Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 22

Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 MORGUNBLADIÐ LANDIÐ Málefni atvinnulausra Grunnskólamót á Norðurlandi vestra Strákarnir frá Blöndu- ósi og stelpurnar frá Siglufirði sigruðu Blönduösi NEMENDUR grunnskólanna á Norðurlandi vestra héldu sitt. árlega knattspyrnumót á dög- unum í íþróttahúsinu á Blönd- uósi. Flestir skólar á svæðinu sendu Iið til keppni og eftir margan svitadropann stóðu stúlkurnar í Grunnskóla Siglu- fjarðar og piltarnir í grunnskól- anum á Blönduósi uppi sem sig- urvegarar. Siglfirsku stúlkurn- ar sigruðu skólasystur sínar frá Siglufirði í úrslitaleik með einu marki gegn engu. Skólapiltarnir frá Blönduósi signiðu siglfírsku piltana í framlengdum úrslita- leik með tveimur mörkum gegn einu. Á FUNDI stjórnar- og tnínaðar- mannaráðs Verkalýðsfélags Húsa- víkur miðvikudaginn 25. nóvember sl. voru málefni atvinnulausra til umræðu. Megn óánægja kom fram hjá fundarmönnum með fram- kvæmd vinnumiðlunar á félags- svæðinu og voru menn sammála um að þjónusta við atvinnulausa væri langt frá að vera viðunandi eftir að þjónusta var að mestu leyti færð frá Húsavík til Akureyrar. Fundarmenn töldu eðlilegt að Vinnumálastofnun stæði við gefin loforð um að ráðgjafi fyrir atvinnu- lausa hafi aðsetur á Húsavík. Það er ekki bara að félagsmenn í Verkalýðsfélagi Húsavíkur séu óánægðir með þær breytingar sem gerðar voru fyrr á þessu ári varðandi þjónustu við atvinnulausa heldur hafa bæði sveitarstjórnir og atvinnurekendur á svæðinu lýst yfir megnrí óánægju með breytt fyrir- komulag vinnumiðlunar. Stjórn og trúnaðarmannaráð Verkalýðsfélags Húsavíkur taldi ástæðu til að álykta um málið: „Verkalýðsfélag Húsavíkur ítrek- ar fyrri kröfu sína um að þegar í stað verði ráðinn ráðgjafi í tengsl- um við Svæðisvinnumiðlunina á Ak- ureyri með aðsetur á Húsavík. Ráðgjafanum verði ætlað að sinna atvinnulausum í Þingeyjarsýslum. Allt frá því að starfsemi vinnumiðlunar færðist frá sveit- arfélögum yfir til ríkisins hefur þjónusta við atvinnulausa á félags- svæði Verkalýðsfélags Húsavíkur versnað til muna. Verkalýðsfélag Húsavíkur telur mjög brýnt að taka á málefnum at- vinnulausra á svæðinu ekki síst þar sem atvinnuleysi hefur verið viðvar- andi í Þingeyjarsýslum í áratug og fylgja þar með eftir lögum vinnu- markaðsaðgerðir nr. 13/1997. Um þessar mundir eru um 70 til 80 manns atvinnulausir á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum og því miður eru horfur á að atvinn- uástand fari versnandi á næstu mánuðum." Morgunblaðið/Jón Sigurðsson SIGURVEGARAR í knattspyrnumóti grunnskólanna á Norðurlandi vestra. Siglfirskar stúlkur og piltar frá Blönduósi í sigurvímu. Gangmál anna sam- ræmd Vaðbrekka, Jökuldal - Fjárrækt- arfélög á Norður-Héraði gangast fyrir á þessum dögum að sam- ræma gangmál áa hjá bændum í félögunum. Þetta er gert til að hægt sé að stunda markvissari kynbætur á suðfjárstofninum hjá félagsmönnum. Vegna þess að þegar notað er ferskt sæði frá sæðingastöðvunum eru ekki alltaf bestu ær stofnsins blæsma og sæðið má ekki verða eldra en tutt- ugu klukkustunda. Með því að taka bestu einstöku ærnar úr stofni hvers bónda og samræma gangmál þeirra svo þær beiði all- ar sama daginn, þarf ekki nema eina ferð með sæðið og það skap- ar mikið hagræði, og er reyndar forsenda markvissra kynbóta. Gangmál ánna eru samræmd þannig að bændur taka úr stofni sínum oft tíu til fimmtán bestu ærnar, fósturlífsvakavættum svampi er komið fyrir í skeið ánna, og hann hafður þar um það bil fjórtán daga. Þá eru svamp- arnir teknir úr og tveim dögum seinna beiða allar þær rollur sem svampar voru settir í. Einnig færist í vöxt að bændm- sem hafa fáar kindur láti sam- ræma gangmál allra áa hjá sér og haldi þeim síðan undir sína hrúta en noti samræmingu gangmáls til að stytta hjá sér sauðburðinn, sem gengur yfir á tæplega viku þegar ánum er öllum haídið sama daginn. Nýr snjóblásari á Siglufj arðarflugvöll STARFSMENN Siglufjarðai-flug- vallar fá nýjan snjóblásara um áramót til að annast snjóruðning. Flugvöllur bæjarins lokaðist dögum saman í áhlaupi í haust þegar vél gamla snjóblásarans bræddi úr sér. Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að keyptur hefði verið nýuppgerður snjóblásari frá Bandaríkjunum. Þorgeir sagði að mörg snjóruðn- ingstæki við ílugvelli úti á landi væru komin til ára sinna og verið væri að endurnýja þau. Mikilvægt sé einnig að eiga varatæki, sem sinnt geta ruðningi, þegar bilun verður. Hann sagði að sums staðar á landinu væru ruðningstæki Vega- gerðarinnar og verktaka nýtt á flugvöllum, ef svo ber undir, og á Isafirði gegni ruðningstæki Flug- málastjórnar jafnframt því hlut- verki að ryðja vegi. Dilbert á Netinu ^mbl.is ALLTj*f= 677T//UM£7 /VÝTl Fellahrepp- ur leigir tölvubúnað TÖLVUSMIÐJAN ehf., Austur- landi, gerði nýlega samning við Fellahrepp, vegna grunnskólans, hreppsskrifstofunnar og leikskól- ans, um leigu á tölvubúnaði til þriggja ára. Uin svonefnda rekstrarleigu er að ræða. Með samningi þessum tók Fellahreppur á leigu á annan tug tölva. Samhliða rekstrarleigu- samningnum gerðu aðilarnir með sér þjónustusamning sem eykur mjög skipulegt eftirlit með tölvu- búnaðinum, afritun og öðrum öryggisþáttum. Tölvusmiðjan ehf. varð til í sumar við samruna tveggja tölvufyrirtækja á Egilsstöðum og í Neskaupstað. Fyrirtækinu er skipt í tvær deildir, söludeild og þjónustudeild. EYJÓLFUR Valgarðsson, oddviti sveitarstjórnar Fellahrepps og Hilm- ar Gunnlaugsson, sljórnarformaður Tölvusmiðjunnar ehf., handsala hér samninginn um rekstrarleigu, uppsetingu netkerfis og þjónustu. Fyrirtæki, stofnanir og samtök Leggið verkefni inn í Fáið sérhæfða námsmenn til að vinna lokaverkefni hjá ykkur Erum einnig meö nemendur á skrá í leit aö jólavinnu, hlutastörfum og verkefnum ATVIN N U MIÐSTÖÐIN Stúdentahelmilinu v/Hringbraut Sfmi: 5 700 888 www.fs.is/atvinna Nýr flygill vígður á Húsavík Húsavík - Tónlistarskólinn á Húsa- vík hefur fengið nýjan Kawai-flygil með 212 cm langri hörpu. Gerrit Schuil píanóleikari vígði hljóðfærið um síðustu helgi með flutningi nokkura píanóverka. Á tónleikunum fluttu þau Schuil og Ingveldur Ýr Jónsdóttir tón- leikadagskrá sem þau fluttu í sumar í Iðnó og kölluðu „Söngleik". Hljómleikadagskráin innihélt lög úr sívinsælum söngleikjum eins og þeir gerast bestir, sem sé Söngva- seið, „Show Boat“, „My Fair Lady“ o.fl. ásamt lögum eftir George Gers- hwin og Kurt Weill. Tónleikarnir voru vel sóttir og góður rómur var gerður að flutningi listamannana. Flygillinn virtist hljóma vel og nú er til boðlegt hljóðfæri á Húsavík fyrir hvaða list- mann sem er. Það voru fyrirtæki og félagasam- tök í bænum sem studdu Tónlistar- skólann til kaupa á þessu nýja hljóðfæri og til ráðgjafar hafði skól- inn píanóleikarana Þorstein Gauta Sigurðssón og Gerrit Schuil.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.