Morgunblaðið - 28.10.1998, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Einn mesti Atiantshafsfellibylur allra tíma stefnir upp að ströndum Mið-Ameríku
Gæti valdið „hörmu-
legri eyðileggingu“
Miami. Reuters.
FELLIBYLURINN Mitch, sem
er einn mesti fellibylurinn sem sög-
ur fara af í Atlantshafslægðinni,
gekk yfir Karíbahaf í gær og
stefndi að ströndum Mið-Ameríku
með miklu regni, sem óttast er að
geti valdið mannskæðum aurskrið-
um og flóðum.
Mitch mælist á fímmta og hæsta
stigi samkvæmt Saffir/Simpson-
skala, en það er afar sjaldgæft. Að
því er Fellibyljarannsóknastöðin í
Miami greindi frá í gær telst hann
mjög hættulegur og gæti valdið
„hörmulegri eyðileggingu“.
Fellibyljir af þessari stærð-
argráðu geta lagt byggingar í rúst,
rifið þök af húsum og valdið flóðum
á gríðarstórum svæðum.
Veðurfræðingar sögðu í gær að
Mitch væri meðal fimm mestu felli-
bylja sem sögur fara af í Atlants-
hafslægðinni, það er að segja á Atl-
antshafi, Karíbahafi og Mexíkóflóa.
Hann er töluvert öflugri en fellibyl-
urinn Georg, sem varð yfir 500
manns að fjörtjóni er hann gekk
yfir austanvert Karíbahaf og
Mexíkóflóa í september.
Enn er ekki ljóst hvar Mitch
mun koma að landi, en það gæti
orðið eftir tvo daga. Stjórnvöld á
Kúbu hafa hafið brottflutning fólks
frá eyjum við suðurströndina.
Fellibylsviðvönin hefur verið gefin
út í Belís, á Yucatanskaga og við
strendur Hondúras og Gvatemala.
Talið er að Hondúras muni sleppa
við fellibylinn sjálfan, en þó var
ferðamannastöðum við strendur
landsins lokað í gær vegna hvass-
viðris og rigninga af hans völdum.
I gær bárust einnig fregnir af
miklu regni á Caymaneyjum og
Kosta Ríka, í Níkai'agva og
Panama. A Kosta Ríka hafði einn
maður farist í flóði.
Tvísýnt um geimskot
Mitch hefur valdið starfsmönn-
um Geimferðastofnunar Banda-
ríkjanna (NASA) nokkrum áhyggj-
um, en til stendur að skjóta geim-
flauginni Discovery á loft frá
Kennedy-geimferðamiðstöðinni á
Flórída á fimmtudag. Hvassviðri af
völdum fellibylsins gæti orðið til
FELLIBYLURINN „M1TCH“
Einn af mestu fellibyijum sem sögur fara af yfir Atlantshafi stefnir nú í átt að
ströndum Mið-Ameríku. Vindhraðinn mæiist allt að 290 km á klukkustund.
Mitch telst til sjaldgæfra og afar hættulegra fellibylja, en hann mælist
á fimmta og hæsta stigi samkvæmt Saffir/Simpson-skala.
Mexíkó
fíói
Cayman
eyjar
MEXÍKÓ
JAMAIKA
BELISI y
•. Slóð
*. lellíbylsins
GVATEMALA
HONDURAS
Fellibylurinn
Mitch
stefnir f vest-
norðvestur
á13kmhraða
á klukkustund
KARIBAHAF
nIkaragva
KYRRAHAF
100 km
Heimild: National Hurricane Center (U.S.A.)
þess að öryggiskröfum fyrir neyð- þannig stefnt geimskotinu í tví-
arlendingu væri ekki fullnægt, og sýnu.
Borís Jeltsín fluttur á heilsuhæli
Sátt um að
Prímakov leysi
forsetann af
Moskvu. Reuters
Reuters
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti virtist við þokkalega heilsu er hann
hitti Jevgení Prímakov forsætisráðherra í gærmorgun.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
var £ gær fluttur á Barvikha-heilsu-
hælið, þar sem hann á að hvílast
um óákveðinn tíma, að sögn Dmitr-
is Jakúshkín, talsmanns forsetans.
Segir hann forsetann úrvinda úr
þreytu. Fyrr um daginn átti Jeltsín
fund með Jevgení Prímakov for-
sætisráðherra, sem fór í stað for-
setans til fundar við leiðtoga aðild-
arríkja Evrópusambandsins í gær.
