Morgunblaðið - 28.10.1998, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 9
FRÉTTIR
Undanþága vsk-laga tók
ekki til notaðra vélsleða
VÉLSLEÐAR geta ekki talist
vélknúin ökutæki í skilningi 10.
gr. virðisaukaskattslaga nr.
50/1988 eins og ákvæðið hljóðaði
fram að breytingu árið 1993.
Sýknaði Hæstiréttur því á
fimmtudag íslenska ríkið af kröf-
um Bifreiða og landbúnaðai-véla
hf. um endurgreiðslu ofgreidds
virðisaukaskatts af þessum sök-
um sem og vegna skattlagningar
lántökukostnaðar.
Ríkisskattstjóri hafði árið 1993
gert athugasemdir við skattskil
félagsins fyrir árið 1992 og var
afstaða hans staðfest með úr-
skurði yfirskattanefndar árið
1995. Greiddi félagið umkrafinn
skatt með fyrirvara seinni hluta
árs 1994 en stefndi síðar íslenska
ríkinu til ógildingar úrskurði yfir-
skattanefndar og endurgreiðslu
ofgreidds virðisaukaskatts. Féllst
Héraðsdómur Reykjavíkur
(Sigríður Ólafsdóttir héraðs-
dómari) á kröfu félagsins. Meiri-
hluti Hæstaréttar (4/5) reyndist á
öðru máli.
Ági-einingur milli aðilja var
einkum tvíþættur. Annars vegar
stóðu B&L ekki skil á virðisauka-
skatti að fjárhæð 718.740 krónur
af svonefndum lántökukostnaði á
árinu 1992, þ.e. þinglýsingar-
gjaldi og bankakostnaði vegna
skuldabréfa, sem gefin voru út
við sölu bifreiða, sem seldar voru
með afborgunarkjörum. Taldi
Hæstiréttur að miða yrði við að
félagið hefði tekið við bréfunum
úr hendi kaupenda bifreiða sem
greiðslu tiltekinna eftirstöðva af
kaupverði, en um hlutfall þeirra
nyti ekki almennra upplýsinga.
Óhjákvæmilegt væri að líta svo á
að félagið hefði verið að ráðstafa
eigin verðbréfaeign, enda brysti
sönnun um annað. „I málinu er
heldur ekki að finna gögn um
raunverulegan kostnað við
ráðstöfun bréfanna eftir afhend-
ingu vörunnar. Því er ekki óyggj-
andi, að hluti þess kostnaðar, sem
viðskiptamaður greiddi, hafi ekki
verið áætlaður og innifalinn í
kaupverðinu með þeim hætti, að
skilgreining skattverðs sam-
kvæmt 2. tl. 2. mgr. 7. gr. laga nr.
50/1988 um virðisaukaskatt tæki
til hans,“ sagði í dómnum.
Breytt mat löggjafans
Hins vegar hafði félagið ekki
innheimt virðisaukaskatt að fjár-
hæð 4.114.032 krónur af sölu
notaðra vélsleða árið 1992.
Reyndi þarna á túlkun 10. gr. laga
nr. 50/1988 en þar var heimiluð
undantekning frá almennum
virðisaukaskattsreglum fyrir sölu
vélknúinna ökutækja, sem selj-
andi hefði keypt til endursölu í at-
vinnuskyni. í slíku tilviki mátti
seljandi miða skattverð við til-
tekið hlutfall af mismuni inn-
kaupsverðs og söluverðs ökutækis
að meðtöldum virðisaukaskatti. í
upphaflegum virðisaukaskattslög-
um voru þessi ökutæki sem í hlut
áttu skilgreind sem „fólksbifreið-
ar fyi'ir færri en níu menn“. Rökin
fyrir þessu ákvæði voru að
tryggja samkeppnisstöðu selj-
enda notaðra bifreiða sem hefðu
af því atvinnu gagnvart sams kon-
ar viðskiptum milli einkaaðilja.
Með lagabreytingu nr. 122/1993
var reglan víkkuð út og tekin af
tvímæli um að hún næði til allra
vélknúinna ökutækja.
Segir Hæstiréttur að ekki hafi
verið heimilt að beita ákvæðinu
eins og það hljóðaði upphaflega
með lögjöfnun um önnur vélknúin
ökutæki en þar greindi. Væri ljóst
að greinarmunur hefði verið gerð-
ur á mismunandi ökutækjum.
Breytt mat löggjafans árið 1993
gæti ekki tekið til viðskipta sem
fram fóru áður.
Var félagið dæmt til að greiða
500.000 krónur í málskostnað fyr-
ir héraði og Hæstarétti.
