Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 84

Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 84
84 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR í DAG Baráttufundur ekki málþing MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá stjórn Hálendishópsins sem stóð að fundinum í Háskólabíói á laug- ardag: „Vegna yfirlýsinga stjórn- arformanns Landsvirkjunar, Jó- hannesar Geirs Sigurgeirssonar, í fjölmiðlum um almennan fund um verndun miðhálendisins, sem haldinn var í Háskólabíó laugar- daginn þann 28. nóvember, vill stjórn Hálendishópsins, sem stóð að fundinum, taka fram eftirfar- andi: Yfirskrift fundarins var „Með hálendinu - gegn náttúruspjöllum" og kom skýrt fram í fundarboði og fréttatilkynningum, að megin- markmið fundarins væri að efla og sýna samstöðu náttúruunnenda um það að ósnortin náttúra miðhálend- isins sé einhver dýrmætasta auð- legð þjóðarinnar og að hana beri að vemda. Þetta var ekki málþing, heldur baráttufundur fyrir ofangreindum markmiðum. I ljósi þess töldu að- standendur fundarins óeðlilegt að Landsvirkjun ætti ræðumann á fundinum þar eð virkjanaáform fyrirtækisins á miðhálendinu ganga þvert gegn ofangreindum markmiðum. Vakin skal athygli á að þann 31. október sl. héldu fern náttúru- verndarsamtök málþing þar sem umhvei’fisáhrif fyrirhugaðra virkj- ana norðan Vatnajökuls voru til umræðu og átti Landsvirkjun þar sína málflutningsmenn." Vilja málefna- lega umræðu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun; „Fundur Fé- lags um verndun hálendis Austur- lands hvetur til máiefnalegi'ar og drengilegrar umræðu um verndun og nýtingu náttúruauðlinda á Aust- urlandi. Fundurinn telur að lögfonnlegt mat á umhverfisáhrifum Fljótsdals- virkjunar sé heppilegasti farvegur- inn fyrir slíka umræðu þar sem sjónarmið verndunarsinna annars vegar og virkjunarsinna hinsvegar fengju faglega umfjöllun. Fundurinn harmar blaðaskrif, þar sem ráðist er að einstökum per- sónum og starfsheiðri þeirra og heitir á stuðningsmenn félagsins að forðast þess konar orðræðu. Virð- um andstæð sjónannið.“ I dag kl. 13-18 kynning á hinni vinsælu bað- og líkamslínu frá I COLONIALI LYFJA Lágmúla 5 Sími 533 2300 1 : Silf urljúðum kertastjakana fyrir jól 1 ----------------------------------------- | Opnunartími miá. og fim. kl. 16-18 ........................ ' ' ' ' I Góðar jólagjafir Mikið úrval af fallegum bómullar- og flíspeysum. Stærðir 62—164 sm. POLARN O. PYRET Kringlunni 8—12, sími 568 1822 __________________________ Örfáar glufur, lausar til jóla Myndataka, þar sem þú ræður hve stórar og hve margar myndir þú færð, innifalið ein stækkun 30 x 40 cm í ramma. kr. 5.000,oo Þú færð að velja úr 10 - 20 myndum af börnunum, eftirfarandi stærðir færðu með 60 % afslætti frá gildandi verðskrá ef þú pantar þær strax endanlegt verð er þá. 13 x 18 cm í möppu kr. 1.200,00 20 x 25 cm í möppu kr. 1.720,00 30 x 40 cm í ramma kr. 2.560,00 Gerðu þinn eigin verð samanburð, hringdu á aðrar ljósmyndastofur og kannaðu hvort þetta verð á stækkunum er ekki lægsta verðið á landinu. Ljósmyndastofa Kópavogs Ljósmyndastofan Mynd sími: 554 30 20 sími: 565 42 07 Passamyndir á fimm mínútum alla virka daga. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Athugasemd við „Rabb“ í Lesbók VELVAKANDA barst eft- ii-farandi bréf: „Það er grundvallar mis- skilningur hjá Árna Arnar- syni í „Rabbi“ Lesbókar Morgunblaðsins hinn 14. nóvember sl., að maðurinn sé dýr. Hann segir: „Mað- urinn er eina dýrið sem drepur og kvelur einstak- linga af sinni eigin tegund án neinnar sérstakrar ástæðu og fær út úr því ánægju.“ Tilvitnun lýkur. Biblían, orð Guðs, kenn- ir að Guð skapaði mann- inn. 1. Mósebók, 1:27. Hún skýrir einnig frá falli mannsins í 1. Mósebók, 3. kafla. Með falli mannsins kom vonskan inn í heiminn og ekki var langt í fyrsta morðið. 