Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 72
^2 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Þröstur sigraði
í Wrexham
SKAK
Wrexliam, Wales.
OWENS CORNING
ALÞJÓÐAMÓTIÐ
18.-26. nóvember
Þröstur Þdrhallsson sigraði á
mótinu ásamt Svíanum Stellan
Brynell. Þeir hlutu 6% vinning
af 9 mögulegum.
Þröstur Þórhallsson
ÞRÖSTUR Þórhallsson vann
Martinovsky frá Bandaríkjunum í
síðustu umferð Owens Coming
skákmótsins í Wrexham í Wales
sem lauk fyrir helgina. Þar með
náði Þröstur Svíanum Brynell að
vinningum og deildi með honum
efsta sætinu á mótinu. Mótið var í
sjöunda styrkleikaflokki FIDE og
Brynell missti naumlega af sínum
síðasta stórmeistaraáfanga, en til
þess að ná honum þurfti hann sjö
vinninga.
Stigahæsti keppandinn á mót-
inu, Englendingurinn Chris
Ward, varð að láta sér nægja að
lenda í miðjum hópi keppenda.
Urslit á mótinu urðu þessi:
1.-2. Þröstur Þórhallsson og Stellan
Brynell, Svíþjóð 6Í4 v. af 9 mögulegum
3. -4. Andrew Webster, Englandi, og
Vlastimil Jansa, Tékklandi, 5Vz v.
5. Steffen Pedersen, Danmörku, 5 v.
6. Christopher Ward, Englandi, AVz v.
7. -8. Andrew Kinsman, Englandi, og
Tim Wall, Englandi, 3'A v.
9. Eugene Martinovsky, Bandaríkjun-
um, 2Vz v.
10. Richard Dinely, Wales, 2 v.
Þröstur byrjaði vel á mótinu
með laglegum sigri á enska al-
þjóðameistaranum Andrew
Kinsman:
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Andrew Kinsman
Frönsk vörn
1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 - Bb4
4. e5 - c5 5. Bd2 - Re7 6. dxc5 -
0-0 7. Dg4 - Rbc6 8. 0-0-0 - Bxc5
9. Rf3 - Rg6 10. Dh5 - Bd7 11.
Rg5!?
Hvítur tapar tíma á þessum
Ieik, því riddarinn er strax hrak-
inn til baka, en tilgangurinn er
einmitt sá að fá svart til að veikja
kóngsvænginn.
11. - h6 12. Rf3 - Be8 13. Bd3
Nú vofír biskupsfórn á h6 yfir
svarti, svo hann tekur af skarið:
13. - f5 14. exf6 - Hxf6
Ekki gekk 14. - Dxf6? vegna
15. Rxd5! - exd5 16. Dxd5+ - Bf7
17. Dxc5 og hvítur vinnur peð.
15. Dh3 - Rb4 16. Be3 - Rxd3+
17. Hxd3 - Bd6 18. Kbl - Bd7 19.
Dh5 - De8 20. Hhdl - Df7?
Staðan var nokkum veginn í
jafnvægi, en með þessum eðlilega
leik gefur svartur kost á glæsi-
legu svari sem tryggir Þresti
vinningsstöðu:
21. Re4!! - dxe4 22. Hxd6 - Hf5
Eða 22. - exf3 23. Hxd7 - Re7
24. Dc5 og vinnur
23. Rg5! - hxg5 24. Hxd7 - Df6
25. Bd4 - e5 26. Be3 - Rf4 27.
Dg4 - Hc8 28. g3 - Rg2 29. Dxe4
- Rxe3 30. fxe3 - Hf2 31. Hcl -
Hxh2 32. Dxb7 - Hhxc2?
Svartur reynir að snúa á Þröst
með fléttu, en yfirsést mikilvægur
millileikur:
33. Dd5+! - Kf8 34. Hxc2 og
svartur gafst upp.
