Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Minnir á alnæmisógnina
MAÐUR klæddur eins og Mat-
hatma Gandhi, vekur athygli á al-
þjóða alnæmisdeginum sem er í
dag, 1. desember. Hefur maður-
inn komið sér fyrir við svokallað
alnæmisskrímsli í inversku borg-
inni Bombay en hvergi eru jafn
margir smitaðir af HlV-veirunni
og á Indlandi. Er talið að þeir séu
á inilli þrjár og fimm milljónir.
Norska stjórnin í
Schengen-vanda
NORSKA stjórnin er komin í erfiða
stöðu vegna Schengen-samkomu-
lags Noregs og íslands við Evrópu-
sambandið, ESB. Allir þrír stjórn-
arflokkarnir eru yfirlýstir andstæð-
ingar samningsins en meirihlutinn á
norska Stórþinginu er hins vegar
fylgjandi honum. Stjórnin hefur lít-
ið viljað tjá sig um Schengen-samn-
inginn sem náðist á föstudagskvöld
en einn stjórnarþingmanna, Per
Olaf Lundteigen úr Miðflokknum,
lýsti því hins vegar yfir um helgina
að vegna yfirlýstrar Evrópuand-
stöðu sinnar gæti stjórnin ekki
mælt með því að samningurinn yrði
samþykktur þegar hann yrði lagður
fram á þingi. Þessu hafa stjórnar-
andstæðingar mótmælt harðlega,
segja útilokað íyrir ríkisstjórn að
leggja fram samning sem hún sé
mótfallin.
Norska stjórnin var ekki fyrr laus
úr fjárlagakreppunni sem hefur
kostað hana langar samningaumleit-
anir og mikla efth'gjöf en næsti
vandi knúði dyra. Vitað var að Evr-
ópumálin myndu reynast stjórninni
óþægur ljár í þúfu þar sem stjórnar-
flokkarnir þrír hafa lýst Evrópuand-
stöðu sinni og hefur stjórnin nú þeg-
ar lent í erfiðleikum. Ekki er nema
um mánuður síðan tekist var harka-
lega á um eftirlit með kjöti á landa-
mærum að ESB og varð stjómin að
láta í minni pokann, þótt fjórir ráð-
herrar Miðflokksins sætu hjá.
Brot á stjómar-
sáttmálanum?
Lundteigen telur að stjórninni sé
ekki stætt á því að mæla með sam-
þykkt Sehengen-samningsins því
það brjóti í bága við stjórnarsátt-
mála flokkanna þriggja þar sem
standi skýrum stöfum að stjórnin sé
andvíg þátttöku Noregs í Schengen-
samstarfinu. Þessi harkalegu um-
mæli Lundteigens hafa komið leið-
togum stjórnarinnar í vanda og hafa
Kjell Magne Bondevik forsætisráð-
herra, Erik Sponheim viðskiptaráð-
herra og Anne Enger Lahnstein,
menntamálaráðherra og formaður
Miðflokksins, ekki viljað tjá sig um
orð Lundteigens.
Bondevik fagnaði því um helgina
að svo virtist sem Schengen-sam-
komulagið hefði farið að óskum
Norðmanna og íslendinga en hefur
að öðru leyti ekkert vilja segja um
innihald þess. Stjórnarandstæðingar
hafa hins vegar lýst ánægju sinni
með samninginn sem þeir telja hag-
stæðan. Þá hefur Jan Petersen, for-
maður Hægriflokksins, sagst hafa
skilið stjórnarliða svo fyrr í haust að
stjórnin muni mæla með samþykkt
samningsins.
Lahnstein hefur einnig verið afar
varkár í yfirlýsingum sínum og þyk-
ir fréttaskýrendum með því ljóst að
hún sé að reyna að vinna sér tíma.
Skipuð hefur verið lögfræðinefnd
sem kanna á hvort samningurinn
brýtur í bága við stjórnarskrána.
Komist þeir að því að svo sé getur
stjómin ekki lagt hana fram á þingi.
Verður þá að semja að nýju eða
breyta stjórnarskránni.
Vandamálin
í röðum
Þrátt fyrir yfirlýsta ESB-and-
stöðu norsku ríkisstjórnarinnar hef-
ur Bondevik ítrekað að stjórn hans
muni fara að vilja meirihluta þings-
ins hvað varði Schengen-samning-
inn. Því telja stjómmálaskýrendur
ljóst að ríkisstjórninni sé nauðugur
einn kostur, að mæla með samþykkt
hans. Þvi fer þó fjarri að vandinn sé
leystur því ófrágengnir samningai'
við ESB bíða í röðum og er víst að
þeir fara ekki allir hljóðalaust í
gegnum þingið. Þar má nefna reglu-
gerðir um sölu og vinnslu á gasi, um
aukaefni í mat og genabreyttar
landbúnaðarafurðir.
Gíróseðlar liggja
frammi í öltum
bönkum, sparisjóðum
og á pósthúsum.
