Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 79
Þórdís Halla Jónsdóttir
Nanna Hermannsdóttir
LEIÐRÉTT
Myndavíxl
I blaðinu Jólamatur, fondur og
gjafir sem út kom síðastliðinn laug-
ardag víxluðust tvær myndir af
bömum sem voru að tala um jólin.
Myndin af Þórdísi Höllu Jónsdótt-
ur birtist með texta Nönnu Her-
mannsdóttur og myndin af Nönnu
birtist með texta Þórdísar Höllu.
Beðist er velvirðingar á þessum
leiðu mistökum.
Einnig misritaðist nafn annars
barns, hið rétta er Ragnar Auðun
Arnason, ekki Auðunn.
Alþingismenn fengu
leikhúsmiða
I frétt í blaðinu á sunnudag, þar
sem Bandalag íslenskra leikfélaga
færði forseta Alþingis leikhúsmiða
að gjöf, var sagt að hann einn og
sér hefði fengið slíkan miða en það
voru víst allir alþingismenn sem
það fengu. Beðist er velvirðingar á
mistökunurn.
0
EFTIRMENNTUN
VÉLSTJÓRA
Munið
námskeiðið um
VIÐHALDS-
STJÓRNUN 1
10.-, 11.-og
12. desember
Hafið samband!
^Vélstjórafélag íslands,
Eftirmenntun vélstjóra,
sími: 562 9062,
veffang: www.vsfi.is
Heilbrigðisstétt-
ir og fortíðin
JÓN Ólafur ísberg, sagnfræðing-
ur, flytur fyrirlestur í boði Sagn-
fræðingafélags íslands miðviku-
daginn 2. desember sem hann
nefnir: „Heilbrigðissaga og félags-
saga.“
„Fundurinn er haldinn í Þjóðar-
bókhlöðu á 2. hæð í hádeginu kl.
12.05-13 og er hluti af fyrirlestra-
röð Sagnfræðingafélagins sem
nefnd hefur verið: „Hvað er fé-
lagssaga?" Fyrirlestur Jóns Ólafs
er sá þrettándi í röðinni og eru all-
ir áhugamenn um sagnfræði
hvattir til að koma á fundinn.
ítrekað er að fundurinn er á mið-
vikudegi, en ekki þriðjudegi eins
og verið hefur í haust. Utlit er fyr-
ir að þetta verði síðasti hádegis-
fundur ársins 1998. Jón Ólafur
hefur meistaragráðu í sagnfræði
frá Háskóla Islands og hefur á
undanförnum árum unnið að rann-
sóknum á sögu læknavísinda.
Hann mun kynna nýja strauma á
því sviði í fyrirlestrinum, auk þess
að tengja þá vettvangi félagssög-
unnar.
Fyrirlestrar á hádegisfundum
Fasteignir á Netinu 1 vlljmbl.is
Fréttir á Netinu íþróttir á Netinu
mbl.is /\L.L.TAF= Œ/TTH\SA0 A/ÝT7 mbl.is ALLTAT= G/TTH\SAG A/ÝT7
Sagnfræðingafélagsins í vetur eru
haldnir í samvinnu við Rannsókn-
arstofu í kvennafræðum. Athygli
er vakin á því að fundarmenn geta
fengið sér matarbita í veitingasölu
Þjóðarbókhlöðunnar og neytt hans
meðan á fundinum stendur," segir í
fréttatilkynningu.
Lögreglan
lýsir eftir
sjónarvottum
MIÐVIKUDAGINN 25. nóv-
ember sl. kl. 14.26 varð ungur
piltur, á línuskautum, fyrir bif-
reið við norðurenda Gullinbrú-
ar.
Þeir sem kunna að hafa verið
sjónarvottar að þessu slysi, eða
kunna frá einhverju að segja
það varðandi, eni vinsamlega
beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík, sími
569 9200 eða í síma 567 0111.
Innflutningur
fíkniefna oa
Umræðuefni í
þessari bók
Ómissandi rit fyrir
áhugamenn um
stjórnmál
HÁSKÓLAÚTGÁFAN
S. 525-4003 • hu@hi.is
wmms
Chamaecyparis lawsoniana „Ellwoodii“
Jólasýprisinn
er til 1 mörgum
stæröum
• Þessi sýpris er mikið notaður í JÓLASKREYTINGAR
og tekur sig vel út skreyttur rauðum gerviberjum og
slaufum.
• EINNIG ER KJÖRIÐ að nota þennan sýpris sem
tímabundið skraut í stofum, í kerjum á dyrapöllum
við útidyr eða á legstaði. Hann heldur sér
fagurgrænum allan veturinn, en þarfnast
endurnýjunar þegar vorar.
• Sé hann notaður sem stofuskraut er áríðandi að
vökva vel svo að moldin þorni aldrei upp. Plantan
þolir stofuhita nokkuð vel, en meiri líkur eru á að
hún dafni til frambúðar þar sem ekki er of heitt á
henni.
• Ellwoods-sýprisinn getur staðið úti í görðum á
sumrin og langt fram á haust. Á veturna getur
plantan staðið í óupphituðum gróðurskálum eða
útigeymslum.