Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
MINNINGAR
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og iangafi,
HELGI HANNESSON
kennari og fyrrverandi forseti
Alþýðusambands íslands,
Stigahlíð 30,
Reykjavík,
andaðist á Sólvangi mánudaginn
30. nóvember sl.
Þórunn Bjarney Garðarsdóttir,
Hanna Ragnheiður Helgadóttir,
Helgi Þór Helgason,
Erla Margrét Helgadóttir,
Haukur Helgason,
Anna Þórunn Halldórsdóttir,
Kristín Jóna Halldórsdóttir,
Garðar Halldórsson
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR S. LÁRUSSON,
Krummahólum 6,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 29. nóvem-
ber.
Guðrún Ólafsdóttir, Steinar Stefánsson,
Óli Svavar Ólafsson, Margrét Ragnarsdóttir,
Hafþór Ólafsson
og barnabörn.
+
BJARNI JÓHANN GUÐMUNDSSON,
Kleppsvegi 34,
lést á heimili sínu laugardaginn 28. nóvember.
Jarðarför auglýst síðar.
Kristbjörg Guðmundsdóttir,
Árni Jón Baldursson,
Jófríður Guðjónsdóttir,
Baldur Guðjón Árnason,
Bjarni Jóhann Árnason,
Bjarki Þór Árnason.
+
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
GRÍMUR PÁLSSON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 29. nóvember.
Valtýr Grímsson, Auður Þórhallsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
-»
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BJARNI KRISTINN BJARNASON
fyrrv. hæstaréttardómari,
Einimel 18,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnu-
daginn 22. nóvember, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 2. desember
kl. 13.30.
Ólöf Pálsdóttir,
Laufey Bjarnadóttir, Torfi Magnússon,
Auður Bjarnadóttir, Hákon Leífsson,
Ragnhildur Bjarnadóttir, Bjarni Þór Bjarnason,
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, Einar Scheving,
Magnús Þór Torfason, Bjarni Kristinn Torfason,
Ólafur Páll Torfason, Hlynur Helgi Hallgrímsson,
Inga Huld Hákonardóttir.
BRYNDÍS
SIG URÐARDÓTTIR
+ Bryndis Sigurð-
ardóttir fæddist
í Reykjavík 8. júlí
1911. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 19. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Þuríður Pétursdótt-
ir frá Brúsastöðum
í Þingvallasveit og
Sigurður Arnason
vélstjóri frá Vestur-
Botni í Patreksfirði.
Þau bjuggu lengst
af á Bergi við Suð-
urlandsbraut í
Reykjavík og var Bryndís
íjórða í röðinni af 15 börnum
þeirra. Systkini Bryndísar eru:
Ingveldur, f. 1905, d. 1994; Ingi-
björg, f. 1907, d. 1992; Helga, f.
1909, d. 1985; Elísabet, f. 1912;
Árni, f. 1915; Þuríður, f. 1917,
d. 1994; Emilía, f. 1917, d. 1987;
Pétur, f. 1918, d. 1990; Erlend-
ur, f. 1919; Sigurður, f. 1921;
Haraldur Örn, f. 1924; Valur, f.
1925; María, f. 1928; Bergljót, f.
1931.
Hinn 28. júlí 1933 giftist
Bryndís Gísla Hannessyni, yfir-
verkstjóra og deildarstjóra hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, f.
24. júní 1909, d. 28. janúar 1996.
Foreldrar lians voru hjónin
Ólafía Sigríður Einarsdóttir og
Hannes Stígsson.
Börn Bryndísar og
Gísla eru: 1) Elísa-
bet Erla, f. 15. apríl
1934, gift Braga Jó-
hannessyni og eiga
þau þrjú börn og
fimm barnabörn. 2)
Þuríður Hanna, f. 5.
maí 1942, gift Guð-
jóni Tómassyni og
eiga þau þrjú börn
og þrjú barnabörn.