Þú
'QTJ
HJÁLPARSTARF
KIRKJUNNAR
getur þakkað fyrir þitt htutskipti
sfum bagstoddum von
Ný ríkisstjórn tek-
ur við í Kambódíu
Phnom Penh. Reuters.
SAMSTEYPUSTJÓRN fyrrverandi
andstæðinga tók formlega við völd-
um í Kambódíu í gær, eftir 17 mán-
aða stjómarkreppu. Hun Sen, for-
maður Þjóðarflokks Kambódíu,
(CPP) verður áfram forsætisráð-
hema, en Norodom Ranariddh prins,
leiðtogi FUNCINPEC-flokksins,
sem Hun Sen steypti af stóli annars
forsætisráðherra í fyrra, hefur þegar
tekið við embætti forseta þingsins.
Hun Sen hét því í gær að ríkis-
stjóm sín myndi beita sér fyrir fjár-
málaumbótum, draga úr útgjöldum
til varnarmála og herða viðurlög við
spillingu og glæpum. Hun Sen lýsti
því einnig yfir að stjórnin myndi
reyna að endurheimta sæti Kambó-
díu hjá Sameinuðu þjóðunum, en það
hefur verið autt frá valdaráni hans í
júlí í fyrra, og tryggja aðild landsins
að Samtökum Suðaustur-Asíuríkja.
Flokkur Huns Sens vann sigur í
þingkosningum í júlí, en hlaut ekki
nógu marga þingmenn til að mynda
hreinan meh-ihluta. Eftir kosning-
amar sakaði Ranariddh CPP um að
hafa beitt svindli og þvingunum, og
neitaði lengi vel að ganga til við-
ræðna um stjómarsamstarf. Kvaðst
hann hafa fallist á það vegna miklum
erlendum þrýstingi.
Hagfræðingar segja að nauðsyn sé
á umbótum og frekari fjárframlög-
um tO heilbrigðismála, menntamála
og landbúnaðar. Kambódía hefur
varið allt að helmingi útgjalda á fjár-
lögum hvers árs til varnarmála, en
stjórnmálaskýrendur benda á að nú
gefist tækifæri til að huga að velferð
landsmanna þess í stað, eftir að
skæruliðahreyfing Rauðu Khmer-
anna hefur að mestu lagt upp
laupana. Lagði Hun Sen áherslu á að
leiðtogar hreyfingarinnar yrðu
dregnir fyrir dóm.
Eiturlyf áfram
ólögleg í Sviss
Morgunblaðið.
SVISSLENDINGAR felldu tillögu
um að lögleiða eiturlyf með 73,9% at-
kvæða í þjóðaratkvæðagreiðlu um
helgina. Andstaðan gegn tillögunni
var meiri en búist var við. Fylgis-
menn hennar kenndu þvi meðal ann-
ars um að eiturlyfjaneytendur hefðu
ekki haft fyrir því að kjósa og tillag-
an hefði þar með orðið af mikilvæg-
um stuðningi. Niðurstaðan er túlkuð
sem stuðningsyfirlýsing við stefnu
stjórnvalda í eiturlyfjamálum. Þau
stefna að því að hamla gegn neyslu
en hjálpa þó eiturlyfjasjúklingum.
Um 30.000 Svisslendingar nota
heróín og kókain. Eiturlyfjaneyslan í
landinu vakti mikla athygli fyrir
nokkrum árum þegar eiturlyfjasalar
streymdu þangað með vörur sínar.
Lögreglan lét loks til sín taka og al-
menningur verður nú minna var við
eiturlyfjaneyslu.
Langt leiddir heróínsjúklingar
sem hafa reynt árangurslaust að
hætta neyslunni geta nú fengið
heróín hjá ríkinu. Um 800 Svisslend-
ingar fá heróín reglulega undir eftir-
liti sérfræðinga.
Urs Vontobel sér um heróínstof-
una Crossline í Zúrich. 143 hafa sótt
um hjálp þar síðan í apríl en 51 er á
skrá hjá honum eins og er. Sjúkling-
arnir kaupa sinn heróínskammt og
sprauta sig undir eftirliti en geta
ekki tekið skammtinn með sér.
Skammturinn kostar 500 kr., brot af
því sem hann myndi kosta á svörtum
markaði. Vontobel var á móti tillög-
unni um að lögleiða eiturlyf. „Sjúk-
lingamir sem koma hingað og aðrir í
þeirra sporum myndu ekki ráða við
það að eiturlyf yrðu lögleidd,“ sagði
hann.
Svisslendingar felldu í fyrra með
svipuðum meirihluta og nú tillögu
um að banna heróíngjöf ríkisins.
Niðurstaðan þá sýndi að þjóðin vill
hjálpa eiturlyfjasjúklingum. Niður-
staðan í kosningunum nú sýnir að
hún vill ekki ganga of langt í frjáls-
ræðisátt. Fylgismenn löglegra eitur-
lyfja vona að þjóðin sé tilbúin að lög-
leiða kannabis og hamp en það verð-
ur væntanlega næsta mál sem tekið
verður á dagskrá í eiturlyfjaumræð-
unni í Sviss.