Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 96

Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 96
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: ItlTSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Útsvar hækkar í Reykjavík um 0,75% Færir borgarsjóði tæpan - milljarð króna á ári SAMÞYKKT var á aukafundi borg- arstjómar Reykjavíkur í gærkvöld að hækka útsvarshlutfall á næsta ári í 11,99% úr 11,24%. Er gert ráð fyrir að þetta færi borgarsjóði um 970 miiljónir króna á ári. Einnig var samþykkt tillaga meirihlutans um að eigið fé hins nýja orkufyrirtækis verði fært niður. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mælti fyrir þessum ráðstöfunum í ýtarlegri ræðu. Hún sagði þrennt vinnast með þeim. „Borgarsjóður verður rekinn án halla, skuldir borgarsjóðs munu Rékka og nauðsynlegum verkefnum og þjónustu við borgarbúa verður sinnt hér efth- sem hingað til.“ Borgarstjóri sagði verkefnum hafa verið forgangsraðað í þeirri fjárhagsáætlun sem nú lægi fyrir og að hugmyndin væri að leggja fram fljótlega eftir næstu áramót hug- myndir um forgangsröðun út kjör- tímabilið. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins gagnrýndu tillögur meiri- hlutans og töluðu um svik við kjós- endur aðeins sex mánuðum eftir kosningar. „Þrátt fyrir stórauknar skatttekjur borgarinnar og veru- lega hærri arðgreiðslur fyrirtækja til borgarsjóðs getur meirihlutinn ekki látið enda ná saman og verður að loka fjárhagsáætlun með gríðar- legum útsvarshækkunum á borgar- búa,“ segir í bókun sjálfstæðis- manna. „Jafnframt hefur verið ákveðið með stofnun nýs orkufyrir- tækis að skuldsetja fjrirtækið um marga milljarða króna og setja þá peninga inn í borgarsjóð til að standa undir eyðslustefnu borgar- innar og þeim skuldum sem hún hefur leitt af sér.“ Hækkun í Vestmannaeyjum Bæjarstjórn Vestmannaeyja hef- ur samþykkt að hækka útsvarspró- sentu um 0,7%, úr 11,24% í 11,94%, að því er fram kom við umræður í borgarstjórn í gærkvöldi. ■ Tekjur borgarsjóðs/12-15 Borgin sveipuð ljósadýrð JÓLALJÓSIN setja nú óðum svip sinn á höfuðborgina ásamt öðrum skreytingum sem til- heyra jólahátíðinni sem nálg- ast, en í svartasta skammdeg- inu og dimmviðrinu sem verið hefur undanfarna daga varpar ljósadýrðin kærkominni bii-tu á mannlífíð. Fyrirtæki og stofn- anir láta ekki sitt eftir liggja við að skrýða borgina jólaljós- um. Mest er um dýrðir við verslanamiðstöðvar og helstu verslunargötur.Við Austurvöll var verið að koma ljósaseríu fyrir á húsi Landssímans þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar um fyrir helgina. Fay Weldon Sjálfstætt fólk bók 20. aldar BRESKI rithöfundurinn Fay Weld- on telur Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness vera bestu bókina sem skrif- uð hefur verið á þessari öld. Weldon er ein fjölmargra sem breska blaðið Independent fékk til að velja bestu bókina. Segir hún mai’gar ástæðui- fyrir vali sínu, m.a. þá að Sjálfstætt fólk minni sig á söguleg rússnesk skáldverk frá síðustu öld. Weldon gerh- grein fyrir höfundin- um og segir þá ma.: „... ljóðskáld sem skrifar út á enda hverrar línu, hugsjónamann sem leyfir söguþráð, hann hefur yfirsýn Tolstojs, fléttar kímninni saman við líkt og Evelyn Waugh; það verður ekki hjá því kom- ist að heillast. Þetta er alvöruefni.“ ■ Bók aldarinnar/B3 Könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi stjórnmálaflokkanna Samfylking tapar 6% fylgi FYLGI Samfylkingar jafnaðarmanna minnkar úr 22,3% í 16% samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Islands hefur gert fyrir Morgunblaðið á fylgi stjórnmálaflokk- anna. Fylgi Frjálslyndra mælist 2,8% og er óvíst um hlutföll milli Frjálslynda flokksins og Frjáls- lynda lýðræðisflokksins. Fylgi vinstraframboðs- ins, mælist 3,7%. Af þeim, sem afstöðu tóku í könnuninni, sögð- ~ ust 44,8% kjósa Sjálfstæðisflokkinn. í síðustu skoðanakönnun sögðust 42,9% kjósa flokkinn en fylgi hans í kosningunum í apríl 1995 var 37,1%. 