Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Forsætisráðherra um ráðgerða útsvarshækkun Gæti valdið óróa á vinnumarkaði DAVÍÐ Oddsson for- sætisráðherra óttast að fyrirhuguð hækkun útsvars í Reykjavík geti oi'ðið til þess að valda óróa á vinnu- markaði og tefla stöð- ugleika í efnahagsmál- um í tvísýnu. Hann gagnrýnir aðdraganda málsins. „Það er með ólíkind- um hvemig þetta ber að. Það er boðaður aukafundur með tveggja daga fyrirvara yfir helgi til að koma þessu í gegn sem getur ekki hafa borið svona brátt að. Undirbúning- ur fjárhagsmála ríkis og sveitarfé- laga er ekki með þeim hætti að hann gerist með tveggja daga fyr- irvara. Það er því ljóst að vond samviska ræður þama för sem vonlegt er því það er gerður samn- ingur á vinnumarkaði og það er vit- að að það er byggt á því að ákveðið skattaferli fer í gang sem á að ljúka núna um áramótin," segir forsætisráðherra. Hann segir alveg ljóst að sveit- arstjórnarmenn, og þá ekki síst borgarstjómarmeirihlutinn, hafi verið sér mjög meðvitandi um það hvað kjarasamning- amir snerust um. Vegna þeirra, stöðug- leikans í þjóðfélaginu og batnandi efnahags af þeim sökum hafi ríki og sveitarfélög fengið stóraukna fjár- muni til sín. „Þess vegna er komið aftan að laun- þegum með þessu at- hæfi og menn sjá fyrir sér hvernig framtíðin yrði þegar aðilar semja með slíkum hætti ef jafnstór aðili og Reykjavíkurborg hrifsar svo til sín þá skattalækkun sem ríkið stendur fyrir.“ Hann segir að samningarnir hafi nú verið í gildi í á þriðja ár. Þeir hafi verið gerðir fyrir síðustu kosn- ingar og þá hafi borgarstjórnar- meirihlutinn margítrekað fullyrt að skattar yrðu ekki hækkaðir. „Það hefur ekkert gerst síðan sem réttlætir útsvarshækkunina því tekjur sveitarfélaganna hafa verið að aukast. Eg óttast að það myndist órói á vinnumarkaði vegna þess að það er bersýnilega verið að hrifsa af launafólkinu síðasta áfangann sem það átti að fá núna.“ * Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra Borgin í erfíðri stöðu HALLDÓR Ásgríms- son utanríkisráðherra segist telja miður að Reykjavíkurborg skuli þurfa að hækka útsvar. Hann bendir hins vegar á að borgin sé í erfiðri stöðu og minnir á að mikii skuldasöfnun hafi verið hjá borgarsjóði áður en núverandi meirihluti tók við. „Ég tel það miður að Reykjavíkurborg skuli þui'fa að taka þessa ákvörðun. Það var ákveðið af ríkisstjórn- inni að lækka skatta í tengslum við kjara- samninga og við vænt- um þess að sveitarfé- lögin tækju þátt í þeirri ákvörðun og gengum út frá því. Með þessari ákvörðun Reykjavíkur- borgar gerist hið gagn- stæða. Hins vegar geri ég mér grein fyrir því að Reykjavíkurborg er í erfiðri stöðu vegna þess að áður en þessi meirihluti tók við völd- um var mikil skulda- söfnun hjá borginni." Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ „Lítum svo á að það ríki friðarskylda“ „ÞAÐ blasir auðvitað við að við mótmælum fyrirhugaðri hækkun útsvars í Reykjavík og óskum eftir því að það verði fallið frá henni,“ sagði Grétar Þor- steinsson, forseti Alþýðusambands íslands, aðspurð- ur um viðbrögð ASÍ við boðaðri hækkun meiri- hlutans í borgar- stjórn Reykjavíkur á hækkun út- svars úr 11,24% í 11,99%. „Við eigum auðvitað fárra kosta völ, en við lítum svo á að það ríki friðarskylda og okkar fólk skrifaði undir samninga og samþykkti þá, flestir fyn-i hluta árs 1997 og í und- antekningartilvikum um haustið 1997. Þannig að við sjáum ekki í fljótu bragði að það séu einhverjar leiðir færar hjá okkur til að bregð- ast við þessu aðrar en að mótmæla og reyna með þeim hætti að hafa áhrif á,“ sagði Grétar. Hirðir bróðurpartinn af tekjuskattslækkuninni Hann sagði að það hefði verið yf- irbragðið á umræðunni hér í sam- félaginu frá gerð síðustu kjara- samninga að reyna að sýna aðhald, og ætti það við jafnt um einstak- linga, fyrirtæki, sveitarfélög og stjórnvöld, meðal annars til að halda verðbólgustiginu