1. Mós., 4:8. Biblí- an kennir að hjarta mannsins er svikult frem- ur öllu öðru og spillt. Jer- emía 17:9. Vitanlega eru mennimir mismikið svikul- ir og spilltir. Hjarta mannsins og eðli breytist ekki að fullu fyrr en mað- urinn tekur trú á Jesú Krist, Guðs son, og eignast þar með „guðlegt eðli“, sjá 2. Pétursbréf 1:4. Langi einhvern til að fræðast um manninn, eðli hans, bar- áttu og stórkostlega sigra, þegar hann litillækkar sig og hrópar til Drottins Guðs síns og skapara, þá finnur hann allt um þetta í Biblíunni. Það sem Biblí- an, orð Guðs, kennir er sannleikur. Bestu kveðjur." Sóley Jónsdóttir, Akureyri. Dýrahald Læða í óskilum LÆÐAN á myndinni er í óskilum á Ásbraut í Kópa- vogi. Hún er hvit með bröndóttum flekkjum, að- allega á baki. Hún er ekki eyrnamerkt og ekki með ól. Ef einhver veit hvar hún á heima eða kannast við hana, vinsamlega hafið samband í síma 564 1711. Norskur skógar- köttur týndur SVARTUR norskur skóg- arköttur með hvítar lopp- ur, trýni og bringu týndist frá Laugarnesvegi fyi-ir u.þ.b. 2 vikum. Hann er ómerktur. Upplýsingar í síma 553 7001 eða 588 7911. Morgunblaðið/Rúnar Þór MORGUNBLALÐIÐ birtir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynning- um og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100. Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Ast er... að átta sig á að kona býr líka í húsinu. Víkverji skrifar... AUGLÝSING sú, sem Lands- virkjun birti í dagblöðunum þremur sl. laugardag, sama dag og fundur var haldinn í Háskólabíói til varnar hálendinu, hefur vakið bæði athygli og spurningar. Stjórnarfor- maður Landsvirkjunar upplýsti í Morgunblaðinu í fyrradag, að aug- lýsingin hefði verið birt vegna þess, að Landsvirkjun hefði ekki fengið tækifæri tii að koma sínum sjónarmiðum á framfæri á fundin- um. Spumingarnar, sem þetta vekur, eru þessar: er Landsvirkjun annað og meira en fyrirtæki, sem undir- býr byggingu raforkuvera og sér um rekstur þeirra eftir að þau hafa verið byggð skv. útboði? Ekki er Landsvirkjun stefnumarkandi aðili um virkjanir á Islandi - eða hvað? Er það ekki Alþingi, sem tekur ákvarðanir um hvar skuli virkja og hvort? Er það hlutverk Lands- virkjunar að ganga fram fyrir skjöldu og boða ákveðna stefnu í virkjanamálum? Er Landsvirkjun ekki með því að taka fram fyrir hendumar á Aiþingi Islendinga? Landsvirkjun er vissulega þýð- ingarmikið fyrirtæki og á sér merkilega sögu. En það breytir ekki því, að Landsvirkjun hefur ekki verið falið að móta stefnu í þessum málum fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar. Það er Alþingi, sem hefur það vald. Er ekki ástæða til þess að forráðamenn Landsvirkj- unar hugsi sinn gang áður en lengra er haldið? xxx SVEINN Hjörtur Hjai-tarson, hagfræðingur LÍÚ benti á það í sjónvarpsviðtali fyrir helgina, að iækkanir á heimsmarkaðsverði á ol- íu kæmu seint fram í útsöluverði hér á landi en hækkanir kæmu fljótt fram. Nú em olíufélögin að lækka verð á olíu og benzíni. Það er tímabært, að þau svari með rökum staðhæfingu hagfræðings LIÚ, sem áreiðanlega er um leið tilfinn- ing hins almenna borgara. xxx FRÉTT í ríkissjónvarpinu sl. sunnudagskvöld þess efnis, að rannsóknir á heilsufari barna sýndu að það væri stéttskipt, hlýt- ur að valda því að fólk hrökkvi al- varlega við. Hvað er að gerast í velferðarsamfélögum Norðurlanda. Eigum við að trúa því, að þrátt fyr- ir alla þá gífurlegu fjármuni, sem fara í velferðarkerfið, sé svo komið, að lítil efni fólks komi niður á heilsufari barna þeirra? Það er auðvitað óþolandi ástand, sem eng- in þessara þjóða getur verið þekkt fyrir að láta viðgangast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.