Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sorphirðugjald tekur við af tunnuleigu Fasteignaskattar lækka um 0,046% BORGARRAÐSFULLTRUAR Reykjavíkurlistans hafa lagt fram tillögu um lækkun fasteignaskatts fyrir íbúðarhúsnæði úr 0,421% af fasteignamati í 0,375% frá og með árinu 1999. Jafnframt að tekið verði upp sorphirðugjald vegna íbúðai-hús- næðis og að í fyrstu verði miðað við fjölda og stærð íláta en síðar verði gjaldið miðað við þyngd sorps og fjölda íláta. Lagt er til að gjaldið verði sex þús. á ári miðað við viku- lega tæmingu en 5.500 ef tæmt er á tíu daga fresti. Sérstök tunnuleiga fellur niður frá sama tíma. I tillögunni er einnig gert ráð fyrir að árlegt sorphirðugjald fyrir at- vinnuhúsnæði verði óbreytt eða 7.800 krónur fyrir vikulega tæmingu og 7.000 krónur ef tæmt er á tíu daga fresti. Þá verður gerð umfangs- mikil tilraun á næsta ári með tæm- ingu á tíu daga fresti og verður sorp- hirðugjaid lægra í þeim borgarhlut- um. Ennfremur er lagt til að hafín verði víðtæk tilraun með vigtun sorps frá heimilum og er stefnt að því að 1. janúar árið 2000 verði mögulegt að breyta gjaldski'á þannig að miðað verði við fjölda íláta og sorpmagn og skal síðari hluti næsta árs verða notaður til kynningar á fyrirhugaðri innheimtu fyrir hirð- ingu og eyðingu á innvegnu sorpi frá hverju heimili. Haft áhrif á kostnað í greinargerð með tillögunni segir að sú stefna hafi rutt sér til rúms að sá sem mengar skuli bera af því kostnað. Því hafí verið tekið upp sorphirðugjald sem standi að hluta eða öllu leyti undir kostnaði við hirð- ingu sorps og eyðingu þess. Borgar- búar muni sjálfir geta haft áhrif á sinn kostnað með því að flokka sorp meira en nú er og koma til eyðingar þegai- farið er að vigta sorp eins og að er stefnt. Með viðmiðun við þyngd fáist hvati fyrir almenning til að minnka sorpmagn og þar með kostn- að við hirðingu og að einhverju leyti eyðingu. Gert er ráð fyrir að sorphirðu- gjaldið standi undir um 80% af kostnaði við sorphirðu frá íbúðarhús- næði og að sorphirðugjald við at- vinnuhúsnæði endurspegli raunveru- legan kostnað bæði af söfnun eða hirðingu og af förgun eða eyðingu. Fram kemur að sorphirðugjald af íbúðarhúsnæði er liður í umhverfis- stefnu borgarinnar en ekki hugsað sem sérstakur tekjuauki fyrir borg- arsjóð og er því lagt til að fasteigna- skattur á íbúðarhúsnæði lækki úr 0,421% í 0,375% af fasteignamati. I greinargerðinni segir að gert sé ráð fyrir að frá og með 1. janúar árið 2000 verði sorp almennt vigtað í borginni og að sorphh-ðugjald taki annars vegar mið af ijölda íláta og hins vegar af innvegnu sorpi. Reynsla erlendis frá bendi til þess að sorpmagn frá heimilum sem sveitar- félagið sjái um að hirða gæti minnk- að um 20-30% ef sorphirðugjald er að hluta háð sorpmagni. Til lengri tíma litið er stefnt að aukinni flokk- un húsasorps en ekki er gert ráð fyr- ir að flokkun lífræns sorps hefjist fyn' en eftir 3-4 ár og þá samtímis á öllu höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið/Ásdís Við borgum ÆTLI það sé ekki vissara að setja eitthvað í stöðu- eina rétta. Verst er þegar réttu myntina vantar. Er mælinn og taka enga áhættu með sekt? Trúlega það kannski hægt að koma upp skiptimyntasjálfsala? Jarðskjálfti upp á 3,8 á Richter í gær Ljósmynd/Oddur Stefánsson SKJÁLFTINN í gær átti upptök sín á mótum Sveifluháls (hryggurinn lengst til vinstri) og Kleifarvatns og mældist 3,8 á Ricter. Engar skemmdir voru tilkynntar. „Snöggt höggí skamma stund4< JARÐSKJÁLFTI upp á 3,8 á Richt- er, sem átti upptök sín um 6 km norðnorðaustan við Krísuvík eða á mótum Sveifluháls og Kleifarvatns, fannst í gær klukkan 10.41. Nokkrir vægai’i eftirskjálftar komu í kjölfai'- ið, en búist var við að hrinunni linnti að sólarhring loknum. Fólk af höfuð- borgarsvæðinu tilkynnti Veðurstof- unni að það hefði orðið skjálftans vart og lýsti honum sem „snöggu höggi í skamma stund“ að sögn Ragnars Stefánssonai', jarðskjálfta- fræðings hjá Veðurstofu íslands. Ragnar sagði að ekki væri ólíklegt að samhengi væri á milli skjálftans og annarra skjálfta sem komið hafa í haust. „Það hefur ekki verið neitt sérstakt um að vera á þessu svæði nokkuð lengi, en spennubreytingar sem hafa átt sér stað austar á skag- anum og í Ölfusi geta breitt úr sér og hafa því áhrif á að það losnar