Morgunblaðið - 28.10.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 25
Tsjekov,
Pedersen og
vaxtarbroddur
leikhússins
LEIKLIST
IV e in e n dalcikliúsið
IVANOV
eftir Anton Tsjekliov. íslensk þýðing:
Geir Kristjánsson. Leikgerð: Guðjón
Pedersen og Hafliði Arngrímsson.
Leikstjóri: Guðjón Pedersen. Leikar-
ar: Egill Heiðar Anton Pálsson, Hin-
rik Hoe Haraldsson, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Kjartan Guðjónsson
(gestaleikari), Laufey Brá Jónsdóttir,
María Pálsdóttir, Nanna Kristín
Magnúsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason,
Stefán Karl Stefánsson. Leikmynd og
búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Lýs-
ing og tækni: Egill Ingibergsson.
Lindarbæ 26. október.
GUÐJÓN Pedersen og samstarfs-
menn hans hafa undanfarinn áratug
starfað ötullega að því að koma
verkum Antons Tsjekhovs á fram-
færi hér á landi, bæði með sviðsetn-
ingum og leiklestrum. Tíu ár eru
einmitt liðin frá því að Frú Emilía
stóð fyrh' leiklestrum á fjórum verk-
um Tsjekhovs á Listasafni íslands
og ljúft er að minnast bráðskemmti-
legrar uppfærslu á Kirsuberjagarð-
inum á vegum sama leikhúss í Loft-
kastalanum fyrir nokkrum árum.
Það er því viðeigandi að Nemenda-
leikhúsið fái Guðjón til liðs við sig
við að setja upp leikrit eftir þennan
rússneska meistara leikritunar.
Ivanov, verkið sem Nemendaleik-
húsið frumsýndi síðastliðið mánu-
dagskvöld í Lindarbæ, er frá árinu
1887 og var það fyrsta verk Tsjek-
hovs sem „sló í gegn“. Þeir Guðjón
Pedersen og Hafliði Arngrímsson
hafa gert nýja leikgerð af verkinu
eftir þýðingu Geirs Kristjánssonar,
sniðna að þörfum Nemandaleikhúss-
ins. Verkið ber mörg kunn höfund-
areinkenni Tsjekhovs og leikstjór-
inn dregur fram og undirstrikar
hina kómísku þætti þess þótt efnið
sé í grunninn hannrænt. Hér segir
af Ivanov (Egill Heiðar Anton Páls-
son) sem berst fyrirfram tapaðri
baráttu við eigin sálarsorta; dauð-
sjúkri konu hans Önnu (Laufey Brá
Jónsdóttir); frænda hennar Sja-
belskí greifa (Stefán Karl Stefáns-
son) sem á við áfengis- og fjárhags-
vandræði að stríða; Lvov lækni
(Hinrik Hoe Haraldsson) sem stagl-
ast á eigin heiðarleika og annarra
brestum og Borkin, ráðsmanni
Ivanovs (Rúnar Freyr Gíslason),
sem hefur öll spjót úti til að ná í
skjótfenginn gróða. Einnig koma við
sögu hjónin Lébedév (Kjartan Guð-
jónsson) og hin níska Zianita (Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir), ung og
hrifnæm dóttir þeirra Sasja (Nanna
Kristín Magnúsdóttir) og káta ekkj-
an Babakína (María Pálsdóttir).
Hinn átta manna hópur nemenda-
leikhússins er bæði fríður og föngu-
legur og gefur ágæt fyrirheit um
framtíðina og hafa nokkrir nemend-
anna þegar tekið þátt í uppfærslum
atvinnuleikhúsa og -hópa. Sýningin
á Ivanov er lífleg og orka og kraftur
einkennir hópinn sem heild. Einna
best naut hópurinn sín þegar kó-
míkin réð ríkjum en jafnframt kom
reynsluleysið berast í ljós í þeim at-
riðum þar sem dramatíkin tók yfir,
til að mynda við tjáningu á örvænt-
ingu sem margar persónanna glíma
við.
Egill H.A. Pálsson fer með titil-
hlutverkið, sem er vafalaust erfið-
asta hlutverk leikritsins. Það krefst
mikils fjölbreytileika í túlkun, per-
sónan einkennist af skapsveiflum
sem spanna allt frá umhyggju og
kæti til þunglyndis og dýpstu ör-
væntingar. I raun er hér um mjög
þversagnakennda persónulýsingu að
ræða og áhorfandinn sveiflast sífellt
frá meðaumkvun til fyrirlitningai- á
honum. Egill náði vel utan um per-
sónuna, sérstaklega framan af, en
átti stundum í dálitlum vandræðum
með dekkiá hliðar hennar.