Kasparov-Kramnik 12-12
Hraðskákeinvígi tveggja stiga-
hæstu skákmanna í heimi lyktaði
með jafntefli, 12-12, í Moskvu um
helgina. Hægt var að íylgjast með
því beint á alnetinu í gegnum
Intemet Chess Club (ICC). Ka-
sparov fór af stað með látum í ein-
víginu og eftir fjórar fyrstu skák-
irnar var staðan orðin þrír vinn-
ingar gegn einum og Kramnik
hafði ekki tekist að vinna skák. Þá
urðu hins vegar algjör umskipti
og Kramnik fékk 3!/2 vinning í
næstu fjómm skákum. Staðan var
þannig orðin 4'/2-3'/2 Kramnik í vil
eftir átta skákir. Kasparov náði
ekki að kpmast yfir í einvíginu
eftir það. I lok fyrri dagsins var
staðan &ÁSV2 Kramnik í vil.
Síðari dagurinn fór ekki vel af
stað fyrir Kasparov. Með sigii í
14. skákinni jók Kramnik foryst-
una í tvo vinninga og var enn með
tveggja vinninga forskot eftir 19
skákir. Utlitið var því orðið frem-
ur dökkt fyrir Kasparov. Þetta
reyndist hins vegar síðasta sigur-
skák Kramniks í einvíginu og Ka-
sparov náði að bjarga sér fyrir
horn á lokasprettinum með því að
sigra í 20. og 22. skákinni. Tveim-
ur síðustu skákunum lauk með
jafntefli og lokastaðan varð því
jöfn, 12 vinningar gegn 12.
Skákklúbbakeppni TR
Skákklúbbakeppni Taflfélags
Reykjavíkur fór fram 27. nóvem-
ber. Klúbbakeppnin er sveita-
keppni og var hver sveit skipuð
fjórum keppendum sem tefldu 7
umferðir, tvær hraðskákir í
hverri umferð.
Urslit urðu sem hér segir:
1. UMSE 41 vinn. af 56 mögulegum
2. Iðnskólinn A 37 v.
3. Díónýsos A 34 v.
4. B.D.T.R. 32>/2 v.
5. Liðið okkar 32*/2 v.
6. Verð að fara 32 v.
7. Forgjafarklúbburinn 30 v.
8. Smámeistararnir 29'Æ v.
9. Félag íslenskra fræða 29 v.
10. Iðnskólinn B 29 v.
11. Rokk 28+2 v.
12. Díónýsos B 28 v.
13. Fischer klúbburinn 25Vz v.
14. Jever 2014 v.
15. Úrvalsliðið l9Vz v.
Sveit UMSE skipuðu: Jón Viktor
Gunnarsson, Bergsteinn Einars-
son, Arnar Gunnarsson og Björn
Þorfinnsson.
Sveit Iðnskólans skipuðu: Jón
G. Viðarsson, Ingvar Asmunds-
son, Sævar Bjarnason og Áskell
Örn Kárason.
Sveit Díónýsos skipuðu: Sigur-
björn Björnsson, Páll Agnar Þór-
arinsson, Magnús Örn Ulfarsson
og Þröstur Arnason.
Skákstjóri var Ólafur S. Ás-
grímsson.
J ólapakkaskákmót
Hellis
Taflfélagið Hellir efnir til Jóla-
pakkaskákmóts þriðja árið í röð
20. desember klukkan 14. Mótið
er opið öllum drengjum og stúlk-
um 15 ára og yngri. Tefldar verða
5 umferðir með 10 mínútna um-
hugsunartíma á mann í 4 aldurs-
flokkum. Þó verða tefldar fleiri
umferðir í elsta flokki. Jólapakkar
eru í verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin í hverjum flokki. Auk þess
verður happdrætti um þrjá jóla-
pakka í hverjum aldursflokki fyr-
ir sig. Mótið tekur um 3 klst. og
fer fram í Hellisheimilinu,
Þönglabakka 1, í Mjódd, efstu
hæð. Skráning á sérstök eyðublöð
sem hengd verða upp í hverjum
skóla eða með tölvupósti: hell-
ir@simnet.is.
Skráningu lýkur 15. desember.
Fjöldi þátttakenda takmarkast
við 250.
Rilton-skákmótið
Hið árlega Rilton skákmót-
verður haldið í Stokkhólmi dag-
ana 28. desember til 6. janúar nk.
Þetta er jafnframt fjórða mótið í
VISA-bikarmótaröðinni á Norð-
urlöndum, en það er sú skákk-
eppni sem vakið hefur mesta at-
hygli þar undanfarin ár.