í skefjum. Það hefði reyndar tekist til þessa þótt menn hefðu stigið mörg víxl- sporin og gengið hefði á ýmsu. „Við höfum hins vegar varað við því allt frá lokum síðastliðins árs að það væri ákveðin hætta á að þessi atburðarás færi af stað. Að vísu byrjaði hún aðeins um síðustu ára- mót þegar nokkur lítil sveitarfélög hækkuðu útsvar, en það hafði hins vegar tiltöiulega lítil áhrif á stað- greiðsluna. Það er auðvitað allt annað þegar við komum að þessu stóra sveitarfélagi. Við höfum einfaldlega varað við þessu vegna samninga sem sum sveitarfélög hafa verið að gera við hluta af sínum starfsmönnum, þar sem hefur verið samið um mun meiri hækkanir en gerðist á al- menna markaðinum. Það verður auðvitað einhvers staðar að taka þennan kostnaðai-auka, þannig að við höfum óttast þessa atburðarás. Nú er þetta langstærsta sveitarfé- lag á landinu að hirða bróðurpart- inn af tekjuskattslækkuninni sem á að koma tO framkvæmda 1. janúar og við sáum fyrir okkur sem kaup- máttarauka fyrir okkar fólk, en ekki að það færi í hækkun útsvars, hvorki í Reykjavík né annars stað- ar,“ sagði Grétar. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ Gagnrýni- verð út- gjaldaþensla ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands Islands, segir það vonbrigði hvernig fjármál sveitarstjómar- stigsins í landinu hafi verið að fara úr böndunum. Gríðarlegur halli hafi verið á rekstri sveitarfé- laga í fyrra og áframhaldandi hallarekstur verði á þessu ári. Sveitarstjórnarmenn virðist hafa verið að taka ákvarðanir um að auka hlutdeild sveitarstjórnanna í ráðstöfun á aflafé almennings. Hann segir að ekki þurfi að koma á óvart að þessi útgjalda- þensla hafi orðið því teknar hafi verið ákvarðanir um mjög dýra liði eins og einsetningu grunnskólans sem eigi að koma fram á mjög skömmum tíma. „Það hefur óhjákvæmilega vald- ið ei’fiðleikum í mönnun á þessari þjónustu. Við sjáum líka að launa- hækkanh' í samningum hins opin- bera, þá ekki síst hjá grunnskólum og leikskólum, hafa verið meiri en gerist annars staðar. Ef sveitar- stjórnarstigið hækkar laun meira en laun annars staðar hækka, jafn- gildir það ákvörðun um það að sækja stærri hlut af launum ann- aiTa til að bera þann kostnað. Við höfum varað við þessari þróun. Ut- gjaldaþenslan er gagnrýniverð en annað er afleiðing sem menn sitja uppi með,“ sagði Þórarinn. Fundur formanna lands- sambanda innan ASI Skattahækk- un harðlega mótmælt FUNDUR formanna landssam- banda innan Alþýðusambands ís- lands, sem haldinn var í gær, mót- mælir harðlega fyrirhugaðri skattahækkun meirihlutans í borg- arstjórn Reykjavíkur og skorar á borgarstjórn að hverfa frá þessum fyrirætlunum. I yfirlýsingu sem þeir hafa sent frá sér minna formenn landssam- banda innan ASÍ á að Alþýðusam- band íslands og einstök landssam- bönd og félög innan þess hafi ítrek- að varað við þenslu og verðhækk- unum hjá hinu opinbera. Sveitarfé- lög hafi verið að auka útgjöld sín langt umfram það sem þau hafi svigrúm til og þannig sýnt ábyrgð- arleysi sem nú bitni á almennu launafólki. „Launafólk á almennum vinnu- markaði samdi á giundvelli áfram- haldandi stöðugieika og lágrar verðbólgu. Það er óþolandi að al- mennu launafólki sé einu gert að standa undir þessum markmiðum ásamt því að greiða með skatta- hækkunum þann kostnað em hefur m.a. orðið til vegna umframhækk- ana til annaiTa hópa. Formenn landssambanda innan ASI lýsa áhyggjum sínum af því að þessi skattahækkun sé aðeins upp- hafið að skriðu hækkana, bæði á útsvari og ýmsum þjónustugjöld- um þar sem mörg sveitarfélög nýta nú þegar til fulls heimildir sínar til skattheimtu í gegnum útsvar. Með hækkunum sveitarfélaga á sköttum og þjónustu er verið að hirða stóran hluta af því eina pró- sentustigi sem staðgreiðsla á að lækka um nú um áramótin og félög innan ASI náðu fram í tengslum við síðustu kjarasamninga á al- mennum vinnumarkaði. Skatta- hækkanir