Málið fluttu Einar Karl Hall-
varðsson hrl. af hálfu íslenska rík-
isins og Helgi V. Jónsson hrl. fyr-
ir hönd Bifreiða og landbúnaðar-
véla hf.
30 kennarar á Sel-
tjarnarnesi segja upp
UM 30 kennarar við Mýrarhúsa-
skóla og Valhúsaskóla á Seltjarn-
arnesi hafa sagt upp störfum
vegna óánægju með launakjör.
Kennararnir hætta störfum 1.
febrúar nk. hafi ekki tekist samn-
ingar milli þeirra og bæjaryfir-
valda á Seltjarnarnesi. Viðræður
hafa staðið milli deiluaðila, en þær
hafa ekki leitt til samninga.
Um 60 kennarar starfa við
grunnskólana á Seltjarnarnesi og
hefur því um helmingur kenn-
araliðsins sagt upp störfum.
Hafsteinn Óskarsson, trúnaðar-
maður KÍ í Valhúsaskóla, sagði að
viðræður hefðu staðið við bæjaryf-
irvöld frá því í vor. Enn væri breitt
bil á milli samningsaðila. Tilboð
bæjaryfírvalda hefði ekki gengið
nægilega langt að mati kennara.
Kennarar hefðu ákveðið að segja
upp störfum vegna óánægju með
tilboðin. Hafsteinn sagði að
viðræðum hefði ekki verið slitið og
gerði ráð fyrir að samningsaðilar
myndu setjast aftur niður eftir
mánaðamótin.
Mikið vinnuálag
Aðspurður sagði Hafsteinn að
grunnskólakennarar á Seltjarnar-
nesi væru ekki tilbúnir að gera
sams konar samninga og kennarar
í nokkrum öðrum sveitarfélögum
hefðu gert. I þessum samningum
hefðu kennarar fallist á að taka á
sig meiri vinnu gegn kauphækkun.
Samkennarar sínir væra þeirrar
skoðunar að vinnuálag kennara
væri það mikið að það væri ekki á
það bætandi.
Hafsteinn sagði að mikil
óánægja hefði verið meðal kennara
með síðustu kjarasamninga enda
hefðu þeir verið samþykktir með
rétt rúmlega 50% atkvæða. Það
ætti því ekki að koma sveitarfélög-
unum á óvart þótt allmargir kenn-
arar gripu til þess ráðs að segja
upp samningum. Uppsveiflan í
efnahagslífinu gerði það einnig að
verkum að margir kennarar ættu
kost á betur launuðum störfum og
sættu sig því verr við þau kjör sem
sveitarfélögin byðu þeim fyrir
kennsluna.
Barnavagnar
Rauðarárstíg 16,
sími 561 0120.
Buxnadragtirnar
með síðu jökkunum komnar aftur. 5 litir.
Eddufelli 2, °Pið
___ mán.-fös. kl. 10-18,
Nýjar dragtir
og
kvöldklæðnaður
hj&QýÚafiihiyí
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá ki. 10.00—15.00.
VEISLUHÖLD allt árið
Munið að panta jólahlaðborðið
Árshátíðir, afmæli, brúðkaup, fundir, jólahlaðborð
Undursamleg stemning, góður matur og fínar veigar, píanótónlist við komuna
og undir borðhaldi. Dansleikir með hljómsveit Ihópar) ---------
og rútuferðir báðar leiðir IReykjavík—Skíðaskálinn).
Stórir sem smáir hópar.
Salir fyrir 10-200 manns.
Hámarksfjöldi 380 gestir.
MUNIÐ ÁRSHÁTlÐAR-
PAKKANA FYRIR HÖPA.
UERD FRfl 3.630-
Með rútuferð (frá Rvík.l,
3ja rétta kvöldverði og
balli á eftir.
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935
Hveradölum, 110 Reykjavík, upplýsingasími 567-2020
Aukin ökuréttindi; á rútu, vörubíi og leigubíi
Nœsta námskeið
fiefit 4. ngvémM
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
OKU
$KOLINN
IMJODD
Þarabakka 3_, Mjóddinni, Rvík.
UPPLÝSINGAR/BÓKANIR í SÍMA 567-0-300
Eyddu í sparnað!
Heimilisbókhald 1998
] Nóv »>15 j VVMIA15
Það þarf aðeins eitt símtal
til að byrja að spara reglulega
með spariskírteinum
ríkissjóðs.
562 6040 8 0 0 6 6 99
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
Veffang: www.lanasysla.is Netfang: lanasyslan@lanasyslan.is