Rússneskir fjölmiðlar fóru í gær
mikinn í skrifum sínum um veik-
indi forsetans. Virtust þeir þó flest-
ir á því að aðstoðarmenn Jeltsíns
myndu reyna að sjá til þess að for-
setinn gæti gegnt embættinu út
kjörtimabilið. Hann gæti tæpast
sinnt nema litlum hluta embættis-
skyldna sinna og færi ekki í fleiri
utanlandsferðir.
Par sem enginn er varaforsetinn
í Rússlandi, kemur Prímakov í
raun í stað Jeltsíns i fjarveru hans.
Voru flest rússnesku blöðin í gær
þeirrar skoðunar að sú skipan mála
værí öllum; Jeltsín sjálfum og rúss-
nesku þjóðinni, fyrir bestu. Astæð-
an er fyrst og fremst sögð sú að
hvorki þeir sem hafa hug á að
bjóða sig fram til forseta, eða þeir
sem einhverju ráða í Kreml, eru
undir það búnir að gengið verði til
kosninga.
„Greinilegt er að pólitíska elítan
hefur í kyrrð og ró náð samkomu-
lagi um að halda stöðunni í stjórn-
málum eins og hún er nú, að eins
miklu leyti og eins lengi og hægt
er. Prímakov á að vera forsætis-
ráðherra og varaforseti en forset-
inn að halda sig heima,“ segir í
Seyodjna.
í viðskiptablaðinu Kommersant
segir að nú verði stjómvöld í
Kreml að sýna fram á að forseti
sem fari að ráðum lækna og lifi til
ársins 2000, sé betri en forseti sem
reyni af öllum mætti að sýna fram
á að hann hafi verið afskrifaður of
fljótt.
Bann við
utanlandsferðum
Fjölmörg dagblöð fullyrtu í gær
að læknar Jeltsíns hefðu lagt blátt
bann við frekari utanlandsferðum
á meðan hann sitji á forsetastóli.
Ovíst væri þó að hann hlýddi því. I
Izvestíja sagði að talsmenn forset-
ans reyndu ekki lengur að láta
sem forsetinn væri við góða
heilsu. Hann væri erfiður og
þrjóskur sjúklingur sem rifist við
læknana og neitaði að fara að ráð-
um þeirra.
„Orsök stjórnmálaki-eppunnar
nú er ekki fyrst og fremst sú að
forsetinn geti ekki sinnt starfi sínu.
Hún er miklu fremur afleiðing þess
að Jeltsin hefur ekki lengur yfir að
ráða hæfu fólki sem er reiðubúið að
verja yfirmann sinn í stað þess að
gæta eigin hagsmuna."
Fleiri óska
framsals
Pinochets
Stokkhdlmi, París, Genf. Reuters.
FRAMSALS Augustos Pinochets,
fyrrverandi einræðisherra í Chile,
er nú óskað til Svíþjóðar, Frakk-
lands og Sviss, auk Spánar en
beiðni dómstóla þar í landi var or-
sök þess að Pinochet var handtek-
inn í London fyrir rúmri viku.
Beiðni Svisslendinga var lögð
fram á mánudag en í gær sögðu
frönsk dómsmálayfirvöld að til
rannsóknar hjá þeim væru þrjár
beiðnir um framsal Pinochets sem
borist hefðu frá ættingjum fólks
sem hvarf sporlaust á meðan á
valdatíma Pinochets stóð. Hið sama
er upp á teningnum í Svíþjóð þar
sem sænsk stjórnvöld sögðu nokkra
fyrrverandi Chilebúa hafa farið
fram á að Pinochet yrði framseldur
til Svíþjóðar til að svara ákæru um
morð, mannréttindabrot og þjóð-
emishreinsanir.
Þúsundir Chilebúa fluttust bú-
ferlum til Svíþjóðar á áttunda og ní-
unda áratugnum, á meðan á valda-
tíma Pinochets stóð. Málið er hins
vegar vandkvæðum bundið því
meintir glæpir Pinochets voru
framdir gegn fólki sem ekki voru
sænskir ríkisborgarar á þeim tíma.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvort
sænsk stjómvöld fara formlega
fram á framsal.
Nyrup ýjar að þjóð-
aratkvæði um EMU
Bildt nefndur sem hugsanlegur utanríkisformælandi ESB
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DÖNSKU Maastricht-undanþág-
umar frá þátttöku í Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu, EMU, og
írá vamarsamstarfi vora töluvert til
umræðu um helgina. Poul Nyrap
Rasmussen forsætisráðherra hefur
nú í fyrsta skipti viðrað möguleik-
ann á þjóðaratkvæðagreiðslu, án
þess að segja þó hvenær það gæti
orðið. I gær gaf hann þó í skyn að
það gæti orðið frekar fyrr en
seinna.
