Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 87

Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 87
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 87 HERRA- SLOPPAR Herranáttföt Herranáttserkir I_I Ivmpla. Kringlunni 8-12, sími 553 3600 G I V E N C H Y Kynning á nýjasta ilminum EXTRAVAGANCE Móa er ekki bara sögð kynþokkafull og ótrúlega hæfíleikarík í bresku popppressunni. Tónlistin hennar hefur fengið hæstueinkunn, sögð dýrðleg og draumkennd, djössuð og dásamleg. Hildur Loftsdóttir hitti das- aða ferðalanga. „Erum í svaka víking“ /T /S A stofnaði bandið sitt ■ÍVL vyXjLfyi-ir tveimur árum og síðan hefur það spilað víða. Fyrst nýlega hélt hún með strákunum í tónleikaferðalag þar sem þau spila svo til á hverju kvöldi. „Við höfum spilað á dálítið skrítn- um stöðum, og bara eitt og eitt kvöld sem kynningu fyrir iðnaðinn, en það fólk metur tónlist öðruvísi en hinn almenni áheyrandi sem við vorum að spila fyrir í þessari ferð. Það er fáránlegt en við höfum aldrei spilað á Islandi nema á Popp í Reykjavík. Við höldum ekki tón- leika hér fyrr en næsta sumar, og við hlökkum rosalega til. En þetta er ekki beint dæmigerð hljómsveit, eiginlega mjög óvenjuleg í alla staði. Eg byrjaði á að vinna plötuna Universal og hljómsveitin varð til um leið og hún var að þróast. Það er svo mikilvægt fyrir mig að spila fyrii- fólk, mér finnst það bæta miklu við plötuna svo ég varð að stofna hljómsveit til að fylgja henni eftir. Ég hef verið viðriðin alls kon- ar tónlist í gegnum tíðina og mark- miðið með plötunni er að ná fram öllum þeim ólíku þáttum og því fékk ég þessa ólíku stráka með mér. Hjörleifur er úr djassinum, við Bjarki kynntumst þegar dansmenn- ingin var að byrja á fullu og Kiddi er bróðir minn. Við höfum þekkst frekar lengi en aldrei unnið neitt saman af ráði. En núna erum við búin að semja lag saman sem er að koma út á smáskífu." - Kiddi, er stóra systir þín ekkert að frekjast íþér? „Ég er nú eiginlega orðinn stærri en hún. Þetta er því lítið vandamál, við erum hætt að rífast og slást.“ 150 reglur - Var ferðin vel heppnuð? Móa: „Já, við lærðum alveg 150 reglur úr geiranum. Það þarf mik- inn aga til að spila svona á hverju kvöldi, og við lærðum mikið um efn- isski-á tónleika. Þetta var svona æf- ingatúr fyrir okkur sem við eigum eftir að búa að. Næsta ár er mjög þétt í tónleikahaldi, bæði í Banda- ríkjunum, þar sem verður geðveik vinna og við fylgjum risastórum markaðsplönum, og aftur í Englandi. Þetta var því frábær reynsla." - Eitthvað sem kom sérstaklega á óvart? Bjarki: „Við vissum eiginlega ekkert út í hvað við vorum að fara, þannig að við lærðum helling." - Pað hefur gengið vel? Móa: „Stundum var frábært og stundum minna frábært. London var best við okkur, þar var uppselt hjá okkur á vinsælasta tónleika- staðnum og þeir tónleikar voru frá- bærir.“ Hjörleifur: „Það er nú þannig með þetta band, að það er alltaf gaman að spila, okkur fmnst tón- listin svo frábær. Það skiptir mestu máli, því það smitar út frá sér.“ Móa: „Það finnst engum tónlistin skemmtileg nema maður sé að gera hana af sannleika. Áheyrendur skynja það alveg.“ Gamla sveitaballastemmningin - Er gaman að spila fyrir Eng- lendinga? Móa: „Já, mjög gaman, því þeir eru eiginlega sú þjóð sem bjó til popptónlistina. Þar er elsta popptónleikahefð sem um getur. Fólk fer virka daga jafnt sem helg- ar á tónleika, eins og við fórum í bíó. Þau eru ekki að fara á ball, það er ekki ætlast til að maður sé að spila fyrir dansi, þau eru komin til að hlusta á það sem maður er að gera. Hefðin hér er samt ágæt og er að breytast mikið.