Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ pETTA Eft /MYMD 5E/H VAK 7EK- . iN AT MéfZ þ&GAR &S VAIS AE> | 0*L6Ð <3HWSr W«NPW Hundalíf B BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 BIJIN undir skólann. Kveðja frá íslandi á Indlandi (OjUW 3/lCÍtJwi bnovfy, 'fJuA, JýLCWs e$- JxcA- CL (ymat idsxu. -ftyi nwfr CivwibmöA' Jöm., Jt-JixxnaXeA. cl XjjmlAuÁHSLcL. JttcuxÍi^iAJL. /2-1-17 fabJthn,itJ!a$b! Kæri Snati bróðir. Ég fékk frábæra hugmynd á þessu ári. Ég skreytti þornurt sem jólatré. Það var reglulega fallegt. En síðan fór ég í burtu! * Frá Erlu og Víglundi: KÆRU landsmenn. ABC hjálparstarfi barst ánægju- legt símbréf 8. desember sl. frá Erlu Sigurðardóttur og Víglundi Helgasyni sem stödd voru á Heimili litlu ljósanna á Indlandi. Þar sem þetta heimili hefur verið byggt og rekið fyrir íslenskt fé og margar ís- lenskar fjölskyldur eiga þarna styrktarbörn finnst okkur þetta bréf eiga erindi til þjóðarinnar. Þess má geta að heimilinu hafði ekki verið tilkynnt um væntanlega komu þeirra. „Indlandi, 8. des. ‘98. Kæru ABC félagar og vinir. í byrjun desember 1998 heim- sóttum við Little Lights Orphanage í Gannavaram á Indlandi. Við höfð- um ferðast um Indland í 2 mánuði áður en við heimsóttum litlu ljósin og vissum því aðeins við hverju var að búast. Heimili litlu ljósanna er heimili af Guðs náð og andrúmsloftið þar er afar friðsælt og gott að öllu leyti. Umsjónarmanni litlu ljósanna, Samuel Motupalli, hefur tekist mjög vel að gefa börnunum gott heimili, heimili öryggis og umhyggju. En það er einmitt það sem þessi for- eldralausu börn þurfa. Skipulagið á hlutunum hér er mjög gott, enda annað ekki hægt þegar um u.þ.b. 1.500 börn er að ræða. Svæðið sem Heimili litlu ljósanna hefur til um- ráða saman stendur af skóla með um 20 skólastofum, 3ja hæða stóru húsi sem þau sofa í, húsi sem þau borða í og þar sem eldað er ofan í þau, nýju húsi þar sem öll klósettað- staða er, húsi með sturtuaðstöðu, en öll bömin fara í sturtu á hverjum morgni, og svo húsi fyrir starfsfólk og hjálparfólk. Einnig eru þau með lítið „fjós“ undir buffalóana sína þar sem þau fá alla mjólkina fyrir heim- ilið. Einnig er í smíðum nýr matsal- ur og annað hús fyrir börnin sem kemst í gagnið innan skamms en það er mikil þörf á meira plássi hér því barnahópurinn verður æ stærri. Það eru nú um 1.500 börn hér, en Samuel þekkir þau öll með nafni og hann neitar aldrei neinum um heim- ili hér ef börn koma inn af götunni. Dagur barnanna er í stuttu máli svona: Þau vakna kl. 8 á morgnana og fara þá í sturtu. Svo er borðaður morgunmatur og skólinn byrjar kl. 10, en það er skóli alla daga nema sunnudaga. Það eru margir bekkir frá 1. bekk upp í 10. bekk og er börnunum raðað niður eftir getu og aldri. Þau eru í mörgum fögum eins og t.d. hindí (en hér er talað telugu), ensku, stærðfræði, vísindum og samfélags- og félagsfræði. Kl. 12 er svo hádegishlé og skólanum lýkur kl. 4.30. Þá hafa þau frían tíma fram að kvöldmat og eftir kvöldmat, og svo er fai'ið að sofa kl. 9. Stúlkurnar sofa á einni hæð og strákarnir á einni. Þau hafa hvert sína strámottu til að sofa á á gólfinu og teppi til að breiða ofan á sig. Svo á hvert barn sinn kistil þar sem það geymir sína hluti. Okkur var mjög vel tekið hér og börnin voru afar spennt yfir því að fá heimsókn frá Islandi. Litlu ljósin hafa það afar gott hér og það kom okkur í raun á óvart hversu allt var hreint hér og fínt miðað við Indland - en þetta er jú lítið Island á Ind- landi. En þörfin er mikil á góðum stuðningi frá okkur Islendingum. Þau stóla öll á okkur. Þau vantar t.d. dýnur til að sofa á, stóla fyrir börnin og bækur á tómt bókasafnið sitt. Einnig er komin þörf fyrir skóla hér á menntaskólastigi, því börnin sem hér eru búin með 10. bekk, eru oft- ast ekki tilbúin að fara út af heimil- inu í skóla annars staðar. Draumurinn er að gera þennan stuðning við munaðarleysingjana að keðjuverkandi samstai'fi. Þegar þau eru orðin stór og búin að læra hér á heimilinu í skóla og á lífið, þá hjálpi þau næstu börnum. Þetta er allt á góðri leið. Kæru félagar, það vantar meiri stuðning. Látið vini og ættingja vita af þessu og biðjið þá um að hjálpa líka. Fyrir okkur Islendinga er þetta ekki miklir peningai- á mánuði - en fyrir litlu ljósin er þetta líf. Kveðja frá Islandi á Indlandi. Erla og Víglundur." Um leið og við óskum ykkur öll- um gleðilegrar jólahátíðar og þökk- um stuðning ykkar við bágstödd börn, viljum við vekja athygli á að um 500 börn á Heimili litlu ljósanna vantar enn stuðningsaðila. F.h. ABC hjálparstarfs, GUÐRÚN MARGRÉT PÁLSDÓTTIR. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni tii birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. j'VtMr r' ..••fc-.laiwt1-' &íÉfc£;aftKúi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.