rakel, f. 1990, Guð- mundur Heiðar, f. 1991, Inga Björk, f. 1994, Matthildur Eir, f. 1997, Arnaldur Þór, f. 1998. Óskar fór ungur að vinna og vann hann bæði til lands og sjávar hin ýmsu störf. 1947 flutti hann upp á land og hóf þá vinnu hjá Vegagerð ríkis- ins, þar var hann í tæp 15 ár, en þá flutti hann með fjöl- skyldu til Selfoss og vann hjá Mjólkurbúi Flóamanna í tæp- an áratug. Til Hafnarfjarðar flutti hann árið 1965 og fór að starfa hjá Olíustöðinni í Hafn- arfirði og vann hann þar til hann fór á eftirlaunaaldur. Einnig starfaði Óskar hjá tengdaföður smurn í Slátur- húsi Hafnarfjarðar í nokkur * ár.^ Óskar verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarf- irði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. OSKARJON SIGURÐSSON Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðist njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvei þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir Qendum minum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. Elsku pabbi minn. Nú ertu kominn í faðminn til mömmu sem þú þráðir svo ákaft. Þín lífslöngun hvarf alveg með henni, sársauki þinn og kvalir eru horfnar og nú líður þér vel. Það var okkur öllum erfitt að horfa á þig þjást og geta ekkert fyrir þig gert. Að sleppa af þér hendinni var svo erfitt, ég vildi hafa þig lengur. Missirinn var svo mikill er mamma fór. Okkar von og ósk var að þú gætir séð litla barnið hennar Þóru Perlu sem við bíðum öll eftir að líti dagsins ljós, hún þráði svo ákaft að afi sæi það, en í sameiningu verðið þið mamma þar saman hjá henni. Hafðu þökk fyrir allt, allt sem þú hefur fyrir mig gert. Far þú í friði, friður guðs þér fyigi- Þín dóttir. Kæri afi minn, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Ég fékk alltaf að sofa hjá þér, til dæmis í Miðvanginum og í Boða- hlein, jafnvel á Hrafnistu. Alltaf var jafngaman að sofa hjá þér og ég, þú og amma spiluðum ólsen, ólsen og þið leyfðuð mér oftast að vinna og við horfðum oft á fót- boltann saman. Ef það var fót- bolti á virkum dögum hringdi ég í þig og hjálpaði þér að setja fót- boltann á. Við fórum oft í bílaleik heima hjá þér og vöskuðum upp saman og hjálpuðumst að við margt annað, til dæmis að taka dót niður af háaloftinu og að kaupa í matinn og þú fórst með mig á fyrsta handboltamótið mitt. Við vorum óaðskiljanlegir þar til þú fórst til himna og ég mun aldrei gleyma þér. Þinn nafni Óskar Jón. * Mig langar að minnast afa Óskars með örfáum orðum. Við áttum margar góðar stundir sam- an t.d. þegar ég var lítil og við dvöldum í sumarbústað á Laugar- vatni, þú hafðir alltaf tíma til að spila mínigolf og þú kenndir mér eina kapalinn sem ég kann. Þegar við fjölskyldan komum í heimsókn í Hafnarfjörðinn varstu alltaf til í að fela hlut og einnig kenndirðu mér að dansa en það varst þú sem stýrðir, því ég stóð á fótunum á þér. Alltaf hafðirðu mikinn áhuga á skipum og þegar ég fékk bílpróf vildirðu fá einn rúnt niður á höfn og það gerðum við og þú gast sagt mér frá öllum skipunum sem þar voru. Þó að þú sért farinn munu minningarnar lifa. Lát mig starfa, lát mig vaka, lifa, meðan dagur er. Létt sem fuglinn lát mig kvaka, lofsöng, Drottinn, flytja þér, meðan ævin endist mér. \ Lát mig iðja, lát mig biðja, lífsins faðir, Drottinn hár. Lát mig þreytta, þjáða sfyðja, þerra tár og græða sár, gleðja og fóma öll mín ár. (Þýð. Margr. Jónsd.) Guð blessi minningu þína. Guðrún Anna. <
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.