Tefldar verða níu umferðir eftir
svissnesku kerfi. Líklegt er að
ýmsir íslenskir skákmenn hafi
hug á að taka þátt í þessu móti, en
tilkynna verður þátttöku til
sænska skáksambandsins fyrir
14. desember. Nánari upplýsingai-
um mótið má finna á alnetssíð-
unni Skák á íslandi. Slóð:
www.vks.is/skak.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridgefélag Reykjavíkur
ÞRIÐJUDAGINN 24. nóvember var
spilaður eins kvölds tölvureiknaður
Mitchell tvímenningur með forgefn-
um spilum. 20 pör spiluðu 9 umferðir
með 3 spilum á milli para. Meðalskor
var 216 og efstu pör í hvora átt voru:
NS
Stefanía Sigurbjömsd. - Jóhann Stefánss. 270
Halldóra Magnúsd. - Hrólfúr Hjaltason 245
Arraann Lárusson - Kristinn Karlsson 240
«iíigurðurÁniundason-JónþórKarlsson 238
AV
Guðmundur Baldursson - Jens Jensson 253
Guðrún Jóhannesd. - Jón Hersir Eh'asson 249
Reynir Grétarsson - Hákon Stefánsson 230
GeirlaugMagnúsdóttir-TorfiAxelsson 223
Á þriðjudögum er pörum boðið
upp á að taka þátt í Verðlaunapotti.
Pör geta lagt 500 kr. í hann og efsta
rið af þeim sem tóku þátt fer með
pottinn heim. Þetta kvöld tóku 8 pör
þátt í pottinum og rann hann allur til
Guðmundar og Jens.
Á þriðjudagskvöldum BR eru spil-
aðir eins kvölds tvímenningai- með for-
gefnum spilum. Spilaðir eru til skiptis
Mitchell og Monrad Barómeter. ÁHir
spilarar eru velkomnir og þeir spilarar
sem eru 20 ára eða yngri spila frítt.
Miðvikudaginn 25. nóvember var
fyrsta kvöldið af 4 í Hraðsveita-
keppni félagsins. 22 sveitum var
skipt í 2 riðla. Meðalskor var 540 og
efstu sveitir í hvorum riðli voru:
A-riðilI
Sv. Rúnar Einarsson 616
Sv. Nýherji 604
Sv. Sævar Þorbjömsson 572
Sv. Ámi Hannesson 561
Sv. Steinar Jónsson 546
B-riðill
Sv. Samvinnuferðir Landsýn 591
Sv. Om jfrnþórsson 580
Sv. Dúa Ólafsdóttir 579
Sv. Leifur Aðalsteinsson 579
Sv. Ómar Olgeirsson 548
Næstu 3 kvöld fara 11 efstu sveit-
irnar frá kvöldinu áður í A-riðil og
hinar í B-riðil. Þá eru lögð saman
stigin úr kvöldunum og skipt aftur
eftir sömu reglu.
Gylfi og Hermann Reykjavíkur-
meistarar í tvímenningi
Gylfi Baldursson og Hermann
Friðriksson sigruðu með glæsibrag
í Reykjavíkurmótinu í tvímenningi
sem haldið var sl. laugardag. Þrjá-
tíu pör spiluðu Barómeter með 2
spilum á milli para. Gylfi Baldurs-
son og Hermann Friðriksson unnu
mótið með +163 sem jafngildir 60%
skor. Þeir leiddu allt mótið og eru
vel að sigrinum komnir.
Lokastaðan:
Gylfi Baldursson - Hermann Friðriksson +163
Ragnar Magnússon - Tryggvi Ingason +95
Sigtryggur Sigurðsson - Bragi Hauksson + 78
Snorri Karlsson - Aron Þorfmnsson +68
Guðm. Baldurss. - Hallgr. Hallgrímss. +67
Gísli Hafliðason - Ólafur Þór Jóhannsson +63
Ásmundur Pálsson - Jakob Kristinsson +53
MINNINGAR
SÆVAR
PÁLSSON
+ Sævar Pálsson
fæddist á Suð-
ureyri við Súg-
andafjörð 17. janú-
ar 1942. Hann lést
á Landspitalanum
21. nóvember síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Svanhvít
Ólafsdóttir hús-
móðir og Páll Frið-
bertsson, útgerðar-
maður og forstjóri
(d. 1989). Sævar bjó
hjá foreldrum sín-
um á Suðureyri til
ársins 1982, er
hann fluttist með þeim til
Reykjavíkur, að Miðleiti 7.
