Morgunblaðið - 28.10.1998, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Y fírskattanefnd
Viðbrögð landsmanna við Degi dagbókarinnar 15. október hafa verið góð
Biðlisti
kærumála
styttist
RÚMLEGA 500 kærumál bíða nú
afgreiðslu yfírskattanefndar en á
sama tíma í fyrra voru um 670
kærumál óafgreidd. Fyrir þremur
árum biðu 950 mál og fyrir fjói'um
árum 1300. Stefnt er að því að á
fyrri hiuta næsta árs verði mál
komið í það horf að kærumál verði
afgreidd innan lögboðinna tíma-
marka.
Síðastliðið vor gerði Alþingi
breytingar á lögum um yfírskatta-
nefnd og var þá kærufrestur lengd-
ur úr einum mánuði í þrjá og frest-
ur nefndarinnar til að kveða upp úr-
skurði var lengdur úr þremur mán-
uðum í sex. í kjölfarið var gerður
samningur milli fjármálaráðuneyt-
isins og yfirskattanefndar um sér-
staka fjárveitingu til tímabundinnar
ráðningar tveggja sérfræðinga til
að draga úr fjölda óafgreiddra mála.
„Það er ennþá verið að vinna upp
eftirhreytur fyrri tíma,“ segir Ólaf-
ur Ólafsson, formaður skattanefnd-
ar. „Á undanförnum árum hafa
kærur verið flestar á tímabilinu
október til janúar. Þá hefur komið
til okkar um helmingur af öllum
málum sem berast. Með lengingu
kærufrestsins er hugsanlegt að
þetta dreifist yfir lengri tíma og
öðrum þræði var það tilgangur
lagabreytingarinnar.“
Ólafur segir að ekki hafi verið
ákveðið hversu lengi sérfræðing-
amir tveir muni starfa hjá nefnd-
inni. Samtals starfa hjá henni
sautján manns.
Til yfirskattanefndar berast allar
kærur vegna úrskurða skattstjóra
og ríkisskattstjóra.
---------------
Fjárskaði í
Eyja- og Mikla-
holtshreppi
Búðardal. Morgunbladið.
FJÁRSKAÐI varð í Eyja-og Mikla-
holtshreppi síðastliðinn fimmtudag,
þegar veturinn gekk í garð á Snæ-
fellsnesinu. Bændur uggðu ekki að
sér og fæstir höfðu tekið fé í hús,
þegar bylur skall á. Þegar veðrinu
slotaði snemma á föstudagsmorgun,
var farið að leita að fénu.
Að sögn Guðbjarts Gunnarssonar
bónda á Hjarðarfelli var leitað allan
daginn og fundust þá tuttugu kind-
ur lifandi en sjö dauðar sem höfðu
grafist í fönn og troðist undir. Enn
er ekki allt féð komið í leitimar þar.
Á Minni-Borg er Sigurbjörn
Magnússon nýbyrjaður búskap, en
hann missti átta ær og þurfti að
lóga tveimur eftir dýrbít. Þar eru
enn ófundnar tíu ær. Fé tapaðist
einnig á Miðhrauni, Miklaholti og
víðar.
-----------------
Bílvelta við
Miklaholtssel
SMÁJEPPI með tvo innanborðs fór
út af veginum við Miklaholtssel í
Eyja- og Miklaholtshreppi á mánu-
dagskvöld og valt. Hvorki ökumann
né farþega sakaði, en báðir voru í
bílbeltum. Bifreiðin var óökufær á
eftir. Mikil hálka er á þessum slóð-
um og hvetur lögreglan í Stykkis-
hólmi vegfarendur til að fara var-
lega.
Yfír fjögur þúsund
manns skrifuðu dag’bók
Viðbrögð landsmanna við Degi
dagbókarinnar 15. október sl. hafa verið
góð. Þjóðminjasafninu hafa þegar
borist yfir fjögur þúsund dagbækur
dagsins og vitað er um enn fleiri
dagbækur sem eru á leiðinni. Þá hafa
um fimmtíu manns komið með handrit
sín og gamlar og nýjar dagbækur til
varðveislu á handritadeild Landsbóka-
safnsins. Aðstandendur átaksins eru
ánægðir með viðtökurnar og benda á að
enn sé tími til að skila inn gögnum.