Eftir að Tony Blair forsætisráð-
herra Breta hélt á lofti styrktu
varnarsamstarfi í Evrópu á leið-
togafundi ESB-ríkjanna í Austur-
ríki um helgina hafa vaknað í Dan-
mörku umræður um þau mál. Göran
Persson forsætisráðherra Svía seg-
ir niðurstöðu fundarins ekki valda
hlutleysi Svía neinum vandræðum.
Ákveðið var að útnefna formælanda
ESB í utanríkismálum í desember,
en Carl Bildt fyrram forsætisráð-
herra er mjög orðaður við þá stöðu.
Pótt Nyrup hafi viðrað möguleik-
ann á atkvæðagreiðslu um EMU-
aðild Dana hefur hann fram að
þessu ekki viljað nefna hvenær það
gæti orðið. A blaðamannafundi i
Kaupmannahöfn sagði hann í gær
að til slíkrar atkvæðagreiðslu kynni
að verða efnt „eftir nokkur ár“.
Þykja þessi ummæli til merkis um
lítils háttar stefnubreytingu. Hér er
líklega á ferðinni fyrsta glufan i
slíka atkvæðagreiðslu, en hingað til
hefur forsætisráðherra þvertekið
fyrir að slíkt væri tímabært. Fram
að þessu hafði hann ítrekað sagt að
atkvæðagreiðsla um EMU-aðild
Danmerkur yrði ekki á dagskrá
fyrr en árið 2002.
Sennilegt er að jákvæðar vísbend-
ingar skoðanakannana undanfarið
hafi ýtt undir Nyrup að impra á
þessu, því kannanir sýna að meiri-
hluti Dana er orðinn hlynntur aðild.
Það hefur þó komið fyrir áður, en
stuðningurinn síðan dalað aftur.
Fyrir Nyrap og EMU-hlynnta
stjóm hans er veiðin því sýnd en
EVRÓPA^
ekki gefin, en eftir að Danir sam-
þykktu Amsterdam-sáttmálann
átakalaust í atkvæðagreiðslu í vor er
líklegt að tími eindreginnar ESB-
neikvæðni i Danmörku sé liðinn.
Danir utangarðs
Anders Fogh Rasmussen leiðtogi
hins frjálslynda Venstre spáir því
að undanþágumar muni brátt heyra
sögunni til. ESB-samstarfið muni
einmitt verða öflugast á þeim svið-
um, sem Danir standi utan og þar
með verði þátttaka Dana óviðun-
andi. Fogh Rasmussen efast um að
tillögur Blairs innihaldi nokkuð
nýtt, en nýjungin sé hins vegar að
Blair reyni að taka frumkvæði. Það
hafi Bretar ekki gert lengi.
Orð Fogh Rasmussens um ein-
angrun Dana voru undirstrikuð af
þvi að hvorki danski né sænski for-
sætisráðherrann vora viðstaddir
óformlegan hádegisverð sem þjóð-
arleiðtoga þeirra ellefu landa, sem
verða með í EMU, héldu fyi-ir leið-
togafundinn um helgina.
Utangarðsstaða Dana var einnig
undirstrikuð af því að danska
stjómin hefur lýst yfir að hún muni
ekki taka þátt í að tilnefna formæl-
anda ESB í utanríkismálum, þar
sem það muni stríða gegn undan-
þágum Dana. Enginn Dani kemm’
því til greina í þá stöðu, sem þjóðar-
leiðtogar ESB ákváðu að ætti að
vera stjórnmálamaður með reynslu
af stjómarsetu.
Bildt eða Gonzales?
Sú lýsing hæfir vel Carl Bildt,
sem áður hefur reynslu á ESB-vett-
vangi sem sáttasemjari í Bosníu-
deilunni. Bildt hefur átt gott sam-
starf við frönsku stjórnina, sem
gæti komið sér vel. Hins vegar gæti
verið að Frakkar kysu að fá stjóm-
málamann, sem hefði frönsku að
móðurmáli eða svo gott sem. Einnig
kann það að mæla gegn Bildt að
hann er af hægrivængnum, meðan
hin pólitíska þungamiðja ESB hefur
hnikast yfir til vinstri.
Hugsanlegur keppinautur Bildts
er spænski jafnaðarmaðurinn
Felipe Gonzales, forsætisráðherra
til margra ára. Göran Persson seg-
ist geta stungið upp á Bildt, ef Bildt
fari fram á það, en engin slik um-
leitan hafi komið fram. Þvert á móti
bendir Persson á að Bildt segist
stöðugt hafa áhuga á að vera áfram
í sænskum stjórnmálum sem leið-
togi Hægriflokksins og stjómar-
andstöðunnar.