eitt- hvað úr læðingi þarna líka,“ sagði Ragnar. Aðspurður hvernig Ragnar túlkaði skjálftann, sagði hann að hann væri ósköp venjulegur brotaskjálfti. „Skjálftanum hafa fylgt nokkiii' eft- irskjálftar upp á 2-2,5 á Richter. Hann fannst mest í húsnæði Krísu- víkursamtakanna, sem er í 6 km fjar- lægð frá upptökunum," sagði Ragn- ar. Óskað eftir afstöðu lögreglunnar V ínveitingaley fí afturkölluð? BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu um að óskað verði eftir afstöðu lögreglunnar í Reykjavík til þess hvort rannsóknir á skattskilum veitingahúsa gefí tilefni til að aftur- kalla vínveitingaleyfí. í tillögunni segir að ítrekaðar fréttir hafi borist af meintum skattsvikum einstakra vínveitinga- húsa í Reykjavík og að þrátt fyrir að verulegur árangur hafí náðst á undanfórnum árum hvað varðar skil á opinberum gjöldum þá sé ljóst að enn sé víða pottur brotinn og að ki'öfur borgarinnar hafi ekki verið uppfylltar. Því óski borgarráð eftir afstöðu lögreglunnar í Reykja- vík til þess hvort rannsóknir á skattskilum þessara aðila og mögu- legri svartri atvinnustarfsemi gefí tilefni til afturköllunar á vínveit- ingaleyfi. Um 100 manns á ráðstefnu um þróun í lýðheilsu og læknisfræði Samband milli heilsufars barna og þjóðfélags- stöðu foreldra RÁÐSTEFNA um nýjungar og þró- un í lýðheilsu og læknisfræði var haldin í gær í Reykjavík í tilefni af því að Ólafur Ólafsson landlæknir lét þá af störfum en Sigurður Guð- mundsson tekur við embættinu í dag. Matthías Halldórsson aðstoðarland- læknir sagði ráðstefnuna vel sótta en þar voru fluttir yfír 20 fyrirlestrar. Meðal erinda á ráðstefnunni má nefna umfjöllun Valgerðar Baldurs- dóttur læknis sem hún kallaði gleymdu bömin og fjallaði um börn með geðræn vandamál, erindi Ara Jóhannessonar yfírlæknis um bein- þynningu sem forvarnir 21. aldar- innar, erindi Brynjólfs Mogensens yfírlæknis um að eingöngu forvarnir geti fækkað slysum og umfjöllun Jósefs Blöndal yfírlæknis um nýj- ungar í meðferð bakkvilla. Matthías Halldórsson flutti erindi um heilbrigði barna og þjóðfélags- stétt. Greindi hann frá þeirri niður- stöðu sinni sem fengist hefur í nor- rænni könnun meðal 15 þúsund fjöl- skyldna á öllum Norðurlöndunum að fylgni sé milli þjóðfélagsstöðu foreldra, þ.e. ráðstöfunartekna, menntunar og atvinnu, og heilsufars barna þeirra. Segir Matthías sam- band finnast í þessum atriðum, heldur meira í Danmörku og Sví- þjóð en t.d. hjá íslendingum. Spurt var um 13 viðvarandi sjúkdóma, sykursýki, offitu og fleiri og síðan um ýmis einkenni, svo sem maga- veiki, svefnleysi, bakverki, lystar- leysi og hvort börn hefðu þessi ein- kenni oftar en aðra hverja viku og meira en lítilvæg einkenni. Segir Matthías veikindi almennari hjá Morgunblaðið/Kristinn RÁÐSTEFNU um þróun í lýðheilsu og læknisfræði sóttu kringum 100 manns. Ólafur Ólafsson Iandlæknir var meðal fyrirlesara og Ingibjörg Pálmadóttir ávarpaði ráðstefnungesti. þeim sem verr séu settir í þjóðfélag- inu. „Þetta er auðvitað í fyllsta máta óréttlátt gagnvart þessum börnum en spurning er hvaða skýring er á þessu,“ segir Matthías. „Að ein- hverju leyti geta erfðir ráðið, lífsstíll foreldra, t.d. hvort þeir reykja og hvort börn verða þá fyrir óbeinum reykingum og líði fyrir það. Verið getur líka að það að vera í minni- hlutahópi, sem hefur það á einhvern hátt verra en aðrir efnahagslega, geti framkallað streitueinkenni sem koma niður á heilsufarinu almennt. Hugsanlegt er að allt komi þetta sem sagt gegnum streituhormón lík- amans, að streitan innan fjölskyld- unnar sem berst í bökkum geti orðið til þess að börnin fá fleiri sjúkdóma en aðrir.“ Meðal aðgerða til varnar segir Matthías koma til greina að efla heilsurækt í skólum, að nemendur verði fengnir til að styrkja sjálfir heilsufar sitt með beinum aðgerðum fremur en fræðslu, að skapa nem- endum verðug og næg verkefni til að þeir leiðist síður út í vímuefnanotk- un. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur hvatt til verkefna af þessum toga í 40 löndum og er verið að kanna hvort slíku verði komið á hér. Rannsókninni hefur verið stjórn- að frá Norræna heilsuverndarhá- skólanum í Gautaborg en Matthías hefur starfað að sínum hluta rann- sóknanna gegnum Erasmus-háskól- ann í Rotterdam.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.