KÁRI Bjarnason og Sigurður Gylfi Magnússon glugga í dagbækur
sem borist hafa handritadeild Landsbókasafnsins.
IGÆR vaknaði ég klukkan sjö,
eins og venjulega, til að fara í
skólann. Ég klæddi mig og
greiddi mér, svo fór ég að borða,
tannburstaði mig og spurði eftir
vinkonu minni sem heitir Þórhildur.
Svo löbbuðum við saman heim til
Bimu sem er líka vinkona okkar.“
Þannig hljóða fyrstu línurnar í dag-
bók ungrar stúlku sem skrifaði dag-
bók í einn dag í tilefni af Degi dag-
bókarinnar hinn 15. október sl.
Markmið dagsins var m.a. sköpun
og söfnun persónulegra heimilda
fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar
og voru landsmenn hvattir annars
vegar til þess að halda dagbók
þennan sama dag og skila til þjóð-
háttadeildar Þjóðminjasafnsins og
hins vegar til þess að draga upp
gamlar og nýjar dagbækur eða per-
sónulegar heimildir og skila til
handritadeildar Landsbókasafnsins.
Hægt var, og er reyndar enn, að
koma dagbókunum og öðrum gögn-
um til Landsbókasafnsins eða Þjóð-
minjasafns með pósti, sendanda að
kostnaðarlausu, en einnig gafst les-
endum Morgunblaðsvefjarins kost-
ur á að skrifa dagbækur sínar inn á
Netið dagana 15. og 16. október.
Dagbókarskrifarar gátu sjálfir
ákveðið hvort skrifin birtust á Net-
inu eða ekki en stefnt er að því að
þau verði varðveitt í Þjóðminjasafn-
inu. Um 150 manns skrifuðu dagbók
á Netið og þar á meðal stúlkan sem
áður var vitnað til.
Talsmenn átaksins benda á, í
samtali við Morgunblaðið, að söfn-
unin miði ekki síður að því að vekja
almenning til umhugsunar um gildi
hinna persónulegu heimilda í sögu
þjóðarinnar. í því sambandi segja
þeir að dagbækur og bréf geti í
framtíðinni gefið góða mynd af því
hvemig hinn venjulegi maður hefur
plumað sig í lífinu. Dagbókin sem
áður var getið um mun til dæmis
gefa ákveðna sýn inn í veruleika
ungrar stúlku nú til dags, ungrar
stúlku sem segir frá stærðfræði-
prófinu í skólanum, fiðlutímanum
klukkan hálffjögur, kórnum klukk-
an fimm og sundæfingunni klukkan
sex. Að hún hafi fengið „steiktan
fisk í matinn með kornflögum í stað-
inn fyrir rasp“ um kvöldið og að
Morgunblaðið/Ásdís
HALLGERÐUR Gísladóttir og Sigurborg Hilmarsdóttir frá þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins segja að yfir
4.000 dagbækur hafi borist til safnsins vegna Dags dagbókarinnar.
Lækjarkinn — Hafnarfirði
2ja—3ja herb. íbúð með bílskúr
nýkomin til sölu. íbúðin er á jarðhæð, 69,1 fm og 23 fm bílskúr,
byggt 1967. Allt sér og í góðu ástandi. Ekkert áhvílandi. Laus
strax. Verð 6,3 millj.
Ámi Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
þegar degi tók að halla hafi hún
sofnað vært eftir „erfiðan dag“.