19,7% svarenda kváðust mundu kjósa Fram- sóknarflokkinn. Fylgi flokksins mældist 20,1% í síðustu könnun en kjörfylgi hans var 23,3% í síð- ustu alþingiskosningum. ^ 16,0% kváðust mundu kjósa Samfylkingu jafn- -^iarmanna. Fylgistap Samfylkingarinnar er Vinstraframboð stærra en Frjálslyndir 6,3% frá síðustu könnun, þegar 22,3% nefndu þann kost. Fleiri nefna hins vegar Alþýðubandalagið en í síðustu könnun. Þá kvaðst 3,1% kjósa Alþýðu- bandalagið en 6,5% þátttakenda nefndu flokkinn nú. Lítil breyting varð á fjölda þeirra sem nefndu Alþýðuflokkinn. 4,5% segjast kjósa hann nú en 4,1% í könnuninni í september. 3,7% svarenda nefndu vinstraframboðið, sem kennt hefur verið við Steingrím J. Sigfússon. í síðustu könnun nefndu 3,1% þann kost. 2,8% nefndu Frjálslynda en 3,3% í september. í greinargerð með könnuninni segir að hún hafi verið langt komin þegai- til klofnings kom með Frjálslyndum og Frjálslyndum lýðræðissinnum. Ekki sé hægt að aðgreina fylgi þessara tveggja flokka. 0,9% þátttakenda í könnuninni nefndu Kvennalista. 0,6% nefndu Kvennalistann í síð- ustu könnun. Fram kemur að sé fylgi þessara stjórnarand- stöðuflokka slegið saman við fylgi samfylkingar- innar fái hún 27,9% en 31,6% ef fylgi vinstra- framboðsins er lagt þar við. Frá síðustu kosning- um hefur fylgi þessara flokka, ásamt Þjóðvaka, minnkað um 6%. Könnunin var gerð með símaviðtölum frá 21.-28. nóvember meðal 1.500 manna úrtaks, á aldrinum 18-75 ára, sem valið var af handahófi úr þjóðskrá. Svör fengust frá 1.053, eða 70,2%. Morgunblaðið/Ásdís ■ Hægt að búa tiI/49 Margrét Guðnadóttir hefur búið til bðluefni gegn visnu Getur gagnast í baráttu við eyðni visnu/mæðiveiki í sauðfé, sem er skæður sjúkdómur og veldur miklu tjóni á meginlandi Evrópu. „Eyðniveiran er mjög lík veirunni sem veldur mæðiveiki og visnu. Þær tilheyra allar sama veiruflokknum og eru með erfðaefni sem er að stónim hluta eins. Sjúkdómsmyndin í kind- um og í fólki er ekkert ósvipuð. Það líður langur tími frá því viðkomandi smitast þangað til hann verður veik- ur. Ef það er hægt að bólusetja fyiir annarri veikinni myndi ég halda að það sama ætti við um hina,“ sagði Margrét. „Það sem ég hef reynt að gera er að spyrja að því hvort það sé hægt að bólusetja með hefðbundnum aðferðum gegn svona sjúkdómi. Mitt svar er já.“ I tOraun Margrétar voru notaðir nokki-ir tvflembingar. Annað parið var bólusett, en hitt ekki. Síðan var féð sett saman við sýkta hjörð. Að fjórum árum liðnum voru allar óbólusettu kindurnar sýktar, en að- eins tvær bólusettar. Þrjár bólusett- ar voru algerlega ósýktar. MARGRÉT Guðnadóttir prófessor segir að tilraunir sem hún gerði með bólusetningu gegn visnu í sauðfé sýni að það sé hægt að búa til bólu- efni gegn hæggengnum veirusjúk- dómi eins og eyðni. Bóluefni, sem hún bjó til, gefur tilefni til að ætla að komin sé fram öflug vörn gegn Dounreay brátt lokað DOUNRE AY-endurvinnslu- stöðinni í Norður-Skotlandi verður lokað snemma á næstu öld. Þrátt fyrir að endur- vinnslu geislavirkra efna verði hætt í Dounreay mun það ekki minnka verulega það magn sem Bretar losa árlega af geislavirkum efnum í hafið. Að sögn dr. George Hunter, deildarstjóra í skosku um- hverfismálastofnuninni, er um- fang Dounreay-stöðvarinnar mun minna en umfang endur- vinnslustöðvarinnar í Sellafield og segir hann að það magn geislavirks úrgangs sem losað er í hafið frá Dounreay sé hverfandi miðað við það magn sem losað er frá Sellafield. ■ Dounreay-stöðin/18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.