Hann flutti á sambýlið á Há-
teigsvegi 6 árið 1993. Bræður
Við Sævi vorum miklir mátar.
Hann breiddi alltaf út faðminn þeg-
ar við hittumst og fagnaði á mjög
eftirminnilegan hátt. Hann var
þroskaheftur en hafði einstakan
persónuleika. Hann var Iíka svo
ljúfur og oftast glaður.
Fyrstu fjörutíu og eitthvað árin
sín átti hann sjávarþorpið Suðm-eyri
sem sinn örugga stað í tilverunni.
Hann þekkti fjöllin sín og sjóinn,
bryggjuna og bátana og hann átti
fjölskylduna sína góðu; mömmu,
pabba og þrjá yngri bræður - og
alla hina Súgfirðingana, vinnuna
sína í Fiskiðjunni, göngutúrana.
Hann kom við í verbúðunum og
mötuneytinu á kvöldin til þess að fá
sér spjall og kvöldhressingu. Svo
var mætt í allar messur í kirkjunni.
Og hann hafði sitt hlutverk í Félags-
heimilinu; reif af bíómiðum, hjálpaði
til við að sópa, raða stólum og taka á
móti Sumargleðinni; Raggi Bjarna
og Omar, það voru hans menn!
(Kallaði þá samtals: Ómar, Ragnar
Bjarnason). Hann átti alltaf fast
sæti á öllum bíósýningum og safnaði
öllum „prógrömmunum" og svo átti
hann líka alla Súgfirðingana að vin-
um. Allir höfðu tíma til að heilsa og
spjalla dálítið - af því að fas hans og
framkoma voru svo ómótstæðileg.
Allir þekktu Sæva.
Það voru engar greiningarstöðv-
ar fyrir þroskahefta til í hans ung-
dæmi - og ég held að hann hafi ekki
verið skráður í opinberum gögnum
sem slíkur fyrr en undir fertugt.
Það voru engir stuðningsaðilar eða
ráðgjafar sem komu við sögu. Þrátt
fyrir það tel ég að Svanhvíti tengda-
móður minni hafi tekist framúr-
skarandi vel við uppeldi hans og
Sævi varð að þeim einstaklingi sem
var mjög eftirtektarverður fyrir svo
margt.
Það voru mikil viðbrigði fyrir
hann að flytjast ásamt foreldrum
sínum frá Suðureyri til Reykjavíkur
skömmu eftir fertugt. Þau fluttu að
Miðleiti 7 - en þar hafði hann ekki
það mikla frelsi og þann fasta sjón-
deildarhring sem hann átti í fjöllun-
um og mannlífinu heima í Súganda-
firði. Þrátt fyrir það hafði hann
ótrúlega mikla aðlögunarhæfileika
og í hönd fór tími þar sem hann
reyndi vissulega margt nýtt sem
gerði honum gott - og þroskaði
hann enn meira.
Sævi fékk vinnu í „bíóinu“. Þar
var hann fljótur að stækka vinahóp-
inn sinn; stelpurnar á skrifstofunni,
starfsfólkið og hljóðfæraleikaramir
í Sinfóníunni (sem hann kallaði
aldrei annað en Tónleikana), smið-
irnir, starfsfólkið í Landsbankanum
og allir hinir. Og alltaf þegar Berti
bróðir fór til útlanda fékk Sævi það
ábyrgðarmikla hlutverk að passa
bíóið - sem hann gerði með glöðu
geði. Hann fékkst samt aldrei til
þess að fara upp í strætisvagn. Ekki
til að tala um!
Eftir að pabbi hans dó fórum við í
fjölskyldunni að hugleiða nýjan
samastað fyrir hann. Við fengum vil-
yrði fyrir að hann kæmist að á sam-
býli fyrir þroskahefta og einn góðan
veðurdag stóðum við frammi fyrir
því að kynna honum sambýlið á Há-
teigsvegi 6. Og viti menn! Við, sem
höfðum kviðið svo fyrir - fundum að
Sævars eru: Gylfi
Pálsson (hálfbróð-
ir), Gunnar Páls-
son, sambýliskona
hans Hafdís Pálma-
dóttir, Friðbert
Pálsson, eiginkona
Margrét Theodórs-
dóttir, og Leó Páls-
son, eiginkona Ing-
unn Margrét Þor-
leifsdóttir.
Sævar starfaði við
Fiskiðjuna Freyju
meðan hann bjó á
Suðureyri. Síðustu
árin vann hann í
Háskólabíói.
Utför Sævars fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
hann varð fullur eftirvæntingar. Síð-
an hófst nýr og spennandi kafli í lífi
hans: Nýtt herbergi, nýir vinir - og
meira sjálfstæði. Hann steig síðan
stórt skref þegar hann Iærði á
strætó með aðstoð starfsfólksins á
sambýlinu. Eftir það varð
„Fjarkinn“ hans farartæki og varð:
„Bjarkinn minn“ (af því að hann var
stundum dálítið hljóðvilltur). Hann
varð afar stoltur af þessari nýju
getu - og í hvert skipti sem við hitt-
umst sagði hann mér frá Fjarkanum
sem færi alltaf fram hjá skólanum
mínum við Tjömina. Hann eignaðist
líka strætóbílstjóra að vini; Andra
Bachman, sem er einnig tónlistar-
maður. Andri sagði okkur að þegar
þannig hittist á að þeir voru einir í
strætó, þá var hækkað í útvarpinu
og þeir sungu hástöfum saman.
Og honum hefur liðið vel á Há-
teigsveginum. Þar tókst hann á við
mörg ný hlutverk í tilverunni og í
fyi-sta skipti á ævinni fór hann í
sumarfrí án fjölskyldunnar. Fyrst
var stefnan tekin á Færeyjar. Hann
skemmti sér svo sannarlega vel.
Myndirnar úr ferðinni og ferðasag-
an bera þess vott. Til dæmis þegar
hann fór í gönguferð ásamt fleirum
og kom að girðingu þar sem voru
nokkrir kalkúnar. Þá tók minn mað-
ur virðulega ofan húfuna sína,
hneigði sig djúpt og ávarpaði einn
kalúninn þannig: „Ert þú líka Fær-
eyingur?" Hann var nefnilega líka
mikill húmoristi.
Sævi var afar barngóður - og
hændi hvert bræðrabarnanna sinna
að sér með sínu lagi. Svo var hann
svo skemmtilegur. Við í fjölskyld-
unni hans höfum notið þess að hafa
hann með okkur í flestu því sem
fjölskyldan hefur tekið sér fyrir
hendur. Það var bráðskemmtilegt
að hafa hann með sér í bíltúrum,
matarboðum, leikhúsferðum, af-
mælum, Súgfirðingamótum, vestur-
ferðum, útilegum, þorrablótum og
þannig mætti lengi telja. Minn alltaf
til í að koma með! Og síðastliðið
sumar fór hann í fyrsta sinn með
okkur Friðbert og mömmu sinni „til
útlanda", eins og hann sagði og taldi
Færeyjar ekki með. Það er með eft-
irminnilegri ferðum. Við vorum í
góðum gír saman.
Svo kom sumarbústaðurinn okkar
Berta til sögunnar fyrir fjórum-
fimm árum. Sævi hefur verið okkar
bústaðarfari og skemmtari í flestum
ferðum þangað síðan, jafnt að sumri
sem vetri. Á leiðinni höfum við alltaf
haft sérstaka athöfn í bílnum, þ.e. að
klappa þegar við sjáum Borgarnes.
Honum fannst einnig tilheyra að
koma við í sjoppunni á laugardögum
og kaupa lottómiða. Aldrei neinn
vinningur, en alltaf jafn gaman. Og
svo þótti mínum toppurinn að fá sér
hressingu á kvöldin og bæta oft og
rækilega í arininn. Honum þótti
einnig mjög skemmtilegt þegar
gesti bar að garði, ekki síst ef það
voru Ingigerður og Atli, vinir okkar.
Þá var Sævi hrókur alls fagnaðar,
eins og reyndar alltaf. Það verður
tómlegt að fara næst - án hans.
Mér finnst ég heppin að hafa átt
Sæva að góðum vini og mági. Kynni
mín af honum hafa verið lærdóms-
rík og mjög gefandi. Sú reynsla er
bundin í mörgum og djúpum tilfinn-