Konur í meirihluta
I framkvæmdanefnd átaksins
um söfnun dagbóka og annarra
persónulegra gagna sitja þau Kári
Bjarnason á handritadeild Lands-
bókasafnsins, Sigurður Gylfi
Magnússon sagnfræðingur, Sigur-
borg Hilmarsdóttir og Hallgerður
Gísladóttir frá þjóðháttadeild Þjóð-
minjasafnsins og Gunnar Her-
sveinn blaðamaður á Morgunblað-
inu. Þær Sigurborg og Hallgerður
frá þjóðháttadeild sáu um að taka á
móti dagbókum frá 15. október og
segjast þær í sjöunda himni yfir
þeim góðu viðbrögðum og mikla
áhuga sem almenningur hafi sýnt á
Degi dagbókarinnar. „Augljóst er
að dagurinn hefur orðið mörgum
tilefni til að skoða líf sitt út frá nýju
sjónarmiði og að velta fyrir sér
gildi persónulegrar tjáningar og
persónulegra heimilda í víðu sam-
hengi,“ segja þær.
Þær segja að fljótt á litið virðist
sem einstaklingar úr yngri og eldri
kynslóðinni hafi verið hvað dugleg-
astir við að senda inn dagbókar-
skrif sín en jafnframt virðist þeim
sem konur séu í meirihluta þeirra
sem sent hafi inn dagbækur. Þá
segja þær að skólar landsins, bæði
grunnskólar og framhaldsskólar
hafi bragðist ákaflega vel við og að
mikið af því sem hafi komið frá
skólunum hafi verið sérlega fallega
unnið. „Til dæmis fengum við dag-
bækur frá einum 7 ára bekk þar
sem allir höfðu skreytt dagbókina
sína með mynd sem hét „Ég í dags-
ins önn“.“ Þá segja þær að margt
skemmtilegt hafi komið fram í dag-
bókum framhaldsskólanema. Til
dæmis væra margir að velta fyiár
sér sögunni og hugsa til þeirra
manna sem muni lesa dagbók
þeirra eftir hundrað ár.
Sigurborg og Hallgerður leggja
ennfremur áherslu á að ekki sé of
seint að senda inn dagbók dagsins
og segja að þó að yfir fjögur þús-
und dagbækur hafi þegar borist
viti þær um fjölmargar sem enn
eigi eftir að senda, til dæmis frá
fjölmennum skólum.
Þakkir til þeirra sem
lögðu hönd á plóg
Kári Bjarnason hefur séð um að
taka á móti gömlum dagbókum og
öðram persónulegum gögnum á
handritadeild Landsbókasafnsins
frá því að átakið hófst 15. október
sl. Segir hann að frá þeim tíma hafi
um 50 manns fært handritadeild-
inni ýmis persónuleg gögn og bæt-
ir því við að í 150 ára sögu hand-
ritadeildarinnar hafi aðeins varð-
veist 3 dagbækur. Á Degi dagbók-
arinnar hafi þeim hins vegar fjölg-
að um 250% því þann dag hafi 8
dagbækur frá 19. og 20. öld bæst
við safnið.
Sigurður Gylfi bætir við að fjöl-
margir hafi haft samband og
spurst fyrir um söfnunina. „Til
dæmis hafði 52 ára gömul kona
samband og spurði hvort við hefð-
um áhuga á öllum þeim bréfum
sem hún hefði fengið frá því að hún
var tíu ára. Eftir samtalið ákvað
hún að koma með bréfin sem fylla
hátt í 20 möppur,“ segir Sigurður
Gylfi. Hann ítrekar að menn geti
sett hvaða kvaðir sem þeir vilja um
varðveislu gagnanna. Til dæmis
um að þau verði innsigluð næstu
hundrað árin.
Kári kveðst hafa vitað það fyrir
að fjöldi fólks hér á landi héldi dag-
bækur eða hefði gamlar dagbækur
undir sínum höndum. Hann og Sig-
urður Gylfi vora þó sammála um að
þessi söfnun hefði komið róti á
huga fólks og ýtt á að það komi
slíkum gögnum fyrir á handrita-
deild í stað þess að henda þeim eða
leyfa þeim að morkna uppi á háa-
lofti.
Að síðustu vilja aðstandendur
átaksins koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem sent hafí inn
dagbækur eða önnur gögn og lagt
hönd á plóginn í þessu átaki. Nefna
þau í þessu sambandi íslandspóst,
Mál og menningu, Morgunblaðið
og Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra.