Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 1

Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913 274. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Utanríkisráðherra Chile ræðir við ráðamenn á Spáni Fjáröflunarátak fyrir Palestínumenn Dómskerfi Chile sjái um mál Pinochets Clinton boðar stóraukna Reuters Kosið í Quebec GRÝLUKERTI hanga neðan úr kosningaveggspjaldi í bænum Jonquiere í Quebec-fylki í Kanada, þar sem kosið var til fylkisþings í gær. Lucien Bouchard brosir breitt á spjald- inu, en hann er leiðtogi flokks frönskumælandi aðskilnaðar- sinna, Parti Quebecois. Búizt var við að sá flokkur hrósaði sigri í kosningunum. Róm. Reuters. ÍTALSKA stjórnin, sem leitar nú logandi ljósi að lausn á deilunni um hvað gera skuli við kúrdíska skæru- liðaforingjann Abdullah Öcalan, sagði í gær að hægt væri að draga hann fyrir alþjóðlegan dómstól, en ekki væri búið að fmna út úr því hvernig það gæti gerzt. Öcalan sjálfur er reiðubúinn að koma fyrir alþjóðlegan rétt vegna þess, að hann er viss um að geta sannað sak- leysi sitt. Var það haft eftir lögfræð- ingi hans á sunnudag. Giuliano Pisapia, lögfræðingur Öcalans, kvaðst vera hlynntur því, að mál hans yrði tekið fyrir hjá al- þjóðlegum dómstól og væri Öcalan sama sinnis. Par fengi hann tæki- færi til að svara þeim ásökunum, sem á hann væru bornar, og þá væri einnig unnt að skera úr um það hvort „stríðsástand“ ríkti á milli tyrkneskra yfirvalda og Kúrda. Væri það svo yrði að taka á málinu samkvæmt þeim lögum, sem giltu um styrjaldarástand. Rosa Russo Jervolino, innanríkis- ráðherra Ítalíu, viðurkenndi í gær fyrir erlendum fréttamönnum í Róm að hvorki hún né aðrir í ríkis- stjórninni vissu að svo komnu máli hvernig dómstóll gæti uppfyilt þetta hlutverk. Vísað aftur til Rússlands? Lamberto Dini, utanríkisráð- herra Ítalíu, ræddi við utanríkis- og forsætisráðherra Rússlands í Moskvu í gær, en Öcalan kom þaðan til Ítalíu. Ekkert var gefið upp um viðræðurnar annað en að ráðherr- arnir hefðu skipzt á upplýsingum. Öcalan hefur sótt um pólitískt hæli á Italíu en fái hann það ekki er lík- legt, að honum verði vísað úr landi og þá aftur til Rússlands. Madrid, Santiago. Reuters. JOSE Miguel Insulza, utanríkisráð- herra Chile, lagði í gær að spænsk- um ráðamönnum að sjá til þess að Augusto Pinochet yrði ekki fram- seldur til Spánar, þar sem hann myndi ekki fá sanngjarna málsmeð- ferð. Insulza sagði að eftirláta ætti dómskerfi Chile að rétta yfir einræð- isherranum fyrrverandi. Jose Maria Aznar, forsætisráð- herra Spánar, áréttaði að stjórn sín myndi ekki reyna að hindra að Pin- ochet yrði framseldur tO Spánar þótt málið gæti skaðað viðskiptahags- muni landsins. Spænsk fyrirtæki vöruðu við því að Chilebúar kynnu að sniðganga spænskar vörur vegna málsins. )fAfstaða spænsku stjórnaiánnar hefur hingað til verið skýr: þetta er dómsmál, ekki pólitískt málefni, og við munum hlíta ákvörðunum Fjárlögin samþykkt Ósló. Reuters. MEÐ fulltingi hægriflokkanna var fjárlagafrumvarp minni- hlutastjórnar norsku miðflokk- anna samþykkt á Stórþinginu í gærkvöldi. Þingheimur ræddi um frum- varpið í ellefu tíma í gær, en eftir að ríkisstjórn Kjells Magne Bondeviks náði sam- komulagi við hægriflokkana í síðustu viku um stuðning við frumvarpið var ljóst að það yrði samþykkt. Verkamanna- flokkurinn og Sósíalíski vinstri- flokkurinn greiddu atkvæði á móti. spænsku dómstólanna," sagði Aznar skömmu áður en Insulza kom til Madrídar. Aznar bætti við að ef Bretar samþykktu framsalsbeiðni dómarans myndi spænska stjórnin sætta sig við þá ákvörðun. Heimildarmenn í stjórninni hafa sagt að hún vonist til þess að Bretar hafni framsalsbeiðninni. Haft var eftir ráðgjafa stjómarinnar að hún væri í miklum vanda vegna málsins og að Aznar yrði „yfir sig ánægður" ef Bretar höfnuðu framsalinu. Skrifstofustjóri forseta Chile sagði að stjórn landsins hefði fengið mörg „vinveitt ríki“ til að knýja á Breta um að hafna framsalsbeiðninni en vildi ekki greina frá því hvaða ríki það eru. Helsta forsetaefni vinstrimanna í Chile, Ricardo Lagos, hvatti til þess í gær að þingið kæmi á umbótum í dómskerfi landsins til að hægt yrði MUNKAR úr búddísku Chogye- reglunni slást hér við innganginn að hofi reglunnar í Seoul í Suður- Kóreu í gær. Ástæðan fyrir slagsmálum hiuna annars frið- sömu munka eru átök ólíkra hópa um hverjum beri að fara með forystu í reglunni, sem er þúsund ára gömul og sú stærsta í að sækja Pinochet til saka í heima- landi sínu. Lagos er talinn líklegast- m- til að verða kjörinn næsti forseti Chile í kosningum á næsta ári. Viðskiptatengsl bíða tjón Framkvæmdastjóri spænska fraktflugfélagsins ATISA sagði að pöntunum frá Chile hefði þegar fækkað um rúman helming frá því spænski dómarinn Baltazar Garzon óskaði eftir því að Pinochet yrði framseldur til Spánar svo hægt yrði að sækja hann til saka fyrir morð og pyntingar. Yftrmaður fraktflugs- deildar Iberia sagðist búast við því að útflutningurinn til Chile myndi snarminnka ef Pinochet yrði fram- seldm- til Spánar. ■ Lögsókn í Chile ólíkleg/34 landinu. Um 1000 munkar flykkt- ust í gær til höfuðborgarinnar til að reyna að ná á sitt vald bygg- ingunni þar sem aðsetur æðsta reglumeistarans er, en andstæð- ingar Songs Wol-ju, sem gegndi þeirri stöðu, ráku hann út úr byggingunni fyrir þremur vik- um. Tíu manns a.m.k. slösuðust. aðstoð Washington. Reuters. BILL Clinton Bandaríkjaforseti lagði til í gær að Bandaríkin legðu til 400 milljónir dollara - um 28 milljarða króna - aukalega í aðstoð við heimastjórn Palestínumanna, og hann hvatti önnur ríki til að auka líka efnahagsaðstoð við Palestínu- menn, þar sem gott efnahagsástand mymdi efla friðinn á þeim svæðum sem Israelar og Palestínumenn deila um. „Friður getur ekki verið varan- legm- nema hann skili venjulegu fólki einhverjum áþreifanlegum ávinningi,“ tjáði Clinton alþjóðlegri fjáröflunarsamkomu, sem kölluð var saman í einu úthverfa banda- rísku höfuðborgarinnar í gær og hafði að markmiði að safna fé til stuðnings palestínskum efnahag. Alls safnaðist sem svarar yfir 200 milljörðum íslenzkra króna, að því er Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, greindi fréttamönnum frá við lok samkom- unnar í gærkvöldi. Arafat ítrekar áform um ríkisstofnun Yasser Arafat, forseti heima- stjórnarinnar, hitti Clinton í gær. Hann sagði að þrátt fyrir víðtæka alþjóðlega efnahagsaðstoðaráætlun undanfarin fimm ár hafi efnahagur sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna farið síversnandi. Tíðum lokunum Israela á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu í kjölfar sprengitilræða væri helzt um að kenna að hin er- lenda aðstoð hefði ekki skilað ár- angri sem skyldi. Arafat ítrekaði að Palestínumenn myndu lýsa yfir stofnun eigin ríkis í maí næstkom- andi, þegar umsaminn frestur til þess, samkvæmt Oslóarsamkomu- laginu frá 1993, rennur út. Samkvæmt lokaniðurstöðum manntals, sem tók tvö ár að vinna og birtar voru í gær, eru Palestínu- menn á Vesturbakkanum, Gaza- svæðinu og í A-Jerúsalem samtals 2,9 milljónir. Samkvæmt nýlegri skýrslu heimastjórnarinnar lifa 23% fjölskyldufólks á svæðinu undir fá- tæktarmörkum. Þýzk-franski „öxullinn“ efldur Potsdam. Rcutei-s. JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, og Gerhard Schröder, kanzl- ari Þýzkalands, komu í gær saman til fyrsta þýzk-franska leiðtoga- fundarins eftir að Schröder tók við embætti. Eftir fundinn tjáði Schröder fréttamönnum að þrátt fyrir að Frakkar styddu viðleitni Þjóðverja til að fá fjárframlög sín til sameiginlegra sjóða Evrópusam- bandsins lækkuð, hefðu þeir ekki náð samkomulagi um hvernig þetta ætti að gerast. I för með Chirac var Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakk- lands, og fjöldi annarra ráðhen-a úr frönsku ríkisstjórninni, sem í gær og í dag eiga viðræður við þýzk starfssystkin sín. Aðalefni viðræðnanna, sem eru fastur liður í skipulegu pólitísku samstarfi Þýzkalands og Frakk- lands, var verkefnadagskrá ESB næsta hálfa árið, en um áramótin taka Þjóðverjar við formennsku bæði í ráðherraráði ESB og í G7- hópnum, samtökum sjö helztu iðn- ríkja heims. Reuters JACQUES Cliirac, forseti Frakklands, og Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, veifa úr glugga húss í „hollenzka hverfinu" í Potsdam, þar sem leiðtogarnir áttu í gær sinn fyrsta formlega samráðsfund eftir að Schröder tók við embætti af Helmut Kohl fyrr í haust. ítalir leita lausnar á Kúrdadeilunni Öcalan vill fyrir alþjóðlegan rétt ' Reuters Búddamunkar takast á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.