3) Sigurður Örn
Gíslason, f. 26. júní
1944, var kvæntur
Svölu Lárusdóttur
og eiga þau þijú börn og eitt
barnabarn. Núverandi eigin-
kona hans er Margrét Margrét-
ardóttir. Bryndís og Gísli
bjuggu í Reykjavík til ársins
1973, en þá fiuttust þau í Garða-
bæ. Síðasta árið dvaldi Bryndís
á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Bryndís lærði hárgreiðslu á
hárgreiðslustofunni Ondúlu og
aflaði sér auk þess framhalds-
menntunar í Kaupmannahöfn.
Meistararéttindi fékk hún 1940.
Hún vann lengi við iðn sína á
Ondúlu, og síðar á hárgreiðslu-
stofunni Evu sem hún rak í
nokkur ár.
Utför Bryndísar verður gerð
frá Áskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Bryndís Sigurðardóttir tengda-
móðir mín er látin 87 ára að aldri.
Hún kvaddi með þeim hætti er hún
hafði oft í seinni tíð látið í ljós að
hún óskaði sér. Hún vaknaði
snemma að morgni 19. nóvember,
en var ekki komin á fætur, þegar
hún leið út af og var látin. Þótt
heilsa hennar hafi verið farin að
gefa sig síðustu árin, þrekið orðið
lítið og sjónin léleg, var hún í raun
aldrei veik, þannig að hún lægi í
rúminu og kom kallið því óvænt.
Hún hélt skýrri hugsun allt til loka
og minnið var óskert og fylgdist
hún vel með því sem var að gerast.
Hún hafði mikinn áhuga á öllu er
snerti hennar nánustu og þá sér-
staklega yngstu afkomendurna og
vildi hafa á hreinu, hvar allir væru
og hvað þeir væru að fást við þá
stundina. Bryndís ólst upp í stórum
systkinahópi, sem jafnan er kennd-
ur við Berg við Suðurlandsbraut í
Reykjavík og var hún fjórða í röð-
inni. Þar bjuggu foreldrar hennar í
áratugi og allt til æviloka, en systur
Bryndísar bjuggu þar nokkur ár
eftir lát þein-a. Þar var alltaf mið-
stöð fjölskyldunnar, þar til húsið
varð að víkja vegna nýs skipulags
hverfisins og var það rifið.
Eg kom ungur inn í þessa stóru
og samhentu fjölskyldu, þegar ég
og Erla, eldri dóttir Bryndísar,
ÚTFARARST OFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sfmi 565 5892
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Otsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjöri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
kynntumst. Erla var elsta barna-
bam foreldra Bryndísar og lítið
yngi-i en yngstu systurnar. Vorum
við Erla því oftast höfð með, þegar
eitthvað stóð til í fjölskyldunni. Það
var ný lífsreynsla fyrir mig að vera
orðinn einn af þessum stóra hópi og
margar mínar skemmtilegustu
minningar frá þeim árum eru
tengdar samkomum fjölskyldunnar
á Bergi. Þá var jafnan mikið sung-
ið, en öll systkinin höfðu góða söng-
rödd og yndi af að syngja saman.
Sérstaklega er minnisstæður söng-
ur Péturs bróður Bryndísar, en
hann hafði einstaklega fallega og
þróttmikla barítonrödd, sem alltaf
hljómaði við slík tækifæri.
Bryndís giftist ung Gísla Hann-
essyni rafvirkja, sem lengi starfaði
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
lengst sem yfirverkstjóri og deild-
arstjóri framkvæmdadeildar.
