Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forsætisráðherra gagnrýnir
hækkun útsvars í Reykjavík
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
gagnrýndi á Alþingi í gær tillögur
R-listans um hækkun útsvars
Reykvíkinga og sagði að með því
væri verið að taka í burtu skatta-
lækkun ríkisstjórnarinnar sem
launþegahreyíingin hefði treyst á.
Páll Pétursson félagsmálai-áðhen-a
kvaðst hins vegar ósammála for-
sætisráðherra og taldi eðlilegt að
sveitarfélögin fullnýttu útsvai'ið til
að mæta fjárhagshallanum. „Ég
tel ekkert óeðlilegt við það að út-
svarið sé hið sama í Reykjavík og
Kópavogi," sagði hann m.a.
Umræðurnar hófust með því að
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur jafnaðarmanna, spurði forsætis-
ráðherra að því í óundirbúinni fyr-
irspurn hvort hann teldi ekki
ástæðu til þess í góðærinu að fella
niður skattlagningu á desember-
uppbót lífeyrisþega. Davíð Odds-
son sagði m.a. í svari sínu að það
væri sjálfsagt og eðlilegt að skoða
skattamál í víðtæku samhengi um
þessar mundir og að menn færu
vai'lega í allri skattheimtu. „Það
hefur ríkisstjórnin verið að leitast
við að gera með því að iækka
skatta samfellt, lækka skattpró-
sentuna. Því miður lendum við nú í
því, eins og nýkunnar fréttir eru
um, að aðilar, til að mynda höfuð-
borgin sjálf, ráðast á fólk með því
að taka þá skattalækkun í burtu,“
sagði hann og tók fram að honum
væri ekki fært að öðru leyti að fara
inn í einstaka þætti skattamála í
óundirbúinni fyrirspurn.
Jóhanna tók upp hanskann fyrir
Reykjavíkurlistann og sagði m.a.
að hækkun útsvarsins væri m.a.
vegna skuldahalans sem sjálfstæð-
ismenn hefðu skilið eftir sig þegar
þeii' létu af völdum í Reykjavík.
Davíð sagði á móti að það sem
gerðist nú með tveggja daga fyrir-
vara á fundi borgarstjórnar væri
ekki í neinum tengslum við það
sem hefði gerst í borgarstjórn fyr-
ir fimm árum.
Sameining orkufyrir-
tækja borgarinnar
Eigið fé
verði ekki
undir 70%
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu um að færa niður eigið fé nýs
orkufyrirtækis borgarinnar þannig
að eiginfjárhlutfall þess verði ekki
undir 70%. Jafnframt er gert ráð
fyi'ir að fyrirtækið gi'eiði lækkunina
með skuldabréfaútgáfu og að tryggt
verði að greiðslubyrði þeirra valdi
ekki hækkun á gjaldskrá fyrii'tæk-
isins eða að arðgreiðslur til eigenda
íþyngi rekstrinum.
í tillögu borgarfulltrúa Reykja-
víkurlista, segir að eins og fram
komi í ársreikningum borgarinnar
fyi'ir árið 1997 hafi eiginfjárhlutfall
Rafmagnsveitu Reykjavíkur verið
92% og Hitaveitu Reykjavíkur 91%.
Bent er á til samanburðar að eigin-
fjárhlutfall orkufyrirtækja í ná-
grannalöndunum sé um 40-50%.
Fram kemur að eftir sameiningu
rafmagnsveitu og hitaveitu verði
eiginfjárhlutfall nýja fyrirtækisins
um 92% að óbreyttu án þess að tek-
ið sé tillit til vanmats eigna. Ef
eignarhlutur Landsvirkjunar er
undanskilinn frá þeim eigum raf-
magnsveitunnar sem flytjast yfir í
nýja fyrirtækið verði það miklu
hæiTa en almennt gerist um hlið-
stæð' fyrirtæki. Bent er á að við
sameiningu tveggja eða fleiri fyrir-
tækja er yfirleitt lagt mat á allar
eignir og skuldir og þær færðar til
raunvirðis fyi-ir sameiningu þannig
að tryggt verði að raunvirði eigna
og skulda hvers aðila endurspeglist
í reikningum nýja fyrirtækisins.
---------------
Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn
Ekki enn
sótt um
skráningu
EKKI hefur enn verið sótt um
skráningu á nafni Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins hjá Hagstofu ís-
lands. Ekki liggur því fyrir hvort
Hagstofan samþykkir þetta nafn.
Sem kunnungt er hefur Sverrir
Hermannsson og fleiri stofnað
Frjálslynda flokkinn og Ástþór
Magnússon og fleiri hafa skráð og
eiga nafnið Lýðræðisflokkurinn.
Ástþór hefur formlega mótmælt því
að Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
kalli sig því nafni.
Fjárframlög ríkisins til
SR-mjöls á þremur árum
Rúmar 632
milljónir króna
að núvirði
BEIN fjárframlög
ríkisins til SR-
mjöls á árunum
1993, 1994 og 1996
voru samtals rétt
rúmar 632 milljón-
ir króna á verðlagi
þessa árs. Fram-
lögin voru í formi
yfirtekinna skuld-
bindinga og sam-
kvæmt dómsniðurstöðum. Þetta
kemur m.a. fram í skriflegu svari
Geirs H. Haarde fjármálaráðherra
við fyrirspurn Svavars Gestssonar,
þingmanns Alþýðubandalags.
Þingmaðurinn spurði um fjárfram-
lög ríkisins til SR-mjöls á síðustu
tíu árum en í svarinu kemur fram
að ekki hafi verið um kostnað ríkis-
ins að ræða önnur ár en hér hafa
verið nefnd.
I svarinu kemur fram að fram-
reiknaður kostnaður ríkisins vegna
yfirtekinna lána hafi verið rúmar
400 millj. fyrir árið 1993, fram-
reiknaður kostnaður vegna yfirtek-
inna lífeyrissjóðsskuldbindinga
■ ’ik
m a i, ■,
ALÞINGI
hafi verið rúmar
188 millj. fyrir árið
1994 og að fram-
reiknaður kostnað-
ur vegna biðlauna
samkvæmt dómi
Hæstaréttar hafi
verið yfir 12 millj.
auk vaxta fyrir ár-
ið 1996. Þingmað-
urinn spurði að því
hvort þessi kostnaður ríkisins
vegna SR-mjöls hefði verið endur-
greiddur en í svarinu segir að svo
hafi ekki verið enda tengist kostn-
aðurinn að langmestu leyti breyt-
ingu á fyrirtækinu í hlutafélag og
sölu þess til einkaaðila. í svarinu
segir ennfremur að þegar hluta-
bréf ríkissjóðs í SR-mjöli hafi verið
seld árið 1993 hafi verið greiddar
fyrir þau um 793 milljónir króna á
núgildandi verðlagi. Þá segir að
nafnvirði hlutabréfa fyrirtækisins
sé nú 947 millj. kr. og að gengi sé
4,0. Markaðsvirði félagsins sé því
3.788 millj. kr.
Svar viðskiptaráðherra um íbúð
Búnaðarbankans í Lundúnum
ÓLAFUR G. Einarsson forseti Alþingis verður næsti formaður
bankastjómar seðlabanka íslands.
Óljóst hve margir
aðilar fengu af-
not af íbúðinni
SAMTALS 40 manns fengu afnot af
íbúð Búnaðarbanka íslands í Lund-
únum á árunum 1994 til 1997 sam-
kvæmt minnisbókum bankans frá
árunum 1996 til 1997 og tölvuskrá
bankans um þá sem gistu í íbúðinni
árin 1994 og 1995. Af þessum fjöru-
tíu voru 7 almennir starfsmenn, 19
yfirmenn aðrir en bankastjórai', 3
bankastjórar, 4 bankaráðsmenn og
7 aðrir.
Þetta kemur m.a. fram í skriflegu
svari Finns Ingólfssonar viðskipta-
ráðherra við fyrirspum Ástu R. Jó-
hannesdóttur, þingmanns jafnaðar-
manna. I svarinu er hins vegar
gerður sá fyrirvari á fyrrgreindum
tölum að ekki sé hægt að fullyrða að
þær upplýsingar sem fram koma í
umræddum minnisbókum eða
tölvuskrá séu tæmandi. í svarinu
kemur einnig fram að öðram minn-
isbókum en frá áranum 1996 til
1997 hafi verið fargað og að fyrr-
greind tölvuskrá hafi verið byggð á
minnisbókum frá áranum 1994 til
1995 en ekki liggi fyrir að hún hafi
verið yfirfarin eða staðfest. Þá er í
svarinu ítrekað að bankinn hafi
staðfest sérstaklega að engar gesta-
bækur úr íbúðinni væra til í fóram
bankans.
í fyrirspum sinni óskar Ásta eftir
upplýsingum um þá sem fengið hafa
afnot af íbúð Búnaðarbankans í
Lundúnum frá því hún var tekin á
leigu í byrjun níunda áratugarins,
en í svarinu segir að samkvæmt
fyrrgreindu liggi upplýsingar um
það ekki fyrir.
Alþingi kýs full-
trúa í bankaráð
Seðlabanka
✓
Islands
ALÞINGI kaus í gær fimm aðal-
menn og fimm varamenn í
bankaráð Seðlabanka íslands til
fjögurra ára frá 1. nóvember
1998 til 31. október árið 2002.
Ólafur G. Einarsson alþingismað-
ur, Davíð Aðalsteinsson bóndi og
Ingunn Sveinsdóttir viðskipta-
fræðingur voru tilnefnd sem að-
almenn af sfjórnarflokkunum en
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri og Ragnar Arnalds alþing-
ismaður voru tilnefndir sem aðal-
menn af stjórnarandstöðunni.
Erna Bryndís Halldórsdóttir
löggiltur endurskoðandi, Finnur
Þór Birgisson lögfræðingur og
Leó Löve lögfræðingur voru til-
nefndir sem varamenn af stjórn-
arfiokkunum en Margrét Hin-
riksdóttir lögfræðingur og Krist-
ín Sigurðardóttir viðskiptafræð-
ingur voru tilefnd sem varamenn
af stjórnarandstöðuflokkunum.
Andlát
HELGI HANNESSON
HELGI Hannes-
son, kennari og
fyrrverandi forseti
Álþýðusambands
Islands, er látinn,
91 árs að aldri.
Helgi fæddist 18.
apríl árið 1907 að
Dynjanda í
Grannavíkur-
hreppi, sonur
Hannesar Helga-
sonar sjómanns og
Jakobínu Ragn-
heiðar Guðmunds-
dóttur. Helgi lauk
unglingaskóla á
Isafirði og kennaraprófi árið
1931. Hann kenndi við bama-
skólann á ísafirði í nokkur ár og
síðar við iðnskólann þar og á
námskeiðum hjá Fiskifélagi Is-
lands.
Helgi var famkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins á áranum
194ÍM5 og starfsmaður í félags-
málaráðuneytinu
árið 1947. Hann var
bæjarstjóri í Hafn-
arfirði árin 1948-54
og fulltrúi hjá
Tryggingastofnun
ríkisins frá
1954-1977. Helgi
var forseti Alþýðu-
sambands Islands
frá 1948-1954.
Hann gekkst fyr-
ir stofnun Samtaka
sykursjúka árið
1971 og var formað-
ur samtakanna til
ársins 1979 og heið-
ursfélagi. Helgi var forseti
Landssambands bindindisfélags
ökumanna og heiðursfélagi auk
þess sem hann var formaður
Ábyrgðar, tryggingafélags bind-
indismanna. Helgi var einnig
heiðursfélagi Verkalýðsfélagsins
Baldurs á Isafirði og formaðm'
félagsins í tíu ár.