sveitarfélaga á borð við þær sem Reykjavíkurborg hefur boðað rýra kaupmátt launafólks og hafa hlutfallslega mest áhrif á ráð- stöfunartekjur þeirra heimila sem minnst hafa fyrir,“ segir í yfirlýs- ingu formannafundarins. Dagsbrún og Framsókn gagnrýna hækkun útsvars Bitnar hart á félags- mönnum STÉTTARFÉLAGIÐ Dagsbrún og Framsókn gagnrýnir harðlega ráðgerða hækkun útsvars í Reykjavík. Halldór Björnsson, for- maður félagsins, segir að félagið líti á þessi áform sem brot á þeim kjarasamningum sem félagið stóð að. Þetta muni bitna hart á félags- mönnum því stærstur hluti þeirra sé búsettur í Reykjavík. „Það er mjög erfitt að kyngja þessu þegar framundan eru skatta- lækkanir sem samið var um í síð- ustu samningum og þar að auki er síðasta launahækkunin að koma líka. Við erum því vægast sagt mjög óhress með þetta,“ sagði Halldór. Hann segir að leiða megi líkum að því að umframhækkanir sem aðrar stéttir en félagsmenn innan ASÍ hafi fengið liggi til grundvallar ákvöi'ðuninni um hækkun útsvars- ins. „Á sínum tíma vöruðum við al- varlega við þessari þróun og lýst- um því að þessar stéttir og við- semjendur þeiiTa, þar með talin Reykjavíkurborg, bæru fulla á ábyrgð á þessu. Við bentum á að þetta væri ávísun á skattahækkan- ir og það er núna að koma í ljós. Við teljum að það sé mjög slæmt mál fyrir meirihluta borgarstjórn- ar að standa svona að málum,“ seg- ir Halldór. Formaður Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur Högg í andlit verkalýðs- hreyfingar- innar MAGNÚS L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur, segir að fyrirhuguð hækkun á útsvari Reykvík- inga sé óskaplegt högg í andlit verkalýðshreyf- ingarinnar. „Það liggur al- veg ljóst fyrir að þegar verkalýðs- hreyfingin var að gera kjarasamn- inga á síðasta ári var markmiðið með þeim launahækkunum, sem þá var samið um, ekki að mæta hækk- un útsvara heldur fyrst og fremst að semja um kaupmáttarauka," sagði Magnús. Harðar umræður um útsvar INGIBJÖRG Sólnín Gísladóttir borgarstjóri, Helgi Hjörvar borg- arfulltrúi og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi ræddu sanian á borgarstjórnar- fundinum í gærkvöldi þegar um- ræður um hækkun á útsvari stóðu sem hæst. Hann sagði að hluti af þeim aukna kaupmætti sem verkalýðs- hreyfingin horfði til og mat við gerð samninganna, og auðvitað hefði haft áhrif á endanlega samn- ingagerð, hefði verið fyrirheit rík- isstjórnarinnar um verulega lækk- un á tekjuskattsprósentunni. „Að fá svo núna tilkynningu um það að Reykjavíkurborg ætli að hækka útsvarið nánast sem nemur þeirri lækkun sem á að koma um næstu áramót frá ríkisvaldinu er alveg ótrúlegt að skuli gerast," sagði Magnús. Launþegum sendur reikningurinn Hann sagði að þó að sveitarfé- lögin hefðu ekki verið með beinan samning eða yfirlýsingu við verka- lýðshreyfinguna þegar samningar voru gerðir í fyrra hafi allir verið sér meðvitandi um að tekjuskatts- lækkunin væri hluti af því sem verkalýðshreyfíngin hefði byggt sína samninga á og lagði traust sitt á að yrði staðið við þannig að sá kaupmáttur sem samið var um myndi ganga eftir. „Ég vil vekja athygli á því að með þeim aukna kaupmætti sem orðið hefur í kjölfar samninganna í fyrra og bættum efnahag í þjóðfé- laginu hafa tekjur sveitarfélag- anna, og ekki síst Reykjavíkur, stóraukist. Það er því mjög alvar- legt að það skuli gerast á sama tíma að þegar stórauknar tekjur sveitarfélagsins koma í kjölfar kjarasamninganna skuli vera grip- ið til þess að hækka útsvarið sem þessu nemur og nánast þurrka út þá skattalækkun sem ríkisvaldið hét. Það er umhugsunarefni fyrir okkur að eftir kjarasamninga verkalýðshreyfingarinnar í fyrra hafa sveitarfélögin, og þar á meðal Reykjavfkurborg, verið að semja um meiri launahækkanir en þá var talið fært að semja um og nú senda þeir þessum launþegum reikning- inn,“ sagði Magnús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.