Hjónaband þeiira var langt og
mjög farsælt allt til æviloka Gísla
fyrii- tæpum þremur árum. Þau
voru ákaflega samhent hjón og
samband þeirra náið og innilegt,
þótt þau væru ólík að mörgu leyti,
Gísli mikill atorkumaður, ákafur í
öllu, sem hann tók sér fyrir hendur,
en Bryndís hægari í framkomu,
þótt hún væri ákveðin í skoðunum
og dugmikil. Dugnaður hennar og
vilji komu skýrt fram þegar hún
ung að árum hafði lokið námi í hár-
greiðslu, en langaði til að mennta
9*
£
%
/
Pegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
sig meira í faginu. Þótt hún hefði
lítil fjárráð ákvað hún að komast til
Kaupmannahafnar og fullnuma sig
í faginu með því að læra svokallað
„permanent“, sem var það nýjasta í
hárgreiðslutækninni, en það var
ekki kennt á Islandi. Gekk hún þá á
fund bankastjóra til að fá lán til far-
arinnar, en ekki var skilningur
hans mikill á þessu og sagðist ekki
lána henni í svona óþarfa „pjatt“.
Ekki gekk að fá lán fyrr en faðir
hennar talaði við annan banka-
stjóra, sem var skilningsríkari, og
komst Bryndís til Kaupmannahafn-
ar og lauk sínu sérnámi. Hún starf-
aði á hárgreiðslustofu þar til börn-
unum fór að fjölga, en eftir það
vora húsmóðurstörfin í öndvegi hjá
henni, en hárgreiðslu stundaði hún
samt af og til heima hjá sér, og
komu þá viðskiptavinirnir þangað.
Heimili þeiixa Bryndísar og Gísla
var alla tíð opið fyrir fjölskylduna,
og vora börn okkar Erlu tíðir gesth-
þar í lengri eða skemmri tíma, enda
fundu þau fljótt að þau voru tekin
sem fullgildar manneskjur þar, þótt
ung væru að áram. Þau héldu áfram
að venja komur sínar þangað eftir
að þau urðu fullorðin og börn þeirra
sóttust mikið eftir að fá að fara til
langafa og langömmu, enda vora
þau Bryndís og Gísli einstaklega
barngóð.
Nú er lokið langri ævi góðrar
konu, sem alltaf hugsaði meira um
sína nánustu og þá sem hún unni en
sjálfa sig. Hún gerði ekki miklar
kröfur til annarra og var alla tíð
ánægð með það sem hún öðlaðist í
lífinu. Síðustu árin, eftir að Gísli
lést, vora henni samt erfið. Hún
hafði alltaf hugsað sér að Gísli
myndi lifa hana, og missti hún svo
mikið við lát hans að lífsviljinn varð
æ minni. Starfsfólk Hrafnistu í
Hafnarfirði gerði allt sem það gat
til að létta henni lífið þetta ár sem
hún dvaldi þar og eru því færðar
þakkir fjölskyldunnar fyrir það.
Eg þakka fyrir að hafa eignast
Bryndísi sem tengdamóður og
fengið að njóta samvista við hana í
meira en 40 ár. Blessuð sé minning
hennar.
Bragi Jóhannesson.
Ég kynntist Bryndísi Sigurðar-
dóttur fyrir tæpum 30 árum þegar
ég varð tengdadóttir hennar. Það
var gaman að kynnast þeim Gísla
og Bryndísi, þau voru svo yndislega
samhent hjón að fleiri mættu þar
eftir líkja. Það sem einkenndi heim-
ili þein-a fyrst og fremst var frábær
snyi-timennska og hún var svo
sannarlega Bryndísi í blóð borin.
Til hinstu stundar var hún alltaf vel
til höfð og bar fallega skartgiápi.
Þeir sem alast upp á stóru heimili
bera þess oft merki. Bryndís ólst
upp í Reykjavík og vora þau systk-
inin 15 talsins. Þetta var menning-
arheimili þar sem margir komu,
listh- og menning í hávegum höfð
og félagslyndi öllum meðfætt. Hús-
ið þeirra hét Berg og hún hafði
gaman af að segja frá því sem á
dagana hafði drifið í bernsku. í síð-
asta skipti er við sáumst talaði hún
Blámastofu
WHL.
Irtúfmns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík ♦ Sími 5531099
Opið ðll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skveytingar fyrir öll tilefni.