Rúnar Freyr skapaði skemmtileg-
an karakter í hlutverki Borkins ráðs-
manns. Hann var slægur, ýtinn og
fylginn sér og hafði sterka nærveru
á sviðinu. Sama má segja um Maríu
Pálsdóttur, sem iðaði af fjöri í hlut-
verki Babakínu og virðist gott efni í
gamanleikkonu. Laufey Brá vann vel
úr harmrænu hlutverki hinnar
berklaveiku, sviknu eiginkonu
Ivanovs. Hún var sú af hópnum sem
virtist hafa einna best tök á drama-
tíkinni - enda er hlutverk Önnu vel
til dramatískrar túlkunar fallið. Hin-
rik Hoe og Stefán Karl sköpuðu
skemmtilegar andstæður í hlutverk-
um læknisins og greifans; sá fyrr-
nefndi fínlegur og hikandi, þrátt fyr-
ir ofvaxið sjálfsálit og almenna fyiir-
litningu í garð annan-a; hinn síðar-
nefndi grófur, stórkarlalegur og vit-
grannur. Jóhanna Vigdís var
skemmtileg í hlutverki aurapúkans
Zianitu, hún hefur blæbrigðaríkt
andlit sem hún notaði vel til þögullar
túlkunar. Nanna Kiistín lék dóttur
hennar á sannfærandi máta, var
hæfilega barnaleg og eigingjörn
framan af og sýndi á skemmtilegan
hátt skapsveiflur hennar í síðasta
hluta verksins þegar málin þróast á
aðra leið en hún óskar.
Gestaleikarinn Kjartan Guðjóns-
son fór á kostum í hlutverki Lébedé-
vs, hins kúgaða eiginmanns Zianitu.
Kjartan er sífellt að bæta sig sem
gamanleikari og var virkilega gam-
an að fylgjast með óborganlegum
svipbrigðum hans og töktum. Guð-
jón Pedersen bætir hér einni rós i
hnappagatið með stjórn sinni á þess-
ari sýningu. Hún ber „höfundarein-
kenni“ Guðjóns, bráðskemmtilegar
sviðsetningar í anda absúrdismans
eru sem krydd í sýningunni en fara
aldrei yfir strikið. Búningar Helgu
I. Stefánsdóttur eru flotth' og sviðs-
myndin vel úthugsuð í takmarkað
lými Lindarbæjar. Lýsing Egils
Ingibergssonar setti oft á tíðum
dulúðugan blæ á sviðið og léku ljós
og skuggar vel með annarri umgjörð
sýningarinnar. Þetta er sýning fyrir
þá sem unna klassísku leikhúsi og
einnig hina sem fylgjast vilja með
vaxtarbroddi íslensks leikhúss.
Soffía Auður Birgisdóttir
Sturtuklefar
Ilö sturtuklefamir eru fáanlegir
í mörgum stærðum og gerðum,
úr plasti eða öryggisgleri.
Ifö sturtuklefamir em trúlega þeir
vönduðustu á markaðnum í dag.
Ifö sænsk gæðavara.
Ifö
ÍSLENSKI dansflokkurinn
gengst fyrir dansverkasam-
keppni í Borgarleikhúsinu í
kvöld kl. 20. Átta danshöfundar
eiga verk í keppninni: Guð-
mundur Helgason, Jóhann
Freyr Björgvinsson, Lára Stef-
ánsdóttir, Margrét Gísladóttir,
Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdótt-
ir, Ragna Sara Jónsdóttir og
Sveinbjörg Þórhallsdóttir.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
bestu verkin, að mati dóm-
nefndar.
Þetta er í fyrsta sinn sem
dansverkasamkeppni er haldin
hér á landi en markmiðið er að
veita íslenskum danshöfundum
tækifæri til að þróa list sína,
bæði þeim sem þegar hafa
skapað sér nafn og eins ungum
og upprennandi höfundum sem
lítið hafa spreytt sig til þessa.
Að sögn Valgeirs Valdimars-
sonar, framkvæmdastjóra Is-
lenska dansflokksins, er vonast
til að keppnin verði til að auka
framboð á skemmtilegum ís-
lenskum dansverkum og að hún
verði framvegis árlegur við-
burður.
í dómnefnd sitja Þórhildur
Þorleifsdóttir, leikhússtjóri
Leikfélags Reykjavíkur, Örn
Guðmundsson, skólastjóri
Listdansskóla Islands, Steven
Sheriff, ballettkennari og
fyrrverandi dansari, Ástrós
Gunnarsdóttir dansari og
Hjálmar H. Ragnarsson tón-
skáld.
Landsbanki Islands er helsti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SEX AF höfundunum sem eiga verk í keppninni í kvöld.
samstarfsaðili Dansflokksins
vegna keppninnar og veitir 1.
og 2. verðlaun, 150 þúsund
krónur og 100 þúsund krónur.
VISA-Island veitir þriðju verð-
laun, 50 þúsund krónur.
Dansverkasamkeppni
í Borgarleikhúsinu
LISE
EN flLM Af JACOB GRDNLYKXE
HJARTA LJOSSINS
Fyrsta myndin sem gerð er á Grænlensku.
★ ★★★ Aktuelt
★ ★★★ Politiken
★ ★★★ Extra Bladet
3Éyr-
IMORRÆN KVIKMYNDAh
KÓLABÍÓI 23. OKT. - 2. N
Einnig eru sýndar á hátíðinni
Barbara eftir Nils Malros
ng Dansinn eftir Ágúst Guðmundsso
mwlRHIUHR’ “■ • fiASMUSirSEflTff tL* VlVlMUftl 1-æ. IWMiniHÍH
MSfUSí wtV>4 HNKW
íMUi '■■!. mu.uKIM» »HL!H8IM!l« /.
imm> iUSH
•- «wnu»,na .*»<«>« mirmm
» uíc* umno i, tuu tmi í. miadiiuiisrtuiB
MUHKtraoi ittitttitr