“ Hjörleifur: „Ég er sammála þessu. Það er mjög ólíkt því að spila hér heima, þar sem er svo mikil krafa um að hljómsveitin sé í stuði. Það er þessi gamla sveitaball- astemmning. Það er mjög gaman að koma í umhverfi þar sem fólk kem- ur til að hlusta á tónlistina.“ Móa: „Þar sem fólk kemur á sömu forsendum og þegar það fer á klassíska eða djasstónleika." - Voinð til að spila fyrír ein- hverja aðdáendur frá fyrrí ferðum? Móa: „Já, og það voru nokkrir sem eltu okkur á milli borga.“ - Va, frábært! Hvemig tilfinning var það? Móa: „Æðisleg! Við fórum í ferð- ina til að skapa okkur gott orðspor og það tókst. Við höfum fengið góða umfjöllun sem tónleikaband." Bara fyrir Guð - Hvað finnst ykkur almennt um þá umfjöllum sem þið hafið fengið? Móa: „Við tökum öllu með stóískri ró. Gagnrýni er bara gagn- Allt það versta sem gat hent gerðist ►LEIKKONURNAR Anne Heche og Ellen DeGeneres segja að þær hafi verið lokaðar úti í Hollywood eftir að þær „koinu út úr skápnum" í viðtali í LA Times. Segja stöllurnar að þær hafi fengið ósanngjarna meðferð hjá stærstu kvikmyndafyrirtækjum borgarinnar og komið hafi verið fram við þær af óvirðingu. „Allt það sem ég óttaðist að myndi henda gerðist," seg- ir DeGenereris. „Eg missti sjónvarpsþáttinn og þurfti að svara endalausum árásum. Auk þess urðu tekjur rnínar að engu eftir að sjónvarpsþátturimi Ellen var tekinn af dag- skrá. En þrátt fyrir að erfiðleikar hafi beðið þeirra stall- systra er margt á döfinni hjá þeim. Heche leikur í endur- gerð Psycho, sem verður frumsýnd vestanhafs 4. desem- ber nk., og DeGeneris mun leika í þremur væntanlegum kvikmyndum, m.a. „Goodbye Lover“ sem sýnd verður í desember og „edTV“ nýrri gamanmynd með Ron Howard sem kemur líklega fyrir sjónir almennings næsta vor. Morgunblaðið/Golli HJÖRLEIFUR trommuleikari, Kristinn bassaleikari, Bjarki forritari og Móa spá í framtíð- ina. Þórhall Berginann vantar á myndina. rýni, og listamenn eiga ekki að taka of mikið mark á henni. Maður gerir þetta bara fyrir Guð ekki gagn- rýnendur. Annars hef ég bara lesið jákvæða dóma.“ Kristinn: „Er það ekki bara á ís- landi sem maður hefur fengið nei- kvæða dóma? Og það frá einhverju fólki sem er ekki inni í málunum og hefur ekki séð okkur spila á tón- leikum úti.“ Móa: „Við höfum verið mjög heppin með umfjöllum miðað við það að við erum að stíga okkar fyrstu skref.“ - Hvað var annars skemmtileg- ast? Bjarki: „Að spila og ferðast.“ Hjörleifur: „Að komast í burtu frá Islandi í smátíma." Kristinn: „ Það var gaman að spila fyrir áhorfendur sem þekktu ekki ömmu eða frænku. Eða fyrir einhvem sem var með mér í skóla og dæmir mig út frá því hvað ég var lélegur í stærðfræði. Eða á gít- ar.“ Hjörleifur: „Líka að vita að þetta gengur upp, því við fengum svo góð viðbrögð." Kristinn: „Við vitum samt ekkert hvað gerist í næstu tónleikaferð, þótt þessi hafi verið frábær.“ Móa: „Það ver skemmtilegast að fá hrein viðbrögð. Fólk veit ekkert um mann, og bara dæmir mann af því sem það heyrir. Það hefur verið mjög hollt fyrir okkur, og við erum í svaka víking,“ sagði Móa að lok- um, sem að nokkrum dögum liðnum flýgur til Frakklands og Englands í enn fleiri viðtöl, enn fleiri mynda- tökur og enn fleiri kynningar á nýju plötunni sinni Universal. Diljá Tegeder, snyrtifræðingur, kynnir og leiðbeinir 20% afsláttur eða spennandi kaupauki. GRAFARVOGS APÓTEK Hverafold 1-5, s. 5871200. v^mb l.is ALUTAf= e/TTH\SA£y tJÝT~1 Laugavegi 20, sími 562 6062.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.